Morgunblaðið - 28.01.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 29
Skýringa er enn leitað á tilurð ísklumparegnsins á Spáni og Italíu
Haglél, hrekkur eða halastjarna?
ÍSKLUMPAR sem falla af himnum
ofan hafa vakið bæði undrun og at-
hygli á Spáni og Ítalíu sl. tvær vikur.
Engin einhlít skýring hefur fundist á
tilvist ísklumpanna og eru ítölsk
dagblöð nú farin að velta því fyrir sér
hvort um hrekk sé að ræða.
Hinn ítalski Massimo Giunchi
slapp naumlega við alvarleg meiðsl
þegar ísklumpur sem vó rúmt kíló
lenti á höfðinu á honum þar sem
hann var á leið til vinnu í Ancona sl.
þriðjudag. Meiðsl Giunchi voru væg
af því að hann hafði klætt sig vel
vegna mikils kulda á Ítalíu þessa
dagana. „Sem betur fer var hann
með tvær húfur,“ sagði læknir á
sjúkrahúsinu í Ancona um Giunchi.
Þá fann umsjónarmaður golfvallar
suður af Róm, rúmlega 5 kg ísklump
á könnunarferð sinni um golfvöllinn
á miðvikudagsmorgun og rétt fyrir
hádegi sama dag féll hnullungur á
stærð við grasker á götu í Mílano, en
annar lenti á bíl nærri Bolgna.
himnum ofan og slapp maður nokkur
naumlega þegar 4,5 kg ísklumpur
féll af heiðskírum himni og lenti á bíl
hans. Maðurinn sjálfur hafði rétt
numið staðar til að kasta kveðju á vin
sinn og hafði því ekki sest inn í bíl-
inn.
Tilkynnt hefur verið um 9 önnur
tilvik á Spáni og var í fyrstu haldið að
um úrgang flugvéla væri að ræða. Að
sögn jarðfræðingsins Jesus Martin-
ez Frias, sem fer fyrir hópi sérfræð-
inga sem rannsaka fyrirbærið, styð-
ur þó hvorki litur klumpanna né
áferð þeirra þá tilgátu. „Sá sem er
hvað mest hissa á þessu fyrirbæri er
ég,“ sagði Frias, sem ferðast nú um
Spán og safnar og rannsakar
ísklumpana.
Vísindamennirnir vonast til að
efnarannsókn leysi gátuna, en Frias
sagði við dagblaði E1 Pais að svo virt-
ist sem hnullungarnir væru nær ein-
göngu gerðir úr frosnu vatni, þó að
efnarannsókn ætti eftir að staðfesta
þá skoðun.
Aðrar tilgátur sem heyrst hafa eru
að ísklumparnir séu leifar af hala
halastjörnu. Frias telur þá skýringu
þó ekki líklega þar sem ísklumparnir
finnist á of stóru svæði til að svo geti
verið. Þeir hafa einnig verið taldir
vera risahaglél, en veðurfræðingar
útiloka að ástæðan fyrir tilvist
klumpanna eigi sér veðurfarslegar
skýringar.
Hver sem skýringin er, þá eru ís-
klumparnir nógu stórir til að eiga að
hafa komið fram á radarskjám og því
e.t.v. ekki að ástæðulausu að ítölsk
dagblöð telja að um hrekk sé að
ræða.
Kona sýnir brot af ísklumpi sem
féll á götu í Mflanó. Fjölmiðlar
eru uppfullir af efasemdum.
Hnullungar á stærð
við körfubolta
ítalskir sérfræðingar hafa brotið
heilan um tilvist ísklumpanna frá því
í lok síðustu viku, þegar þeirra varð
fyrst vart í borginni Padua á Norð-
ur-ítaliu. Vitað er um fjölda annarra
tilvika á Spáni vikuna á undan og
standa þarlendir sérfræðingar ekki
síður á gati. En þar hafa hnullungar
á stærð við körfubolta steypst af
Mugabe í
lukku-
pottinn
Harare. AFP.
ROBERT Mugabe, forseti Zimb-
abwe, þar sem efnahagslífið er gjör-
samlega komið að fótum fram, datt
sjálfur í lukku-
pottinn á dögun-
um er hann vann
í bankalottói.
Ziana, ríkis-
fréttastofan í
Zimbabwe,
skýrði frá því í
gær, að Mugabe
hefði unnið
100.000 Zimb-
abwe-dollara,
um 190.000 ísl.
kr., í lottói Zimb-
ankans, sem er að hluta í ríkiseigu.
Var aðeins dregið úr nöfnum þeirra,
sem áttu 5.000 Zimbabwe-dollara
eða meira á reikningum sínum.
190.000 ísl. kr. eru mikið fé í
Zimbabwe þar sem algeng mánaðar-
laun eru um 2.000 kr.
Stálvaskar
Intra stálvaskarnir fást f mörgum
stærðum og gerðum. Þessi vaskur
ber nafnið Eurora og hefur hlotið
margvfslegar viðurkenningar fyrir
frábæra hönnun.
T€I1GI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089
Fást i byggmgavöniversluiium um lanri alll