Morgunblaðið - 11.12.1999, Page 38
38 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Verðkönnun TIME og verðið á fclandi M LEVrS Geisla Cl laicaiIUI i .f# Coca 501 Spag- plata, _ « ,* Cola, gallabuxur hetti, Marial Borg 2 lítrar 32x32 500 g Carey Verð í hverri borg með öllum sköttum sem þar gilda (Dollurum breytt í ísl. kr. á genginu 72,23)
Nýmjólk 1 lítri Celgate tannkrem 75 ml Windows 98 stýri- kerfi Mars Bar súkkul.- stöng Kellogg's cornflakes 500 g Johnny Walker viský, 1 lítri Pampers bleiur, 28 stk. Kjúkl- ingur, 2kg Allar þessar vörur, SAMTALS Vörurnar án Windows 98 SAMTALS
■1 Los Angeles 71,51 3.283,58 90,29 1.171,57 67,17 163,24* 8.522,42 39,73 302,64* 1.487,22 976,55 283,14* 16.459,05 7.936,63
C2 Madríd 75,84 4.903,69 56,34 1.162,18 65,73 111,96 8.952,19 33,95 116,29 920,93* 363,32* 443,49 17.205,91 8.253,72
ES Stokkhólmur 150,95 4.311,41 47,67 1.287,14 54,17 154,57 12.986,23 51,28 171,91 3.196,90* 391,49 551,11 23.354,85 10.368,62
BÉW Berlín 114,12 4.919,59 45,50 1.105,84 41,89 152,41 15.254,98 38,28 152,41 1.296,53 495,50 571,34 24.188,38 8.933,40
London 150,96 5.265,57 36,12 1.636,73 50,56 * 193,58* 17.550,45 45,50 127,85 2.280,30 525,11 630,57 28.493,29 10.942,04
O Róm 97,51 5.359,47 40,45 1.492,99 80,18 150,96 19.102,67 38,28 220,30* 1.257,52 762,03 421,10 29.023,46 9.920,76
M 1 París 111,96* 5.658,50 75,84 1.689,46 84,51 130,74 19.164,79 57,06 158,91* 937,55 915,60* 437,71 29.423,61 10.258,82
Reykjavík 188,00 6.990,00 58,00 2.199,00 73,00 168,00 17.500,00 66,00 212,00 4.785,50* 947,00 1.033,00 34.219,50 16.719,50
* Endurreiknað hlutfallslegt verö, þar sem ekki var til umbeðið maqn vöru. Blaðamenn TIME bc ru saman verð varr ingsins i dollurum.
Verðkönnun á algengum vörutegundum
í nokkrum borgum
Reykjavík dýrust
TÖLUVERÐUR verðmunur er á
ýmsum vörutegundum milli borga
í Evrópu, samkvæmt niðurstöðum
úr verðkönnun sem tímaritið Time
birti fyrir skömmu og í saman-
burði við Los Angeles eru borgir
Evrópu dýrari.
Til hliðsjónar var kannað verð í
nokkrum verslunum á
höfuðborgarsvæðinu og
þegar það er borið sam-
an við niðurstöður
Time, kemur í ljós að
samanlagt er Reykjavík
töluvert dýrari en þær
borgir sem könnun Time náði til.
Time gerir það að umtalsefni
hve verðmunur milli borga innan
Evrópu sé mikill.
Hins vegar hefur verðmætasta
varan, Windows 98 stýrikerfi,
nokkur áhrif á niðurstöðurnar, því
verðmunur milli borga er þar
einna mestur. Verðmæti þess er
jafnframt allt að ríflega 50% sam-
anlagðs verðs og því má jafnframt
bera saman niðurstöðurnar ef
Windows 98 stýrikerfið er undan-
skilið úr könnuninni.
Ef Windows 98 er
reiknað með, er París
71% dýrari en Los
Angeles en einungis
38% dýrari ef stýri-
kerfið er undanskilið.
Ennfremur minnkar verðmunur
milli borga innan Evrópu. Mesti
munur var á milli Madrídar og
Parísar, eða 82,6%, ef Windows 98
er reiknað með. Ef það er undan-
skilið verður London dýrust í
könnun Time, en einungis 32,6%
dýrari en Madríd.
Reykjavík tvöfalt dýrari en
Los Angeles og Madríd
Hvort sem stýrikerfið er reikn-
að með, er Reykjavík ríflega tvö-
falt dýrari en Los Angeles.
Reykjavík er jafnframt tvöfalt
dýrari en ódýrasta borgin, Mad-
ríd, hvort sem stýrikerfið er
reiknað með eður ei. Reykjavík er
samt sem áður einungis 16,3%
dýrari borg en París, þegar stýri-
kerfið er reiknað með, en án þess
er Reykjavík 52,8% dýrari en
London sem þá reynist dýrasta
borg Evrópu ef miðað er við niður-
stöður Time.
Eldhús sannleikans
GESTIR í sjónvarpsþættinum Eld-
hús sannleikans í gær, föstudag,
voru Skjöldur Sigurjónsson stór-
kaupmaður og Þórunn Lárusdóttir
leikkona.
Svarfrfupl að hætti
Skfaldar
6 svartfuglar
1 bolli rúsínur
1 1/2 laukur
romm
kjötkraftur
________salt og pipar_______
__________Meðlæti:__________
Kartöflur + ögn gf borðediki
__________gulrætur__________
blaðlaukur
Waldorf-salat:
____________Rjómi___________
sýrður rjómi
sítróna
1 stilkur sellerí
_________________2 epli________________
1 1/2 bolli skorin steinlaus græn vín- |
__________________ber__________________ *
1 bolli valhnetur
Rúsínurnar lagðar í romm.
Grænmetið flysjað og skorið eftir
því sem við á. Bringur úrbeinaðar
og hreinsaðar. Beinin brúnuð
ásamt 1/2 lauk og afskorningi af
grænmetinu. Allt sett í pott og látið
sjóða. Kartöflur skornar til (skorið í jg
þær), látið sjóða upp á þeim með ör- |
litlu ediki og salti. Teknar upp og |
brúnaðar í olíu á pönnu og þær svo I
bakaðar í ofni. Bringurnar og lauk-
urinn brúnuð á pönnu, kryddað
með salti og pipar. Rúsínunum í
romminu bætt við og kveikt í. Sigt-
uðu soðinu hellt yfir bringumar,
þær teknar snöggt af og settar í 170
gráða heitan ofn. Sósan krydduð og
soðin niður með rjóma þar til hún
verður þykk. Snöggsjóðið gulrætur ?
(í strimlum) og blaðlauk (skorinn í j
femt) með örlitlu salti og smjöri. |
Kartöflurnar teknar úr ofninum og |
steiktar á pönnu með smjöri. Borið
fram með Waldorf-salati.
Verðmunur
minnkar ef
stýrikerfið er
undanskilið
Kápa 8.990-
Buxur 3.590-
Stærðir 18-26
Opið:
mán.-fim. 10-18
föstudaga 10-19
laugard. 10-20
sunnud. 13-18
1 08 Reykjavík
Faxafeni 8 sími: 533 1555
r .
603 A L k u r e y r i j
Sunnuhlíð sími:462 4111
Satínkjóll 4.990-
Slæða 1.590-
Stærðir 18-26