Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 32
32 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
...eftirleikurirm verður auðveldur
www.boksala.is
ERLENT
Japanir kátir yfír tíðindum úr keisarafjölskyldunni
Masako krónprinsessa
Jólaskór
ICELANDAIR HÓTELS
Stærðir: 22-28
Verð kr. 2.290
Hvítir, svartir og bláir
Smáskór
Sérverslun með bamaskó
í bláu húsi við Fákafen
Óskastundir á Flugleidahóteli ergjöf sem lætur óskirnar
rætast. Verðfrá 5.200 kr.
Flugleiðahótelin eru: Hótel Loftleiðir, Esja, Flúðir, Höfn,
Hérað, Kirkjubæjarklaustur og Flughótelið í Keflavík.
Sumaráning á Hótel Eddu. Verðfrá 5.400 kr.
Edduhótelin eru á 15 stöðum um land allt.
'°'n *óp'ÍL!fe>sverta
SÍLtói kaffi
pennasi
,\k olí
Falleg ítölsk
hönnun klædd
stórkostlegu
efni.
- er Microtex áklæði það er mjúkt,
notaleat, falleat en umfram allt, það er
sama nvaða ón reinindi fara í sófann,
þrif eru leikur einn.
Fáanlegir í litir:
Dökkblár
Milliblár
Gulbrúnn
Rauðbrúnn
Ljósbrúnn
Flöskug
Off white
BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI
Sími: 554 6300 Fax: 554 6303
sögð eiga von á sér
Tókýó.AP.AFP.
SÉU frásagnir japanskra íjölmiðla á
rökum reistar, má vera að Japanir
geti nú loks glaðst yfir langþráðum
gleðifregnum - að Masako krónprins-
essa sé kona eigi einsömul, sex árum
eftir að hún gekk að eiga Naruhito,
elzta son Akihitos Japanskeisara.
Masako og Naruhito sögðust í gær
furðu lostin yfir þungunarfréttunum,
en báru þær þó ekki með öllu til baka.
Japanskir embættismenn greindu frá
því að bíða yrði niðurstaðna frekari
þungunarprófa áður en hægt væri að
staðfesta að krónprinsessan ætti von
ásér.
Vonazt eftir sveinbarni
Og saman við gleðina sem gripið
hefur japönsku þjóðina yfir tíðindun-
um blandast áhyggjur af öðru - verði
bamið stúlka er keisarafjölskyldan
engu nær því en áður að leysa ríkis-
erfðavandamál sín, að minnsta kosti
að óbreyttum reglum sem gilda um
erfðir að elztu krúnu heims.
Verði barnið drengur verður hann
næstur að ríkiserfðum á eftir föður
sínum Naruhito, og Akushino, yngri
bróðir krónprinsins, færist aftur um
eitt sæti í ríkiserfðaröðinni.
í flennifréttum á forsíðum flestra
helztu dagblaða Japans í gær er full-
yrt, með tilvísun til ónafngreindra
heimildarmanna innan veggja keis-
arahallarinnar, að Masako sé senni-
lega komin fimm vikur á leið og að
hún eigi von á sér snemma í ágúst.
Var sagt að hún bæri einkenni eins og
morgunógleði og þjáðist af lítils hátt-
ar hita.
„Ég þarf að segja ykkur eitt,“ sagði
Japani les aukablað dagblaðs, sem allt er helgað fréttinni af meintri
þungun Masako krónprinsessu.
Kiyoshi Furukawa, yfirmaður starfs-
liðs krónprinsins, á blaðamannafundi,
„hátignimar voru báðar furðu lostnar
yfir þessum blaðafréttum". Sagðist
Furukawa krónprinsessuna, sem
varð 36 ára á fimmtudag, ekki þjást af
neinni morgunógleði og hvorld þvag-
né blóðprufur hefðu verið teknar úr
henni til þungunarprófs og keisara-
hjónunum hefði ekki verið borin nein
tilkynning um að prinsessan bæri
bam undir belti.
Forsætisráðherrann Keizo Obuchi
ráðlagði fjölmiðlum að hafa sig hæga.
Samkvæmt gildandi ríkiserfðalög-
um, sem sett vom árið 1889, geta ein-
göngu karlmenn erft krúnuna, en
hvorki Naruhito krónprins, sem nú er
39 ára, né yngri bróðirinn Akushino,
sem er 34 ára, hafa eignazt syni. Ak-
ushino á þrjár dætur. Hin langa bið
eftir karlkyns ríkisarfa hefur ýtt
mjög undir vangaveltur um hvort
ekki sé tímabært að breyta ríkis-
erfðalöggjöfinni þannig, að prinsess-
ur geti erft krúnuna, en á öldum áður
kom það stöku sinnum fyrir að kona
settist í keisarastólinn.
Bandaríkjamenn segja rússneska njósnara hafa
hlerað ráðuneytisfundi í Washington
Stjórnvöld í Moskvu
mótmæla ásökunum
Washington, Moskvu. AP, AFP.
RÍKISSTJÓRN Rússlands mót-
mælti í gær ásökunum á hendur
rússneskum stjórnarerindreka,
Stanislav Gúsev, um njósnir í Banda-
ríkjunum. í yfirlýsingu sem sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu var
afhent var gefið í skyn að ásakanirn-
ar væru ekkert annað en hefndar-
ráðstöfun vegna þess að bandarísk-
um njósnara hefði verið vísað úr
landi í Rússlandi. Bandaríski stjórn-
arerindrekinn Cherie Leberknight
var í liðinni viku sökuð um að hafa
reynt að fá leynilegar upplýsingar
hjá rússneskum borgara. Að sögn
Rússa fór Leberknight til Sviss í
gær og tók með sér köttinn sinn.
Sendiherranum, James Collins,
var sagt að Bandaríkjastjórn væri
með aðgerðunum að brjóta gegn
ákvæðum alþjóðlegra samninga um
samskipti ríkja. Um væri að ræða
vinnubrögð sem ættu að vera aflögð
og aðgerðirnar gætu haft alvarleg
er tilvalin jólagjöf
áhrif á sambúð þjóðanna. Banda-
ríkjamenn neituðu því að nokkurt
samhengi væri á milli málanna
tveggja.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
handtók rússneska sendiráðsmann-
inn Stanislav Gúsev á miðvikudag og
er talið að hann hafi verið að reyna
að hlera upptökubúnað sem komið
hafði verið fyrir í utanríkisráðuneyt-
inu í Washington.
Dagblaðið The Washington Post
sagði í gær að Gúsev hefði á 10 dög-
um hlerað 50-100 fundi í ráðuneyt-
inu en FBI hefði jafnframt fóðrað
hann á röngum upplýsingum.
Neil Gallagher, aðstoðarforstjóri
FBI, sagði mál Gúsevs sýna að Rúss-
ar legðu mikla áherslu á njósnir í
Bandaríkjunum.
Þetta er í fyrsta sinn sem fundist
hefur erlendur hlerunarbúnaður í
bandaríska utanríkisráðuneytinu.