Morgunblaðið - 28.01.2000, Blaðsíða 18
íá FÖSTtÍDAGUR 28. JAN ÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Deildartunguhver í Borgarfírði er vatnsmesti hver Evrópu og vinsæll ferðamannastaður
Leiða leitað
til að bæta
aðstöðuna
Reykholti - Deildartunguhver í
Borgarfjarðarsveit er vinsæll
áningarstaður ferðalanga, enda
koma þeir árlega svo þúsundum
skiptir til að skoða þennan
vatnsmesta hver Evrópu. Engin
aðstaða er hins vegar á staðnum
fyrir þessa ferðamenn og hefur
skapast af því töluvert óhag-
ræði.
Kostulegt bárujárnsmannvirki,
með ámáluðum gluggum, hefur
staðið um árabil við aðkeyrsluna
að hverasvæðinu og stungið
verulega í stúf við umhverfið.
Skúrinn virðist þó helst hafa
vakið athygli ferðamanna með
þeim hætti að þar fundu menn
skjól til að sinna erindum sínum,
við lítinn fögnuð staðarfólks.
Að frumkvæði heimamanna
hefur Atvinnuþróunarnefnd
Borgarfjarðarsveitar unnið drög
að hugmyndum um atvinnu-
skapandi uppbyggingu í tengsl-
um við hverinn sem jafnframt
miði að því að bæta aðstöðu fyr-
ir ferðamenn og fá snyrtilegan
frágang á aðkeyrslu og um-
hverfí.
Sverrir Heiðar Júlíusson, for-
maður nefndarinnar, segir að
ýmsar hugmyndir séu í deigl-
unni eins og t.d. uppsetning sýn-
ingar á staðnum og grænmetis-
ala, en ylrækt er helsta
búgreinin í nágrenninu. Þessar
hugmyndir eru þó ennþá á
vinnslustigi og verða unnar
áfram í samvinnu við heima-
menn.
Hverinn virkjaður 1981
Samkvæmt upplýsingum
Sverris eiga sjö aðilar land að
hverasvæðinu, en ekki liggja
fyrir nein áform eigenda um að
nýta þessa aðstöðu. Hverinn var
virkjaður 1981 af Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar og
er vatn leitt úr honum rúmlega
60 km vegalengd. Veitubygging
hitaveitunnar er á svæðinu og
næsta umhverfi hennar upp að
hvernum snyrt og afgirt.
Umhverfisátak er í gangi í
sveitarfélaginu og hefur báru-
járnsskúrinn nú verið fjarlægður
af svæðinu og þar með helsti
skjólveggur ferðamanna og ligg-
ur fyrir að leysa úr þessum mál-
um.
Morgunblaðið/Sigríður Kristínsdóttir
Deildartunguhver laðar að sér þúsundir ferðamanna á ári hverju en aðstaða fyrir gesti hefur engin verið.
V-".
Skúrinn, bárujárnsmannvirkið með máluðu gluggunum, sem stóð lengi við aðkeyrsluna en hvernum.
jrjrD
tilboð!
12 KJUKLINGABITAR
STÓR SKAMMTUR AF
FRÖNSKUM KARTÖFLUM
PEPSI 2L
KJUKLINGAR I SERFLOKKI FRA KFC
REYKJAVIK
HAFNARFIRÐI
Fj ár hagsáætlun
samþykkt
Stykkishólmi - Fjárhagsáætlun
Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2000
var samþykkt á fundi bæjarstjórn-
ar 24. janúar sl.
Sérstök áætlun er gerð fyrir
bæjarsjóð, en jafnframt eru gerðar
sérstakar áætlanir fyrir hafnar-
sjóð, dvalarheimili, þjónustuíbúðir,
félagsheimili og félagslegar íbúðir.
Áætlun fyrir Hitaveitu Stykkis-
hólms verður unnin síðar og einnig
áætlun fyrir nýstofnaðan Fram-
kvæmdasjóð Stykkishólms.
Tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar
239 milljónir króna, sem eru 20
milljónum króna hærri en í fyrra.
Útsvarstekjur eru áætlaðar 180
milljónir, fasteignaskattar 28 millj-
ónir króna og Jöfnunarsjóður 31
milljón króna. Rekstur bæjarsjóðs
með fjármagnskostnaði nemur 213
milljónum króna sem er 89% af
tekjum. Stærsti gjaldaliður eru
fræðslumálin, sem taka 45% af út-
gjöldum.
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir
framkvæmdum upp á um 30 millj-
ónir króna.
Helstu framkvæmdir verða við
dvalarheimilið þar sem ætlað er að
stækka matsal og gera endurbæt-
ur á eldhúsi. Þá verður lokið við
bryggjuframkvæmdir og eru 10
milljónir áætlaðar í hvort verkið.
Þá verða nokkrar lóðir við Búðan-
es gerðar byggingarhæfar.
Stefnt er á að ráða félagsmála-
fulltrúa, sem er nýtt starf. Teknir
eru frá peningar til starfsins, en
eftir er að móta það.
Þegar bæjarstjóri, Óli Jón
Gunnarsson, er spurður hvað ein-
kenni fjárhagsáætlun Stykkis-
hólmsbæjar segir hann að áætlun-
in sýni aðhaldssemi í rekstri og
framkvæmdum. Eftir geysimiklar
framkvæmdir á síðustu árum er
planið að rétta sig af og byrja að
vinda ofan af lánunum.
Símenntun í
atvinnulífinu
Borgarnesi - Ole Imsland, fram-
kvæmdastjóri símenntunarstöðvar
í Rogalandfylki (Rogaland Kurs og
Kompetansesenter- RKK) í Nor-
egi, heldur tvo fyrirlestra í boði Sí-
menntunarmiðstöðvar Vestur-
lands. Var annar fundurinn
haldinn í gær en hinn verður í
kvöld, föstudagskvöld.
Ole Imsland fékk nýlega æðstu
verðlaun norsku Vinnuveitenda-
samtakanna fyrir fræðslustörf. En
RKK hefur einbeitt sér að því að
efla símenntun í atvinnulífinu. Ein-
staklega góð samvinna hefur tekist
milli atvinnulífs- og menntastofn-
ana í Rogalandfylki og er RKK-
módelið þekkt í Noregi.
Ole Imsland er hér í boði Sí-
menntunarstöðvar Vesturlands
með styrk frá norska sendiráðinu.
Hann heldur tvo opna fundi er
hann nefnir: „Símenntun í atvinnu-
lífinu og samstarf atvinnulífs og
menntastofnana.“
Seinni fundurinn er í fjar-
kennslustofu HÍ (í kjallara Odda)
föstudaginn 28. janúar kl. 10.
Fólki utan höfuðborgarsvæðis-
ins gefst kostur á að fylgjast með
seinna erindinu um fjarfundabún-
að.