Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/Muggur Lúxussnekkja í Reykj avfkurhöfn Komin aftur eftir fimmtán ár RÚMLEGA þúsund tonna og 66,7 metra löng lúxussnekkja með 14-15 manna áhöfn er nú stödd í Reykja- víkurhöfn. Skipið, sem heitir Amazon Express, kom hingað fyrir fimmtán árum, en uefndist þá Kisuca, og var í eigu dansks auðkýf- ings. Lystisnekkjanvar upprunalega ítalskur togari. Árið 1983 var hon- um breytt og meðal annars settur í hann fullkominn tölvu- og fjar- skiptabúnaður. Það var á sinni fyrstu langferð eftir breytingarnar þegar það kom hingað fyrir fimmt- án árum. Hallur Ámason, starfsmaður hjá Reykjavíkurhöfn, var hafnsögumað- ur þegar snekkjan kom hingað síð- ast og man vel eftir henni. Eigand- inn, Torben Karlshoy, var Dani, sem flust hafði til Bandaríkjanna og auðgast gríðarlega á skiparekstri á fáum árum. Hann átti skipafélagið T.K., sem nú nefnist TeéKay shipp- ing, og er eitt stærsta oh'uflutninga- fyrirtæki heims. Hallur aðstoðaði milljónamæringinn við að skipu- leggja ferðir um landið, meðal aim- ars til Vestmannaeyja. Hallur segir að skipinu hafi verið töluvert breytt frá síðustu heimsókn þess, en það er, eins og þá, skráð á Caymau-eyjum í Karíbahafi. „Þetta var alveg sérlega glæsilegt skip, og er enn,“ segir Hallur. Nýr kynn- ingarfulltrúi Rauða kross Islands ÞÓRIR Guðmundsson hefur tekið við störfum kynningar- fulltrúa Rauða kross Islands. Þórir starfaði sem fréttamað- ur í um 15 ár, fyrst á DV og síðar á Ríkisútvarpinu og Stöð 2. Hann hefur BA-gráðu í fjölmiðlun frá ríkisháskólan- um í Kansas og MA-gráðu í alþjóðasamskiptum frá Boston-háskóla. Þóri hefur víðtæka reynslu af hjálparstörfum. Undanfar- in þrjú og hálft ár hefur hann verið sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins, fyrst á svæð- isskrifstofunni fyrir Mið-Asíu í fyrrverandi Sovétríkjunum og síðan á svæðisskrifstof- unni fyrir Asíu og Kyrrahafs- lönd. Hann tekur við af Garð- ari Guðjónssyni. Fallist á lagningn Lokað í dag — Góða helgi Wítlk Eddufelli 2, Reykjavík Þverárfiallsvegar Umhverfisáhrifamat SKIPULAGSSTOFNUN hefur lokið mati á umhverfisáhrifum fyr- irhugaðra framkvæmda við Þver- árfjallsveg frá Skagastrandarvegi til Sauðárkróks og gerði hún nokkrar athugasemdir m.a. varð- andi efnistöku úr áreyrum Norður- ár í Norðurárdal og Laxár í Skaga- firði, sem og röskun á votlendi. Þess má geta að Skipulagsstofnun barst engin athugasemd frá al- menningi á kynningartíma fram- kvæmdanna. Framkvæmdum ljúki árið 2002 Samkvæmt frummatsskýrslu er um að ræða nýjan veg um Þverár- fjall og endurbyggingu Skagavegar til Sauðárkróks. Um er að ræða 36,4 km langan veg á milli Skaga- strandarvegar og Sauðárkróks og 1,6 km langa nýja tengingu við Skagaveg, en þegar framkvæmd- um lýkur mun Þverárfjallsvegur ná inn á Sauðárkrók og Skagaveg- ur tengjast Þverárfjallsvegi með T- vegamótum. Byggðar verða tvær nýjar tvíbreiðar brýr, annars vegar yfir Laxá í Refasveit og hins vegar Gönguskarðsá við Sauðárkrók. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist næsta vor á kaflanum frá Þverá í Norðurárdal og að Skaga- vegi og á þeim að ljúka haustið 2002. Fjárveitingar ráða því hvenær öðrum hlutanum lýk- ur. Hönnunarhraði vegarins verður 90 km/klst. og verður hann lagður bundnu slitlagi. Skipulagsstjóri ríkisins hef- ur fallist á framkvæmdirnar með þeim skilyrðum að aflað verði heimildar veiðimála- stjóra áður en efnistaka hefst úr áreyrum eða árfarvegum Norðurár í Norðurárdal og Laxár í Skagafírði. Þá er þess krafist að samráð verði haft við Náttúruvernd ríkisins um afmörkun efnistökusvæða áð- ur en efnistaka hefst og frá- gangi þeirra í verklok m.a. hvað skuli gert við það um- framefni sem fellur til norðan Gönguskarðsár. Að lokum krefst skipulagsstjóri þess að endurheimt verði álíka stórt votlendi og raskast vegna framkvæmdanna og að sam- ráð verði haft við Náttúru- vernd ríkisins um gerð áætl- unar vegna þessa. Samkvæmt 14. grein laga nr. 63/1993 má kæra úrskurð skipulagsstjóra til umhverfisráð- heira og er kærufresturinn til 27. ágúst 1999. UTSALAN HEFST miðvikudaginn 4. ágúst Lokað þriðjudaginn 3. ágúst. SKÓUERSLUIM KÓPAV0GS HflMHftBUKU 3 * ölivn abft 1/Ö4 Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á ísafirði Fagnar kaupunum HALLDÓR Halldórsson bæjarstjóri á fsafirði segist fagna kaupum Guð- mundar Kristjánssonar á hlutafé í Básafelli hf. „Ég er mjög ánægður með það þegar menn sjá ástæðu til að fjárfesta hér í fyrirtækjum og tel það bera vott um aukna bjartsýni á horfur hér. Það hlýtur að vera að menn sjái að hér er gott að reka fyr- irtæki og arðvænlegt að eiga hlut í þeim,“ segir Halldór. Guðmundur Kristjánsson, út- gerðarmaður frá Rifi, hefur keypt 28,53% hlut Kers ehf. og íshafs hf. í Básafelli en hann átti fyrir 7,6% hlut í félaginu. ísafjarðarbær er næststærsti hluthafinn í Básafelli með 10% hlut en aðrir einstakir hluthafar eiga innan við 5% hlut i félaginu. „Það kom mér reyndar dá- lítið á óvart þegar fréttist að Olíufé- lagið hefði selt sinn hlut,“ segir Halldór, „en við leggjum traust okkai- á þá sem hyggjast reka fyrir- tækið og teljum þá vel til þess fallna." Tekinn fyr- ir innbrot LÖGREGLAN á Selfossi hefur sleppt karlmanni á fertugsaldri úr haldi að loknum yfirheyrsl- um vegna innbrota á Selfossi. Við handtöku fundust á honum leifar af amfetamíni. Maðurinn braust m.a. inn í skrifstofur Húsasmiðjunnar og í íbúð í sömu byggingu. Grunur leikur á að hann hafi brotist inn i annað fyrirtæki á Selfossi og stolið veski og yfirhöfn frá starfsmanni. Ekki var þörf á því að krefj- ast gæsluvarðhalds yfir mann- inum þar sem rannsókn lög- reglunnar er lokið og málið upplýst. -TITflNIC 1 Upprunalegar Ijósmyndir > Ómetanlegir kristals-og postulínsmunir ■ Sýndarveruleiki • Fróðleikur og áður óþekktar staðreyndir > Kvikmyndir úr hafdjúpinu ■ Tölvuleikir > Veitinga-og minjagripasala I HAFNARFIRÐI . .. Stórbrotin sýning um frægastn skip allra tíma Sýningin er í Hafnarfjarðarleikhusinu og er gengið inn frá Norðurbakka, gengt storu flotkvinm Opið alla daga frá kl. 10 - 22. Upplýsingar eru veittar í síma 554 0865 og 551 9440
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.