Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR11. DESEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Frá tónleikunum í New York.
íslenska tríóið
í New York
Stuttsýning
í Galleríi
Reykjavík
GUÐMUNDUR Björgvinsson
myndlistamaður opnar málverka-
sýningu í Galleríi Reykjavík kl. 16 í
dag, laugardag.
Guðmundur sýnir nýleg olíumál-
verk og pastelmyndir.
Guðmundur var við nám í Uni-
versity of the Redlands í Kalfomíu
og hefur haldið fjölmargar einka-
sýningar, meðal annars í Norræna
húsinu og á Kjarvalsstöðum.
Sýningin stendur til 18. desember
og er opin frá ki. 10-18 og laugar-
daga kl. 11-18.
Barna- og ungl-
ingakóramót
BARNA- og unglingakóramót verð-
ur haldið í Perlunni á morgun,
sunnudag, kl. 14-16. Þetta er í
sjöunda sinn sem Perlan stendur
fyrir kóramóti á aðventunni. Um
500 börn og unglingar munu syngja
og er aðgangur ókeypis.
Frímúrara-
kórinn í Víði-
staðakirkju
FRÍMÚRARAKÓRINN heldur að-
ventutónleika í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði, á morgun, sunnudag, kl.
17. Signý Sæmundsdóttir syngur
einsöng með kórnum. Orgelleikur
Úlrik Ölason. Stjómendur era Helgi
Bragason og Gylfí Gunnarsson.
Lúðrar í
Laugarnes-
skóla
LÚÐRASVEIT Laugames- og
Laugalækjarskóla heldur jólatón-
leika í sal Laugarnesskóla á morgun,
sunnudag, kl. 15.
Stjómandi hljómsveitarinnar er
Stefán Þ. Stephensen.
Upplestur á
Næstabar
Á NÆSTABAR verður lesið
úr nýjum og væntanlegum
bókum annað kvöld, sunnu-
dagskvöld kl. 22. Andri Snær
Magnason les úr bók sinni,
Sagan af bláa hnettinum.
Bragi Ólafsson les úr skáld-
sögu sinni Hvfldardagar.
Didda les úr skáldsögu sinni
Gullið í höfðinu. Elísabet Jök-
ulsdóttir les úr bók sinni Lauf-
ey. Haraldur Jónsson les úr
nýjum textum sem verða gefn-
ir út á næsta ári og Miehael
Pollock les af ljóðaplötu sinni,
No short cut to paradise.
SVEINN Þormóðsson hefur í tilefni
af útgáfu ævisögu sinnar, Á hælum
löggunnar, ákveðið að gefa Reykja-
víkurborg filmusafn sitt frá ára-
bilinu 1950 til ársins 1974.
Sveinn hefur tekið tugþúsundir
mynda úr mannlífi Reykvíkinga og
stór hluti þeirra verður nú í eigu
borgarinnar.
Engar kvaðir fylgja gjöf Sveins
ÍSLENSKA tríóið lék á kammer-
tónleikum í embættisbústað fasta-
fulltrúa Islands hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York, Þorsteini
Ingólfssyni og eiginkonu hans,
Hólmfríði Kofoed-Hansen, 4. des-
ember sl. íslenska tríóið er skipað
Nínu Margréti Grímsdóttur píanó-
leikara, Sigurbirni Bernharðssyni
fiðluleikara og Sigurði Bjarka
Gunnarssyni sellóleikara, sem öll
starfa nú í Bandaríkjunum, og
Einar Jóhannesson, fyrsti klarin-
ettuleikari Sinfóníuhljómsveitar
aðrar en þær að safnið fái það
skipulag og þann sess sem því ber
að mati borgaryfirvalda.
Sveinn hóf feril sinn um 1950 og
starfaði sjálfstætt framan af. Hann
var fastráðinn ljósmyndari á Morg-
unblaðinu allttil ársins 1976.1
framhaldi þess var hann ráðinn á
Dagblaðið og við sameiningu þess
og Vísis var hann ráðinn á DV.
íslands. Leikin voru verk eftir
Brahms, Shostakovitch, Inga T.
Lárusson og Atla Heimi Sveinsson.
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, var heiðursgestur á
tónleikunum en þá sóttu nokkrir
æðstu embættismenn Sameinuðu
þjóðanna í New York og sendi-
herrar annarra ríkja þar, auk ís-
lendinga búsetta í New York.
íslensku listamennimir vöktu
hrifningu tónleikagesta sem þágu
kvöldverð sendiherrahjónanna að
loknum tónleikunum.
Tímarit
• ANDBLÆR, bókmennta- og
listatímarit, er komið út. í þessu 9.
hefti tímaritsins era birt ljóð og
smásögur, viðtöl við blaðamanninn
og rithöfundinn Guðrúnu Guðlaugs-
dóttur og listakonuna Ólöfu Nordal-
.Tíu listamenn kynna verk sín í Gal-
leríi Andblæ, sem birtir einnig
þýðingar á ljóðum eftir Andrea
Zanzotto, Peter Hauge og Lukas
Moodysson. Ritstjóri Andblæs er
Margrét Lóa Jónsdóttir.
Á Sóloni íslandusi í kvöld, laugar-
dagskvöld, kl. 20.30, munu höfundar
efnis í tímaritinu lesa upp og Ósk
Óskarsdóttir tekur lagið. Þeir sem
eiga skáldskap í Andblæ að þessu
sinni era þau Ásdís Óladóttir, Bergl-
ind Gunnarsdóttir, Bjami Bjarna-
son, Fríða B. Andersen, Gerður
Kristný, Guðrún Guðlaugsdóttir,
Gunnar Randversson, Margrét
Hugrún, Margrét Lóa Jónsdóttir,
Ragna Hermannsdóttir, Ragna Sig-
urðardóttir, Sigurbjörg Þrastardótt-
ir, Sölvi Sigurðarson, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Þóra Elfa Bjöms-
son og Þórarinn Torfason. Einnig
munu ljóðskáldin Jón Hallur Ste-
fánsson og Valgerður Bene-
diktsdóttir koma fram á út-
gáfukvöldinu.
Hægt erað nálgast Anblæ í bóka-
búðum Máls og menningar og Eym-
undsson íAusturstræti. Verð: 1.450
kr.
Morgunblaðið/Golli
Sveinn Þormóðsson afhendir Ingibjörgu Sólúnu borgarstjóra
filmusafn sitt.
Reykj avíkurborg
fær filmusafn
Orar verð-
lagsbreyting-
ar á bókum
30-40% afsláttur algengur
VERÐ jólabóka tekur hröðum
breytingum þessa dagana. Verðlag
breytist vikulega og era jafnvel
dæmi um daglegar breytingar.
Samkeppnin um hagstæðustu til-
boðin er hörð, en algengur afslátt-
ur á söluhæstu jólabókum hverrar
verslunar er á bilinu 30-40%.
Mál og menning veitir afslátt af
55 titlum. Mesti afsláttur sem
verslunin veitir þessa vikuna er
rúm 30% og minnsti afsláttur er
um 15%, en verðlag jólabóka hjá
verslunninni breytist vikulega nú
fyrir jólin.
Hjá Pennanum Eymundsson og
Bókavali er veittur afsláttur af
söluhæstu jólabókum verslananna.
30% afsláttur er t.d. veittur af tíu
söluhæstu bókunum og 20-30% af
mörgum öðram titlum. Alls er til-
boð á 40-50 bókatitlum hjá versl-
ununum og fengust þær upplýs-
ingar hjá Pennanum Eymundsson
að stöðugt bættist í þann hóp.
Tilboð Griffils gilda frá og með
deginum í dag, en mesti afsláttur
sem veittur er af nýrri jólabók
þessa stundina er 55%. Algengt er
að 30-40% afsláttur sé af vinsæl-
ustu jólabókunum. Veittur er af-
sláttur af öllum jólabókum hjá
versluninni og er hann minnst
10%. Sömu bókatilboð og hjá
Griffli er að fínna í verslunum
Nettó.
Hjá Hagkaup var í gær mesti af-
sláttur af nýjum bókum 53%, en
líkt og á fleiri stöðum var algengur
afsláttur söluhæstu bóka verslun-
arínnar á bilinu 30-40%. Þá var 10-
15% afsláttur veittur af mörgum
nýjum titlum, en ekki er veittur af-
sláttur af öllum bókum. Verðbreyt-
ingar eiga sér stað tvisvar í viku
og er annað verðlag í gildir fyrir
netverslun Hagkaups.
Hjá Bónus fengust þær upplýs-
ingar að stöðugar verðlagsathug-
anir væra í gangi til að tryggja
lágt verð þeirra jólabóka sem
verslunin er með í sölu.
Verðlag Bónuss tekur þvi dag-
legum breytingum í samræmi við
þau tilboð sem aðrar verslanir
bjóða upp á.
Nýjar plötur
• FÖR innheldur tvö hljómsveitar-
verk eftir Leif Þórarinsson: Fiðlu-
konsert (1969-1970), leikinn af Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur og
Sinfóníuhljómsveit Islands og Sin-
fóníu nr. 2 (1997), flutta af Sinfón-
íuhljómsveit Islands.
Hljómsveitarstjóri í fiðlukonsert-
inum er Bandaríkjamaðurinn Paul
Schuyler Phillips
en Petri Sakari
stjórnar flutningi
sinfóníunnar.
Verkin tvö
spanna tæpa þrjá
áratugi á höfund-
arferli Leifs og
teljast bæði til
hans stórbrotn-
ustu verka. Auk
hljómsveitar-
verkanna hefur geisladiskurinn að
geyma útvarpsviðtal sem Arndís
Björk Ásgeirsdóttir tók fyrir tónlist-
ardeild Ríkisútvarpsins við Leif þeg-
ar Sinfónía nr. 2 var framflutt í nóv-
ember 1997, en þar ræðir Leifur um
tónsköpun sína. Fiðlukonsert var
saminn fyrir Einar Grétar Svein-
bjömsson sem framflutti hann á
Norrænum músíkdögum ásamt Sin-
fóníuhljómsveit íslands árið 1975 og
var einnig um að ræða framflutning
íyrsta íslenska fiðlukonsertsins.
Leifur gerði breytingar á konsertin-
um árið 1976 og í þeirri mynd flutti
Sigrún Eðvaldsdóttir konsertinn
fyrst, en þá lék hún á tónleikum með
BBC-sinfóníuhljómsveitinni í Skot-
landi. I kynningu útgefanda segir að
tónskáldið hafði sjálft setið í áheyr-
endasal og lét síðar þau orð falla að
flutningur einleikarans hefði verið
„æðisgenginn“.
Sinfónía nr. 2 var frumflutt í nóv-
ember 1997 af Sinfóníuhljómsveit
íslands. Leifur hafði gengið með
verkið í kollinum í fjölmörg ár en
skrifaði það mestmegnis vorið og
sumarið 1997. Sjálfur kvað Leifur
viðfangsefni sinfóníunnar vera
„samhengi hlutanna í tilverunni:
Verkið speglar upplifanir sem ég
varð að koma frá mér. Þetta er per-
sónulegt verk eins og allt sem ég
skrifa. Maður lýsir alltaf einhverri
reynslu í verkum sínum og sennilega
gæti enginn hafa skrifað þetta verk
nema ég - maður lýgur engu í mús-
ík!“
Leifur Þórarinsson (1934-1998)
nam tónsmíðar og fiðluleik í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík hjá Jóni
Þórarinssyni og Birni Ólafssyni og
stundaði framhaldsnám í Vínarborg,
Miinchen og Bandaríkjunum.
Útgefandi er íslensk tónverka-
miðstöð. Verð: 1.700 kr.
• EINSÖNGS-
LÖG hefur að
geyma íslensku
einsöngslögin í
flutningi Árna
Jónssonar tenór-
söngvara við und-
irleik Fritz
Weisshappel og
Gísla Magnús-
sonar. Um er að
ræða upptökur í útvarpssal á ár-
unum 1958-1960.
Árni Jónsson er fæddur 12. maí
1926 í Hólmi í A-Landeyjum í Rang-
árvallasýslu. Tuttugu ára gamall
flutti Árni til Reykjavíkur og hóf
söngnám hjá Sigurði Birkis en nam
einnig hjá Sigurði Skagfield. Árið
1953 hélt Ámi til Ítalíu þar sem
hann dvaldi í tæpt ár við söngnám
hjá Giusieppe Gallo í Mílanó. Þar
söng hann m.a. í sinni fyrstu ópera,
Lucia de Lammermoor eftir Doni-
zetti. Þá hélt Ámi til Svíþjóðar og
lærði þar hjá Simon Edvardsen. Á
þessum árum söng Árni á fjölda út-
varpskonserta um öll Norðurlönd og
einnig í Vín.
í mars 1958 kom Árni heim frá
námi og hélt sína fyrstu opinberu
tónleika hér á landi, í Gamla bíói, við
undirleik Fritz Weisshappels. Þetta
ár hélt Árni fjölda tóneika um allt
land og fóru gagnrýnendur fögram
orðum um söng hans og framkomu,
segir í fréttatilkynningu.
Útgefandi erÁrni Jónsson ogsér
hann um dreifínguna. Verð: 1.700 kr.