Morgunblaðið - 15.05.1999, Page 68
68 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Verslunin
Veiðimaður-
inn ekki
starfandi“
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá stjóm
verslunarinnar Veiðimannsins:
„I morgunblaðinu þann 13.5.1999
birtist frétt, sem er efnislega röng.
Par segir að Verslunin Veiðimaður-
inn sé í eigu Bráðar ehf. Verslunin
Veiðimaðurinn er í eigu Veiði-
mannsins ehf. Bráð ehf. tók versl-
unina á kaupleigu með 10 ára samn-
ingi. Samningnum hefur verið sagt
upp því Bráð hefur misnotað nafn
Veiðimannsins, ekki greitt fyrir
kaupleiguna og á öðram vanskilum.
Bráð á ekki og mun ekki eignast
Verslunina Veiðimanninn. Verslun-
in Veiðimaðurinn er ekki starfandi
nú sem stendur.
Veiðimaðurinn vísar öllum við-
skiptavinum sínum á stór-Reykja-
víkursvæðinu, sem þurfa á viðhalds-
þjónustu með veiðistangir og veiði-
hjól að halda, að snúa sér til Útilífs,
Vesturrastar eða Intersport. Nán-
ari upplýsingar fyrir alla viðskipta-
vini Veiðimannsins fást í grænni
línu 800 5566. Vörur sem Veiðimað-
urinn hefur umboð fyrir s.s. ABU-
Carcia, Berkley, Fenwick, House of
Hardy. Snowbee, Airflo o.fl. fást hjá
áðurnefndum verslunum og í Sport-
kringlunni, ' Veiðivon, Veiðilist,
Veiðibúð Lalla, Músík og sport,
Húsasmiðjunni og hjá fleirum.
Fjallasyrpa
Utivistar
UNDANFARIN ár hefur Útivist
haft fjallasyrpur á ferðaáætlun. Nú
býður Útivist upp á tvenns konar
göngu í tengslum við fjallasyrpu.
Bæði er gengið á valin fjöll og boðið
upp á láglendisgöngur.
Fjallasyrpan er á dagskrá hálfs-
mánaðarlega ýmis á sunnudegi eða
laugardegi og verður gengið á átta
fjöll. Fyrsta fjallið, 16. maí, átti að
vera Þríhyrningur í Rangárvalla-
sýslu, en vegna aurbleytu í vegum
þarf að breyta til og gengið verður
á Skálafell sunnan Hellisheiðar í
staðinn.
Annað fjallið sem gengið verður
á er Botnsúlur, síðar í sumar verð-
ur gengið á Heklu, Ok og Bláfell á
Kili. Einnig á fáfarnari fjöll, Haf-
ursfell á Mýrum, Skriðuna í Ames-
sýslu og Skessuhorn í Skarðsheið-
inni.
I allar ferðir verður farið með
rútu frá BSÍ. Brottför er á mis-
munandi tímum. Yfirleitt er farið
kl. 10.30 að morgni en í lengri ferðir
er lagt af stað kl. 9 að morgni. Ekki
þarf að tilkynna fyrirfram um þátt-
töku, heldur einungis að mæta við
BSI í góðum skóm og með nesti til
dagsins. Veitt verða þátttökuverð-
laun þeim sem fer í allar fjallgöng-
urnar.
Opinber
fyrirlestur
DR. Jussi Hanhimáki, lektor við
London School of Economics, flytur
fyrirlestur mánudaginn 17. maí kl.
17.15 á vegum sagnfræðiskorar Há-
skóla Islands. Fyrirlesturinn fjallar
um viðbrögð Vestur-Evrópubúa við
uppgangi McCarthyismans í Banda-
ríkjunum á fyrri hluta 6. áratugarins
og áhrif hans á samskipti Bandaríkj-
anna og Vestur-Evrópu. Fyrirlest-
urinn nefnist: „The Best Friend of
Communism“: Western European
Reactions to McCarthyism.
Jussi Hanhimáki lauk doktors-
prófi við Boston University árið
1993 og hefur kennt við -London
School of Economics frá árinu 1995.
Hann er höfundur tveggja bóka um
stefnu Bandaríkjanna gagnvart
Norðurlöndum, auk þess sem hann
hefur skrifað fjölda greina um
bandaríska utanríkisstefnu, hlut-
leysisstefnuna og slökunarstefnuna
á kaldastríðstímanum. Hann er nú
að vinna að bók um áhrif McCarthy-
ismans í Vestur-Evrópu og þau
menningarátök, sem fylgdu kalda
stríðinu á 5. og 6. áratugnum.
Fyrirlesturinn, sem verður fluttur
á ensku, verður í Arnagarði, stofu
301, og hefst kl. 17:15. Fyririestur-
inn er öllum opinn.
Fjölskyldu-
garðurinn
opnaður í dag
FJÖLSKYLDUGARÐURINN verð-
ur opnaður í dag, laugardaginn 15.
maí, eftir vetrarfrí.
Ýmsar breytingar hafa verið gerð-
ar á garðinum t.d. er komin ný tor-
færubraut ásamt því að fjölbreytni
fyrir yngstu kynslóðina hefur aukist
til muna, segir í fréttatilkynningu.
Einnig breytist opnunartími Fjöl-
skyldu- og Húsdýragarðsins og sum-
ardagskrá tekur gildi. Nú verður
garðurinn opinn alla daga frá kl.
10-18.
Fagranes í
stað Herjólfs
KOMIÐ hefur í ljós að skemmdir á
„ugga“ Herjólfs eru enn meiri en
áætlað var þannig að viðgerðin mun
taka lengri tíma. Nú er áætlað að
viðgerðin í slipp taki um 7 sólar-
hringa og heimkoma skipsins frest-
ast því a.m.k. fram yfir hvítasunnu
ef allt stenst.
Búið er að leigja m/s Fagranes til
að halda uppi áætlun milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar í
næstu viku þannig að fyrsta ferð
skipsins verður frá Þorlákshöfn
mánudaginn 17. maí ki. 13. Síðan er
áætlað að skipið gangi eina ferð á
dag frá og með þriðjudeginum 18.
maí til og með föstudagsins 21. maí.
Farið verður frá Vestmannaeyj-
um kl. 8.15 og Þorlákshöfn kl. 13.
I3ICMIEGA
E-vítamín
UíCMEGA
VfTAMÍN
Sindurvari sem verndar
frumuhimnur líkamans.
Fæst í næsta apóteki.
O
Omega Farma
Frábær sérútbúin fellihýsi fyrir íslenskar aðstæður. Gott rými, yfirburða
tjalddúkur og sterkt þak og gólf eru atriði sem þú vilt vita af í góðu horfi
þegar ferðast er um ísland. Þægindi og öryggi eru staðalbúnaður
Starcraft Arctidine.
OG /KLLT HITT Fí/Vttfio ,
Einföld tjöldun, mikið pláss, áfast eldhús og fortjald, auk frábærrar
endingar eru atriði sem gera Camp-let að einstökum tjaldvagni. Ef
allir vagnar eru skoðaðir sést að betri kostur er varla á boðstólum
Gasvörur, ferða-
klósett og margt
fleira bráðnauð-
synlegt!
Á góðu verði fyrir flestar
gerðir pallbíla.
Frá Isabella og Trio. Heimsþekkt
vörumerki. Gæði sem ná í gegn.
G 0 HELG/fy
Verð frá aðeins kr.
19.900,-
CÍSLI
Opið lau. 10-16
og sun. 13-16.
JÓNSSON ehf
Bfidshöfða 14, 112 Reykjavik, sfmi 587 6644. Umboðsmenn á Suðurnesjum, Toyota-salurinn f Njarðvík, sími 421 4888