Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 8
Þrjár myndir um þroskaheft ungmenni
8 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vildi sýna
líf þeirra
FYRSTA myndin af
þremur um ungt
þroskaheft fólk og
líf þess var frumsýnd á
Stöð 2 síðastliðið mánu-
dagskvöld. Yfirskrift
myndanna er Mitt líf.
Kolbrún Jarlsdóttir hefur
gert þessar myndir. Hún
var spurð hvað hefði orð-
ið til þess að hún fór að
gera þær?
-„Þær eiga a.m.k.
tvær „kveikjur". Ég er af
þeirri kynslóð sem „send
var í sveit“ á hverju vori
og var m.a. um tíma á
heimili þar sem voru
tvær þroskaheftar
frænkur mínar. I um-
gengni við þær lærði ég
snemma að virða þær og
elska eins og þær voru.
Þegar ég kom svo heim KolbrÚn JarlsdÓttír
frá námi erlendis fór eg
að vinna með fötluðum þar sem
ég var liðsmaður og þá fór ég að
átta mig á hvað mikið starf lægi í
þeirri ákvörðun yfirvalda að
stuðla að því að fatlaðir geti búið
sjálfstætt. Til að þeir geti það
þurfa þeir oft á tíðum mikla að-
stoð. Loks ber þess að geta að
Helga Pálína Sigurðardóttir,
sem er söguhetja fyrstu myndar-
innar, er frænka mín og ég hef
fylgst með henni frá fæðingu, en
hún er nú 27 ára gömul.
Varstu lengi búin að ganga
með þessa hugmynd?
- „Ég var lengi búin að ganga
með þá hugmynd að gera mynd
um Helgu Pálínu. Hins vegar
byrjaði þetta verkefni mitt sem
annað verkefni sem átti að vera
hópferð með þroskaheftum á
Strandir. Það var kvikmyndafé-
lagið Nýja bíó sem ákvað að
framleiða þá mynd með mér.
Stöð 2 keypti þá hugmynd en af
óviðráðanlegum orsökum féll
þessi ferð á Strandir niður, ég
var þá byrjuð að kvikmynda
sögu Steindórs Jónssonar. Þegar
ekkert varð af umræddri ferð
var ákveðið að gera sérþátt um
Steindór og tvo aðra, annan um
Helgu Pálínu og hinn um Mörtu
Jane Guðmundsdóttur."
Varstu strax með ákveðið
form á þessum þáttum íhuga?
-,,Ég var ákveðin í byrjun
hvernig ég ætlaði að byggja
þættina upp. Það vakti strax fyr-
ir mér að tala við söguhetjuna í
hverjum þætti og fá hana sjálfa
til að segja frá lífi sínu og skoð-
unum og sýna hvernig viðkom-
andi aðila tekst að lifa í samfé-
lagi sem miðað er við að fólk sé
mun meira sjálfbjarga en þessir
þrír einstaklingar eru.“
Var erfíðleikum bundið að
gera þessar myndir?
- „Það gekk mjög vel að fá við-
komandi aðila með mér í verk-
efnið, sem og alla aðstandendur
sem eru foreldrar og ýmsir aðil-
ar frá hinu opinbera sem aðstoða
viðkomandi í lífi og starfi. Ég
ákvað strax að ég vildi ekki ræða
við sérfræðinga í þess-
um myndum né heldur
vildi ég hafa þuli. Ég
vildi láta söguhetjurn-
ar sjálfar tala fyrir sig
og komast þannig nær
þeim. Ég fékk hins vegar for-
eldra eða liðsmenn til þess að
vera með í myndinni. Myndirnar
eru því byggðar upp á samtölum
mínum og þessara aðila við sögu-
hetjurnar. Þess á milli eru senur
sem sýna þetta unga fólk takast
á við ýmsar kringumstæður í lífi
og starfi. Þess má geta að það
tók tiltölulega langan tíma að
► Kolbrún Jarlsdóttir fæddist í
Reykjavík 1955. Hún stundaði
nám í Flensborgarskóla og
vann að því loknu hjá Sjónvarp-
inu við myndblöndun í upp-
tökusal í fjórtán ár. Þá fór hún
til Bandaríkjanna og tók BA-
próf í almennri kvikmynda-
gerð. Eftir það fór hún í mast-
ersnám í almennri kvikmynda-
gerð og leikstjórn, einnig í
Bandaríkjunum. Að loknu
þessu námi 1995 fór hún að
vinna hjá Svæðisskrifstofu
Reykjaness sem liðsmaður hjá
fötluðum einstaklingum. Si'ðan
Iá leiðin á Stöð 2 og þaðan á
Ríkissjónvarpið á ný þar sem
hún starfar nú. Hún heldur
heimili með syni sínum.
gera þessar myndir, rösklega ár
vegna þess að ég þurfti að taka
mér tíma til að kynnast þessum
þremur aðilum vel og fá þau til
að treysta mér og gleyma nær-
veru minni og myndavélinni."
Er margt sameiginlegt með
þessum þremur ungmennum
sem þú gerir myndinar um ?
- „Þau eru öll nýflutt að heim-
an og öll innan við þrítugt. Þau
hafa að vísu misjafnan bakgrunn
en mun fleira er þó sameiginlegt
en hitt sem er öðruvísi. Þau eiga
við svipaða erfiðleika að etja
hvað snertir að bjarga sér. Þau
eru að læra ýmsa hluti sem flest-
ir taka sem sjálfsagða, t.d. að
versla, gera heimilisstörfin og
sjá um reikninga. Ýmsir hvers-
dagslegir hlutir vefjast meira
fyrir þeim en flestum öðrum. Á
móti kemur að þau fá ómælda
hjálp frá fjölskyldu sinni og
svæðisskrifstofu í formi aðstoð-
armanna sem koma heim til
þeirra og á vinnustað og leið-
beina þeim.“
Hvað virðist þér vera þessu
fólki erfiðast í okkar samfélagi?
- „Mér sýnist að mestu erfið-
leikarnir gætu falist í hættu á
einangrun. Þá meina ég að við
hin tökum stundum
ekki nógu vel á móti
þessum hjartahlýju
einstaklingum, sem
þroskaheftir oftast
eru. Ef við þekkjum
ekki þessa aðila úr fjölskyldu
eða af vinnustað reynum við ekki
að nálgast þá. Þar af leiðandi
einangrast þessir einstaklingar
og lokast of mikið af með sínum
líkum. Við þurfum að gera
þroskahefta sýnilegri í öllu dag-
legu lífi. Þetta fólk er ekki að-
eins þiggjendur það getur líka
kennt okkur hinum margt.“
Þroskaheftir
geta kennt
okkur margt
Staða seðla-
bankasljóra
auglýst a allra
næstu dösiim
DAVÍÐ Oaasson torsætisráðherra
rG
Ekki hlæja, við skulum lofa þeim að halda að við trúum þessu.
• n
t . t ~t
35 Ijosa inniseria
20 Ijósa útisería
759 kr.
Með áföstum soqskálum
2.599 kr.
Stærri skrúfuperur
20 sogskalar
199 kr.
Fyrir gluggaseríur
jólasýpris
199 kr.
Jolapottur fylgir
Stærri 399 kr.
Opiö til klukkan 22.00
öll kvöld til jóla.
Nýtt kortatímabil.