Morgunblaðið - 16.11.1999, Síða 68
> 68 ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason
Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Strokubrúðurin -k-kV.í
Rómantísk gamanmynd um hjóna-
bandsfælni og meðöl við henni.
Stjörnurnar ná vel saman og halda
fjörinu gangandi.
Trufluð tilvera;
stærri, lengri og óklippt +*'A
Félagarnir í Suðurgarði orsaka stríð
milli Bandaríkjanna og Kanada með
sóðalegum munnsöfnuði. Ykt mynd á
alla vegu, sem gaman er að.
The Haunting **
Peningaflóð, góðar brellur og leik-
tjöld bjarga litlu í leiðinlegri og
sjaldnast skelfílegri hrollvekju.
Októberhiminn ***'A
Hrífandi mynd um átthagafjötra,
drauma sem rætast, leitina að hinu
ókunna en fyrst og fremst um mann-
leg samskipti. Eftinninnilega vel
leikin.
Prince Valiant **
Gamaldags útgáfa á þessu sígilda
ævintýri sem stendur fyrir sínu með-
al yngstu áhorfendanna, þótt litlaust
SG.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
The Blair Witch Project **'A
Kjaftshögg á Hollywood-kerfíð.
Kostaði fimmaura og græddi millj-
arða og þótt vanti í raun upp á
spennuna sýnir hún vel hvað hægt er
að gera mikið fyrir lítinn pening. Sig-
ur fyrir óháða kvikmyndagerð í
Bandaríkjunum.
Bardagaklúbburinn ***
Sannarlega úthugsuð og áhugaverð
saga um tvo félaga sem stofna bar-
dagaklúbb, en myndin er dökk og
mjög ofbeldisfull.
Lygalaupurinn **
Martin Lawrence leikur kjaftask og
innbrotsþjóf sem kemst í þá erfiðu
aðstöðu að verða að gerast lögga til
að hafa uppi á þýfínu. Hressileg
della.
Strokubrúðurin **'Æ
Rómantísk gamanmynd um hjóna-
bandsfælni og meðöl við henni.
Stjörnurnar ná vel saman og halda
fjörinu gangandi.
Trufluð tilvera;
stærri, lengri og óklippt **'/>
Félagai-nir í Suðurgarði orsaka stríð
milli Bandaríkjanna og Kanada með
sóðalegum munnsöfnuði. Ýkt mynd á
alla vegu sem gaman er að.
Kóngurinn og ég **'/t
Nýjasta teiknimyndin frá Warner
Bros., er sæmileg skemmtun. Per-
sónusköpun og saga hefði mátt vera
sterkari og höfða betur til barna.
American Pie ***
Brattasta unglingamyndin um langa
hríð er óforskammað kynlífsgrín og
kemst upp með það. Geðugir óþekkt-
ir leikarar og mátulega áreitin at-
burðarás bjarga línudansinum.
Vel búna rannsóknarlöggan **'A
Ágætis barnamynd um mannlegt vél-
menni, sérútbúið til þess að takast á
við bófa. Góð tónlist, fínir leikarar en
sagan mætti vera fyrirferðarmeiri.
Stóri pabbi **
Adam Sandler er sjálfum sér líkur í
þessari nýju mynd þar sem gríni og
væmni er blandað saman með blend-
inni útkomu.
HÁSKÓLABÍÓ
Framapot
Ákaflega skemmtiieg pólitísk háðsá-
deila sem gerist í amerískum
menntaskóla. Alls engin mennta-
skóladella á Hollywood-vísu heldur
vitsmunaleg, fyndin og með fínum
leik Reese Witherspoon og Matthew
Brodericks.
Eðlisávísun *'/>
Furðulega óspennandi mynd sem
veit ekki hvort hún á að apa eftir
Gorillas.in the Mist eða Gaukshreiðr-
inu.
Bowfinger **'A
Geðþekk gamanmynd úr smiðju
Steve Martins með honum og Eddie
Murphy í aðalhlutverkum en myndin
fjallar um lánlausan kvikmyndafram-
leiðanda og ævintýraleg plön hans.
Dóttir foringjans **'/z
Travolta er ábúðamikill rannsóknar-
maður í myrkri mynd um samsæri
og spillingu í herbúðum. Þokkaleg
afþreying en óraunsæið pirrandi.
Úngfrúin góða og húsið ***
Góð kvikmynd, dramatísk og heii-
steypt. Það gneistar af Tinnu Gunn-
laugsdóttur, Ragnhildur Gísladóttir
kemur kannski mest á óvart. Syst-
umar tvær eru studdar sterkum hópi
leikara. Eftirminnileg kvikmynd sem
hverfist um mannleg gildi af listfengi
og ágætri alúð.
Rugrats-myndin **'Æ
Nokkrir bleiubossar úr teiknimynda-
þáttum lenda í ævintýrum á tjaldinu.
Ekki sem verst fyrir fjölskylduna.
KRINGLUBÍÓ
The Blair Witch Project **Vz
Kjaftshögg á Hollywood-kerfið.
Kostaði fímmaui'a og græddi milij-
arða og þótt vanti í raun upp á
spennuna sýnir hún vel hvað hægt er
að gera mikið fyrir lítinn pening. Sig-
ur fyrir óháða kvikmyndagerð í
Bandaríkjunum.
Brad Pitt og Edward Norton fara með aðalhlutverkin
í Bardagaklúbbnum.
Julia Roberts leikur strokubrúðurina á móti Richard Gere.
Strokubrúðurin **'A
Rómantísk gamanmynd um hjóna-
bandsfælni og meðöl við henni.
Stjörnurnar ná vel saman og halda
fjörinu gangandi.
Kóngurinn og ég **'/z
Nýjasta teiknimyndin frá Warner
Bros. er sæmileg skemmtun. Per-
sónusköpun og saga hefði mátt vera
sterkari og höfða betur til barna.
American Pie ***
Brattasta unglingamyndin um langa
hríð er óforskammað kynlífsgrín og
kemst upp með það. Geðugir óþekkt-
ir leikarar og mátulega áreitin at-
burðarás bjai^a línudansinum.
LAUGARASBÍÓ
Bardagaklúbburínn ***
Sannarlega úthugsuð og áhugaverð
saga um tvo félaga sem stofna bar-
dagaklúbb, en myndin er dökk og
mjög ofbeldisfull.
Sjötta skilningarvitið ****
Fantagóð draugasaga með Bruce
Willis. Segir af ungum dreng sem sér
drauga og barnasálfræðingnum sem
reynir að hjálpa honum. Frábær
sviðsetning, frábær leikur, frábær
saga, frábær mynd. Sjáið hana!
Kona geimfarans **
„Rosemary’s Baby“ utan úr geimn-
um. Er ekki vond mynd, fer vel af
stað en breytist hægt og sígandi úr
ofsóknartrylli í dáðlitla dellu.
Lína í Suðurhöfum **
Framhaldsmynd um Línu langsokk
sem nú er komin í siglingu. Sami sak-
leysissvipurinn á prakkaranum og í
fyrri myndinni. Algerlega fyrir ald-
urshópinn sem horfír á Stundina
okkar.
REGNBOGINN
Bardagaklúbburinn ***
Sannarlega úthugsuð og áhugaverð
saga um tvo félaga sem stofna bar-
dagaklúbb, en myndin er dökk og
mjög ofbeldisfull.
Sjötta skilningarvitið ****
Fantagóð draugasaga með Bruce
Willis. Segir af ungum dreng sem sér
drauga og barnasálfræðingnum sem
reynir að hjálpa honum. Frábær
sviðsetning, frábær leikur, frábær
saga, frábær mynd. Sjáið hana!
Út úr kortinu **'/z
Bæði fyndin og dramatísk þroska-
saga hins 17 ára Dildo. Áhugavert
handrit en leikstjórnin hefði mátt
vera styrkari.
Stjörnustríð - fyrsti hluti:
Ógnvaldurinn **
Fyrsti hlutinn í nýrri trílógíu Lucas-
ar veldur nokkrum vonbrigðum. En
þótt sagan sé ekki mikil í henni og
persónusköpunin veik er fullt af
brellum fyrir börnin pg sviðsmyndir
fagrar.
STJÖRNUBÍÓ
Lygalaupurínn **
Martin Lawi-ence leikur kjaftask og
innbrotsþjóf sem kemst í þá erfíðu
aðstöðu að verða að gerast lögga til
að hafa uppi á þýfinu. Hressileg
della.
Hlauptu, Lóla, hlauptu ***
Fantagóð mynd frá Þýskalandi um
unga konu sem hefur 20 mínútur til
þess að bjarga kærastanum sínum úr
ógöngum.
Stóri pabbi **
Adam Sandler er sjálfum sér líkur í
þessari nýju mynd þar sem gríni og
væmni er blandað saman með blend-
inni útkomu.
Hvaba skilyrbi þarf ab uppfylla?
Vera á aldrinum 18-26 ára • Góð enskukunnátta • Reynsla af barnagæslu • Ökuréttindi
* Hreint sakavottorð • Góð andleg og líkamleg heilsa.
Au Pair Extraordinarie
Nú gefst menntuðum leikskólakennurum og fólki
með starfsreynslu við barnagæslu einnig tækifæri
til að dvelja um tíma í Bandaríkjunum.
í boði eru öll hlunnindi sem au pair bjóðast
- og 60.000 kr. í vasapeninga á mánuði.
AU PAIR • NlALASKÓLAR • STARFSMAM
LÆKJARGATA 4 101 REYKJAVÍK SlMI 562 2362
FAX 562 9662 NETFANG vista@skima.is
Tónleikarnir voru vel sóttir.
Quarashi ríður á vaðið
HLJÓMSVEITIN Quarashi hólt
vel sótta tónleika í beinni mynd-
og hljóðútsending'u á Netinu síð-
astliðið föstudagskvöld og fóru
tónleikarnir fram í hljóðveri
Skjás 1. Þeir voru sendir út á
mbl.is í samvinnu við Símann
Internet. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Quarashi er í farar-
broddi í notkun á nýrri tækni á
Netinu. Til að kynna breiðskífu
sína Xeneizes gáfu þeir félagar
út lag á Netinu á MP3-sniði fyrir
stuttu.