Morgunblaðið - 16.11.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 261. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐINS Bandaríkin Samið um skuldirnar við SÞ Ankara. AP. MADELEINE AJbright, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að bandaríska stjórnin hefði náð bráðabirgðasamkomulagi við þingið sem myndi gera henni kleift að greiða skuldir Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðimar. Albright sagði að samkomulagið myndi auka trúverðugleika og áhrif Bandaríkjanna innan samtakanna. Hún lagði þó áherslu á að sam- komulagið væri ekki endanlegt og Joe Lockhart, fjölmiðlafulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði að enn væri eftir að semja um orðalag þess. Skuldir Bandaríkjanna við Sam- einuðu þjóðirnar nema tæpum milljarði dala, 72 milljörðum króna, og repúblikanar hafa komið í veg fyrir greiðslu þeirra með kröfum um að dregið verði úr fjárstuðningi SÞ við fóstureyðingar erlendis. Friðarviðræður norður-írsku flokkanna í Belfast George Mitchell bjartsýnn á samkomulag Belfast. Reuters, AP. GEORGE Mitchell, sáttasemjari Bandaríkjastjómar á Norður-ír- landi, kvaðst í gær vera bjartsýnn á að flokkar kaþ- ólikka og mót- mælenda næðu bráðlega sam- komulagi í deil- unni um afvopn- un Irska lýðveldishersins (IRA) og stofn- un heimastjóm- ar. George „Ég hygg að Mitchell báðir aðilamir skilji nú sjónar- mið og kröfur viðsemjandans miklu betur en áður og við erum stað- ráðnir í að binda enda á þráteflið. Eg er æ bjartsýnni á að hægt verði að finna leið tO þess,“ sagði Mitch- ell. Hann bætti við að norður-írsku flokkarnir væm sammála um að stofna ætti heimastjómina og hefja afvopnun IRA „eins fljótt og auðið er“. Yfirlýsingunni fagnað Mitchell hefur reynt í ellefu vik- ur að leysa deilu stærsta flokks mótmælenda, UUP, og Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, sem hefur orðið til þess að friðarsamningur- inn frá síðasta ári hefur ekki komist í framkvæmd. UUP hefur neitað að mynda heimastjórn með Sinn Fein íýrr en IRA hefji afvopnunina. Leiðtogar Sinn Fein hafa hins veg- ar sagt að í friðarsamningnum séu engin ákvæði um að aðild flokksins að heimastjórninni sé háð því að IRA hefji strax afvopnun. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, sagði í gær að yfirlýsing Mitchells væri „uppörvandi“ og kvaðst vera sammála mati hans. Sir Reg Emp- ey, einn af samningamönnum UUP, fagnaði einnig yfirlýsingunni og skoraði á Sinn Fein og IRA að gefa skýi' loforð um afvopnun. Fjölmiðlar á Norður-írlandi sögðu um helgina að í málamiðlun- artillögum Mitchells væri gert ráð fyrir því að IRA hæfi afvopnunina í janúar en leiðtogar Sinn Fein sögðu í gær að ekkert væri hæft í þeim fréttum. Samningamenn, sem vOdu ekki láta nafns síns getið, sögðu að sam- kvæmt tillögunum yrði deilan leyst í áföngum og fyrsta skrefið yrði að UUP samþykkti tvo fulltrúa Sinn Fein í stjórnina, sem verður skipuð tólf ráðherrum. Sinn Fein ætti síð- an að gefa út yfirlýsingu þar sem flokkm-inn myndi lofa fullum stuðn- ingi við að vopnaðri baráttu IRA gegn breskum yfin-áðum yrði hætt. IRA ætti einnig að tOnefna fulltrúa í afvopnunarnefndina, sem er undir stjórn kanadíska hershöfðingjans Johns de Chasterlains. Gert er ráð fyrir því að heima- stjórnin verði mynduð í desember en norður-írsku flokkarnir deila enn um þá kröfu UUP að ráðherr- um Sinn Fein verði vísað úr heima- stjórninni ef IRA neitar að hefja af- vopnunina á tilsettum tíma. Breska stjórnin hefur hins vegar lagt til að allri stjórninni verði þá vikið frá um stundarsakir. EgyptAir-þotan Tekur FBI við rannsókn- inni? Newport. AP, Reuters. JIM Hall, formaður sam- gönguöryggisnefndar Banda- ríkjanna, NTSB, sem annast rannsóknir á flugslysum, vakti í gærkvöld máls á þeim mögu- leika að bandarísku alríkislög- reglunni FBI yrði falið að hafa yfirumsjón með rannsókninni á hrapi farþegaþotu EgyptAir í Atlantshafið 31. október. Sam- kvæmt bandarískum reglum getur FBI ekki annast slíkar rannsóknir nema gi'unur leiki á að glæpur hafi verið framinn. Hall sagði á blaðamanna- fundi að hann gerði sér grein fyrir því að „sögusagnir og kenningar" væru á kreiki um að þotan hefði farist vegna ein- hvers konar glæpsamlegs at- hæfis. „Við einbeitum okkur nú að því að meta með hliðsjón af upplýsingum okkar hvort rannsóknin eigi að vera áfram undir stjóm NTSB," bætti hann við. Hall kvaðst þó vera vongóð- ur um að hægt yrði að upplýsa hvað gerðist í þotunni áður en hún fórst. Leitarmönnum í Massachusetts tókst að ná upp svarta kassanum með hljóð- upptökum úr stjórnklefa þot- unnar á laugardag en þær hafa ekki enn varpað miklu ljósi á það sem gerðist. Að sögn Halls hefur það tafið rannsóknina að hægt hefur gengið að þýða samtöl flugmannanna, sem töl- uðu arabísku. ■ Litlar vísbendingar/28 Haldið upp á sj álfstæðisdaginn ISRAELAR frestuðu því í gær að afhenda Palestínumönnum 5% Vesturbakkans til viðbótar eftir að Ehud Barak, forsætis- ráðherra ísraels, og Yasser Ara- fat, leiðtoga Palestínumanna, tókst ekki að leysa deilu þeirra um hvaða landsvæði ísraelar ættu að láta af hendi á fundi sem haldinn var í fyrrakvöld. Palestínumenn kröfðust þess að þeir fengju yfirráð yfir þéttbýlli svæðum en Israelar höfðu lagt til. Dennis Ross, sáttasemjari Bandaríkjastjórnar, hélt til Mið- austurlanda í gær til að freista þess að leysa deiluna. Töfin á afhendingu landsvæð- anna varpaði skugga á hátíða- höld Palestínumanna í tilefni af því að í gær voru ellefu ár liðin frá því Palestínska þjóðarráðið lýsti yfir stofnun sjálfstæðs ríkis. Palestínskir skátar halda hér á stórum palestínskum fána í skrúðgöngu í tilefni sjálfstæðis- dagsins í bænum Ramallah á V esturbakkanum. Timamótasamningur Kína og Bandaríkjanna um viðskipti Aðild Kínverja að WTO ekki í höfn Genf, Peking. AP, Reuters. UNDIRRITAÐUR var í gær tíma- mótasamningur milli Kína og Bandaríkjanna um viðskipti en ráðamenn í öðrum ríkjum sögðu að Kínverjar þyrftu að yfirstíga ýms- ar hindranir áður en þeir gætu fengið aðild að Heimsviðskiptast- ofnuninni (WTO). Mike More, framkvæmdastjóri WTO, sagði að samningur Kína og Bandaríkjanna væri „stór áfangi“ í tilraunum Kínverja til að fá aðild að stofnuninni. Hann bætti hins vegar við að þeir ættu mörgum samningum ólokið við önnur ríki og ljúka þyrfti „mikilvægum viðræð- um“ við stofnunina áður en af aðild þeirra gæti orðið. Haft var eftir vestrænum emb- ættismönnum, að Kína gæti ekki orðið aðili að Heimsviðskiptastofn- uninni á fundi aðildarríkja hennar um næstu mánaðamót. Samkomulagi Kína og Banda- ríkjanna hefur verið fagnað í báð- um ríkjunum en með því er opnað fyrir aukinn markaðsaðgang bandarískra fyrirtækja í Kína. Kínverjar eiga hins vegar enn eftir að semja við Evrópusambandið (ESB), Kanada og fleiri ríki og úti- lokað er, að það takist fyrir 30. nóv. nk. þegar fulltrúar WTO-ríkjanna 134 koma saman í Seattle í Banda- ríkjunum. Charlene Barshefsky, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, sagði að af aðild þeirra ætti þó að geta orðið snemma á næsta ári. Ráðamenn í ríkjum Evrópu- sambandsins sögðu í gær að samn- ingurinn ætti að auðvelda samn- ingaviðræður Kínverja við ESB en lögðu áherslu á að þeir ættu eftir að semja við ESB um mjög erfið úrlausnarefni. „Við erum hlynntir því í megin- atriðum að Kína fái aðild að WTO en mikilvægt er að kröfur Evrópu- sambandsins hafi sama vægi og kröfur Bandaríkjanna," sagði Hans Eichel, utanríkisráðherra Þýskalands. Christian Sautter, fjármálaráð- herra Frakklands, fagnaði samn- ingnum en sagði að þótt Kínverjar hefðu rétt til að fá aðild að Heims- viðskiptastofnuninni yrðu þeir að uppfylla „ýmis skilyrði“ áður en af henni gæti orðið. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýsti samningnum sem „stóru skrefi“ í þá átt að Kína fengi aðild að WTO og „mikilvægum áfanga“ í samskiptum ríkjanna tveggja. „Hann er lyftistöng fyrir Banda- ríkin og Kína og alla heimsbyggð- ina.“ ■ Kínamarkaður/30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.