Morgunblaðið - 28.01.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.01.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 23 TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rannsókn á fjárreiðum kosningabandalags Baraks Lög um fjármögnun hugsanlega brotin Jerúsalem. AP, AFP. RIKISFEHIRÐIR í Israel sektaði í gær kosningabandalag sem stóð að framboði Ehuds Baraks til forsætis- ráðherra í vor vegna meintra brota á löggjöf um fjármögnun stjórnmála- flokka. Bandalagi flokka undir for- ystu Verkamannaflokksins er gert að greiða allt að 3,2 milljónir dollara, jafnvirði um 234 milljóna íslenskra króna. Ríkissaksóknari Israels hefur hafið rannsókn á þessum meintu lög- brotum stuðningsmanna Baraks, sem meðal annars er gefið að sök að hafa brotið lög sem takmarka þær fjárhæðir sem einstaklingar mega láta af hendi rakna í kosningasjóði stjómmálaflokka. Einnig er ráðgert að kanna fjárreiður annarra flokka vegna hugsanlegra lögbrota. Barak neitar vitneskju um meint fjármálamisferli undirmanna sinna en segist ekkert hafa á móti rann- sókn. Hann sagði í gær að ákvörðun um sekt yrði áfrýjað til hæstaréttar landsins. Böndin hafa einkum borist að þremur mönnum úr forystusveit Verkamannaflokksins sem sagðir eru hafa borið ábyrgð á fjáröflun vegna framboðs Baraks, þar á meðal Reuters Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, neitar því að hafa haft vitneskju um meint ólögleg fjárframlög í kosningasjóð hans. mági hans. Þeim er borið á brýn að hafa tekið við háum fjárhæðum af einstaklingum og veitt þeim til sam- taka sem komið var á fót til að vinna að kosningu Baraks. Greiðslur munu meðal annars hafa komið frá útlend- ingum, sem bannað er samkvæmt ísraelskum lögum. Lögin ekki nægilega skýr Samkvæmt heimildai-mönnum ísraelska dagblaðsins The Jerusal- em Post munu verjendur mannanna byggja málsvörnina á því að lögin um fjármögnun stjórnmálaflokka í Israel séu ekki nægilega skýr til að hægt sé að sakfella þá. Lögin um fjármögnun á starfsemi stjórnmálaflokka í Israel eru frá ár- inu 1973 en það var áður en farið var að kjósa forsætisráðherra landsins beinni kosningu. I lögunum er ákvæði um hámarks fjárhæð sem einstaklingum er heimilt að greiða í sjóði stjórnmálaflokka. Lögin til- greina aðeins greiðslur til flokks eða lista frambjóðenda en óljóst er hvort þau ná einnig til greiðslna í kosn- ingasjóð einstaklings. Einnig gera lögin ekki ráð fyrir að gi-eiðslur komi frá frjálsum félagasamtökum, þ.e. fjalla aðeins um framlög einstakl- inga. AP Kaldur klumpur ÓNEFNDUR lögreglumaður í borg- sumir á stærð við körfubolta, hafa inni Genúa á Ítalíu heldur á ís- fyrirvaralaust fallið af himni undan- klumpi sem hermt er að hafi faliið famar tvær vikur. Nokkrar skýr- af himnum ofan í gær. Engin einhlít ingar hafa verið nefndar, m.a. að skýring hefur fundist á því af hverju klumpamir séu leifar halastjörau. ísklumpar halda áfram að falla til Sumir virðast þó fremur hallast að jarðar á Spáni og Italíu. Margir því að hér sé hrekkur á ferðinni. íbúar í þessum löndum hafa sloppið ___________________ með skrekkinn þegar ísklumpar, ■ Haglél, hrekkur/29 Vígbúnaður efldur í Rússlandi Utgjöld til vopnakaupa aukin um 50% Moskvu, Strassborg, Grosní. AFP. STJÓRN Rússlands samþykkti í gær að auka útgjöld ríkisins vegna kaupa á hefðbundnum vopnum um 50% í ár og er þetta mesta hækkun á þessum útgjaldalið í áratug. Vladímír Pútín, settur forseti Rússlands, neitaði því að þessi ákvörðun tengdist beint hernaði Rússa í Tsjetsjníu. „Við höfum ekki séð hernum fyrir nægu fé í nokkur ár og það hefur haft alvarlegar af- leiðingar fyrir varnir landsins og efnahags- og þjóðlífið," bætti Pútín við. Uja Klebanov aðstoðarforsætis- ráðherra, sem hefur umsjón með vopnakaupum Rússa, sagði að markmiðið væri að byggja upp „nú- tímalegan, færanlegan og öflugan herafla, búinn nákvæmustu vopn- um sem völ er á“. Ekki var ljóst hvernig rússnesk stjómvöld geta aukið þessi útgjöld án þess að breyta fjárlögunum sem þingið hefur þegar samþykkt. Evrópuráðið hafnar tillögu um að refsa Rússum Þing Evrópuráðsins hafnaði í gær tillögu um að Rússar yrðu sviptir atkvæðisrétti sínum í ráðinu vegna stríðsins í Tsjetsjníu. Tillag- an var felld með 83 atkvæðum gegn 71 og níu fulltrúar sátu hjá. Igor Iv- anov, utanríkisráðherra Rússlands, varði hernaðaraðgerðir Rússa á fundi ráðsins. Hann sagði að Rúss- ar væru að „verja landamæri Evrópu gegn villimannslegum árásum hermdarverkamanna" og aðgerðunum yrði haldið áfram „þar til yfir lýkur“. Igor Sergejev, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði að „straum- hvörf “ væru í vændum í stríðinu í Tsjetsjníu. „Við erum staðráðnir í að ljúka því verkefni okkar að tor- tíma uppreisnarmönnunum." Hvorki hefur þó gengið né rekið í sókn rússnesku hersveitanna í Grosní, höfuðstað Tsjetsjníu, og skæruliðar sögðust í gær hafa eyði- lagt fimm rússneska brynvagna í hörðum bardögum í miðborginni. Liðnir eru tæpir tveir mánuðir frá því Rússar héldu því fram að þeir hefðu umkringt borgina og hafa stórskotalið og herflugvélar haldið uppi látlausum árásum á hana síð- an. Margir eru nú teknir að efast um að bardagaaðferðir Rússa dugi þeim til að ná borginni á sitt vald. ■ Geta Rússar unníð?/26 .. AT Oldungadeildarþingmaðunnn John McCain virðist nú hafa for- skot á George Bush, fýlkissljóra í Texas, í kosningabaráttu repúblikana í New Hampshire. Mega skilja við mennina Kaíró. AP. EGYPSKA þingið samþykkti í vikunni lagafrumvarp sem veit- ir konum aukin réttindi og mega þær nú m.a. skilja við eig- inmenn sína. Frumvarpið er umdeilt í Egyptalandi, þar sem flestir íbúarnir játa íslam. Miklar umræður fóru fram á þingi áður en frumvarpið var samþykkt og varð löggjafar- samkundan að fella niður grein sem veitti eiginkonum rétt til að ferðast utan Egyptalands án samþykkis eiginmannsins. Bókstafstrúaðir múslímar í Egyptalandi segja jafnrétti kvenna og karla vera í andstöðu við Kóraninn og kenningar Múhameðs spámanns. Kannanir í New Hampshire Gore og McCain efstir Washington. AFP. AL Gore varaforseti er líklegastur Gore á aðalkeppinautinn, Bill Brad- til að sigra í forkosningum demó- krata í New Hampshire á þriðjudag, ef marka má nýja skoðanakönnun Gallups. John McCain öldungadeild- arþingmanni er spáð sigri hjá repúblikönum. Forsetakjör verður í Bandaríkj- unum 7. nóvember og er talið hugs- anlegt að stóru flokkamir tveir verði búnir að velja forsetaefni sín um miðjan mars. Könnun Gallups var gerð íyrir blaðið USA Today og sjónvarpsstöðina CNN. Forskot ley, mældist um 9% meðal kjósenda demókrata. Svöruðu 44% aðspurðra í könnuninni að þeir ætluðu að kjósa Bradley en 53% að þeir ætluðu að kjósa Gore. Meðal kjósenda repúbl- ikana mældist McCain með 43% fylgi en George W. Bush, ríkisstjóri í Texas, með 36%. I könnun vikurits- ins Newsweek sl. sunnudag voru þeir Gore og Bradley nær jafnir á landsvísu, sá fyrmefndi með 45% og Bradley 44%. Bush hlaut þar 41% stuðning en McCain aðeins 30%. DOLLAR/EVRA London Föstudag 21.01. 1,010 1,005 1,000 0,995 0,990 0,985 0,980 F M Þ M F A I sögulegu lágmarki London. AFP. GENGI evrunnar féll niður fyrir 1 á móti Bandaríkjadollar á gjaldeyris- markaði í London í gær. Skömmu fyrir lokun markaðarins seldist evr- an á 0,989 dollara en verðið var 1,0015 dollarar í viðskiptum í New York seint á miðvikudag. Gengi evr- unnar fór allt niður í 0,9875 dollara í viðskiptum í gær og er það minnsta virði hennar frá upphafi. Haft er eftir gjaldeyriskaupmönn- um í gær að eftir að verð evrunnar hefur farið niður fyrir jafnvirði doll- ars megi segja að markaðurinn hafi yfirstigið eins konar „sálrænan þröskuld". Héðan af verði erfitt að snúa þróuninni við og megi búast við að evran haldist veik á næstunni. MORGUNBLAÐIÐ 28. JANÚAR 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.