Morgunblaðið - 28.01.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 35
LISTIR
Elías B. Halldórsson
sýnir í Hafnarborg
Bjólfur lagði
Harry Potter
London. Morgnnblaðid.
OPNUÐ verður á laugardag kl. 14, í
Sverrissal Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnunar Hafnarfjarðar,
sýning á málverkum og teikningum
listmálarans Elíasar B. Halldórs-
sonar.
Elías hlaut menntun sína við
Myndlista- og handíðaskóla íslands,
Listaakademíuna í Suttgart og Kon-
unglegu listaakademíuna í Kaup-
í TILEFNI opnunardags Reykja-
víkur - menningarborgar Evrópu ár-
ið 2000 efnir Möguleikhúsið tH sér-
stakrar sýningar á bamaleikritinu
Snuðra og Tuðra laugardaginn 29.
janúar kl. 14. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill meðan húsrúm leyf-
ir.
Leikritið er byggt á sögum Iðunn-
ar Steinsdóttur um systumar
Snuðm og Tuðm. Snuðra og Tuðra
era leiknar af þeim Aino Freyju Jár-
velá og Hrefnu Hallgrímsdóttur,
mannahöfn. Hann hefur haldið
margar einkasýningar og tekið þátt
í samsýningum hér heima og erlend-
is. Nú býr Elías í Kópavogi og starf-
ar þar að list sinni en flest verkin á
sýningunni í Hafnarborg era unnin
á síðastliðnum tveimur áram.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 12-18 og henni
lýkur 14. febrúar.
leikstjóri og höfundur leikmyndar er
Bjami Ingvarsson, leikgerðin er eftir
Pétur Eggerz, tónlist eftir Vilhjálm
Guðjónsson og Katrín Þorvaldsdóttir
sá um búninga og brúðugerð.
Möguleikhúsið mun síðan með
formlegum hætti taka þátt í dagskrá
menningarborgarinnar í maí með
framsýningu á leikverkinu Völuspá
eftir Þórarin Eldjárn í leikstjóm Pet-
er Holst, en sú sýning er einnig unnin
í samvinnu við Listahátíð í Reykja-
vík.
ÍRSKA Nóbelsskáldið Seamus Hean-
ey hefur hlotið brezku Whitbread-
verðlaunin fyrir þýðingu sína á
Bjólfskviðu, en úrslitalotan stóð á
milh hennar og þriðju bókar JK
Rowling um Harry Potter. Þetta er
fjórða árið í röð, sem ljóðabók vinnur
tíl Whitbread-verðlaunanna sem bók
ársins; Seamus Heaney fékk verð-
launinin 1966, Ted Hughes 97 og 98
og Heaney nú fýrir beztu bók ársins
99, sem hann tileinkar Hughes.
Miklar vangaveltur vora fyrir verð-
launaafhendinguna um það, hvort
Bjólfskviða eða Harry Potter yrði of-
an á. Fimm bækur keppa um titilinn
bók ársins; ljóðabók, ævisaga, skálds-
aga og fyrsta bók höfundar og nú var
reglunum breytt á þann veg að hafa
bamabækur með líka. Töldu sumir,
að það væri gert til þess að ryðja
brautina fyrir Harry Potter, en bæk-
urnar um hann hafa náð gífurlegum
vinsældum; ekki aðeins meðal barna
heldur fullorðinna líka. Aður en
dómnefndin settist á rökstólana virt-
ust bækumar standa nokkuð jafnt að
vígi samkvæmt frásögnum fjölmiðla
og var því m.a. haldið fram á móti
Bjólfskviðu, að þar væra ekki framort
ljóð á ferðinni heldur þýðing eða end-
urgerð. Það tók dómnefndina 90 mín-
útur að gera út um málið og þótt for-
maður dómnefndarinnar, Eric And-
erson, segði úrslitin vera
afdráttarlaus hafa íregnir borizt af
því að atkvæðagreiðsla innan dómn-
efndarinnar hafi farið 5-4 fyrir
Bjólfskviðu. Meðal þeirra sem sátu í
dómnefndinni að þessu sinni vora fyr-
irsætan Jerry Hall, leikkonan Imog-
en Stubbs og Ann Widdecombe, sem
fer með innanríkismál í skuggaráðu-
neyti íhaldsflokksins. Eric Anderson
sagði, að dómnefndinni hefði þótt sem
Heaney hefði með glæsilegum hættí
fært almenningi upp í hendumar
foma kveðskaparperlu og blásið nýju
lífi í ljóð, sem aðeins hefði skrimt í
þröngum hópi háskólamanna. Og
enda þótt um þýðingu eða endurgerð
væri að ræða hefðu dómnefndarmenn
verið á einu máli um að hún væri full-
gild af sjálfri sér. Hann sagði dóm-
nefndarmenn engar efasemdir hafa
haft um að verðlauna ljóðabók fjórða
skiptið í röð. Titíinum bók ársins fylg-
ir verðlaunafé upp á rösk 20.000 pund.
Heaney vitnaði í Bjólfskviðu, þegar
hann tók við verðlaununum, þar sem
segir eitthvað á þá leið, að forlögunum
farist eins og verða vill. Hann kvaðst
vera hissa, glaður og þakklátur að
hljóta verðlaunin, ekki bara sjálfs sín
vegna heldur og fyrir hönd þess nafn-
lausa snillings, sem Bjólfskviðu hefði
ort á sinum tíma. Sagðist Heaney
hafa gert sitt bezta til að skila efni og
anda kviðunnar, en hans verk væri
aðeins þýðing á frumtextanum. Það
væri verkið sem væri verðlaunavert
en ekki verkamaðurinn. Það tók
Heaney 15 ár að koma Bjólfskviðu í
það horf, sem hún er í bókinni.
Bjólfskviða er fomenskt sagnaljóð,
sem er talið vera frá fyrri hluta átt-
undu aldar, en er varðveitt í handriti
frá því um 1000.
Þótt bragðvísin brygðist Harry
Potter í viðureigninni við Bjólf færði
hann engu að síður höfundi sínum 10
þúsund pund, verðlaunin fyrir beztu
bamabókina. Þrjár fyrstu bækumar
um Harry Potter hafa selzt í 27,5 millj-
ónum eintaka, þar á meðal á íslandi,
og fjórða bókin, sem JK Rowling er
enn að skrifa, er þegar komin í hóp
metsölubóka vegna pantana á Netinu.
JK Rowling var ekki viðstödd Whit-
breadverðlaunaafhendinguna og tók
leikarinn Stephen Fry við bamabóka-
verðlaununum fyrir hennar hönd.
Hinar bækumar, sem kepptu við
Bjólfskviðu og Harry Potter, vora;
skáldsaga Rose Tremain; „Music and
Silence“, söguleg skáldsaga sem ger-
ist í Danmörku á sautjándu öld, „Ser-
vitude and Greatness", annað bindi
ævisögu Berlioz eftir David Caim, og
fyrsta bók Tims Lott, skáldsagan
„White City Blue“.
Kammersveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar heldur tónleika laugardaginn 29. janúar.
Barnaleikritið Snuðra og Tuðra
Tónleikar
Kammersveitar
Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar
KAMMERSVEIT Tónlistarskóla
HafnarQarðar heldur miðsvetrar-
tónleika sfna laugardaginn 29. jan-
úar kl. 17 í Tónlistarskólanum -
Hásölum.
Á efnisskránni verða tvær af
„Árstíðum“ Vivaldis - Vor og Vet-
ur. Einleikar með hljómsveitinni
verða Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir
og Baldur Páll Magnússon fiðlun-
emcndur við skólann.
Auk konsertanna tveggja flytur
hljómsveitin Rondo eftir Haydn,
Valse Triste eftir Sibelius og tvo
flætti úr Pétri Gaut eftir Grieg. Að
lokum flytur hljómsveitin Diverti-
mento í D-dúr K. 136 eftir W.A.
Mozart. Stjórnandi kammersveitar-
innar er Oliver Kentish.
Opið hús
í Hinu
húsinu
OPIÐ hús verður í Hinu húsinu
á morgun vegna formlegrar
opnunar á „Reykjavík - menn-
ingarborg Evrópu árið 2000“
Dagskráin stendur frá kl. 14 til
18.
Krafm'kill kaupauki í Kolaporlinu
Alla föstudaga
Ótrúlegt úrval Ódýrt,
af vörum einstakt og
á góðu verði ævintýri líkast
Í PIÐ rÖSTUMGA 12-18
OPIÐ LAUGARDAGA
SUNNUDAGA 1 I ■ 1 #
Kaupauki á föstudögum
- þú fœrð 25 til 40% kaupauka
Kaupir fyrir kr. 2000 og fœrð kaupauka kr. 500
Kaupir fyrir kr. 4000 oa fœrð kaupauka kr. 1200
Kaupir fyrir kr. 6000 og fœrð kaupauka kr. 2000
Kaupir fyrir kr. 8000 oa fœrð kaupauka kr. 2500
Kaupir fyrir kr. 10000 og yfir
og fœrð kaupauka kr. 4000
Markaðstorg
KOLAPORTIÐ
Antik Frimerki Austuriensk teppi
Asíuvara Kompudót Heimilistaeki
Geisladiskar Fataefni Snyrfivörur
■ Skartgripir Verkfœri Leikföng
Skófatnaður Myndir Fatnaður