Morgunblaðið - 31.07.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VONAST er til að hægt verði að heíja skautaæfingar undir þaki í nóv-
ember næstkomandi.
Bygging skauta-
hallar gengur vel
Byrj að að byggja
við hús Akoplastos
Morgunblaðið/Margrét Þóra
VORSVEINN Friðriksson tekur fyrstu skóflustunguna að nýju húsi
Akoplastos við Þórsstíg, en Eyþór Jósepsson fylgist grannt með að
verkið gangi rétt fyrir sig.
FRAMKVÆMDIR við byggingu
Skautahallar á Akureyri eru nú í
fullum gangi og skautamenn bíða
án efa spenntir eftir því að kom-
ast á svell sem er varið fyrir
veðri og vindum. Það eru SJS
Minnis-
varði vígð-
ur á Dalvík
MINNISVARÐI verður vígð-
ur í kirkjugarði Dalvíkur-
kirkju á morgun, sunnudag-
inn 1. ágúst. Á minnisvarðann,
krosslaga stein, verður skráð
áletrunin „Minning um líf
Við minnisvarðann verður
hægt að leggja blómvendi eða
tendra ljós tO minningar um
þá sem ekki eru jarðsettir í
kirkjugarðinum, hafa týnst,
og einnig aðra ástvini eða
fóstur sem hafa fæðst and-
vana. Einnig er hægt að eiga
hljóða bænastund við stein-
inn.
Minnisvarðinn er hannaður
af Valgerði Tinnu Gunnars-
dóttur, en steinninn var smíð-
aður hjá Steinsmiðju Sigurðar
Helgasonar.
Magnús
Pálsson opnar
tvær sýningar
MAGNÚS Pálsson opnar í
dag kl. 16 vídeóverkið Augn-
tal-trílógíu í Gallerí-t- á Akur-
eyri og í Safnasafninu á Sval-
barðsströnd verður önnur
sýning með myndverkum
hans opnuð. Magnús Pálsson
kom síðast fram á Akureyri
sem höfundur leikmyndar við
sýningu LA á „Himni og jörð“
á Renniverkstæðinu 1997.
Bifreiðastj órar
Hafið bílabænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þig akið.
Drottinn Guð, veít mér
vernd þína, og lát mig
minnast ábyrgðar mínnar
er ég ek þessari bifreið.
i Jesú nafni. Amen.
Fæst í Kirkjuhúsinu
Laugavegi 31, Jötu, Hátúni 2,
Reykjavík, Hljómverí og
Shcllstöðinni v/Hörgárbraut,
Akureyri, Litla húsinu,
Strandgötu 13B, Akureyri.
Verð kr. 200.
Orð dagsins, Akureyri
verktakar ehf. sem sjá um bygg-
ingu hússins og samkvæmt verk-
samningi þá skal húsið vera hæft
til skautaæfinga í nóvember
næstkomandi en verklok eru
áætluð í júlí 2000. Vetraríþrótta-
áhugamenn á Akureyri og í ná-
grenni verða án efa ánægðir þeg-
ar húsið er fullbúið og tilbúið til
notkunnar. Einnig mun húsið
skipta sköpum fyrir það íþrótta-
fólk er stundar fshokkí og aðrar
skautaíþróttir, en aðstöðuleysi
hefur staðið íþróttinni fyrir þrif-
um undanfarin ár.
ÓSKAR Ævarsson úr Grindavík
dó ekki ráðalaus þar sem hann
var á ferðalagi á Akureyri víðs-
fjarri heimahögunum þegar
skipta þurfti um bleiu á syni hans,
Natan Ævari. Ferðalangar þurfa
FERÐAFÉLAG Akureyrar býður
upp á níu ferðir í ágúst og tvær í
september og kennir þar margra
grasa.
Um næstu helgi verður göngu-
ferð frá Ólafsfirði í Héðinsfjörð og
til Siglufjarðar. Ekið verður að
Kleifum í Ólafsfirði, gengið þaðan
um Rauðskörð, Héðinsfjörð og yfir í
hestskarð í Skútudal í Siglufirði og
ekið þaðan heim í hópferðarbíl um
kvöldið. Sigríður María Magnús-
dóttir starfsmaður félagsins segir
að þetta sé árleg ferð á vegum þess
og njóti hún mikilla vinsælda.
Ferðafélagið býður einnig upp á
jeppaferð um komandi helgi, 6. til 8.
ágúst. Ekið verður um Mývatns-
sveit og Dyngjufjalladal í skálann
Dreka þar sem verður gist. Daginn
eftir verður ekið um Brúaröræfi og
Eyjabakkar skoðaðir, en Sigríður
FYRSTA skóflustungan að nýrri
2.200 fermetra viðbyggingu Akopla-
stos við Þórsstíg var tekin í gær, en
það var Vorsveinn Friðriksson
starfsmaður félagsins frá árinu
1972 sem tók með táknrænum hætti
hóf framkvæmdir við bygginguna.
Akoplastos keypti húsnæði Raf-
veitu Akureyrar fyrr á árinu og eft-
ir að viðbyggingin verður risin verð-
ur öll starfsemi fyrirtækisins flutt
þangað. Húsið er stálgrindarhús
með steyptum sökkli, klætt með
stálklæðingu og einangrað með
steinull. Þegar viðbyggingunni
verður lokið verður húsið í heild
tæpir 3.800 fermetrar að stærð.
Tréverk á Dalvík sér um gerð
sökkulsins, stálgrindin og klæðning-
in er keypt í Bretlandi og kemur
hún til landsins í lok ágúst, einangr-
un er frá Steinullarverksmiðjunni á
Sauðárkróki og hefur verið samið
við Norðurstál í Reykjavík um að
reisa húsið, en það verk hefst 3.
september næstkomandi.
Ætla að selja húsnæði
Gert er ráð fyrir að byggingin
verði tilbúin 15. nóvember næst-
komandi og munu framleiðsludeild-
ir og lager íyrirtækisins verða flutt
þangað í kjölfarið en flutningi lýkur
um áramót.
Húsnæði Akoplastos við
Bleiubíll
að nota það sem hendi er næst og
Óskar útbjó bleiuborð á pallbfl
María segir þetta afar vinsælt skoð-
unarsvæði þetta sumarið. Þegar er
búið að bóka mikið í þessa ferð.
Fararstjóri er Ingimar Amason.
Af ferðum síðar í ágúst má nefna
helgarferð í Hvalvatnsfjörð og Flat-
eyjardal. Ekið verður í Kaðalstaði í
Hvalvatnsfirði og gengið þaðan um
Bjamarfjallskriður á Flateyjardal
þar sem verður gist. Seinni daginn
verður gengið um Ytri-Brettings-
staðadal og Jökulbrekku í Kaðal-
staði og þaðan heim. Þá verður létt
gönguferð um ósa Hörgár og til
Akureyrar og einnig verður boðið
upp á ferð frá Ólafsfirði þar sem
gengið verður út yfir Hvanndala-
bjarg og gist í Hvanndölum, en dag-
inn eftir verður gengið yfír Víkur-
byrðu í Víkurdal um Rauðskörð að
Kleifum. Einnig er á dagskrá
gönguferð á Kerlingu í Eyjafirði, en
Tryggvabraut, sem er um 1.800 fer-
metrar, verður selt og einnig um
5.000 fermetra húsnæði fyrirtækis-
ins við Suðurhraun í Garðabæ. Leit-
að verður að minna og hentugra
húsnæði fyrir markaðsdeild og lag-
er fyrirtæksins í Reykjavík.
Nýlega fjárfesti félagið í nýrri
sínum, þar sem hann var staddur í
miðbæ Akureyrar. Elísabet Rán
fylgist með traustum handtökum
föður síns við bleiuskiptin, en fjöl-
skyldan ætlar að dvelja í blíðviðr-
inu norðan heiða í nokkra daga.
um árvissa gönguferð er að ræða á
vegum félagins.
Fimm ferðir um Öskjuveginn
Þá verða þrjár ferðir í ágúst þar
sem genginn verður Öskjuvegurinn
og hafa þá alls fimm ferðir verið fam-
ar þennan vinsæla veg. í einhverjar
ferðir er laust pláss en í aðrar er mik-
ið búið að bóka. Vegna mikillar eftir-
spumar var einni ferð til viðbótar
bætt við, en gert hafði verið ráð fyrir
í áætlun félagsins að fara fjórar ferð-
ir um Öskjuveginn í sumar.
Tvær ferðir eru á dagskrá í sept-
ember, báðar dagsferðir. Hin fyrri
er gönguferð frá Sandvatni í Mý-
vatnssveit í Laxárdal hjá Hólkots-
gili og út með Laxá í gegnum Vara-
staðaskóg að Ljótsstöðum. Seinni
ferðir er gönguferð á Tröllin í Gler-
árdal.
pokunarvél sem kemur til landsins í
ágúst og eins er stefnt að því að
kaupa nýja prentvél sem þjónar
kröfum markaðarins betur en sú
sem fyrir er.
Um 50 til 60 manns munu starfa
hjá Akoplastos í nýja húsnæðinu við
Þórsstíg.
Síðustu
sumartón-
leikarnir
FIMMTU og síðustu sumartónleikar
Akureyrarkirkju 1999 verða haldnir
á morgun, sunnudag, kl. 17. Þar
munu Sigurður Flosason, saxófón-
leikari, og Gunnar Gunnarsson, org-
elleikari, flytja efnisskrána, „sálmar
lífsins“, sem er sálmaspuni á saxófón
og orgel.
Á efnisskránni era aðallega sálmar
úr sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar
og era sumir þeirra fáheyrðir en aðr-
ir hafa lifað með þjóðarsálinni aldir.
Sálmavalið endurspeglar lífshlaup
mannsins eins og það birtist í kirkju-
athöfnum, s.s. skírn, fermingu,
hjónavígslu og jarðarför.
Tónleikarnir standa yfir í klukku-
stund og er aðgangur ókeypis, en
þeir Sigurður og Gunnar munu líka
leika við messu í kirkjunni kl. 11 um
morguninn.
-------------
Söguganga
um Oddeyri
SÖGUGANGA um Oddeyrina á veg-
um Minjasafnsins á Akureyri verður
næstkomandi sunnudag, 1. ágúst.
Leiðsögumaður verður Katrín Björg
Ríkarðsdóttir. Gengið er frá Gránu-
félagshúsunum kl. 14 og tekur gang-
an um eina og hálfa klukkustund.
Þátttaka er ókeypis og eru allir vei-
komnir.
-----♦-♦-♦---
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Messa á
morgun, sunnudag, kl. 11, sumartón-
leikar kl. 17. Á þriðjudag verður
morgunbæn kl. 9 og kyrrðai1- og fyr-
irbænastund á fimmtudaginn kl. 12.
KAÞÓLSKA kirkjan, Eyi'arlands-
vegi 26: messa í kvöld kl. 18 og á
morgun, sunnudag, kl. 11.
HJALPRÆÐISHERINN,
Hvannavöllum 10: lofgjörðarstund á
morgun, sunnudag, kl. 20.
DALVÍKURPRESTAKALL: Hin
árlega skógarmessa í Hánefsstaðar-
eit í Svarfaðardal kl. 14 á morgun,
sunnudag. Sr. Jón Helgi Þórarins-
son, sóknarprestur í Langholts-
kirkju flytur predikun en sóknar-
prestur þjónar fyrir altari.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Ferðafélag Akureyrar stendur fyrir fjölbreyttum ferðum
Níu ferðir í boði í ágúst