Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 62
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ #2 UMRÆÐAN „ Sjávarafurðir o g fiskeldi ASTÆÐAN fyrir skrifum mínum er lítil frétt sem birtist í Morgunblaðinu 27. ágúst um sjávarafurð- ir með fyrirsögnini „Mest flutt út frá j7oregi“. í fréttinni eru ýmsar athyglis- verðar upplýsingar, m.a. að Norðmenn séu orðnir mestu útflytj- endur „sjávarafurða“ í heimi, ef miðað er við verðmæti samkvæmt tölum frá 1997. Að auki bendir allt til að forskot Norðmanna bara aukast mum næstu ár. Margur hlýtur að spyrja hvar Norðmenn veiði allan þennan fisk eða hverju þetta sæti? I nefndri grein kom reyndar ekki fram að stór hluti þessara verðmæta er frá fiskeldinu og að aukningin sem átt hefur sér stað ár ári er einnig þaðan þó að ein- hverjar sveiflur séu í sjávarfangi á milli ára. Ef Norðmenn á sínum tíma hefðu ekki lagt áherslu á að þróa fiskeldis-atvinnugreinina myndu þeir tæpast komast á blað á þeim lista sem í fréttinni var birtur frekar en við Islendingar. Það skal tekið fram að þróun norsks fiskeld- is kostaði tíma, svita og ekki síst peninga. Stuttu eftir 1950 hófust fyrstu tilraunir með eldi á regn- bogasilungi í sjó og árið 1967 hóf ^^Towi A/S laxeldi í sjó rétt utanvið Bergen og fleiri fylgdu í kjölfarið. Má segja að til ársins 1975 hafi verið barist í bökkum en það ár framleiddu Norðmenn 3.000 tonn af eldisfiski (laxi og regnbogaurr- iða) sem er svipað því sem Islend- ingar hafa verið og eru að fram- leiða á ári. Síðan hafa átt sér stað stöðugar framfarir og árið 1997 framleiddu Norðmenn 346.000 tonn og búist er við u.þ.b 475.000 tonna framleiðslu árið 2000, að verðmæti u.þ.b 180 milljarða ísl. króna. Ennig má benda á að fleiri af þeim löndum sem á listanum voru í áðumefndri frétt em með öflugt fiskeldi, t.d. Tæland og Kína. Á ráðstefnu í Ósló ••ýverið var lögð fram spá þar sem gert er ráð fyrir að bara norskt fiskeldi muni afla 100 miljarða norskra króna (u.þ.b. kr. 1000 miljarðar) árið 2020, eftir 20 ár. Hver var að tala um olíu? Það er grátbroslegt, þrátt fyrir þær staðreyndir og ábendingar sem hér koma fram að á Islandi heyri maður ennþá talað um fisk- eldi og loðdýrarækt, nánast í sama orðinu. Ekki að ég vilji hallmæla loðdýrarækt heldur bendi ég á að í fiskeldi er verið að framleiða dag- leg matvæli ofaní allflesta jarðar- búa en loðdýraræktin framleiðir efni í fatnað og skófatnað sem ein- ungis nær til örlítils brots af fata- mg skómarkaði í heiminum. Einnig er það bagalegt að íslendingar skuli hafa afneitað þessari mikil- vægu atvinnugrein eftir tiltölulega Guðmundur Valur Stefánsson litlar tilraunir og nokkurra ára mótbyr, sem átti sér að mestu stað frá 1987 til 1991, sér í lagi ef lagt er til grundvallar að við hefðum getað verið að afla þjóðarbúinu tuga milljarða verðmæti. Eg vil hér með benda á að eldi á fiski og öðru vatna- og sjávarfangi er öflug atvinnugrein víðast hvar í heiminum og vex að meðaltali um 5-15% á ári. Fisk-, krabba- og skjeljaeldi er sú matarupp- sem mætir vaxandi þörf spretta heimsins fyrir sjávarfang í dag og væntanlega um langa framtíð, enda ekki útlit fyrir að fiskimið Fiskeldi Fisk-, krabba- og skeljaeldi er sú matar- uppspretta, segir Guðmundur Yalur Stefánsson, sem mætir vaxandi þörf heimsins fyrir sjávarfang í dag. hafsins geti mætt aukinni eftir- spurn. Þar sem bæði landbúnaður og akuryrkja er takmarkað af nátt- úrulegu vatnsframboði er ekki búist við verulegri matvælaaukn- ingu úr þeirri átt heldur. Á síðustu áratugum hefur mikil tækni- og líf- tækniþróun átt sér stað í fiskeldi sem hefur leitt til aukinna mögu- leika við mismunandi aðstæður og kynbættur eldisfískur bæði þolir mismunandi aðstæður betur og gefur betri fjárhagslega niður- stöðu en áður var þekkt. Að auki koma sífellt fleiri tegundir til greina sem valmöguleikar, sem eykur enn á fjölbreytni bæði varð- andi eldisaðstæður og markaði. Þó að seint sé um rassinn gripið, er „seint“ sjaldnast „of seint“. Höfundur er cand.sient. ífískeldi. Sögukennsla í framhaldsskólum I VIÐTALI sem birtist í Morgunblað- inu 31. ágúst s.l. ræð- ir menntamálaráð- herra, Björn Bjarnason, um nýjar námskrár grunn- og framhaldsskóla. Eg hnaut um ummæli hans um sögukennslu í framhaldsskólum og vil hér gera athuga- semd við þau. Til að byrja með er rétt að rifja upp fyrir lesend- um að skv. nýju nám- skránni er saga nú aðeins sex einingar í kjarna og geta nem- Margrét Gestsdóttir endur á öðrum brautum en svok- allaðri „félagsfræðabraut" látið þar við sitja ef þeir vilja. Þetta er umtalsverð rýrnun frá því sem verið hefur en ég ætla að láta til- drög þessa liggja á milli hluta og hvaða mark var tekið á tillögum forvinnuhóps sem starfaði við upphaf námskrárvinnunnar. Það sem ég ætla að gera að umræðu- efni er sú skoðun menntamálar- áðherra sem fram kemur í nefndu viðtali að eins og stærðfræðin í framhaldsskóla eigi ekki að vera hindrun fyrir þá sem hafi ekki áhuga á henni, eigi sagnfræðin ekki að vera hindrun fyrir þá sem hafi áhuga á að einbeita sér að öðru. Eg hef kennt sögu í fram- haldsskóla í sex ár og mér er al- gerlega nýtt að líta á kennslugrein mína sem „hindrun“ á vegi nem- enda til stúdentsprófs. Ég treysti mér líka til að fullyrða að nemend- ur mínir líti heldur ekki almennt þannig á hana og kem nánar að því síðar. Björn ver minni söguk- ennslu í framhaldsskólum með því að nemendur fái góða sýn yfir Isl- andssöguna í grunnskóla. Hvort skilja ber þetta svo að hún sé þar með svo gott sem afgreidd veit ég ekki og enn síður get ég áttað mig á hver eru skilaboðin með þeim fróðleiksmola að á sínum tíma hafi sagnfræðin verið rituð út frá marxísku sjónarhorni og þjóðfé- lagið skoðað í ljósi lögmála sem ekki hafa gengið upp. Hitt vita all- ir sögukennarar og margir nem- endur þeirra að saga er eitt þeirra viðfangsefna sem höfðar meira til fólks með aldrinum. Að fást við Sturlungaöld með börnum er afar ólíkt því að skoða hana með unglingum sem lesa allt annað úr at- burðunum og sjá ótal skírskotanir til sam- tímans eða annars sem þeir yngri eru óf- ærir um. I raun mætti taka hvaða dæmi sem er en þetta á ekki síst við þegar kemur að mannkyns- sögu síðari alda. Fólk skilur samtímavið- burði með allt öðrum hætti ef það þekkir til bakgrunns og for- sögu. Gott dæmi frá síðasta mis- seri er stríðið í Kosovo. Hér geng ég út frá því að þekking á samtím- anum og skilningur á atburðum Nám Sagnfræðin hefur þann stóra kost, segir Margrét Gestsdóttir, að ekkert mannlegt eða ómannlegt er henni óviðkomandi. hans, hvort sem er á íslandi, ann- ars staðar á hnettinum eða utan hans sé af hinu góða og vænti þess að flestir lesendur geti tekið undir það. Sagnfræðin hefur þann stóra kost að ekkert mannlegt eða ómannlegt er henni óviðkomandi. Hún er því kjörinn vettvangur til að fara nýjar leiðir við notkun netsins og til tölvusamskipta af ýmsu tagi sem áhersla er á í nýju námskránni og margir sögukenn- arar eru löngu farnir að gera. Sagan hefur eitthvað að segja öll- um sem eru að safna að sér al- mennri þekkingu áður en kemur að sérhæfðara námi eða einfald- lega áður en lífsbaráttan hefst af fullum þunga, m.ö.o. hún á erindi til allra framhaldsskólanema. Því felst í því mikill misskilningur að sagan henti vart öðrum en þeim sem hyggjast sérhæfa sig í henni eða skyldum greinum. Þvert á móti er hún ekki síst kærkomin þeim nemendum sem alla jafna fást við raungreinar. I sögutímum gefst tækifæri til að ræða fyrir- bæri og atburði sem vekja ótal spurningar hjá hugsandi fólki og engir tímar í stundatöflunni henta betur en sögutímar til að fjalla um. Svo oft hef ég séð slíkt eiga sér stað og svo oft hafa nemendur sjálfir orðað þá tilfinningu að mér finnst dapurlegt að sjá mennta- málaráðherra tala um söguna sem „hindrun". Hversu mikið svigrúm gefst til að nýta þessi forréttindi sem sagan hefur að bjóða í tveim- ur skylduáföngum þar sem fara á yfir megnið af Islands- og mann- kynssögunni á eftir að koma í ljós þegar saman hafa verið settar skólanámskrár út um land. Allir vita að hér á landi er al- mennur áhugi á sögu, það sést af öflugu starfi sögu- og sagnfræð- ingafélaga, fundahöldum, þingum, ráðstefnum og útgáfu tímarita og bóka um söguleg efni sem njóta vinsælda langt út fyrir raðir sagn- fræðinga. Ég á erfitt með að ím- ynda mér að slíkur söguáhugi sé hluti af erfðaefni þjóðarinnar og velti/yrir mér hvaðan hann kem- ur. Án þess að þeirri spurningu verði svarað í stuttri grein þykist ég geta fullyrt að þess konar áhugi á sagnfræði sem fylgir fólki alla lífsleiðina verði oft áþreifan- legur og varanlegur á unglingsár- unum. Enginn vafi er á að nem- endur eru móttækilegir og tækifæri til að nýta þann áhuga ber að virkja. Að segja að sagn- fræði sé fyrst og fremst handa þeim sem þegar hafa áhuga á henni jafnast á við það ef bókaút- gefendur auglýstu nýjar skáldsög- ur sérstaklega handa bókmenntaf- ræðingum. Fyrirbærum sem auðga líf allra sem komast í snert- ingu við þau á að halda á lofti. Sögulausum manni má líkja við þann sem misst hefur minnið. Hann getur vissulega verið starf- hæfur í samfélaginu og lært allt sem þarf til að komast af, ekki síst ef hann hefur fartölvu að vopni, en hversu óumræðilega fátækleg til- vist hans er dylst engum. Höfundur er formaður Félags sögukennara. Má eitra fyrir börnum? MA eitra fyrir böm- um? Að sjálfsögðu ekki, segir hver heilvita mað- ur, hvers konar hálf- vitaspuming er þetta eiginlega. Þrátt fyrir eindregna afstöðu flestra er eitrað í stór- um stfl fyrir bömum á Islandi með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum. Og þau eiga sér sjaldn- ast undankomuleið. Jafnvel þótt öllum (upplýstum einstakl- ingum) sé ljóst að yfir 40 krabbameinsvald- andi efni og rúmlega 4.000 efnasambönd séu Þorgrímur Þráinsson SIMI557 7650 í tóbaksreyk réttir enginn bömum hjálparhönd. Þrælar tóbaksins líta undan, skömmustulegir í hjarta (ef þeir em ekki samviskulausir), hugs- anlega fullir sjálfsvorkunnar. Kannski em til hentugri orð eða setningar yfir það að reykja í návist bama - sem hljóma betur og friða samvisku þrælsins: Það er til dæmis hægt að tala um „frelsi" sem tröll- ríður reglulega allri umræðu í þjóð- félaginu og mun án efa ríða þjóðinni að fullu þegar fram í sækir. „Ég má gera það sem ég vil,“ hentar eflaust sumum, „þetta em nú lögleg fíkniefni," er líka nokkuð vinsælt. Kannski á allt annað orðalag betur við til að friða samviskuna. Er ekki orðið tíma- bært að tala hreint út? Það er linnulaust eitrað fyrir bömum á Islandi og við emm öll samsek. Hvenær myndum við horfa aðgerðalaus upp á fullorðna ganga í skrokk á barni eða þegar flugnaeitri væri úðað í andlit barns? Samt sýna fáir til- burði tfl að bjarga bömum úr tó- baksreyk. Er það vegna þess að af- leiðingamar koma ekki samstundis í Ijós? Enginn marblettur, ekkert sár, enginn grátur. Ekki benda á mig. Hverjir vilja skaða bömin sín? Enn ein hálfvitaspumingin! Að sjálfsögðu enginn. Fara þá niður- stöður rannsókna um skaðsemi óbeinna reykinga inn um annað eyr- að og út um hitt? Augljóslega hjá þeim þar sem fátt er um fyrirstöðu. Niðurstöður vísindalegra rann- Reykingar íslensk börn, segir Þorgrímur Þráinsson, búa við mestu óbeinar reykingar allra barna á Norðurlöndum á heimil- um smum. sókna á skaðsemi óbeinna reykinga era reglulega tíundaðar í fjölmið- lum; meiri Kkur á fósturláti, astma, seinþroska, vöggudauða og þegar til lengri tíma er litið - tvöfalt meiri líkur á því að bamið verði tóbaksfík- ill og geti orðið vímuefnum að bráð. Hvað geram við? Stingum höfð- inu í sandinn. I síðustu könnun um böm og óbeinar reykingar kom í ljós að ís- lensk böm búa við mestu óbeinar reykingar allra bama á Norður- löndum á heimilum sínum. Enn og aftur sláum við met miðað við fólks- fjölda. Dæmalaust, hvað við eram frábær! Þeir sem ættu helst að taka ofan- greind skilaboð til sín hafa líklega hætt lestrinum þegar þeh- áttuðu sig á inntaki greinarinnar. Þeir skammast sín, þótt þeir vflji ekki viðurkenna það, og hrista hausinn af vanþóknun - þótt sannleikurinn nagi þá að innan. Ef ekki era þeir samviskulausir. Fórnarlömb fíknar- innar drattast áfram í hlekkjum og sjálfsblekkingu. Og tóbaksiðnaður- inn hlær dátt. Hvert er álit þeirra sem láta sig málefni bama á íslandi varða? Er ekki tími til kominn að drattast upp úr hugsunarhætti sjötta áratugar- ins þegar skaðsemi tóbaks var fáum Ijós? Við eram um það bil að svífa „frjáls“ á eiturskýjum yfir í nýja öld. Ætlum við að láta í okkur heyra næst þegar við sjáum bam njörvað niður í bflstól og tóbaksþrællinn spúir yfir það eitri? Ætlum við að líta út um gluggann þegar eitrað er fyrir bömum á kaffi- og veitinga- húsum? Svo ekki sé talað um á knattspymuleikjum. Ekki benda á mig. Eg er sjálfúr sekur um afskipta- leysi en við ættum öll að skammast okkar. Höfundurinn er rithöfundur og tveggja barna faðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.