Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 35
Harald Snæhólm, skólabróðir minn
úr bamaskóla; hann var hjá flugfé-
laginu Continentale í Hamborg og
flaug mikið til Austurlanda fjær, og
við vorum mikið saman þegar hann
var í heimahöfn. En það er lítið vit í
að dveljast í landi án þess að leggja
sig eftir málinu og ég gerði nú
gangskör að því að afla mér
kennslu. Svo háttaði til að vélamar
komu um fjögurleytið á daginn og
fóru næsta dag á hádegi og þá gafst
svigrúm til náms, og ég fékk mér
einkakennara á þeim tíma, þýska
stúlku sem vann í farþegaafgreiðsl-
unni hjá Loftleiðum, tvo tíma á dag
þrisvar í viku, þannig að fljótlega
gat ég farið að fleyta mér og hef svo
byggt á þeim granni síðar. Það var
auðvitað hjálp í norskunni, bæði
germönsk mál. En ef ég væri ungur
í dag myndi ég leggja mig eftir lat-
ínu. Eg hef gaman af tungumálum.
Heim á ný
Um haustið hverf ég aftur til ís-
lands að fyrra starfi mínu, en vetur-
inn áður hafði verið haldið flug- og
flugvélstjóranámskeið og é_g var þá
í fullri vinnu, en ég spurði Olaf Agn-
ar Jónasson, sem var yfirvélstjóri
hjá Loftleiðum, hvort ég mætti ekki
sitja námskeiðið meðfram vinnu.
Jújú, það var auðsótt mál. Þeir vora
skilningsríkir yfirmennimir. And-
rúmsloftið í þá daga var þannig. Ef
hægt var að liðka til fyrir mönnum,
þá var það gert og ekkert múður.
Þannig lauk ég bóklega náminu, en
þegar ég kom heim frá Hamborg,
þá vantaði áhafnir, þ.á m. flug-
vélstjóra, þróunin var svo ör, og það
eina sem ég þurfti að gera til að öðl-
ast flugvélstjóraréttindi var að
fljúga með öðram flugvélstjóra til-
tekinn fjölda tíma. Þannig var and-
rúmsloftið sem ég minntist á. Eg
byrjaði því að fljúga í desember ‘61
og flaug allt árið ‘62 á Ameríkurút-
um, til Hamborgar, Lúxemborgar,
London og Skandinavíu.
Til fundar við Jón Júlíusson
En þetta sumar, ‘62, fæ ég skila-
boð um að koma að máli við Jón Júl-
íusson, þáverandi starfsmanna-
stjóra Loftleiða, og Jón segir:
Heyrðu, Gunnar, þú ert einhleypur,
geturðu ekki farið til Lúxemborgar
og komið upp verkstæði þar?
Hvað meinar þú með því? spyr
ég.
Það er búið að stela frá okkur
talsverðu af dóti þar, segir hann, og
við eram að auka flugið þangað á
næsta ári og ætlum að setja upp
okkar eigin tæknideild þar og við
þurfum mann sem getur talað
þýsku. Enskan ein dugar ekki
þarna. Geturðu farið þangað?
Ég segi sem er við Jón að ég
þekki ekki aðstæður þama, þótt ég
hafi oft drepið þar niður fæti. Ég
verði þá að skreppa þangað í kynn-
isför.
Og það gerði ég og hitti að máli
Einar Aakrann og fór vel á með
okkur. Ég talaði alltaf norsku við
hann, og hann gekkst upp við það
sem skiljanlegt er, og ég þekkti
norska kerfið og okkur samdi ágæt-
lega. Ég átti auðvelt með að vinna
með Aakrann. Hann er bráðfær
maður og gerði stórkostlega hluti í
Lúx, sem menn bara vissu ekkert
um. En Norðmenn hafa eina fram-
komu og íslendingar aðra. Hann og
sumir Islendingarnir áttu því ekki
skap saman. Þeim þótti hann nokk-
uð stífur í hnakkann, en maður get-
ur ekki ætlast til að allir séu eins og
maður sjálfur. Það væri lítið gaman.
Það væri eins og að horfa í spegil
alla ævi.
Heimkominn sagði ég Jóni að ég
skyldi taka þetta starf að mér
næstu tvö árin, eins og umbeðið
væri, ef um semdist. En við urðum
ekki ásáttir um launin, hann hafði í
þeim efnum bundnar hendur frá
Lúxemborg. En ég vildi skiljanlega
fá sama mánaðarkaup í dolluram og
ég hafði sem flugvélstjóri, 500 doll-
ara. Alfreð tók svo af skarið um að
svo skyldi vera.
Þar með var það mál afgreitt.
Krossgötur
Ég kem svo hingað milli jóla og
nýárs ‘62 og var fyrst á hóteli í tvær
vikur uns ég fann leiguíbúð sem
hentaði mér í Belair og keypti mér
svo húsgögn og bfl. Og ég lifði vel
hér á þessum 500 dolluram. íbúðin,
ný meira að segja, kostaði ekki
nema einn fimmta af laununum.
Hvort ég hafi kunnað vel við mig?
Sjáðu til. Ég hef alls staðar kunnað
vel við mig þar sem ég hef verið. Ég
hef aldrei verið á neinum stað þar
sem ég hef ekki kunnað vel við mig.
Ef ég þarf að vera einhvers staðar,
þá ákveð ég að kunna vel við mig.
Annað þýðir ekki. Sinn er siður í
landi hverju og maður breytir hon-
um ekki. En þeir sem ekki era sátt-
ir við sjálfan sig, hafa auðvitað alls
staðar allt á homum sér. Og ég hélt
uppteknum hætti og fór að leggja
mig eftir lúxembúrgísku. Ég var í
byrjun eini flugvirki Loftleiða hér,
og var fyrst til húsa í skrifstofu-
kytru, þar sem ég hafði verkfærin
og nokkra varahluti, en fékk síðan
inni í gamla skýlinu þar sem litlu
vélarnar, rellurnar, hafa bækistöð
núna. En um vorið ‘63, þegar flugin
hingað urðu 5 á viku, vantaði mig
annan flugvirkja. Ég vissi af Sig-
geiri Sverrissyni sem starfaði sem
flugvirki hjá Seaboard & Westem í
Frankfurt og þangað fór ég og réð
hann og hann gat komið strax. Það
þýddi ekki að fara til íslands og
sækja þangað einhvern mállausan
mann. Málið er það mikið atriði,
þótt maður tali það ekki 100%, en
maður þarf að vilja og geta talað
það þannig að annað fólk skilji
mann. Siggeir var ekki farinn að
fljúga þegar þetta var, en til þess
stefndi hugur hans og hann fór því
að tæpum tveim áram liðnum heim
til Islands og fór að fljúga. Það var
gamla sagan hjá Loftleiðum: Ef þú
varst búinn að vera eitthvað hjá
þeim og hafðir staðið þig og vildir
breyta til, þá stóð ekki á fyrirtæk-
inu. Þeir vora, og ég endurtek það,
afar réttlátir og hjálpsamir. I lang-
flestum tilvikum, alls staðar þar
sem því varð við komið, þá var tekið
tillit til starfsaldurs og liðkað til fyr-
ir mönnum.
Umsvifin aukast
Og svo jukust umsvifin. Monsam-
ir komu vorið ‘64 og var ég þá búinn
að ráða stráka sem höfðu verið fyrir
vestan, fyrst Bjöm Sverrisson, Geir
Hauksson og Sigurð Jónsson, en
Agnar Sigurvinsson, Þórður Sæ-
mundsson og Guðlaugur Guðfinns-
son komu um mitt ár ‘66 og síðan
fleiri og fleiri. Það er ómögulegt að
telja upp alla; þeir sem unnu með
mér í tækni- og verkfræðideild vora
225 þegar umsvifin voru mest. Að
öðram ólöstuðum, þetta voru allt
mjög færir menn, þá var Geir einn
af albestu flugvirkjum sem ég hef
unnið með, eldklár og vinnuhestur.
Hann varð síðar formaður Flug-
virkjafélagsins á Islandi. Við feng-
um okkur mörg bjórglösin saman.
En af sanngimisástæðum lagði ég
áherslu á að ráða líka lúxem-
búrgíska stráka og senda þá vestur
um haf í læri, tvo til þrjá annað-
hvert ár, og viðhalda þannig þeirri
hefð að hjálpa efnilegum mönnum
til að komast áfram eins og mér
hafði verið hjálpað. Mér fannst að
þakka ætti í verki velvild Lúxem-
borgara, sem skotið höfðu skjóls-
húsi yfir rekstur okkar. I þeim efn-
um er líka skynsamlegt að eiga
framkvæðið, fremur en að láta
neyða menn uppá sig síðar og geta
þá kannski hvorki komið við eigin
vali á piltunum né ráðið tempóinu.
Og þetta reyndust góðir starfs-
menn, alveg sérstaklega vel heppn-
uð fyrirgreiðsla. Einn þessara
stráka er í dag hæstráðandi í tækni-
deild Cargolux. Ég réð líka menn
frá nágrannalöndum, setti auglýs-
ingar í þýsk, frönsk og belgísk blöð.
Það var mjög hagkvæmt, því að
þessir menn þurftu þá ekki að flýtja
búferlum, þeir komu bara til vinnu
yfir landamærin að morgni og hurfu
til síns heima að kvöldi og engin
röskun varð á skólagöngu bama
þeirra.
En í janúar ‘74 var öll tæknideild
Loftleiða innlimuð í Cargolux og þá
voram við orðnir 100 í tæknideild-
inni og af ýmsum þjóðemum: Bret-
ar, Frakkar, Belgar, Þjóðverjar,
Bandaríkjamenn, Hollendingar,
Lúxemborgarar, íslendingar. Og úr
því þú spyrð hver þessara þjóða
mér hafi fundist minna mest á ís-
lendinga, þá voru það Hollendingar.
Þeir era líka gamalt sjóveldi og hafa
eins og Islendingar reynst afbragðs
flugmenn. Hins vegar vil ég ekki
halda því fram að ein þjóð sé
annarri betri, þegar allt er tekið
með í reikninginn. En þegar flug-
skýlið komst upp í ársbyrjun ‘74
gátum við farið að taka að okkur
verkefni fyrir önnur flugfélög, til-
fallandi viðgerðir, stórskoðanir og
viðhald.
Á fartinni
Það var lífsnauðsynlegt fyrir okk-
ur að fá verkefni frá öðram flugfé-
lögum. Eitt var Air Ceylon, nú Sri
Lanka, eitt í Sviss, Sata, sem var
með eina Attu, og við vorum með
vél frá þáverandi Rhódesíu, nú
Zimbabwe, og ýmis verkefni fyrir
lítil flugfélög. En þeir fiska sem róa.
Ég flaug út og suður að afla verk-
efna, kynna fyrirtækið og þá þjón-
ustu sem það hafði uppá að bjóða,
og hún var þá bundin tveim flug-
vélategundum, DC-8-vélum Loft-
leiða og Monsum Cargolux, CL-44,
en fyrir þessar vélar höfðum við
skiljanlega öll verkfæri og varahluti
og mannskap sem var þaulkunnug-
ur þeim. Og þá var að leita uppi þau
svæði á jörðinni þar sem þessar
flugvélategundir vora í rekstri og
bjóða stórskoðanir á þeim hér í
Lúxemborg, á sama hátt og Sola-
verkstæðið í Stafangri annaðist við-
hald á Loftleiðavélunum; þótt þær
væru ekki í rútu þar. Ég var því
mikið á fartinni í verkefnaleit fyrir
þessar flugvélategundir og síðar til
að selja Monsana, þegar B-747
leystu þá af hólmi. Allir Monsarnir
fimm vora á endanum seldir. Ég gat
sagt: Okei. Kaupið vélina okkar og
við skulum sjá um að þjálfa flug-
virkja ykkar og flugmenn, viðhalda
vélunum og lána ykkur varahluti og
vera ykkur til halds og trausts í hví-
vetna.
Það gefur augaleið að það er auð-
veldara að selja flugvél með þessum
skilmálum en án þeirra. Tvo Monsa
seldum við til Gabon í Afríku með
þessu fororði, að við sæjum um við-
hald og allar skoðanir, og við höfð-
um menn um tíma niðri í Gabon til
að annast daglegt viðhald og útveg-
uðum þeim flugmenn til að byrja
með.
Eldur
Þú spyrð um tjón á verkstæðun-
um. Það var góðu heilli lítið um þau.
En upp í hugann kemur eitt sem
var afar einkennilegt og er mér
ferskt í minni. Eldur varð laus í DC-
8-vél sem við voram að vinna við
fyrir annað félag. Framkvæmda-
stjórinn, sem ég þekki betur nú en á
tíma óhappsins, heitir Robert Wa-
genfeld. Hann hafði keypt þessa vél
frá Japan Airlines og hafði falið
okkur að skipta um mótora í henni.
Það kom upp í vélinni svokallaður
súrefniseldur. Súrefnið brennur
ekki sjálft, en flest efni geta, svo
sem alkunna er, ekki brannið án
súrefnis. Þetta var sjálfsíkveikja á
þeim stað sem súrefnisleiðslurnar
liggja í toppi vélarinnar. Það kemur
stundum fyrir að óhreinindi komast
inn í súrefniskerfi véla, og ef leki
kemur þá að súrefnisleiðslunum,
getur eldur lifnað. Ég var nýkominn
heim frá því að spila tennis þegar
hringt var og mér tilkynnt að eldur
væri laus í flugvél í skýlinu og ég
keyrði í loftinu út á flugvöll. En eld-
varnakerfið í byggingunni, það hélt,
það var þrefalt kerfi. Eitt var svo-
kallað þungavatn sem streymdi úr
vatnsdreifuram í loftinu og slekkur
eld betur en venjulegt vatn, og
froðu höfðum við, og að auld svo-
kallaðan vatnsvegg milli skýlanna,
sem voru tvö og hlið við hlið, þannig
að vatn streymdi í stríðum straum-
um úr röram niður millivegginn. En
við komum vélinni út og eldurinn
var kæfður, en mér er þetta svo
minnisstætt vegna þess að engu var
líkara en að farið hefði verið snyrti-
lega með dósahníf á topp vélarinn-
ar, frá stjómklefanum og aftur að
stéli, þar sem leiðslumar höfðu leg-
ið. Hreinskorið. Vélin var gerónýt.
Þáttaskil
En ég hætti hjá Cargolux 1981 og
snéri mér að því að selja flugvélar.
Og þótt ég hefði verið á góðum
launum var nú ekki mikið í hand-
raðanum, ekkert sem komst í
námunda við það að geta kallast
fjármagn. Ég gerði samning við fyr-
irtæki hér í Lúxemborg, Tratco,
sem hafði yfir að ráða 20 milljónum
franka, að vísu ekkert stórkapítal,
en kapítal samt. Þeir höfðu pening-
ana, en ég reynsluna, þekkinguna
og samböndin. Og samningur minn
hljóðaði uppá að ég tæki að mér
framkvæmdastjórn og þannig um
hnútana búið að ég fengi prósentur
af hagnaði þeim sem af starfsemi
minni hlytist. Að öðru leyti hefði ég
frjálsar hendur.
Fyrsta árið hafði ég aðsetur niðri
í miðborg, en síðan úti á flugvelli.
Ég er þama tO ‘84, að ég segi við
sjálfan mig: Þetta geturðu gert
millUiðalaust fyrir eigin reikning,
því að nú þekkir þú orðið á kerfið.
Og þá var ég búinn að svipast um
eftir heppUegu landi skattalega séð
og fékk augastað á Liechtenstein3.
Ekki samt með póstkassafyrirtæki í
huga. Landið er mjög vel í sveit
sett, þama í krikanum milli Austur-
rflds og Sviss, og stærð þess afar
þægileg, 160 ferkUómetrar. Um 30
þúsund íbúar. Mikill hagvöxtur.
Þeir skulda ekki eyri heldur eiga
hundrað milljóna svissneskra
franka í varasjóð í handraðanum.
Transreco
Ég gekk þama á fund málsmet-
andi lögfræðings og spurði hvort
ekki væri eitthvert fyrirtæki tU sölu í
landinu.
Nei, það ég best veit era engin fyr-
irtæki tU sölu hér.
En geturðu ekki athugað það fyrir
mig? spurði ég.
Hvemig íyrirtæki ætti það að
vera?
Bara eitthvert löglega skráð fyrir-
tæki, svaraði ég.
Jú, hann féllst á eftir nokkurt þóf
að kanna málið.
Það kom svo á daginn að þama í
landinu var landbúnaðaríyrirtæki,
sem var svona rétt með lífsmarki,
vantaði bara dánarvottorðið, og var
því falt á hagstæðu verði.
En þú getur ekki keypt þetta fyrir-
tæki, sagði lögfræðingurinn. TU þess
þyrftirðu að hafa starfað hér í land-
inu í fimm ár. Þú ert útlendingur.
En þú getur keypt fyrirtækið og
ráðið mig sem framkvæmdastjóra,
sagði ég.
Það þótti honum í meira lagi ein-
kennUeg hugmynd, fyrst í stað, þang-
að tU ég lagði fram bókhaldsgögn sem
sýndu hvað ég verslaði með.
Þar með var það mál klappað og
klárt og bara að bretta upp ermamar.
En nafn fyrirtækisins var ekki
nógu þjált í munni. Þýskumælandi
fólk gat ekki einu sinni bprið það
fram, hvað þá annað fólk. í bisniss
þurfa nöfn að vera stutt og laggóð.
Við gáfum fyrirtækinu því nýtt
nafn, nafnið Transreco.
Eftir fimm ár keypti ég svo fyrir-
tækið af lögfræðingnum. Hann ann-
ast nú tUfalIandi verkefni fyrir mig,
samningsgerð og þessháttar. Fær
lögfræðingur og góður félagi.
Orðsporið hefur vængi
Sjáðu tU, það verður hver að lifa
eins og hann er vaxinn. En það er
ekki nóg að hafa sambönd, það þarf
að rækta þau og unna öðrum hlut-
deildar í hagnaði sem af viðskiptum
hlýst. Skammtímagróðasjónarmið
eru greindarskortur. Langtímasjón-
armið og sanngirni era lykUlinn að
farsæld. Þá fara viðskiptavinimir
ánægðir frá manni og koma aftur
seinna og fleiri koma í slóðina.
Og þá heldur faxið áfram að tifa.
En Transreco veitir m.a. ráðgjöf
um flugvélakaup. Og við leigjum,
seljum og kaupum flugvélar fyrir
einstaklinga og félög. Aðrar kaup-
um við, seljum, eða leigjum út fyrir
eigin reikning.
Hálft dúsín
Hefurðu heyrt það, já? Það er
rétt. Við keyptum á sínum tíma sex
stykki sem við leigðum út til fimm
ára. Verð á vélum var þá í botni
öldudalsins, alveg niðri í kjallara. ►
JÓHANNES Helgi og Gunnar Björgvinsson ræðast við á heimili Jóhannesar erlendis.
9 En það er ekki nóg að hafa sambönd,
þad þarf að rækta þau og unna öðrum
hlutdeildar I hagnaði sem af viðskiptum
hlýst. Skammtímagróðasjónarmið eru
greindarskortur. á