Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 71

Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 71 UPPBQÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Bankastræti 14, eignarhl. gerðarþola, Skagaströnd, þingl. eigandi Signý Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Kreditkort hf., föstudaginn 6. ágúst 1999 kl. 10.30. Litlahlíð, Vestur-Húnavatnssýslu, þinglýstur eigandi Jóhann Hermann Sigurðsson, gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins, föstudaginn 6. ágúst 1999 kl. 14.00. Túnbraut 7, efri hæð, Skagaströnd, þinglýstur eigandi Sigrún Benediktsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyr- issjóðir verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra, föstudaginn 6. ágúst 1999 kl. 11.00. Sýslumaðurinn á Blönduósi, 30. júlí 1999. IMAUÐUNGAR5ALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Strandgata 25, Tálknafjarðarhreppi, ásamttilheyrandi vélum, tækjum og áhöldum, þingl. eig. Rauðhamar ehf., gerðarbeiðandi Fjárfestinga- banki atvinnulífsins hf., föstudaginn 6. ágúst 1999, kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 30. júlí 1999, Þórólfur Halldórsson. HÚ5NÆÐI ÓSKAST Húsnæði óskast Starfsmaðurfranska sendiráðsins óskar eftir að taka á leigu húsnæði búið húsgögnum til eins árs frá og með 1. september nk. Upplýsingar í síma 551 7621 á skrifstofutíma. 4ra—5 herb. húsn. óskast Vegna flutninga erlendis frá óskast 4ra—5 her- bergja íbúðarhúsnæði til leigu frá 15. sept. nk. Helst í Árbæ eða Seláshverfi. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 587 1652. HÚSNÆÐI í BOSI Laus strax Til leigu 140 fm íbúð í hverfi 108. Reglusemi áskilin. Áhugasamir sendi inn tilboð merkt: „íbúð - 108" fyrir 6. ágúst. Herbergi í Berlín íslenskt-þýskt par með eitt barn óskar eftir meðleigjanda á 25 fm herbergi í stórri íbúð á góðum stað í Berlín. Upplýsingar í síma 557 6010 eftir helgi eða 0049 30 44730869 (Katrín). s M Á A U B L V S 1 IM G A R DULSPEKI Reikinámskeið Þann 8. ágúst verður haldið námskeið fyrir reiki I. Þeir sem áhuga hafa vinsamleg- ast hringið í síma 553 4442 eftir kl. 18.30. Ágúst Már, Reikimeistari/ kennari. ÝMISLEGT Mömmur athugið ef barnið pissar undir. Lausir timar í ágúst. Undraverður árangur með óhefðbundnum aðferðum. Sigurður Guðleifsson, svæðanuddfræðingur, sími 587 1164. FÉLAGSLÍF fbmhjolp Þeir sem fara ekki í ferð um verslunarmannahelgina: Laugardagur 31. júlí. Opið hús kl. 14.00-17.00. Lítið inn og rabbið um daginn og veg- inn. Dorkas-konur sjá um heitan kaffisopann og meölætið. Berg- steinn Ómar flytur frumsamin lög. Kl. 15.30 tökum við lagið og syngjum saman við undirleik hljómsveitar Samhjálpar. Takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Samhjálp. Næstu helgarferðir 6. -8. ágúst. Fjölskylduferð í Bása. I þessari ferð er lögð sér- stök áhersla á að hafa mikla og skemmtilega dagskrá fyrir börn og fullorðna. Sannkölluð fjöl- skylduskemmtun í kjarrivöxnu landi í skjóli tveggja jökla. 7. -8. ágúst. Fimmvörðuháls. 14.—15. ágúst. Hvanngil — Hrafntinnusker. Jeppaferð. Ekið um Emstrur og Einhyrn- ingsflatir í Hvanngil. Frá Hvann- gili er ekið í Hrafntinnusker þar sem íshellar og hverasvæðin eru skoðuð. Brottför frá Essó á Ártúnshöfða kl. 09.00. Spennandi ferðir á næstunni 4.-8. ágúst. Laugavegur, trússferð. Gönguferð um Lauga veginn. Farangur fluttur á milli gististaða. 12. —15. ágúst. Sveinstindur — Skælingar — Eldgjá, trúss- ferð. Gengið frá Langasjó á Skælinga um Eldgjá í Hólaskóla. 13, —19. ágúst. Snæfell — Lónsöræfi. Gist i tvær nætur í Snæfelli, þaðan er gengið á Geldingafell og svo í Egilssel þar sem gist er í tvær nætur. Frá Eg- ilsseli er haldið i Múlaskála þar sem gist er síðustu nóttina. 27.-29. ágúst. Skælingar — Uxatindar. Gist í fallegum gangnamannakofa Útivistar á Skælingum og gengið þaðan á Uxatinda og Gjátind. Ferðinni lýkur með göngu í Eldgjá. Heimasíða: www.utivist.is Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Vegna Landsmóts hvítasunnu- manna í Kirkjulækjarkoti, Fljóts- hlíð, 29. júli til 2. ágúst, fellur niður samkoman í dag, en við það er samkoma í Samhjálp kl. 16.00. Það eru allir velkomnir að koma austur og taka þátt í mótinu með okkur. www.gospel.is Sunnudaginn 1. ágúst: Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma. Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar. Allir hjartanlega velkomnir. ioo KFUM & KFUK 1 8 9 9 - 1 9 9 9 KFUM og KFUK Engin samkoma í aðalstöðvun- um við Holtaveg sunnudags- kvöld. Vekjum þess í stað athygli á hátiðarsamkomu á Sæludög- um i Vatnaskógi vegna 100 ára afmælis KFUM og KFUK kl. 20.00 á sunnudagskvöld. FERÐAFÉIAG @ ÍSLANDS MORKinm s-sásasasæ Dagsferðir um verslunar- mannahelgina: Sunnudagur 1. ágúst Kl. 08.00 Þórsmörk. Verð 3.000. Mánudagur 2. ágúst Kl. 08.00 Þórsmörk. Verð 3.000. Kl. 13.00 Trölladyngja — Græna- dyngja. Verð 1.300 kr. Um 3—4 klst. ganga. Brottför frá BSI, austanmegin og Mörkinni 6. Sumarhelgi fjölskyldunnar í Þórsmörk 6.-8. ágúst. Brottför föstudag kl. 19.00. Pantið tímanlega. Gist í Langadal. Tilboðsverð. Léttar göngur og Fimmvörðuháls. Sjá næstu ferðir á textavarpi bis. 619. ATVINNA Sjálfboðaliðar til Zambíu/Angólu Bygging kamra, skóla, alnæmis- fræðsla, kennsla barna og fullorðinna. 6 mánaða nám, 6—12 mánaða hjálp í Afríku. humana1@compuserve.com Sími 0045 2812 9622. Stjömuspá á Netinu ALLTAF mbl.is 6/777/VMÐ A/ÝT7— SKAK Las Vegas HEIMSMEISTARAMÓTIÐ f SKÁK 30. júlí - 29. ágúst HANNES Hlífar Stefánsson teflir fyrstu skák sína á heimsmeistarar- mótinu í skák í Las Vegas í dag. Andstæðingur hans er úkraínsk- ur skákmaður, Alexander Zu- barev. Erfitt er að meta mögu- leika Hannesar gegn Zubarov. Hins vegar er ljóst, að Zubarov flannes Hlífar er 111 alls JÍWegur Stefánsson eins og hann sýndi á svæðis- mótinu í Ukraínu í fyrra þar sem hann náði árangri á heimsmæli- kvarða. Hannesar bíður því erfitt verkefni, en ef hann nær að tefla jafnvel og hann hefur gert að unda- förnu verða möguleikarnir að teljast hans megin. Hins vegar getur allt gerst í tveggja skáka einvígi og þá getur stríðsgæfan ráðið meiru en hæfileikamir. Það verður því afar spennandi að fylgjast með hvemig Hannesi vegnar í þessari viðureign. Samkvæmt upplýsingum frá FIDE verður hægt að fylgjast með öllum skákum heimsmeistarakeppninnar á Netinu. Skákmönnum er bent á op- inbera vefsíðu heimsmeistarakeppn- innar: www.worldfide.com. Tímamörkin í skákunum eru 100 mínútur fyrir 40 leiki, síðan 50 mín- útur fyrir 20 leiki og að lokum 10 mínútur til að ljúka skákinni. Teflt er með Fischer-klukkum og bætast 30 sekúndur við umhugsunartímann fyrir hvern leik. Ef úrslit ráðast ekki í fyrstu tveimur skákunum þá eru tefldar tvær atskákir með 25 mín- útna umhugsunartíma, auk þess sem 10 sekúndur bætast við fyrir hvern leik. Ef enn er jafnt þá er umhugs- unartíminn styttur í 15 mínútur og tefldar tvær skákir til viðbótar. Þessu þrepi er þó sleppt í fyrstu um- ferðinni. Að lokum eru svo tefldar hraðskákir þar sem hvítur hefur Heimsmeistaramótið í skák hefst í dag fjórar mínútur og svartur fimm, auk þess sem 10 sekúndur bætast við fyrir hvern leik. Sá sigrar sem vinn- ur fyrstu hraðskákina. Aðdragandi heimsmeistaramóts- ins hefur verið langur. Mánuðum saman hefur gengið á margvíslegu samningamakki um keppnina, hót- unum um lögsóknir o.s.frv. en nú virðist loksins hilla undir að keppnin verði að veruleika. Heimsmeistara- mótið stendur yfir í einn mánuð. U.þ.b. 100 stórmeistarar taka þátt í mótinu, en keppendur koma frá 52 löndum. Sigurvegarinn, heimsmeist- ari FIDE, fær 660.000 dollara í sinn hlut, en samtals er verðlaunasjóður- inn 3.000.000 dollara. Upphaflega átti heimsmeistara- mótið að fara fram síðla árs 1998. Síðan var keppni frestað til janúar á þessu ári og að lokum fram í júlí. Karpov, sem var heimsmeistari frá 1975 til 1985 og síðan frá 1993, var ekki ánægður með það hvernig ákvarðanir um tímasetningu mótsins voru teknar án samráðs við hann. Hann kvartaði m.a. yfir því, að þegar hann vann titilinn hefði hann sam- kvæmt samningum átt að halda hon- um í tvö ár. Þrátt fyrir þann samn- ing hefur FIDE ákveðið að heims- meistarakeppnin skuli haldin árlega. Af þeim 100 þátttakendum sem fengu rétt til þátttöku í heimsmeist- aramótinu taka 72 þátt í fyrstu um- ferðinni. Að henni lokinni bætast 28 þátttakendur í hópinn. Þar sem þetta er útsláttarkeppni þarf því sex umferðir til að ákvarða hverjir það verða sem keppa um heimsmeistara- titilinn. Sjálft heimsmeistaraeinvígið hefst síðan 22. ágúst. Tefldar verða sex skákir. Gata Kamsky er skráður til leiks í heimsmeistarakeppninni og fróðlegt verður að fylgjast með hvernig hon- um vegnar eftir þriggja ára fjarveru frá skákborðinu. Miðað við hvernig Fischer gekk eftir 20 ára fjarveru má alveg eins búast við að Kamsky nái langt í keppninni. Útskiptingar á síðustu stundu Það varð ekki ljóst fyrr en á síð- ustu stundu hverjir taka þátt í heimsmeistaramótinu. Að undan- förnu hafa menn gert ráð fyrir að Karpov mundi ekki verja titil sinn, en ekki er víst að hann gefi titilinn svo auðveldlega eftir. Það er best að fullyrða ekki neitt um það strax. Þó virðist ljóst að hann kemur ekki inn í keppnina í annarri umferð. Rússneski stórmeistarinn Alexei Dreev (2.679) kemur inn í staðinn fyrir Alexander Morozevich og Va- dim Milov (2.626) leysir Karpov af hólmi. Þessir tveir hefja keppni í annarri umferð. Þá koma þeir Ulf Andersson (2.623) og Joel Lautier (2.638) inn fyrir Zsuzsa Polgar og Dragoljub Velimirovic. Andersson og Lautier hefja keppni í fyrstu um- ferð. Á síðustu stundu kom svo í ljós að bandarísk yfirvöld ætla ekki að veita yngsta þátttakandanum í keppninni vegabréfsáritun. Þarna er um að ræða hinn 11 ára gamla alþjóðlega meistara Amir Bagheri frá íran. Bú- ast má við að Predrag Nikolic (2.641) komi í hans stað. Karpov vekur upp drottningu Greinilegt er að Anatoly Karpov hefur ýmsum hnöppum að hneppa. Nú orðið segist hann líta á skák á nokkurra daga fresti í stað þess að verja umtalsverðum tíma í skákina daglega eins og hann gerði áður. Þetta passar við ummæli ýmissa stórmeistara sem hafa séð að Kar- pov heldur ekki lengur í við helstu keppinauta sína í skákbyrjunum. Einnig er tímahrakið að verða fastur fylginautur Karpovs. Þrátt fyrir þetta er Karpov tvímælalaust enn í hópi sterkustu skákmanna heims og jafnvel Kasparov á enn þann dag í dag í erfíðleikum með Karpov. Eitt af því sem vafalaust hefur minnkað áhuga Karpovs á þátttöku í heimsmeistarakeppninni er að hon- um og Natalja konu hans fæddist dóttir 27. júlí. Þetta er annað barn Karpovs. Heimsmeistaraeinvígi kvenna Heimsmeistaraeinvígi kvenna er að hefjast í Kazan í Rússlandi. Það eru þær Alisa Galliamova (Rúss- landi) og Xie Jun (Kína) sem berjast um titilinn. Fyrsta skákin var tefld í gær, en alls verða tefldar 16 skákir. Konumar haida sig því við gamla formið á heimsmeistarakeppninni meðan karlmennimir þeysa til Las Vegas og þurfa að treysta meira á lukkuna í örstuttum einvígjum. Róbert á Lost Boys mótinu Hið árlega Lost Boys skákmót hófst í gær, fostudaginn 30. júlí. Eins og á síðasta ári er mótið mjög sterkt. Það skiptist í þrjá flokka og í efsta flokki er skráður 141 keppandi, þar á meðal Róbert Harðarson. Róbert er mjög hæfileikaríkur skákmaður, en hefur teflt allt of lítið á alþjóðlegum skákmótum þar til hann tók sig verulega á í sumar og hefur teflt á mótum í Danmörku, Tékklandi og nú í Belgíu. Haldi hann uppteknum hætti kæmi ekki á óvart þótt hann yrði næsti alþjóðlegi meistari íslend- inga og skyti þar með mörgum af okkar yngri skákmönnum ref fyrir rass. Tölfræðin vinnur með Róberti og maður af hans styrkleika þarf ekki mörg skákmót í viðbót til að hala inn áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Lost Boys skákmótið er haldið í Antwerpen og tefldar eru níu um- ferðir. Mótinu lýkur 8. ágúst. Teflt er í þremur flokkum auk þess sem fi-am fer lokað átta manna skákmót með ýmsum þekktum stórmeistur- um. A-riðill er opinn fyrir skákmenn með 2.200 stig og þar yfir. Meðalstig keppenda eru 2.306, eða svipuð og á síðasta móti, sem Róbert tók þátt í, opna tékkneska meistaramótinu. Meðal keppenda eru 14 stórmeistar- ar og 19 alþjóðlegir meistarar. B-rið- ill er fyrir skákmenn með meira en 1.600 stig og C-riðill er opinn öllum með lægri stig. Kasparov - Krush? Skák Kasparovs gegn Netverjum , heldur mörgum skákmanninum hug- fóngnum. Ráðleggingar um næsta leik koma hvaðanæva úr heiminum, auk þess sem fjórir ungir og efnileg- ir skákmenn eru formlegir ráðgjafar andstæðinga Kasparovs. Þetta eru franski stórmeistarinn Etienne Bacrot (2.592), bandaríska stúlkan Irina Krush (2.432), Bandaríkjamað- urinn Florin Felecan (2.380) og þýska stúlkan Elisabeth Paehtz (2.276). Sterkasti ráðgjafinn, stórmeistar- inn Etienne Bacrot, virðist ekki vera allt of hrifinn af þeirri stöðu sem upp er komin. Þá hefur norski stórmeist- arinn Rune Djurhuus sagt, að skákin sé í raun barátta á milli hinnar 15 ára gömlu Irina Ki-ush og Gary Ka- ' sparov. Djurhuus bætir við að hann sjái ekki betur en staða Kasparovs batni við hvern leik. Þrátt fyrir mismunandi skoðanir þátttakenda vii-ðist þessi viðburður ætla að slá öll fyrri met. Þannig hafa verið skráðar yfir 6.000.000 uppflett> ingar á vefnum sem Microsoft setti upp fyrir keppnina. Microsoft vonast að sjálfsögðu til að slá metið sem sett var þegar Deep Blue tefldi við Ka- sparov og gera þannig betur en IBM. Meðan þessir risar viðskiptalífsins berjast um athyglina kætast hins vegar skákmenn um allan heim yfir þeim ótrúlega áhuga sem skákinni er sýnd. Kasparov virðist svo sannar- lega hafa haft rétt fyrir sér þegar hann sagði að Netið og skákin væru eins og sniðin fyrir hvort annað. Nánari upplýsingar á heimasíðu Taflfélagsins Hellis: www.sim- net.is/hellir. v Daði Örn Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.