Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 71
UPPBQÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Bankastræti 14, eignarhl. gerðarþola, Skagaströnd, þingl. eigandi
Signý Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Kreditkort hf., föstudaginn
6. ágúst 1999 kl. 10.30.
Litlahlíð, Vestur-Húnavatnssýslu, þinglýstur eigandi Jóhann Hermann
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins, föstudaginn
6. ágúst 1999 kl. 14.00.
Túnbraut 7, efri hæð, Skagaströnd, þinglýstur eigandi Sigrún
Benediktsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyr-
issjóðir verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra, föstudaginn 6. ágúst
1999 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
30. júlí 1999.
IMAUÐUNGAR5ALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Strandgata 25, Tálknafjarðarhreppi, ásamttilheyrandi vélum, tækjum
og áhöldum, þingl. eig. Rauðhamar ehf., gerðarbeiðandi Fjárfestinga-
banki atvinnulífsins hf., föstudaginn 6. ágúst 1999, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
30. júlí 1999,
Þórólfur Halldórsson.
HÚ5NÆÐI ÓSKAST
Húsnæði óskast
Starfsmaðurfranska sendiráðsins óskar eftir
að taka á leigu húsnæði búið húsgögnum til
eins árs frá og með 1. september nk.
Upplýsingar í síma 551 7621 á skrifstofutíma.
4ra—5 herb. húsn. óskast
Vegna flutninga erlendis frá óskast 4ra—5 her-
bergja íbúðarhúsnæði til leigu frá 15. sept. nk.
Helst í Árbæ eða Seláshverfi.
Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 587 1652.
HÚSNÆÐI í BOSI
Laus strax
Til leigu 140 fm íbúð í hverfi 108. Reglusemi
áskilin.
Áhugasamir sendi inn tilboð merkt: „íbúð -
108" fyrir 6. ágúst.
Herbergi í Berlín
íslenskt-þýskt par með eitt barn óskar eftir
meðleigjanda á 25 fm herbergi í stórri íbúð
á góðum stað í Berlín.
Upplýsingar í síma 557 6010 eftir helgi eða
0049 30 44730869 (Katrín).
s M Á A U B L V S 1 IM G A R
DULSPEKI
Reikinámskeið
Þann 8. ágúst verður haldið
námskeið fyrir reiki I.
Þeir sem áhuga hafa vinsamleg-
ast hringið í síma 553 4442 eftir
kl. 18.30.
Ágúst Már, Reikimeistari/
kennari.
ÝMISLEGT
Mömmur athugið ef barnið
pissar undir.
Lausir timar í ágúst.
Undraverður árangur með
óhefðbundnum aðferðum.
Sigurður Guðleifsson,
svæðanuddfræðingur,
sími 587 1164.
FÉLAGSLÍF
fbmhjolp
Þeir sem fara ekki í ferð um
verslunarmannahelgina:
Laugardagur 31. júlí.
Opið hús kl. 14.00-17.00. Lítið
inn og rabbið um daginn og veg-
inn. Dorkas-konur sjá um heitan
kaffisopann og meölætið. Berg-
steinn Ómar flytur frumsamin
lög. Kl. 15.30 tökum við lagið og
syngjum saman við undirleik
hljómsveitar Samhjálpar. Takið
með ykkur gesti. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Næstu helgarferðir
6. -8. ágúst. Fjölskylduferð í
Bása. I þessari ferð er lögð sér-
stök áhersla á að hafa mikla og
skemmtilega dagskrá fyrir börn
og fullorðna. Sannkölluð fjöl-
skylduskemmtun í kjarrivöxnu
landi í skjóli tveggja jökla.
7. -8. ágúst. Fimmvörðuháls.
14.—15. ágúst. Hvanngil —
Hrafntinnusker. Jeppaferð.
Ekið um Emstrur og Einhyrn-
ingsflatir í Hvanngil. Frá Hvann-
gili er ekið í Hrafntinnusker þar
sem íshellar og hverasvæðin eru
skoðuð. Brottför frá Essó á
Ártúnshöfða kl. 09.00.
Spennandi ferðir á næstunni
4.-8. ágúst. Laugavegur,
trússferð. Gönguferð um Lauga
veginn. Farangur fluttur á milli
gististaða.
12. —15. ágúst. Sveinstindur —
Skælingar — Eldgjá, trúss-
ferð. Gengið frá Langasjó á
Skælinga um Eldgjá í Hólaskóla.
13, —19. ágúst. Snæfell —
Lónsöræfi. Gist i tvær nætur í
Snæfelli, þaðan er gengið á
Geldingafell og svo í Egilssel þar
sem gist er í tvær nætur. Frá Eg-
ilsseli er haldið i Múlaskála þar
sem gist er síðustu nóttina.
27.-29. ágúst. Skælingar —
Uxatindar. Gist í fallegum
gangnamannakofa Útivistar á
Skælingum og gengið þaðan á
Uxatinda og Gjátind. Ferðinni
lýkur með göngu í Eldgjá.
Heimasíða: www.utivist.is
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Vegna Landsmóts hvítasunnu-
manna í Kirkjulækjarkoti, Fljóts-
hlíð, 29. júli til 2. ágúst, fellur
niður samkoman í dag, en við
það er samkoma í Samhjálp
kl. 16.00.
Það eru allir velkomnir að koma
austur og taka þátt í mótinu með
okkur.
www.gospel.is
Sunnudaginn 1. ágúst:
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
ioo
KFUM & KFUK
1 8 9 9 - 1 9 9 9
KFUM og KFUK
Engin samkoma í aðalstöðvun-
um við Holtaveg sunnudags-
kvöld. Vekjum þess í stað athygli
á hátiðarsamkomu á Sæludög-
um i Vatnaskógi vegna 100 ára
afmælis KFUM og KFUK kl. 20.00
á sunnudagskvöld.
FERÐAFÉIAG
@ ÍSLANDS
MORKinm s-sásasasæ
Dagsferðir um verslunar-
mannahelgina:
Sunnudagur 1. ágúst
Kl. 08.00 Þórsmörk. Verð 3.000.
Mánudagur 2. ágúst
Kl. 08.00 Þórsmörk. Verð 3.000.
Kl. 13.00 Trölladyngja — Græna-
dyngja. Verð 1.300 kr.
Um 3—4 klst. ganga. Brottför frá
BSI, austanmegin og Mörkinni 6.
Sumarhelgi fjölskyldunnar
í Þórsmörk
6.-8. ágúst. Brottför föstudag
kl. 19.00. Pantið tímanlega.
Gist í Langadal.
Tilboðsverð. Léttar göngur
og Fimmvörðuháls.
Sjá næstu ferðir á textavarpi
bis. 619.
ATVINNA
Sjálfboðaliðar
til Zambíu/Angólu
Bygging kamra, skóla, alnæmis-
fræðsla, kennsla barna og
fullorðinna.
6 mánaða nám, 6—12 mánaða
hjálp í Afríku.
humana1@compuserve.com
Sími 0045 2812 9622.
Stjömuspá á Netinu
ALLTAF mbl.is
6/777/VMÐ A/ÝT7—
SKAK
Las Vegas
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ f SKÁK
30. júlí - 29. ágúst
HANNES Hlífar Stefánsson teflir
fyrstu skák sína á heimsmeistarar-
mótinu í skák í Las Vegas í dag.
Andstæðingur
hans er úkraínsk-
ur skákmaður,
Alexander Zu-
barev. Erfitt er
að meta mögu-
leika Hannesar
gegn Zubarov.
Hins vegar er
ljóst, að Zubarov
flannes Hlífar er 111 alls JÍWegur
Stefánsson eins og hann
sýndi á svæðis-
mótinu í Ukraínu í fyrra þar sem
hann náði árangri á heimsmæli-
kvarða. Hannesar bíður því erfitt
verkefni, en ef hann nær að tefla
jafnvel og hann hefur gert að unda-
förnu verða möguleikarnir að teljast
hans megin. Hins vegar getur allt
gerst í tveggja skáka einvígi og þá
getur stríðsgæfan ráðið meiru en
hæfileikamir. Það verður því afar
spennandi að fylgjast með hvemig
Hannesi vegnar í þessari viðureign.
Samkvæmt upplýsingum frá FIDE
verður hægt að fylgjast með öllum
skákum heimsmeistarakeppninnar á
Netinu. Skákmönnum er bent á op-
inbera vefsíðu heimsmeistarakeppn-
innar: www.worldfide.com.
Tímamörkin í skákunum eru 100
mínútur fyrir 40 leiki, síðan 50 mín-
útur fyrir 20 leiki og að lokum 10
mínútur til að ljúka skákinni. Teflt
er með Fischer-klukkum og bætast
30 sekúndur við umhugsunartímann
fyrir hvern leik. Ef úrslit ráðast ekki
í fyrstu tveimur skákunum þá eru
tefldar tvær atskákir með 25 mín-
útna umhugsunartíma, auk þess sem
10 sekúndur bætast við fyrir hvern
leik. Ef enn er jafnt þá er umhugs-
unartíminn styttur í 15 mínútur og
tefldar tvær skákir til viðbótar.
Þessu þrepi er þó sleppt í fyrstu um-
ferðinni. Að lokum eru svo tefldar
hraðskákir þar sem hvítur hefur
Heimsmeistaramótið
í skák hefst í dag
fjórar mínútur og svartur fimm, auk
þess sem 10 sekúndur bætast við
fyrir hvern leik. Sá sigrar sem vinn-
ur fyrstu hraðskákina.
Aðdragandi heimsmeistaramóts-
ins hefur verið langur. Mánuðum
saman hefur gengið á margvíslegu
samningamakki um keppnina, hót-
unum um lögsóknir o.s.frv. en nú
virðist loksins hilla undir að keppnin
verði að veruleika. Heimsmeistara-
mótið stendur yfir í einn mánuð.
U.þ.b. 100 stórmeistarar taka þátt í
mótinu, en keppendur koma frá 52
löndum. Sigurvegarinn, heimsmeist-
ari FIDE, fær 660.000 dollara í sinn
hlut, en samtals er verðlaunasjóður-
inn 3.000.000 dollara.
Upphaflega átti heimsmeistara-
mótið að fara fram síðla árs 1998.
Síðan var keppni frestað til janúar á
þessu ári og að lokum fram í júlí.
Karpov, sem var heimsmeistari frá
1975 til 1985 og síðan frá 1993, var
ekki ánægður með það hvernig
ákvarðanir um tímasetningu mótsins
voru teknar án samráðs við hann.
Hann kvartaði m.a. yfir því, að þegar
hann vann titilinn hefði hann sam-
kvæmt samningum átt að halda hon-
um í tvö ár. Þrátt fyrir þann samn-
ing hefur FIDE ákveðið að heims-
meistarakeppnin skuli haldin árlega.
Af þeim 100 þátttakendum sem
fengu rétt til þátttöku í heimsmeist-
aramótinu taka 72 þátt í fyrstu um-
ferðinni. Að henni lokinni bætast 28
þátttakendur í hópinn. Þar sem
þetta er útsláttarkeppni þarf því sex
umferðir til að ákvarða hverjir það
verða sem keppa um heimsmeistara-
titilinn. Sjálft heimsmeistaraeinvígið
hefst síðan 22. ágúst. Tefldar verða
sex skákir.
Gata Kamsky er skráður til leiks í
heimsmeistarakeppninni og fróðlegt
verður að fylgjast með hvernig hon-
um vegnar eftir þriggja ára fjarveru
frá skákborðinu. Miðað við hvernig
Fischer gekk eftir 20 ára fjarveru
má alveg eins búast við að Kamsky
nái langt í keppninni.
Útskiptingar á síðustu stundu
Það varð ekki ljóst fyrr en á síð-
ustu stundu hverjir taka þátt í
heimsmeistaramótinu. Að undan-
förnu hafa menn gert ráð fyrir að
Karpov mundi ekki verja titil sinn,
en ekki er víst að hann gefi titilinn
svo auðveldlega eftir. Það er best að
fullyrða ekki neitt um það strax. Þó
virðist ljóst að hann kemur ekki inn í
keppnina í annarri umferð.
Rússneski stórmeistarinn Alexei
Dreev (2.679) kemur inn í staðinn
fyrir Alexander Morozevich og Va-
dim Milov (2.626) leysir Karpov af
hólmi. Þessir tveir hefja keppni í
annarri umferð. Þá koma þeir Ulf
Andersson (2.623) og Joel Lautier
(2.638) inn fyrir Zsuzsa Polgar og
Dragoljub Velimirovic. Andersson
og Lautier hefja keppni í fyrstu um-
ferð.
Á síðustu stundu kom svo í ljós að
bandarísk yfirvöld ætla ekki að veita
yngsta þátttakandanum í keppninni
vegabréfsáritun. Þarna er um að
ræða hinn 11 ára gamla alþjóðlega
meistara Amir Bagheri frá íran. Bú-
ast má við að Predrag Nikolic (2.641)
komi í hans stað.
Karpov vekur upp drottningu
Greinilegt er að Anatoly Karpov
hefur ýmsum hnöppum að hneppa.
Nú orðið segist hann líta á skák á
nokkurra daga fresti í stað þess að
verja umtalsverðum tíma í skákina
daglega eins og hann gerði áður.
Þetta passar við ummæli ýmissa
stórmeistara sem hafa séð að Kar-
pov heldur ekki lengur í við helstu
keppinauta sína í skákbyrjunum.
Einnig er tímahrakið að verða fastur
fylginautur Karpovs. Þrátt fyrir
þetta er Karpov tvímælalaust enn í
hópi sterkustu skákmanna heims og
jafnvel Kasparov á enn þann dag í
dag í erfíðleikum með Karpov.
Eitt af því sem vafalaust hefur
minnkað áhuga Karpovs á þátttöku í
heimsmeistarakeppninni er að hon-
um og Natalja konu hans fæddist
dóttir 27. júlí. Þetta er annað barn
Karpovs.
Heimsmeistaraeinvígi kvenna
Heimsmeistaraeinvígi kvenna er
að hefjast í Kazan í Rússlandi. Það
eru þær Alisa Galliamova (Rúss-
landi) og Xie Jun (Kína) sem berjast
um titilinn. Fyrsta skákin var tefld í
gær, en alls verða tefldar 16 skákir.
Konumar haida sig því við gamla
formið á heimsmeistarakeppninni
meðan karlmennimir þeysa til Las
Vegas og þurfa að treysta meira á
lukkuna í örstuttum einvígjum.
Róbert á Lost Boys mótinu
Hið árlega Lost Boys skákmót
hófst í gær, fostudaginn 30. júlí. Eins
og á síðasta ári er mótið mjög sterkt.
Það skiptist í þrjá flokka og í efsta
flokki er skráður 141 keppandi, þar á
meðal Róbert Harðarson. Róbert er
mjög hæfileikaríkur skákmaður, en
hefur teflt allt of lítið á alþjóðlegum
skákmótum þar til hann tók sig
verulega á í sumar og hefur teflt á
mótum í Danmörku, Tékklandi og nú
í Belgíu. Haldi hann uppteknum
hætti kæmi ekki á óvart þótt hann
yrði næsti alþjóðlegi meistari íslend-
inga og skyti þar með mörgum af
okkar yngri skákmönnum ref fyrir
rass. Tölfræðin vinnur með Róberti
og maður af hans styrkleika þarf
ekki mörg skákmót í viðbót til að
hala inn áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli.
Lost Boys skákmótið er haldið í
Antwerpen og tefldar eru níu um-
ferðir. Mótinu lýkur 8. ágúst. Teflt
er í þremur flokkum auk þess sem
fi-am fer lokað átta manna skákmót
með ýmsum þekktum stórmeistur-
um. A-riðill er opinn fyrir skákmenn
með 2.200 stig og þar yfir. Meðalstig
keppenda eru 2.306, eða svipuð og á
síðasta móti, sem Róbert tók þátt í,
opna tékkneska meistaramótinu.
Meðal keppenda eru 14 stórmeistar-
ar og 19 alþjóðlegir meistarar. B-rið-
ill er fyrir skákmenn með meira en
1.600 stig og C-riðill er opinn öllum
með lægri stig.
Kasparov - Krush?
Skák Kasparovs gegn Netverjum ,
heldur mörgum skákmanninum hug-
fóngnum. Ráðleggingar um næsta
leik koma hvaðanæva úr heiminum,
auk þess sem fjórir ungir og efnileg-
ir skákmenn eru formlegir ráðgjafar
andstæðinga Kasparovs. Þetta eru
franski stórmeistarinn Etienne
Bacrot (2.592), bandaríska stúlkan
Irina Krush (2.432), Bandaríkjamað-
urinn Florin Felecan (2.380) og
þýska stúlkan Elisabeth Paehtz
(2.276).
Sterkasti ráðgjafinn, stórmeistar-
inn Etienne Bacrot, virðist ekki vera
allt of hrifinn af þeirri stöðu sem upp
er komin. Þá hefur norski stórmeist-
arinn Rune Djurhuus sagt, að skákin
sé í raun barátta á milli hinnar 15 ára
gömlu Irina Ki-ush og Gary Ka- '
sparov. Djurhuus bætir við að hann
sjái ekki betur en staða Kasparovs
batni við hvern leik.
Þrátt fyrir mismunandi skoðanir
þátttakenda vii-ðist þessi viðburður
ætla að slá öll fyrri met. Þannig hafa
verið skráðar yfir 6.000.000 uppflett>
ingar á vefnum sem Microsoft setti
upp fyrir keppnina. Microsoft vonast
að sjálfsögðu til að slá metið sem sett
var þegar Deep Blue tefldi við Ka-
sparov og gera þannig betur en IBM.
Meðan þessir risar viðskiptalífsins
berjast um athyglina kætast hins
vegar skákmenn um allan heim yfir
þeim ótrúlega áhuga sem skákinni er
sýnd. Kasparov virðist svo sannar-
lega hafa haft rétt fyrir sér þegar
hann sagði að Netið og skákin væru
eins og sniðin fyrir hvort annað.
Nánari upplýsingar á heimasíðu
Taflfélagsins Hellis: www.sim-
net.is/hellir. v
Daði Örn Jónsson