Morgunblaðið - 11.12.1999, Síða 69

Morgunblaðið - 11.12.1999, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 69 U verið útskrifaðir frá dönskum sjúkrastofnunum, eða hafa fengið úrræði á dagdeildum eða slysamót- töku. Á þessum grundvelli er skráin talin nálgast 100% tilfella. Á ári er skráð rúmlega ein milljón útskrifta en skráin nær yfir persónuupplýs- ingar um 700.000 einstaklinga í ár- gangi, sem hafa verið lagðir inn einu sinni eða oftar. Þessar upplýsingar eru notaðar í rannsóknaskyni, með leyfi heilbrigðisyfirvalda, eftir ákveðnum reglum og háð eftirliti. Óháð nefnd lækna veitir heilbrigðis- yfirvöldum ráðgjöf varðandi með- ferð upplýsinganna. Ekki er stuðst við upplýst samþykki íyrir notkun upplýsinganna í rannsóknaskyni. Frá 1995 hafa upplýsingar frá geð- deildum og geðlækningastofnunum verið skráðar í LPR. Þaðan eru þær sendar til Det Psykiatriske Central- register, þar sem upplýsingarnar eru nýttar í rannsóknaskyni. Vél- rænn flutningur upplýsinganna berst fyrir milligöngu CPR-regist- ret. CPR-registret er rekið af einka- fyrirtæki í eigu amerískra hluthafa, Datacentral A/S (Dan Computer Management A/S). CPR-registet er keyrt saman við fjölmarga læknis- fræðilega gi'unna í Danmörku, sem tengjast LPR. Þetta dæmi er hér tekið til að undirstrika að hver gagnagrunnur er með sínu sniði og í raun hvergi hægt að ætlast til þess að tveir grunnar séu sambærilegir. Þegar upp er staðið er ekki hægt að byggja á mismun gagnagrunnanna þá kröfu að sums staðar, í vissum tilfellum, beri að gera kröfuna um upplýst samþykki að grundvallaratriði. Grundvallarreglur er varða mann- réttingi og vísindasiðfræði verður að virða sem slíkar en ekki eftir því hver á í hlut eða hvar og hvernig meðferð og úrvinnsla upplýsinganna fer fram. Allavega verður ekki séð hvernig stjórnvöld eiga að geta tek- ið þannig á málum, en það eru þau, sem setja reglurnar. Verðgildi upplýsinganna Sala upplýsinga eða sala á notkun hugbúnaðarlausna, sem gerir upp- lýsingarnar verðmætari (eins og tilgangurinn er með miðlægum gagnagrunni) er heldur ekki það at- riði sem ræður úrslitum. Upplýsing- ar sem nýttar eru í rannsóknum öðl- ast peningalegt verðmæti með ýmsum hætti. Stuðli þær að raun- hæfum úrlausnum öðlast þær und- antekningarlítið mikið fjárhagslegt gildi. I bréfi LI er getið um nýsjá- lenska gagnagrunninn og hann tal- inn til fyrirmyndar. Þar er ekki byggt á upplýstu samþykki, og upp- lýsingar seldar úr grunninum. Ef Læknafélag Islands telur að það samþykki sjúklinga, sem liggur til grundvallar nýsjálenska gagna- grunninum, sé viðunandi, þá tel ég líklegt að það fyrirkomulag sé innan þeirra marka sem almennt eru skil- greind í þeim sáttmálum og samn- ingum sem íslendingar eru aðilar að. Samkvæmt mínum upplýsingum um Nýja-Sjáland er með öllu ljóst að þar er ekki byggt á upplýstu samþykki. Þar er upplýsingum um að upplýsingar um sjúklinga verði notaðar í tölfræðilegum athugunum og rannsóknum komið á framfæri á veggspjöldum og eyðublöðum á sjúkrahúsum og stofnum lækna. Þeir sem eru mótfallnir því að upp- lýsingar um þá séu nýttar, geta farið fram á að þær verði ekki fengnar þriðja aðila. Það á þó ekki við um grunna heilbrigðisyfirvalda, þangað eru allar upplýsingar um sjúklinga sendar til tölfræðilegrar úrvinnslu. Endurskoðun í Bandaríkjunum Læknafélag íslands nefnir það sérstaklega að þingmenn og stjórn- völd fylgist grannt með því sem er að gerst í Bandaríkjunum varðandi auknar kröfur um aðgang að upp- lýsingum úr sjúkraskrám. Þær til- lögur eru vissulega athyglisverðar, en endurspegla að verulegu leyti þjóðfélag sem er mun skemrnra komið en við í vernd persónuupplýs- inga og er auk þess í grundvallaratr- iðum ólíkt okkar samfélagi að því er varðar uppbyggingu heilsugæslu- kerfis og almannatrygginga. Vegur þar þungt að tryggingarfélög gegna þar mikilvægu hlutverki, sem opin- berir aðilar annast hérlendis. Tillög- urnar, sem nú eru til umfjöllunár í Bandaríkjunum, fjalla meðal annars um það að setja reglur um heimildir tryggingarfélaga til notkunar á upp- lýsingum um sjúklinga. Að þessu leyti eru Bandaríkjamenn langt á eftir Evrópuþjóðum, sem hafa fyrir löngu komið sér saman um strangar reglur um meðferð upplýsinga um sjúklinga, reglur sem ganga lengra en það sem nú er rætt um fyrir vest- an. Notkun upplýsinga um sjúkl- inga, sem tryggingarfélög í Banda- ríkjunum hafa komist upp með, varða við lög í öllum Vestur-Evrópu- ríkjum. Auk þess eru tillögur um að koma á kerfi sem ýti undir að rofin séu tengslin milli einstaklingsins og upplýsinganna sem hann varða, þegar það á við eins og það er orðað. Þjóðir Evrópuráðsins hafa komið sér saman um strangari reglur en þarna er um að ræða. Þá eru einnig tillögur um að veita einstaklingum rétt til að takmarka notkun og birt- ingu verndaðra upplýsinga um sjúklinga. Þar virðist mér ekki vera gengið lengra en þegar hefur verið ákveðið í ályktunum ráðherraráðs Evrópuráðsins. En ég tek undir það að mikilvægt er að fylgjast með þvi sem er að gerast á þessu sviði í heiminum. Lokaorð I bréfi LI kemur fram það grund- vallarviðhorf félagsins að það styðji notkun á gagnagrunnum í rann- sóknum ef tryggt er að þeir starfi í samræmi við alþjóðareglur, einkum að því er varðar persónuvernd og mannréttindi. Undir þetta sjónar- mið tek ég heilshugar, enda hef ég haft þetta viðhorf að leiðarljósi í til- raunum mínum til að skerpa skiln- ing minn á því á hvern hátt beri að tryggja í senn réttindi sjúklinga og grundvöll vísindalegra framfara á sviði læknavísinda. Höfundur er alþingismaður. Nokkrir GSM símar ofundnir hn mnnor>+ P O l\ /1 r> í m o ní h i^i ímm i ►- h rr Þú eignast GSM síma ef þú finnur bronsbaun kaffipakka frá Kaaber. Kíktu í þakkal ?I&d>erKaffi Nestisbakpokinn frá Soldis er frábær jólagjöf. Bakpokinn er vel útbúinn fyrir tvo, með leirtaui, hnífapörum, tauservíettum, víngl sum, salti og pipar, vínupptakara, skurðbretti og skurðarhníf, hólfi fyrir rauðvínsflöskuna eða hitabrúsann. Á pokanum er vel einangrað hólf fyrir nestið. Litir: Blár og grænn Verð: 6.200,- HAGKAUF ' 4i,. mnmrr* UKCEIIIMW Mörkinni 3, simi 588 0640. Opið mnn.-fös. kl. 12-18, Inu. kl. 11-16, sun. kl. 13-17.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.