Morgunblaðið - 28.01.2000, Blaðsíða 72
IJf|l
ATLANTSSKIP Hömniisi JF
- ÁREIBANLEIKI 1 FLUTNINGUM - GoTT BÁÐUM MEGIiO/ mí' 1
Leitið upplýsinga i síma 520 2040 J|1P éqJæ
www.atiantsskip.is ^ >r V V V v V >^
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Róttækra
breytinga
♦ þörf segir
Þorbjörn
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik tapaði í gær fímmta leikn-
um í röð í Evrópukeppninni í hand-
knattleik í Króatíu. Að þessu sinni
voru það Slóvenar sem lögðu Is-
lendinga með einu marki, 27:26.
Þar lauk islenska liðið keppni í sín-
um riðli án stiga og var eina lið
mótsins sem ekki hlaut stig.
Síðasta viðureign Islands er gegn
Ukraínu á laugardaginn kl. 14 i leik
um 11. sætið.
Eftir leikinn í gær sagði Þorbjörn
^^Jensson landsliðsþjálfari að rót-
tækra breytinga væri þörf á liðinu.
Ef menn teldu annan þjálfara betur
til þess fallinn til að gera þessar
breytingar væri hann tilbúinn að
segja starfi sínu lausu. Ennfremur
sagðist hann sjá eftir að hafa ekki
valið Ragnar Oskarsson, leikstjórn-
anda IR, til fararinnar.
Myndin lýsir vonbrigðum og
undrun Islendinganna með úrslitin
í Zagreb í gær. Fremst standa Þor-
björn Jensson landsliðsþjálfari,
Einar Þorvarðarson, aðstoðar-
Hnaður Þorbjörns, og leikmennirnir
Ólafur Stefánsson og Gústaf
Bjamason.
■ Þorbjörn tilbúinn .../ C1
Morgunblaðið/Ásdís
Tillögur um lausn á bflastæðavanda í miðborg Reykjavíkur
Bilastæðahús reist
- fyrir tvo milljarða
BILASTÆÐAHÚS verða reist í
Kvos og við Hlemm á næstu árum,
verði tillögur framkvæmdastjóra
bílastæðasjóðs og borgarverkfræð-
ings samþykktar í borgarráði nk.
þriðjudag. Gert er ráð fyrir að kostn-
aður við byggingu húsanna nemi
tveimur milljörðum króna og hafa
tveir staðir helst verið nefndir sem
ákjósanlegir fyrir slík hús, annars
vegar austan við Tollhúsið í Kvosinni
og hins vegar við Hlemm, ofarlega
við Laugaveg.
Tillögur embættismannanna fela í
sér breytingar á skipulagi og gjald-
_skrá gjaldskyldra bflastæða í mið-
*Dorginni og í þeim er m.a. gert ráð
fyrir umtalsverðri hækkun gjalds
fyrir bflastæði við Laugaveg og í
Kvosinni. Gjald fyrir stöðu bfls í
klukkustund á þessu svæði kostar nú
50 kr., en 150 kr. verði tillögurnar
samþykktar.
Meira greitt fyrir
eftirsóttustu stæðin
Stefán Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Bflastæðasjóðs, segir að vilji sé
til þess að notkun bflastæða í mið-
borginni verði stýrt í auknum mæli,
svo greitt sé hærra gjald fyrir eftir-
sóttustu stæðin og lægra fyrir stæði
í hliðargötum. Þar verður tímagjald
lægst á svæðinu, eða 80 kr. Auk þess
sé verið að auka þjónustu við bfleig-
endur, því eftir breytingarnar verði
hægt að greiða með 10, 50 og 100 kr.
mynt og lágmarksgjald verði 10 kr.
Bolli Kristinsson, kaupmaður í
versluninni Sautján, var einn þriggja
kaupmanna við Laugaveg sem sæti
átti í samráðshópi miðborgarstjórn-
ar, en hugmyndir þess hóps liggja til
grundvallar tillögu bflastæðasjóðs
og borgarverkfræðings. Hann segist
telja fyrirhugaðar breytingar mikið
framfaraspor og í raun byltingu í
bílastæðamálum miðborgarinnar
þar sem ríkt hafi stöðnun um árabil.
„Við viljum breytingar og gerum
okkur grein fyrir því að þær nást
ekki fram án aukinna þjónustu-
gjalda. Borgaryfirvöld munu ekki
taka fé úr öðrum málaflokkum, t.d.
dagvistunarmálum, til að fjölga bfla-
stæðum og þess vegna viljum við
finna aðrar leiðir. Fyrir kaupmenn í
miðborginni eru þessar breytingar
afar aðkallandi," segir Bolli.
■ Ódýrara /14
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Menningarborgin
Reykjavík
Dagskráin
hefst á
morgun
STARFSMENN Reykjavíkurborgar
unnu að því í gær að setja upp fána
á Ijósastaura víða um borg með
merki menningarborgarinnar. Til-
efnið er að dagskrá menningar-
borgarinnar hefst með pomp og
prakt á morgun, laugardag.
Tónninn er gefínn strax að
morgni í Landsbókasafni - Há-
skólabókasafni en þá verður brot-
inn upp kassi Erlendar í Unuhúsi
sem hann lét eftir sig árið 1947.
Skilyrðið var að kassinn yrði ekki
opnaður fyrr en árið 2000.
Síðar um daginn mun hver list-
viðburðurinn reka annan fram á
kvöld og út árið 2000. Hægt er að
nálgast dagskrá menningarborgar-
innar á heimasfðunni Reykja-
vik2000.is.
Málaferli fresta ekki fram-
kvæmd gagnagrunnslaganna
HÓPUR lækna og samtökin Mann-
vernd hafa samið við lögíræðistofu
um hugsanlega málsókn til að fá úr
því skorið fyrir dómstólum hvort
læknum sé stætt á því að afhenda
upplýsingar um sjúklinga sína í
gagnagrunn á heilbrigðissviði. Lög-
fræðingur í heilbrigðisráðuneytinu
telur málsókn ekki þurfa að fresta
framkvæmd gagnagrunnslaganna.
Tómas Zoéga, yfirlæknir á geð-
deild Landspítalans, sagði í samtali
við Morgunblaðið að málsókn virtist
eina ráðið í stöðunni og væri verið að
kanna lagalegan grundvöll og kostn-
að. Tómas segir hópinn telja að
breyta þurfi lögunum um gagna-
grunn á þann veg að fólk gefi skrif-
legt samþykki sitt fyrir því að upp-
lýsingar um það verði settar í
gagnagrunninn og að menn gætu
hvenær sem er fengið gögnum um sig
eytt. Tómas sagði að ekki þyrfti að
koma til málaferla væri lögunum
breytt og þar gæti rekstrarleyfishaf-
inn, Islensk erfðagreining, haft mikil
áhrif.
Guðríður Þorsteinsdóttir, lögfræð-
ingur í heilbrigðisráðuneytinu, segir
að hugsanleg málaferli muni ekki
fresta sjálfkrafa framkvæmd laganna
um gagnagrunn nema ef lögbann yrði
sett á hana. Taldi hún þann mögu-
leika hins vegar vart raunhæfan.
■ Kanna grundvöll/12