Morgunblaðið - 15.05.1999, Síða 65

Morgunblaðið - 15.05.1999, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 65 „Læknamafían“ styður Kára Á undanfornum miss- erum hefur því verið haldið mjög á lofti, að Kári sé búinn að svipta „læknamafíuna" völd- um sínum og áhrifum. Þess vegna snúist hún gegn gagnagrunninum í reiði og öfund. Hér gætir mikils misskiln- ings og kem ég að því síðar. En hvað er ann- ars mafía? „Samá- byrgðarklíka, hópur manna þar sem hver hylmir yfir ávirðingar eða afbrot annarra í hópnimi án tillits til þeirra sem utan við standa“, segir í Is- lenzkri orðabók Menningarsjóðs. Fæstir hafa þó nákvæma skilgrein- ingu orðsins á hraðbergi en margir minnast sjálfsagt frægra orða Ólafs Jóhannessonar, þáverandi forsætis- ráðherra, í öðru samhengi: „Mafía er hún og mafía skal hún heita“. Að svo miklu leyti sem íslenzk „læknamaf- ía“ er til fylkir hún sér að baki Kára og gagnagrunninum. Enginn getur þjónað tveimur herrum Fyrir nokkru fjallaði ég í grein í Morgunblaðinu um samstarfslækna Islenzkrar erfðagreiningar. Þessir læknar trúa undantekningalítið á mátt einkaframtaksins og eru allir með mörg jám í eldi. Eg trúi sjálfur skilyrðislaust á mátt einstaklingsins enda hefur sú trú skilað mér drjúg- um árangri á mörgum sviðum. En líkt og Hannes Hólmsteinn, sem kennir skoðanir sínar við Chicago- skólann, trúi ég því jafn staðfastlega og hann að enginn geti þjónað tveim- ur herrum og verið báðum trúr. Svei mér þá ef íslenzk lög eru ekki eitt- hvað farin að taka mið af þessu. Þetta skilja líka allir heiðvirðir menn. Aldrei myndi Morgunblaðið leyfa starfsmönnum sínum að vinna hjá öðru fyrirtæki, a.m.k. ekki í sömu grein. Starfsmenn hins öfluga fyrirtækis, Islenzkrar erfðagreining- ar, eru bundnir þagnareiði um starf- semi fyrirtækisins og sverja því trúnað. Vinna því hvergi annars staðar eins og eðlilegt er. Svona heiðarlegt einkaframtak styð ég heilshugar. Þegar siðferði Hannesar Hólmsteins hefur verið innleitt um allt hið íslenzka þjóðfélag, ekki sízt spillingarbáknið sem kallast hið op- inbera, skal ég endanlega gera Hannes Hólmstein að leiðtoga lífs míns. Leikið mörgum skjöldum í fyrmefndri blaðagrein gagn- rýndi ég samstarfslækna íslenzkrar erfðagreiningar harðlega fyrir hræsnisfullan tvískinn- ung, sem réttar væri að kalla þrískinnung. Þeir styðja bæði fyrirtækið Islenzka erfðagreiningu og gagnagrunnsfrum- varp þess. A sjúkrahús- unum, þar sem þeir vinna eitt af nokknim störfum sínum, hafa þeir gert sér lítið fyrir og tekið gögn sem þeir hvorki eiga né hafa skráð (heldur aðstoðar- læknar) og verzlað með í eigin ábataskyni í svokölluðum erfðarann- sóknum við einkafyrir- tækið íslenzka erfða- greiningu. Væru sjúka- húsin rekin á þann hátt sem við Hannes Hólmstein vildum væri fjöldi manns búinn að fá reisupassann. Að ég tali nú ekld um ef þau væru jafn- vel rekin og íslenzk erfðagreining. Þessu næst styðja samstarfslækn- Gagnagrunnur Að svo miklu leyti sem íslenzk „læknamafía“ er til, segir Jóhann Tómasson, fylkir hún sér að baki Kára og gagnagrunninum. amir heilshugar að íslenzkri erfða- greiningu verði afhentar ókeypis all- ar sjúkraskrár sjúkrahúsanna, skráðar af aðstoðarlæknum fyrr og síðar, til að nota í svokallaðan mið- lægan gagnagrunn fyrirtætósins. Gagnagrunn, sem á ekkert skylt við vísindi og er gagnslaus sem slíkur og í versta falli stórhættulegur. Þar standa erfðarannsóknir IE hins veg- ar undir nafni. En ektó sízt stunda samstarfslæknar íslenzkrar erfða- greiningar umtalsverðan stofuprax- is. Enginn veit raunar hversu mitónn nema ef til viU launadeild Trygginga- stofnunar ríkisins. Enginn veit held- ur hversu vel sjúklingagögn þeirra eru skráð á einkastofunum eða hvort þau eru nokkurs virði í gagnagrunn auravinarins, forstjóra Islenzkrar erfðagreiningar. Það stóptir heldur ektó máli. Þessi gögn neita þeir hvort sem er að afhenda. Telja sig líka hafa þegar gert vel við Kára. En getur Davíð Oddsson ektó ráðstafað þessum gögnum líkt og öllum hin- um? Nei ektó einu sinni hann, sjálfur einvaldurinn. Þau njóta nefnilega friðhelgi einkaréttarins! En sam- starfslæknana kalla ég hiklaust þre- falda í roðinu. Beðizt afsökunar Að lokum langar mig til að biðjast velvirðingar á mistökum sem mér urðu á í fyrmefndri Morgunblaðs- grein. Þegar gagnagmnnsfrumvarp- ið var kynnt fyrst fyrir læknum á fundi á Landspítalanum 3. apríl 1998 talaði fyrir því Kristján Erlendsson, læknir og skrifstofustjóri í heilbrigð- isráðuneytinu. Sjaldan hef ég séð jafnlítið upplitsdjarfan framsögu- mann. Þetta dæmalausa mál hafði enda verið unnið af slíkri leynd um veturinn að jafna mátti við hemaðar- innrás úr heiðskíru lofti, þegar það skall yfir þjóðina. Andrúmsloftið á fundinum var lævi blandið. Flestir voru orðlausir af undrun og alls óvit- andi. Nokkrir vissu meira, en létu ekkert í Ijós. Ektó þá. Þama á fundinum sagði mér Gísli Einarsson endurhæfmgarlæknir, að hann hefði heyrt að Kristján Er- lendsson væri þegar búinn að ráða sig hjá Islenzkri erfðagreiningu síð- ar á árinu. Því kvaðst ég ektó trúa, enda Kristján gamall skólabróðir minn og hélt á þessum tíma heil- brigðisráðuneytinu á floti. Þetta átti hins vegar eftir að reynast rétt þótt mér sé kunnugt um að Kristján hafi neitað þegar hann var spurður beint. Auðvitað mega menn stópta um starf ef annað betra býðst. Ektó spuming eins og nú tíðkast að segja. Það gerðist hins vegar einnig um haustið að auk framkvæmdastjórastarfs hjá Islenzkri erfðagreiningu var Krist- ján ráðinn í 30% starf á Landspítal- anum. Svona nokkuð stendur í mér og átrúnaðargoði mínu Hannesi Hólmsteini. Raunar er ég forviða á að forstjóri íslenzkrar erfðagrein- ingar skuli gera þessa undantekn- ingu og leyfa þessum eina starfs- manni af öllum að „þjóna tveimur herrum“. Mér varð það hins vegar á að segja að tveir prófessorar á Land- spítalanum og samstarfslæknar ís- lenzkrar erfðagreiningar hefðu kom- ið þessari ráðningu Kristjáns á Landspítalanum í kring. Þetta er að vísu rétt og mér sagt af lækningafor- stjóra Landspítalans, Þorvaldi Veig- ari Guðmundssyni. Af óskiljanlegum ástæðum sýndi ég það dómgreindar- leysi og prófessorunum þá óverð- stóilduðu tillitssemi að nafngreina þá ektó um leið og ég bakaði öðrum með því óþægindi. Fyrir þetta hef ég ver- ið gagnrýndur harðlega og réttilega. Þessir prófessorar, sem hafa raunar áður komið eftirminnilega við sögu í svokölluðu Keldnamáli 1993, heita Þórður Harðarson og Helgi Valdi- marsson. Ég bið alla hlutaðeigendur innilega afsökunar á þessum mistök- um mínum. Höfundur er læknlr. Jóhann Tómasson I nýju f-series pallbílunum situr notagildið í fyrirrúmi en jafnframt fullnægir Ford óskum kröfuhörðustu kaupenda um útlit, öryggi og þægindi. * Nýjar og enn öflugrl vélar Nú einnlg Power Stroke V8 Turbo Diesel 7,3 lítra Í.41-JV VI r-210 • Meíra rými, aukinn togkraftur og burðargeta • Enn meira öryggi; loftpúðar fyrir ökumann og farþega § - Nú er fáanlegur 4 hurða SuperCab brimborg Bíldshöfða 6 • Sími 515 7010 Fréttir á Netinu ^mbl.is A.LLTA.f= £ITTH\SA£J NÝTT~ avital / Þjófavörn oq þatglndi , $£,* y JB ■ V t t SPORTBÍlASli^ /\ \/ I T /\ L_ LAUGARDAtSHÖttlNNI I3.-I6.MAÍ ftF FLOTTUSTU ___ SPORTBILUM LRNDSINS o fotnað frí Ferrari Formula 1 bíll Michaels Schumacher • fludi TT • Porsche Boxter • Ferrori F355 flögangseyrir 7 0 0,- kronur. Fritt fyrir yngri en 12 oroi OpiS fimmtudag og föstudag 14-23. OpiS laugardog og sunnudag 11-23. 1. N N I ____________________________
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.