Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 92

Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 92
Eru gögnin í þínu fyrirtæki aðgengileg eða eru þau fryst? Það cr dýrt að láta starfsfólklð bíða! Tölvukerfi sem virkar r'IC' I MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Hestaútflutningur til Noregs Rannsaka 4-6 milljóna svindl LÖGREGLAN í Kristiansund í Noregi, í samstarfi við Ökokrim, efnahagsbrotadeild ríkislögreglunn- ar þar í landi, rannsakar nú meint tolla- og skattasvindl vegna inn- flutnings Norðmanns á íslenskum hestum árið 1996 og er talið að hann hafi komið sér undan greiðslu 4-6 milljóna íslenskra króna. Fjórir norskir lögreglumenn og 3-4 starfs- menn norsku tollgæslunnar voru hér á landi fyrir nokkrum vikum við rannsókn á málinu. Islendingur sem ; Jputtist búferlum frá íslandi til Nor- egs, áður en rannsókn málsins hófst, tengist því, en er þó ekki meðal sakbominga. Johan Peter Iversen, lögreglu- fulltrúi í Kristiansund, segir að lög- reglunni hafi borist málið frá toll- gæslunni árið 1996 og hafi rann- sóknin staðið síðan. Á þessu ári hafi nýjar upplýsingar borist sem hafi auðveldað hana og vonast lögreglan nú til að ljúka henni í haust. Rannsóknin beinist að norskum manni sem búsettur er í héraðinu Normore, suðvestur af Kristi- ansund. Iversen segir að hámarks- refsing í málum sem þessum sé sex ára fangelsi, en alls óljóst sé hvað bíði sakbomingsins í þessu ákveðna máli. Iversen segir að Islendingurinn tengist málinu þannig að hann hafi keypt hesta fyrir Norðmanninn á íslandi, en að hann teljist aðeins vera vitni. Tveir lögreglumenn frá Kristi- ansund og tveir frá Ökokrim, auk 3- 4 tollgæslumanna, vom hér á landi í um vikutíma við rannsóknir í sam- starfi við starfsmenn ríkislögreglu- stjóra og ríkistollstjóra. Gunnar Björgvinsson í Liechtenstein Hefur keypt um 200 þotur GUNNAR Björgvinsson, flugvéla- miðlari í Liechtenstein, hefur á þeim tæpu 20 ámm sem hann hefur stund- að viðskipti með flugvélar keypt nærri 200 þotur fyrir kringum 1,5 milljarða bandaríkjadala. Svarar það til um 100 milljörðum íslenskra króna. Eftir að hafa lært flugvirkjun í Noregi og Bandaríkjunum réðst Gunnar fljótlega til Loftleiða. Starf- < ***aði hann fyrst sem flugvirki og flug- vélstjóri en var í árslok 1962 beðinn um að taka að sér uppbyggingu á verkstæði Loftleiða í Lúxemborg. Rúmum áratug síðar var verkstæðið selt Cargolux og rak Gunnar það áfram. Árið 1981 hætti Gunnar störf- um hjá Cargolux þegar hann var kjörinn í stjórn fyrirtækisins og hóf viðskipti með flugvélar, fyrst fyrir aðra en fljótlega í eigin nafni. I samtali við Morgunblaðið vildi Gunnar ekki mikið ræða viðskipti sín, sagðist stundum hafa fengið skell í þessum viðskiptum en oftar þó borið eitthvað úr býtum. Sagði að eina talan sem hann hefði á hrað- bergi og léti uppi væri um fjölda flugvéla sem hann hefði keypt. Hann segist reyna að selja vélarnar sem fyrst en stundum leigir hann þær flugfélögum. ■ Fleiri/Hefur/34-37. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins LANGAR biðraðir mynduðust við Hvalflarðargöngin í gær. Þurfti að loka þeim vegna mengunar. Umferðin frá höfuðborginni var slysalaus í gær Hvalfjarðargöngun- um lokað sjö sinnum EINS og vænta mátti var miki] um- ferð frá Reykjavík í gær er fólk flykktist út á land til að gera sér glaðan dag um verslunarmanna- helgina. Loka þurfti Hvalfjarðar- göngunum sjö sinnum vegna meng- unar og hlutust af því nokkrar tafir, en að öðru leyti mun umferðin hafa gengið vel og undir miðnætti höfðu engin slys orðið, að sögn lögreglu, sem almennt var sátt við framgöngu ökumanna. Töluverðar tafir urðu á flugi til Vestmannaeyja vegna þoku þar, en vel mun hins vegar hafa gengið að fljúga til Akureyrar. Starsfólk í gjaldskýlum við Hval- fjarðargöngin sagði umferðina í gær hafa verið afar þægilega og óhappalausa. Mun stöðugur straumur bíla hafa legið um göngin frá klukkan tvö til níu í gærdag, en þá fór heldur að hægjast um. Áætl- aði starfsfólkið að þá hefðu fimm þúsund bílar hið minnsta farið þar í gegn. Hinn mikil umferðarþungi varð til þess að göngunum var lokað alls sjö sinnum vegna mengunar og urðu ferðalangar þá að halda kyrru fyrir í 5-15 mínútur meðan loftræst var. Hlutust af þessu nokkrar tafir og biðraðir mynduðust sem náðu suður fyrir Kjalarnes. Var það þó mat starfsfólks í gjaldskýlunum að fólk hefði tekið töfunum með jafnað- argeði. Lögreglumenn á Selfossi báru sig vel og hrósuðu ökumönnum fyrir að sýna viðeigandi þolinmæði í umferð- inni. Fannst þeim sérstaklega ánægjulegt að eftir myndatökur í þijár klukkustundir, þegar alls 1.300 bílar fóru um, mættu aðeins 16 ökumenn eiga von á að fá senda mynd af sér á of mikilli ferð. Sögðu þeir umferðina hafa tekið að þyngj- ast upp úr hádegi og að enn væri mikill straumur þótt farið væri að kvölda, en um kl. 21.30 höfðu 7.500 bílar lagt leið sína yfir Hellisheiði. Tafir á flugi til Vestmannaeyja Talsverðar tafir urðu á flugi til Vestmannaeyja í gær, en þoka þar olli því að þangað var ekki hægt að fljúga fyrr en kl. 14.30. Eftir það gekk flug hins vegar eðlilega fyrir sig að sögn afgreiðslufólks Flugfé- lags Islands og ekki útlit fyrir að nokkur þyrfti að bíða þangað til í dag. Alls fóru 15 vélar til Vest- mannaeyja í gær með samtals um 700 farþega. Betur gekk að fljúga til Akureyr- ar, þótt bilun í einni flugvél hafi valdið smávægilegum töfum, Alls fóru 9 vélar norður yfir heiðar í gær með um 500 farþega. Skinnaiðnaðurinn í erfíðleikum og útlit fyrir lágt verð á gærum í haust Jákvæð svörun við athugun - á sölumöguleikum erlendis ÚTLIT er fyrir að skinnaðinaðurinn greiði mun lægra verð fyrir gærur í haust en í fyrra en þá lækkaði verðið verulega. Þess vegna hafa sláturleyf- ishafar og bændur kannað sölu- möguleika erlendis. Kjötumboðið hefur fengið jákvæð viðbrögð við sölutilraunum sínum erlendis og er MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út miðvikudaginn 4. ágúst. Áskriftardeild blaðsins verður opin til kl. 14 í dag, laug- ardag, en lokuð sunnudag og mánudag. Fréttaþjónusta verð- ur alla verzlunarmannahelgina á Fréttavef Morgunblaðsins. Slóðin er http://www.mbl.is. útflutningsstjóri þess bjartsýnn á að það leiði til sölu á 150 þúsund hrá- gærum við hærra verði en greitt er hér innanlands. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra segir að staðan í skinnaiðnað- inum sé ekki góð og verð fyrir gærur lágt. Því séu margir bændur farnir að kanna möguleika á að selja hrá- gærur beint á erlenda markaði í þeirri von að það skili sér í hærra verði. Með því yrði íslenskur skinna- iðnaður án hráefnis. Vegna hins dökka útlits segir Guðni landbúnaðar- og iðnaðarráðu- neytið hafa sammælst um að reyna að bæta hag skinnaiðnaðarins og hafið sé starf sem miði að því að kanna leiðir til þess. Bjami Jónasson, framkvæmda- stjóri Skinnaiðnaðar hf. á Akureyri, sagði útlit fyrir að gæruverð yrði lágt. Sagði hann fyrirtækið hafa keypt gærur á verði sem tæki mið af heimsmarkaðsverði og kvað horfur vera á að það yrði lægra en í fyrra. Tók hann þó fram að of snemmt væri að fullyrða nokkuð um hvert hið end- anlega verð yrði og sagði það ráðast af markaðinum í haust. Lægra verð en á síðasta ári Aðalsteinn Jónsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir að lækkun gæruverðs sé mikið áfall fyrir bændur ásamt hækkandi ÚL flutningshlutfalli kindakjöts. Skinna- iðnaðurinn hafi rætt um að greiða fyrir gærurnar 10 til 15 krónur á kíló, sem svarar til 35 til 50 kr. á hverja gæru. I fyrra hafi fengist 50 kr. á kíló eða sem svarar til 160 kr. á gæruna. Vegna þessa hafi farið af stað umræður um beinan útflutning. Kjötumboðið hf. hefur unnið að markaðsathugun fyrir ákveðin slát- urhús. Bryndís Ragna Hákonardótb- ir útflutningsstjóri segir að búið sé að senda út prufur og þyki gærumar góðar. Segist hún vera í sambandi við fjóra aðila sem allir séu áhuga- samir um að kaupa mikið magn en það komi í ljós um miðjan ágúst hvort af sölu verði. Ef til kemur býst hún við að fluttar verði út að minnsta kosti 150 þúsund gærur. Talið er að um 600 þúsund dilkagærur falli til í haust. í fyrra fengu bændur uppbætur á gæmverð, tæpar 50 milljónir úr rík- issjóði, en það var fé sem sparaðist af búvömsamningi vegna betri út- komu á sölu dilkakjöts. Aðalsteinn segir að ekkert fjármagn af því tagi sé nú til ráðstöfunar. Geitungar réðust á og slösuðu þijá hunda TVÆR fjölskyldur við Soga- veginn í Reykjavík urðu í vik- unni fyrir árás frá geitungum. Mannfólkið slapp við stungur geitunganna en þrír hundar voro ekki eins heppnir og varð að fara með þá til dýralæknis. Húsbóndinn var að grilla úti á verönd hjá sér ásamt kunn- ingja sínum. Með þeim voru dætur þeirra og fjórir hundar. Allt í einu sjá þeir hvar geit- ungur situr á baki doberman- hunds. Þegar hundurinn reyndi að hrista geitunginn af sér með öllum tiltækum ráðum kom heill her jarðgeitunga undan veröndinni. Mennirnir hlupu inn með dætur sínar og sluppu við árás geitunganna en doberman- hundurinn fékk fjórar stungur, shihtzusmáhundur fékk stungu í augað og flat-coated retriever hundur fékk tvær stungur, aðra undir augað.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.