Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 92
Eru gögnin í þínu
fyrirtæki aðgengileg
eða eru þau fryst?
Það cr dýrt að láta starfsfólklð bíða!
Tölvukerfi sem virkar r'IC' I
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Hestaútflutningur til Noregs
Rannsaka 4-6
milljóna svindl
LÖGREGLAN í Kristiansund í
Noregi, í samstarfi við Ökokrim,
efnahagsbrotadeild ríkislögreglunn-
ar þar í landi, rannsakar nú meint
tolla- og skattasvindl vegna inn-
flutnings Norðmanns á íslenskum
hestum árið 1996 og er talið að hann
hafi komið sér undan greiðslu 4-6
milljóna íslenskra króna. Fjórir
norskir lögreglumenn og 3-4 starfs-
menn norsku tollgæslunnar voru
hér á landi fyrir nokkrum vikum við
rannsókn á málinu. Islendingur sem
; Jputtist búferlum frá íslandi til Nor-
egs, áður en rannsókn málsins
hófst, tengist því, en er þó ekki
meðal sakbominga.
Johan Peter Iversen, lögreglu-
fulltrúi í Kristiansund, segir að lög-
reglunni hafi borist málið frá toll-
gæslunni árið 1996 og hafi rann-
sóknin staðið síðan. Á þessu ári hafi
nýjar upplýsingar borist sem hafi
auðveldað hana og vonast lögreglan
nú til að ljúka henni í haust.
Rannsóknin beinist að norskum
manni sem búsettur er í héraðinu
Normore, suðvestur af Kristi-
ansund. Iversen segir að hámarks-
refsing í málum sem þessum sé sex
ára fangelsi, en alls óljóst sé hvað
bíði sakbomingsins í þessu ákveðna
máli.
Iversen segir að Islendingurinn
tengist málinu þannig að hann hafi
keypt hesta fyrir Norðmanninn á
íslandi, en að hann teljist aðeins
vera vitni.
Tveir lögreglumenn frá Kristi-
ansund og tveir frá Ökokrim, auk 3-
4 tollgæslumanna, vom hér á landi í
um vikutíma við rannsóknir í sam-
starfi við starfsmenn ríkislögreglu-
stjóra og ríkistollstjóra.
Gunnar Björgvinsson í Liechtenstein
Hefur keypt
um 200 þotur
GUNNAR Björgvinsson, flugvéla-
miðlari í Liechtenstein, hefur á þeim
tæpu 20 ámm sem hann hefur stund-
að viðskipti með flugvélar keypt nærri
200 þotur fyrir kringum 1,5 milljarða
bandaríkjadala. Svarar það til um 100
milljörðum íslenskra króna.
Eftir að hafa lært flugvirkjun í
Noregi og Bandaríkjunum réðst
Gunnar fljótlega til Loftleiða. Starf-
< ***aði hann fyrst sem flugvirki og flug-
vélstjóri en var í árslok 1962 beðinn
um að taka að sér uppbyggingu á
verkstæði Loftleiða í Lúxemborg.
Rúmum áratug síðar var verkstæðið
selt Cargolux og rak Gunnar það
áfram. Árið 1981 hætti Gunnar störf-
um hjá Cargolux þegar hann var
kjörinn í stjórn fyrirtækisins og hóf
viðskipti með flugvélar, fyrst fyrir
aðra en fljótlega í eigin nafni.
I samtali við Morgunblaðið vildi
Gunnar ekki mikið ræða viðskipti
sín, sagðist stundum hafa fengið
skell í þessum viðskiptum en oftar
þó borið eitthvað úr býtum. Sagði að
eina talan sem hann hefði á hrað-
bergi og léti uppi væri um fjölda
flugvéla sem hann hefði keypt. Hann
segist reyna að selja vélarnar sem
fyrst en stundum leigir hann þær
flugfélögum.
■ Fleiri/Hefur/34-37.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
LANGAR biðraðir mynduðust við Hvalflarðargöngin í gær. Þurfti að loka þeim vegna mengunar.
Umferðin frá höfuðborginni var slysalaus í gær
Hvalfjarðargöngun-
um lokað sjö sinnum
EINS og vænta mátti var miki] um-
ferð frá Reykjavík í gær er fólk
flykktist út á land til að gera sér
glaðan dag um verslunarmanna-
helgina. Loka þurfti Hvalfjarðar-
göngunum sjö sinnum vegna meng-
unar og hlutust af því nokkrar tafir,
en að öðru leyti mun umferðin hafa
gengið vel og undir miðnætti höfðu
engin slys orðið, að sögn lögreglu,
sem almennt var sátt við framgöngu
ökumanna. Töluverðar tafir urðu á
flugi til Vestmannaeyja vegna þoku
þar, en vel mun hins vegar hafa
gengið að fljúga til Akureyrar.
Starsfólk í gjaldskýlum við Hval-
fjarðargöngin sagði umferðina í
gær hafa verið afar þægilega og
óhappalausa. Mun stöðugur
straumur bíla hafa legið um göngin
frá klukkan tvö til níu í gærdag, en
þá fór heldur að hægjast um. Áætl-
aði starfsfólkið að þá hefðu fimm
þúsund bílar hið minnsta farið þar í
gegn.
Hinn mikil umferðarþungi varð
til þess að göngunum var lokað alls
sjö sinnum vegna mengunar og
urðu ferðalangar þá að halda kyrru
fyrir í 5-15 mínútur meðan loftræst
var. Hlutust af þessu nokkrar tafir
og biðraðir mynduðust sem náðu
suður fyrir Kjalarnes. Var það þó
mat starfsfólks í gjaldskýlunum að
fólk hefði tekið töfunum með jafnað-
argeði.
Lögreglumenn á Selfossi báru sig
vel og hrósuðu ökumönnum fyrir að
sýna viðeigandi þolinmæði í umferð-
inni. Fannst þeim sérstaklega
ánægjulegt að eftir myndatökur í
þijár klukkustundir, þegar alls
1.300 bílar fóru um, mættu aðeins
16 ökumenn eiga von á að fá senda
mynd af sér á of mikilli ferð. Sögðu
þeir umferðina hafa tekið að þyngj-
ast upp úr hádegi og að enn væri
mikill straumur þótt farið væri að
kvölda, en um kl. 21.30 höfðu 7.500
bílar lagt leið sína yfir Hellisheiði.
Tafir á flugi
til Vestmannaeyja
Talsverðar tafir urðu á flugi til
Vestmannaeyja í gær, en þoka þar
olli því að þangað var ekki hægt að
fljúga fyrr en kl. 14.30. Eftir það
gekk flug hins vegar eðlilega fyrir
sig að sögn afgreiðslufólks Flugfé-
lags Islands og ekki útlit fyrir að
nokkur þyrfti að bíða þangað til í
dag. Alls fóru 15 vélar til Vest-
mannaeyja í gær með samtals um
700 farþega.
Betur gekk að fljúga til Akureyr-
ar, þótt bilun í einni flugvél hafi
valdið smávægilegum töfum, Alls
fóru 9 vélar norður yfir heiðar í gær
með um 500 farþega.
Skinnaiðnaðurinn í erfíðleikum og útlit fyrir lágt verð á gærum í haust
Jákvæð svörun við athugun
- á sölumöguleikum erlendis
ÚTLIT er fyrir að skinnaðinaðurinn
greiði mun lægra verð fyrir gærur í
haust en í fyrra en þá lækkaði verðið
verulega. Þess vegna hafa sláturleyf-
ishafar og bændur kannað sölu-
möguleika erlendis. Kjötumboðið
hefur fengið jákvæð viðbrögð við
sölutilraunum sínum erlendis og er
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 4.
ágúst. Áskriftardeild blaðsins
verður opin til kl. 14 í dag, laug-
ardag, en lokuð sunnudag og
mánudag. Fréttaþjónusta verð-
ur alla verzlunarmannahelgina
á Fréttavef Morgunblaðsins.
Slóðin er http://www.mbl.is.
útflutningsstjóri þess bjartsýnn á að
það leiði til sölu á 150 þúsund hrá-
gærum við hærra verði en greitt er
hér innanlands.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segir að staðan í skinnaiðnað-
inum sé ekki góð og verð fyrir gærur
lágt. Því séu margir bændur farnir
að kanna möguleika á að selja hrá-
gærur beint á erlenda markaði í
þeirri von að það skili sér í hærra
verði. Með því yrði íslenskur skinna-
iðnaður án hráefnis.
Vegna hins dökka útlits segir
Guðni landbúnaðar- og iðnaðarráðu-
neytið hafa sammælst um að reyna
að bæta hag skinnaiðnaðarins og
hafið sé starf sem miði að því að
kanna leiðir til þess.
Bjami Jónasson, framkvæmda-
stjóri Skinnaiðnaðar hf. á Akureyri,
sagði útlit fyrir að gæruverð yrði
lágt. Sagði hann fyrirtækið hafa
keypt gærur á verði sem tæki mið af
heimsmarkaðsverði og kvað horfur
vera á að það yrði lægra en í fyrra.
Tók hann þó fram að of snemmt væri
að fullyrða nokkuð um hvert hið end-
anlega verð yrði og sagði það ráðast
af markaðinum í haust.
Lægra verð
en á síðasta ári
Aðalsteinn Jónsson, formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda, segir
að lækkun gæruverðs sé mikið áfall
fyrir bændur ásamt hækkandi ÚL
flutningshlutfalli kindakjöts. Skinna-
iðnaðurinn hafi rætt um að greiða
fyrir gærurnar 10 til 15 krónur á
kíló, sem svarar til 35 til 50 kr. á
hverja gæru. I fyrra hafi fengist 50
kr. á kíló eða sem svarar til 160 kr. á
gæruna. Vegna þessa hafi farið af
stað umræður um beinan útflutning.
Kjötumboðið hf. hefur unnið að
markaðsathugun fyrir ákveðin slát-
urhús. Bryndís Ragna Hákonardótb-
ir útflutningsstjóri segir að búið sé
að senda út prufur og þyki gærumar
góðar. Segist hún vera í sambandi
við fjóra aðila sem allir séu áhuga-
samir um að kaupa mikið magn en
það komi í ljós um miðjan ágúst
hvort af sölu verði. Ef til kemur býst
hún við að fluttar verði út að minnsta
kosti 150 þúsund gærur. Talið er að
um 600 þúsund dilkagærur falli til í
haust.
í fyrra fengu bændur uppbætur á
gæmverð, tæpar 50 milljónir úr rík-
issjóði, en það var fé sem sparaðist
af búvömsamningi vegna betri út-
komu á sölu dilkakjöts. Aðalsteinn
segir að ekkert fjármagn af því tagi
sé nú til ráðstöfunar.
Geitungar
réðust á og
slösuðu
þijá hunda
TVÆR fjölskyldur við Soga-
veginn í Reykjavík urðu í vik-
unni fyrir árás frá geitungum.
Mannfólkið slapp við stungur
geitunganna en þrír hundar
voro ekki eins heppnir og varð
að fara með þá til dýralæknis.
Húsbóndinn var að grilla úti
á verönd hjá sér ásamt kunn-
ingja sínum. Með þeim voru
dætur þeirra og fjórir hundar.
Allt í einu sjá þeir hvar geit-
ungur situr á baki doberman-
hunds. Þegar hundurinn reyndi
að hrista geitunginn af sér með
öllum tiltækum ráðum kom
heill her jarðgeitunga undan
veröndinni.
Mennirnir hlupu inn með
dætur sínar og sluppu við árás
geitunganna en doberman-
hundurinn fékk fjórar stungur,
shihtzusmáhundur fékk stungu
í augað og flat-coated retriever
hundur fékk tvær stungur, aðra
undir augað.