Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Muggur
Lúxussnekkja í
Reykj avfkurhöfn
Komin
aftur eftir
fimmtán ár
RÚMLEGA þúsund tonna og 66,7
metra löng lúxussnekkja með 14-15
manna áhöfn er nú stödd í Reykja-
víkurhöfn. Skipið, sem heitir
Amazon Express, kom hingað fyrir
fimmtán árum, en uefndist þá
Kisuca, og var í eigu dansks auðkýf-
ings.
Lystisnekkjanvar upprunalega
ítalskur togari. Árið 1983 var hon-
um breytt og meðal annars settur í
hann fullkominn tölvu- og fjar-
skiptabúnaður. Það var á sinni
fyrstu langferð eftir breytingarnar
þegar það kom hingað fyrir fimmt-
án árum.
Hallur Ámason, starfsmaður hjá
Reykjavíkurhöfn, var hafnsögumað-
ur þegar snekkjan kom hingað síð-
ast og man vel eftir henni. Eigand-
inn, Torben Karlshoy, var Dani,
sem flust hafði til Bandaríkjanna og
auðgast gríðarlega á skiparekstri á
fáum árum. Hann átti skipafélagið
T.K., sem nú nefnist TeéKay shipp-
ing, og er eitt stærsta oh'uflutninga-
fyrirtæki heims. Hallur aðstoðaði
milljónamæringinn við að skipu-
leggja ferðir um landið, meðal aim-
ars til Vestmannaeyja.
Hallur segir að skipinu hafi verið
töluvert breytt frá síðustu heimsókn
þess, en það er, eins og þá, skráð á
Caymau-eyjum í Karíbahafi. „Þetta
var alveg sérlega glæsilegt skip, og
er enn,“ segir Hallur.
Nýr kynn-
ingarfulltrúi
Rauða kross
Islands
ÞÓRIR Guðmundsson hefur
tekið við störfum kynningar-
fulltrúa Rauða kross Islands.
Þórir starfaði sem fréttamað-
ur í um 15 ár, fyrst á DV og
síðar á Ríkisútvarpinu og
Stöð 2. Hann hefur BA-gráðu
í fjölmiðlun frá ríkisháskólan-
um í Kansas og MA-gráðu í
alþjóðasamskiptum frá
Boston-háskóla.
Þóri hefur víðtæka reynslu
af hjálparstörfum. Undanfar-
in þrjú og hálft ár hefur hann
verið sendifulltrúi Alþjóða
Rauða krossins, fyrst á svæð-
isskrifstofunni fyrir Mið-Asíu
í fyrrverandi Sovétríkjunum
og síðan á svæðisskrifstof-
unni fyrir Asíu og Kyrrahafs-
lönd. Hann tekur við af Garð-
ari Guðjónssyni.
Fallist á lagningn
Lokað í dag — Góða helgi
Wítlk Eddufelli 2, Reykjavík
Þverárfiallsvegar
Umhverfisáhrifamat
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
lokið mati á umhverfisáhrifum fyr-
irhugaðra framkvæmda við Þver-
árfjallsveg frá Skagastrandarvegi
til Sauðárkróks og gerði hún
nokkrar athugasemdir m.a. varð-
andi efnistöku úr áreyrum Norður-
ár í Norðurárdal og Laxár í Skaga-
firði, sem og röskun á votlendi.
Þess má geta að Skipulagsstofnun
barst engin athugasemd frá al-
menningi á kynningartíma fram-
kvæmdanna.
Framkvæmdum
ljúki árið 2002
Samkvæmt frummatsskýrslu er
um að ræða nýjan veg um Þverár-
fjall og endurbyggingu Skagavegar
til Sauðárkróks. Um er að ræða
36,4 km langan veg á milli Skaga-
strandarvegar og Sauðárkróks og
1,6 km langa nýja tengingu við
Skagaveg, en þegar framkvæmd-
um lýkur mun Þverárfjallsvegur
ná inn á Sauðárkrók og Skagaveg-
ur tengjast Þverárfjallsvegi með T-
vegamótum. Byggðar verða tvær
nýjar tvíbreiðar brýr, annars vegar
yfir Laxá í Refasveit og hins vegar
Gönguskarðsá við Sauðárkrók.
Stefnt er að því að framkvæmdir
hefjist næsta vor á kaflanum frá
Þverá í Norðurárdal og að Skaga-
vegi og á þeim að ljúka haustið
2002. Fjárveitingar ráða því
hvenær öðrum hlutanum lýk-
ur. Hönnunarhraði vegarins
verður 90 km/klst. og verður
hann lagður bundnu slitlagi.
Skipulagsstjóri ríkisins hef-
ur fallist á framkvæmdirnar
með þeim skilyrðum að aflað
verði heimildar veiðimála-
stjóra áður en efnistaka hefst
úr áreyrum eða árfarvegum
Norðurár í Norðurárdal og
Laxár í Skagafírði. Þá er þess
krafist að samráð verði haft
við Náttúruvernd ríkisins um
afmörkun efnistökusvæða áð-
ur en efnistaka hefst og frá-
gangi þeirra í verklok m.a.
hvað skuli gert við það um-
framefni sem fellur til norðan
Gönguskarðsár. Að lokum
krefst skipulagsstjóri þess að
endurheimt verði álíka stórt
votlendi og raskast vegna
framkvæmdanna og að sam-
ráð verði haft við Náttúru-
vernd ríkisins um gerð áætl-
unar vegna þessa.
Samkvæmt 14. grein laga
nr. 63/1993 má kæra úrskurð
skipulagsstjóra til umhverfisráð-
heira og er kærufresturinn til 27.
ágúst 1999.
UTSALAN
HEFST
miðvikudaginn 4. ágúst
Lokað þriðjudaginn 3. ágúst.
SKÓUERSLUIM
KÓPAV0GS
HflMHftBUKU 3 * ölivn abft 1/Ö4
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á ísafirði
Fagnar kaupunum
HALLDÓR Halldórsson bæjarstjóri
á fsafirði segist fagna kaupum Guð-
mundar Kristjánssonar á hlutafé í
Básafelli hf. „Ég er mjög ánægður
með það þegar menn sjá ástæðu til
að fjárfesta hér í fyrirtækjum og tel
það bera vott um aukna bjartsýni á
horfur hér. Það hlýtur að vera að
menn sjái að hér er gott að reka fyr-
irtæki og arðvænlegt að eiga hlut í
þeim,“ segir Halldór.
Guðmundur Kristjánsson, út-
gerðarmaður frá Rifi, hefur keypt
28,53% hlut Kers ehf. og íshafs hf. í
Básafelli en hann átti fyrir 7,6%
hlut í félaginu. ísafjarðarbær er
næststærsti hluthafinn í Básafelli
með 10% hlut en aðrir einstakir
hluthafar eiga innan við 5% hlut i
félaginu. „Það kom mér reyndar dá-
lítið á óvart þegar fréttist að Olíufé-
lagið hefði selt sinn hlut,“ segir
Halldór, „en við leggjum traust
okkai- á þá sem hyggjast reka fyrir-
tækið og teljum þá vel til þess
fallna."
Tekinn fyr-
ir innbrot
LÖGREGLAN á Selfossi hefur
sleppt karlmanni á fertugsaldri
úr haldi að loknum yfirheyrsl-
um vegna innbrota á Selfossi.
Við handtöku fundust á honum
leifar af amfetamíni.
Maðurinn braust m.a. inn í
skrifstofur Húsasmiðjunnar og
í íbúð í sömu byggingu. Grunur
leikur á að hann hafi brotist
inn i annað fyrirtæki á Selfossi
og stolið veski og yfirhöfn frá
starfsmanni.
Ekki var þörf á því að krefj-
ast gæsluvarðhalds yfir mann-
inum þar sem rannsókn lög-
reglunnar er lokið og málið
upplýst.
-TITflNIC
1 Upprunalegar Ijósmyndir
> Ómetanlegir kristals-og
postulínsmunir
■ Sýndarveruleiki
• Fróðleikur og áður óþekktar
staðreyndir
> Kvikmyndir úr hafdjúpinu
■ Tölvuleikir
> Veitinga-og minjagripasala
I HAFNARFIRÐI
. ..
Stórbrotin sýning um frægastn skip allra tíma
Sýningin er í Hafnarfjarðarleikhusinu og er gengið inn frá Norðurbakka, gengt storu flotkvinm
Opið alla daga frá kl. 10 - 22. Upplýsingar eru veittar í síma 554 0865 og 551 9440