Morgunblaðið - 11.12.1999, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Göran Persson forsætisráðherra Svfþ.ióðar
Utilokar þjóðaratkvæði
um EMU á næsta ári
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
GORAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, þvertekur fyrir að Svíar
gangi til þjóðaratkvæðagreiðslu á
næsta ári um aðild að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu, EMU. Þessu
lýsti hann yfir í þingumræðum um
EMU í vikunni, en hins vegar hefur
hann enn ekki kveðið upp úr með
hvort gengið verði til þjóðaratkvæðis
um aðild.
Sænskir fjölmiðlar eru vakandi yf-
ir öllum yfiriýsingum leiðandi stjóm-
málamanna um EMU. Nýlega
hnykkti Pierre Sehori, þingflokksfor-
maður Svía á Evrópuþinginu, á
stuðningi við EMU-aðild.
í þingumræðunum sagði Persson
að þar sem Svíar færu með for-
mennsku í Evrópusambandinu, ESB
fyrri hluta árs 2001 kæmi ekki til
greina að standa í þjóðaratkvæða-
greiðslu um EMU meðan undirbún-
ingur þess stæði yfir. Með yfirlýs-
ingu sinni útilokar Persson því
þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta ári.
Hann lét þó ekki uppskátt hvort
hann væri hlynntur þjóðaratkvæða-
greiðslu eða ekki, heldur sagði að
hún væri eðlilegasta leiðin, þótt hann
útilokaði ekki að þingkosningamar
2002 yrðu kosningar um EMU.
I umræðunum endurtók Persson
fyrri orð sín um að hann áliti það í
grundvallaratriðum óheppilegt að
hafna EMU-aðild. „Það er jafn mikil-
vægt að segja að það fæli í sér í hæsta
máta óheppilegar forsendur fyrir
sænsku ESB-formennskuna, ef við
haustið á undan köstuðum Svíþjóð út
í pólitísk átök um EMU-aðild.
Það vakti athygli í umræðunum að
Bo Lundgren, formaður sænska
Hægriflokksins, fór ekki fram á þjóð-
aratkvæðagreiðslu um EMU-aðild.
Carl Bildt, forveri hans, hefur áður
sett þá ki'öfu fram. Lundgren talaði
hins vegar fyrir aðild af einurð.
Blöðin taka afstöðu
í leiðara í Svenska Dagbladet var
bent á að með ummælum sínum hefði
Persson gert að engu þann mögu-
leika að Svíar færu hraðferð inn í
EMU. Þar sem ekki yrði þjóðara-
tkvæðagreiðsla á næsta ári yrði ekki
tekin nein skyndiákvörðun í málinu
og dráttur á ákvörðun væri nú líkleg-
asta framvindan. Persson segði sjálf-
ur gildustu ástæðuna vera að sænsk
launamyndun væri ekki samstiga
EMU.
Blaðið bendir á að Persson vilji
heldur ekki eða geti gert nauðsynleg-
ar ráðstafanir til að Svíar geti gengið
í EMU. „Rauðgrænt" stjórnarsam-
starfið undirbúi heldur ekki jarðveg-
inn og sé gildasta ástæðan gegn
sænskri EMU-aðild. Það verði held-
ur ekki séð að borgaralegu flokkarnir
vinni að því að bæta þar úr. EMU-
aðild geri kröfur um nauðsynlegar
umbætur og sé þeim ekki mætt
heima fyrir hljóti það að hafa áhrif á
hvenær Svíar gerist aðilar.
Tónninn í leiðara Dagens Nyheter
er öllu argari, bæði út í stefnuleysi
stjórnarinnar og út í það sem í þess
augum er vingulsháttur Svenska
Dagbladet, sem ekki er hlynnt EMU-
aðild, andstætt Dagens Nyheter.
Nýlega hefur Aftonbladet einnig tek-
ið upp skýra stefnu um aðild, sem
álitið er að hafi mikil áhrif í þá átt að
snúa almenningsálitinu aðild í hag.
í leiðaranum er minnt á að það hafi
aldrei verið ætlunin að þjóðarat-
kvæðagreiðsla færi fram um EMU,
þegar sænskir stjórnmálamenn ák-
váðu upp á eigin spýtur og án bless-
unar ESB að standa utan EMU, áður
en þeir gengu í ESB 1995. Við þetta
sé rétt að standa, enda ekki rétt að
skilja þetta mál frá öðrum ESB-mál-
Reuters
Göran Persson kemur til fundar Evrópusambandsins í Helsinki í gær.
um, sem þingið taki afstöðu til.
Þó Persson hafi lýst því yfir að
ekki sé hægt að vera á móti EMU-
aðild þykir EMU-sinnuðum flokks-
mönnum hans vera of hikandi í mál-
inu og ekki beita sér sem skyldi. Pier-
re Sehori er einn þeirra. Hann lýsti
því bæði yfir í haust og svo aftur nú
nýlega að það væru sænskir hags-
munir að ganga í EMU og fyrir því
ætti flokkurinn að beita sér skelegg-
iéga.
I haust lýsti Erik Asbrink fyrrum
fjármálaráðherra því sama yfir, en
bæði Schori og Ásbrink sitja í fram-
kvæmdanefnd Jafnaðarmanna-
flokksins. Undanfarið hafa einnig
leiðandi flokksmenn, til dæmis í bæj-
ar- og sveitarstjómum lýst yfir
stuðningi við EMU-aðild.
Aðildin verður borin upp á flokks-
þingi jafnaðarmanna síðla vetrar.
Vaxandi líkur þykja á að hún verði
samþykkt þar, þó það sé ekki öruggt.
Ef Persson væri ákveðinn í málinu
álíta margir að stjórnin gæti strax á
eftir lýst yfir að Svíar gengju í EMU.
Með óljósum yfirlýsingum og tali
um þjóðai'atkvæðagreiðslu gerir
Persson tækifæri til snöggrar
ákvörðunar að engu, auk þess sem
hætta er á að langdregnar umræður
veiti Vinstriflokknum og Gudrunu
Schyman hinum skelegga flokksfor-
manni þar, færi á strandhöggi meðal
kjósenda jafnaðarmanna. Það gerir
bið fram á kosningaárið 2002 heldur
ekki vænlegan kost fyrir jafnaðar-
menn, sem eru því í sjálfheldu um
EMU-aðild.
ERÐIN
Bakpokar
frá kr. 4.800
Eyjarslóð
.
sími 511 2200
■ ■ ■■■ V ■■■ - ii .111 n I 'IIimk
personuleg se/verslun i utivist
Svefnpokar
frá kr. 4.400
Vandaour utivistarfatnaour
og bunaour a goou verði
fyrir alla f jölskylduna
Her> asla
úr vandaðri flís
Í7 A frá kr. 7.900
i
Göngustafir
frá kr. 2.980
Sleipnis-slysið við Noreg
Ákveðið að lyfta
flakinu af sjávarbotni
AKVEÐIÐ hefur verið að lyfta flak-
inu af norsku ferjunni Sleipni sem
strandaði og sökk í slæmu veðri fyrir
skömmu skammt frá Haugasundi.
Tuttugu manns fórust í slysinu.
Að sögn Aftenposten telur dóms-
málaráðuneyti Noregs að brýnt sé að
fá nánari upplýsingar um ástæður
slyssins og það verði meðal annars
gert með því að rannsaka flakið. Enn
hafa lík þriggja manna ekki fundist en
lögregluyfirvöld vilja ekki tjá sig um
líkur á því að líkamsleifamar finnist
um borð. Leitað hefur verið með
dvergkafbáti á svæðinu og í flakinu.
Yfirvöld hafa sætt harðri gagnrýni
fyrir að veita Sleipni og systurskipi
þess, Draupni, undanþágu til að sigla
þótt ölduhæð næði einum metra en
björgunarbúnaður hafði ekki enn ver-
ið reyndur. Kom í ljós að búnaðinum
var mjög áfátt.
Sleipnir var tekinn í notkun í ágúst.
Vitað er að skipin tvö hafa meira en
hundrað sinnum siglt við aðstæður
þar sem ölduhæð fór yfir metra.
Jóíagjafir
í tilefni af 75 ára afmæli Metabo
bjóðum við verulegan afslátt af
afmælisframleiðslu eftirtalinna véla.
641 03375
600 wött, borvél með
Impulse (skrúfulosun)
og sjálfherðandi Futuro Plus patrónu.
Frábær borvél!
Verðáðurkr. 14.850
Verðnúkr. 11.880
641 05575
800 wött, hjólsög sem sagar
frá 0-52 mm á dýpt.
Sjálfvirk Metabo S-kúpling.
Fyrir smiðina!
Verðáðurkr. 17.736
Verðnúkr. 14.189