Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Draumastaður
ferðamannsins
Munchen
verð frá
Innifalið; Flug, gisting i 2 nætur
á Hótel Ludwig i tveggja manna
herbergi og flugvallarskattur.
Mikið úrval
sumarhúsa í
Þýskalandi,
Ítalíu og víðar
Gildir fyrir eftirfarandi dagsetningar:
23.08-26.08 4 dagar/3 nætur
27.08-29.08 3 dagar/2 nætur
30.08-02.09 4 dagar/3 nætur
03.09-05.09 3 dagar/2nætur
03.09-09.09 7 dagar/6 nætur
10.09-12.09 3 dagar/2 nætur
LTU er annað stærsta flugfélag
Þýskalands og er þekkt fyrir gæði og
góða þjónustu
Upplýsingar og bókanir hjá
LTU á íslandi í síma 587 1919
Pítubrauð,
pítsubotnar,
frönsk
pylsubrauð
Algjört lostæti - lágmarksfyrirhöfn!
Upplagt heima, í útilegunni
og sumarhúsinu.
Fasteignir á Netinu
Vöruskiptajöfnuðurinn 5,3 milljörðum betri fyrstu 6
mánuði ársins en í fyrra
Verðmæti sjávaraf-
urða jókst um 6,1%
VÖRUSKIPT4N W ■■ V . rr* is
VIÐ UTLOND Verðmæti innflutnings og útfiuti jan. - júní 1998 og 1999 1998 (fob virði í milljónum króna) jan.-júní tiings • ' 1999 Breytingá jan.-júní föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 64.654,7 72.749,8 +11,8%
Sjávarafuröir 47.831,9 51.047,9 +6,1%
Landbúnaöarafuröir 762,4 1.076,7 +40,4%
lönaöarvörur 15.150,6 16.984,6 +11,4%
Ál 9.433,8 10.273,5 +8,2%
Kísiljárn 1.348,1 1.431,1 +5,5%
Aörar vörur 909,8 3.640,6 -
Skip og flugvélar 219,8 3.492,7 -
Innflutningur alls (fob) 80.527,6 83.449,5 +3,0%
Matvörur og drykkjarvörur 6.691,6 7.228,5 +7,4%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 20.641,0 19.001,3 -8,5%
Óunnar 1.117,6 768,9 -31,6%
Unnar 19.523,4 18.232,5 -7,2%
Eldsneyti og smurolíur 3.939,7 3.481,8 -12,2%
Óunnið eldsneyti 165,3 99,0 -40,5%
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 826,7 700,0 -15,8%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 2.947,7 2.682,8 -9,5%
Fjárfestingarvörur 21.170,0 21.011,9 -1,4%
Flutningatæki 14.759,1 17.635,9 +18,8%
Fólksbílar 5.395,1 7.378,6 +35,9%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 1.540,4 1.793,7 +15,7%
Skip 2.427,0 2.863,7 +17,3%
Flugvélar 3.500,5 3.391,8 -3,7%
Neysluvörur ót.a. 13.214,6 14.976,4 +12,6%
Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 111,7 113,7 +1,2%
Vöruskiptajöfnuður -15.872,9 -10.699,7 -
' Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð ertends gjaldeyris
í janúar-júníi 1999 0,6% hærra en árið áður. Heimild: HAGSTOFA ÍSLANDS
VÖRUSKIPTIN voru óhagstæð
um 2,6 milljarða í júní en í júní í
fyrra voru þau óhagstæð um 1,1
milljarð á fostu gengi. Alls voru
iluttar út vörur fyrir 13,5 milljarða
króna og inn fyrir 16,1 milljarð.
Fyrstu sex mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 72,7 milljarða
króna en inn fyrir 83,4 milljarða.
Halli var því á vöruskiptum við út-
lönd sem nam 10,7 milljörðum
króna en á sama tíma árið áður
voru þau óhagstæð um 16 milljarða
á föstu gengi. Vöruskiptajöfnuður-
inn var því 5,3 milljörðum betri
fyrstu sex mánuði ársins en á sama
tímabili í fyrra.
Flugvélasala hefur mest áhrif
á útflutningsverðmæti
Heildarverðmæti vöruútflutn-
ings fyrstu sex mánuði ársins var
11,8% meira á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Sjávarafurðir
voru 70% alls útflutnings þetta
tímabil og var verðmæti þeirra
6,1% meira en á sama tíma í fyrra.
Verðmæti ferskfisksútflutnings
jókst um 34,6% fyrstu sex mánuði
ársins miðað við sama tímabil í
fyrra en verðmæti frystrar rækju
dróst saman um 21,1%. Verðmæti
útflutnings á lýsi dróst saman um
19,3% og á fiskimjöli um 11,8%.
Verðmæti útflutnings á söltuðum
og þurrkuðum fiski jókst um 15,4%
á tímabilinu og á frystum flökum
um 22,5%. Verðmæti útflutnings á
frystum heilum fiski dróst saman
um 12,6% en verðmæti annarra
sjávarafurða jókst um 11,6%.
Iðnaðarvörur voru 23% alls út-
flutnings og var verðmæti þeirra
11,4% meira en á sama tíma árið
áður. Að öðru leyti má aðallega
rekja aukningu útflutningsverð-
mætis til sölu á einni af flugvélum
Flugleiða hf., að því er fram kemur
í frétt frá Hagstofu íslands.
Verðmæti innfluttra flutninga-
tækja jókst um 18,8%
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ings fyrstu sex mánuði ársins var
3% meira á föstu gengi en á sama
tímabili í fyrra. Mikil aukning var á
innflutningi á flutningatækjum á
tímabilinu en verðmæti þeirra var
18,8% meira en árið áður. Neyslu-
vörur aðrar en matar- og drykkjar-
vörur námu 18% alls innflutnings
o'g var verðmæti þeirra 12,6%
meira en á fyrstu sex mánuðum
síðasta árs. Verðmæti innfluttra
hrá- og rekstrarvara lækkaði um
8,5% og eldsneytis og smurolía um
12,2% miðað við sama tímabil í
fyrra.
*
Avöxtun norskra hlutabréfasjóða minni en hlutabréfa
Avöxtun 2,76% undir
meðaltalshækkun
AÐEINS sex hlutabréfasjóðir í
Noregi hafa skilað jafn góðri eða
betri ávöxtun en sem nemur verð-
hækkun hlutabréfa í landinu síðast-
liðin þrjú ár, að því er fram kemur í
úttekt norska blaðsins Dagens
Næringsliv. Samkvæmt tölum frá
samtökum verðbréfasjóða í Noregi
er árleg ávöxtun norskra hluta-
bréfasjóða að meðaltali 2,76%
minni en sem nemur hækkun heild-
arvísitölu hlutabréfa á norskum
markaði, ef tekið er meðaltal
þriggja síðustu ára. Á þessu tíma-
bili hækkaði heildarvísitalan um
13,9% að meðaltali á ári, meðan
ávöxtun sjóðanna nam 11,14% að
meðaltali. Einungis sex hlutabréfa-
sjóðir ná því að vera yfir meðaltals-
hækkun vísitölunnar á tímabilinu
og er ávöxtun þeirra að meðaltali
3,5% meiri á ári. Ávöxtun þeirra
sjóða sem lágu undir hækkun heild-
arvísitölunar var að meðaltali 4,1%
lægri en sem nemur hækkun henn-
ar en alls nær úttekt blaðsins til 34
sjóða sem hafa haft starfsemi í þrjú
ár eða lengur.
Dagens Næringsliv hefur raðað
norskum hlutabréfasjóðum upp eft-
ir frammistöðu þeirra og byggir
röðin á hlutfallinu milli ávöxtunar
og áhættu í rekstri sjóðanna, eða
svokölluðu Information Ratfo(IR).
Samkvæmt þessari aðferð er hluta-
bréfasjóðurinn Carnegie Aksje
Norge með bestu frammistöðuna
og mælist IR-hlutfall hans 0,88.
Aftur á móti skilaði sjóðurinn Delp-
hi Norge mestri ávöxtun á tímabil-
inu, eða 19,61%, á ári en IR-hlutfall
hans er mun lægra, eða 0,44, vegna
þess að fjárfestingar hans bera
meiri áhættu en hjá Camegie.
Fram kemur að fjárfestingar-
stefna Camegie Aksje Norge byggi
á að taka áhættu og að sjóðstjór-
amir hafi fullt frelsi til að taka
ákvarðanir um í hvaða félögum fé
skuli fest. Að auki er lögð mikil
áhersla á að hafa takmai’kaðan
fjölda félaga í sjóðnum og skulu
þau ekki vera fleiri en 25-30.