Morgunblaðið - 18.09.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 19
STUNDIN OKKAR!
Stundin okkar er runnin upp og gull og grænir skógar bíða þess í Laugardalnum
að Þróttarar hreiðri þar um sig leiftrandi af gleði á hálfrar aldar afmæli félagsins.
Gleðin verður við völd í allan dag, hefst á skrúðgöngu frá gamla svæðinu við Holtaveg
og endar í veglegri afmælis- og vígsluhátíð í nýja félagsheimilinu og á völlunum þar í kring.
Þar sem þetta er stundin okkar, verða Gunni og Felix í aðalhlutverkum og sjá til þess að
engum leiðist á þessari fjölskylduhátíð Þróttara og allra íbúa í hverfinu okkar.
FJÖLSKYLDUDAG5KRÁIN
Skrúðganga kl. 12:30 frá gamla svæðinu við Holtaveg.
Komið við á öllum nýju svæðunuum - prestur vígir vellina
Leiktæki fyrir alla aldurshópa.
Radarbyssa sem mælir skothörkuna.
Vítaspyrnukeppni á Fjalar Þorgeirsson markvörð Þróttar og íslenska U-21 landsliðsins.
Jón Ólafsson og Köttararnir taka lagið
Gunni og Felix verða í essinu sínu.
Kötturinn sjálfur, lukkudýr okkar allra, verður kynntur til sögunnar
Úrslit í teiknimyndasamkeppni grunnskóla svæðisins verða kunngerð, og allar
myndirnar sýndar. Glæsileg verðlaun fyrir skemmtilegustu myndirnar.
Afmælisterta, af því að við eigum afmæli.
SS pylsur frá Bæjarins bestu, Emmess ís, gos frá Vtfilfelli og Rydens kaffi á könnunni.
Það er ekki eftir neinu að bíða, farðu í röndóttu
fötin þín og taktu þátt í fjörinu.