Morgunblaðið - 28.01.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 51
HOSKULDUR
AGNARSSON
+ Höskuldur Agn-
arsson fæddist á
Suðureyri við Súg-
andafjörð 27. sept-
ember 1925. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Suðumesja 18. jan-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hans vom
Sturla Agnar Guð-
mundsson, skipstjóri,
f. 14. október 1897, d.
2. október 1981, og
kona hans Kristjana
Margrét Sigmunds-
dóttir, f. 2. mars
1897, d. 6. janúar
1983. Systkini hans
Hulda, f. 2. aprfl 1921.
vom: 1)
2) Guðrún
Sigþrúður, f. 19. júní 1922. 3)
Kristján Jónatan, f. 11. maí 1924,
d. 21. nóvember 1978. 4) Kristín
Svava, f. 27. júlí
1927, dó ung. 5)
Kristfn Svava, f. 14.
október 1928. 6)
Agnes Sturlína, f. 18.
júní 1930. 7) Hjalt-
lína Sigríður, f. 17.
júlí 1931. 8) Guð-
mundur, f. 14. mars
1933. 9) Guðbjörg
Erna, f. 11. nóvem-
ber 1934. 10) Mar-
grét Sigmunda, f. 28.
febrúar 1937. 11)
Agnar f. 22. júlí
1938, d. 19. desem-
ber 1977. 12) Sig-
mundur, f. 30. október 1941. 13)
Eyjólfur, f. 22. júlí 1944.
Útför Höskuldar fer fram frá
Keflavfkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Kæri bróðir. Mig langaði að minn-
ast þín með nokkrum orðum. Fyrst
man ég eftir þér sem ungum, létt-
lyndum manni vestur á Isafirði. Var
ég þá aðeins barn og þá varst þú
nýbúinn að taka vélstjórapróf og far-
inn að róa með föður mínum sem vél-
stjóri á bátnum hans. Ég man þegar
ég fékk að fara með ykkur minn
fyrsta róður og þú hjálpaðir mér að
gera slóða á færið mitt. Það var ekki
stór snáði sem fór í sína fyrstu sjó-
ferð aðeins 11 ára. Ég man hvað þú
varst mikið snyrtimenni. Þú kenndir
mér að hugsa vel um kojuna mína og
ganga vel um öll veiðarfæri og
manstu þegar ég fékk stóran gol-
þorsk og höndin festist í vaðbaujunni
þá komst þú og reddaðir litlum snáða
og dróst hann fyrir mig, þú hélst
fyrst að þetta væri lúða en þetta
reyndist vera sá stærsti golþorskur
sem ég hef séð á minni lífstíð.
Fáa menn hef ég hitt sem hafa
haft eins létta lund, þú gast komið
manni til að hlæja af minnsta tilefni.
Hvað mér þótti það yndislegt þegar
þú lést móður okkar veltast um af
hlátri með grínsögunum þínum og
hvað þú hugsaðir vel um hana þegar
hún var orðin öldruð kona, fórst á
hverjum degi og hjálpaðir henni.
Eins var það með Éjólu sambýlis-
konu þína sem þú hjúkraðir þar til
hún lést. Síðan áttir þú því láni að
fagna að hitta Bíbí, voruð þið eins og
ein sál máttuð ekki hvort af öðru sjá
og bjugguð ykkur yndislegt heimili
sem ég kom oft á þar sem þú söngst.
Suðurumhöfm
að sólgylltri strönd
sigliég
fleyi mínu til að kanna ókunn lönd.
Nú hefur þú siglt til landsins sem
við eftirlifendur þínir eigum eftir að
kanna. Eitt er víst að ég á eftir að
minnast allra símtalanna sem við
höfum átt saman.
Elsku Bíbí mín, ég bið góðan Guð
um að styrkja þig í sorg þinni.
Eyjólfur Agnarsson.
Höskuldur var 3 ára þegar for-
eldrar hans fluttu frá Suðureyri til
ísafjarðar árið 1928 og þar ólst hann
upp í stórum og glaðværum systk-
inahópi. Hann var um fermingarald-
ur þegar hann fór að stunda sjóinn
með föður sínum og varð sjómenn-
skan hans ævistarf. Hann tók próf úr
Vélskólanum á ísafirði, og varð vél-
stjóri á bátum föður síns um árabil,
eða þangað til að hann fór á vertíð
suður með sjó árið 1949. Um margra
ára skeið var hann í skipsrúmi hjá
hinum kunna aflamanni Angantý
Guðmundssyni, föðurbróður sínum.
Síðustu ár starfsævi sinnar vann
hann við fiskverkun hjá Oddi Sæ-
mundssyni og Hilmari Magnússyni.
Höskuldur var alla tíð glaðsinna
og sá alltaf spaugilegu hliðarnar á
h'finu.
Ég sem þessar línur rita fékk sér-
staklega að kynnast spaugsemi hans
þegar við, Svava konan mín, Erna
(systur hans) og Höskuldur tókum á
leigu íbúð að Sóltúni 11 hér í Kefla-
vík, var oft glatt á hjalla. Oft þegar
ég kom heim úr vinnunni kom ég að
þeim systkinunum skellihlæjandi og
hafði Hössi, eins og hann vai’ venju-
lega kallaður, verið að segja þeim
einhverjar sjóara- eða grínsögur.
Þegar við hjónin byggðum okkar
raðhús á Faxabraut 39b, fluttu þau
Erna og Hössi með okkur og leigðu
hvort sitt herbergið, Erna þar til hún
giftist sínum manni, en Hössi leigði
hjá okkur í um átta ára skeið. Hössi
var sérstakt snyrtimenni, og sagði
konan mín að hún þyrfti aldrei að
hreinsa herbergið hans Hössa.
Árið 1977 keypti Hössi sér íbúð að
Kirkjuvegi 41 í Keflavík. Um það
leyti hafði hann kynnst Áslaugu Sig-
urðardóttur (kölluð Bíbí) sem síðar
varð eiginkona hans.
Þar hófu þau sinn búskap og áttu
þau saman yndislegar stundir um 23
ára skeið, enda voim þau sérstaklega
samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir
hendur.
Þau fóru m.a. tvisvar til Banda-
erktar
IÆKUR
afgreiðsla
ríkjanna að heimsækja börnin henn-
ar Bíbíar sem þar búa og litlu ömmu-
börnin, sem hann var svo hrifinn af.
Við, sem eftir lifum viljum þakka
Bíbí fyrir allt sem hún var honum og
sérstaklega þrautseigju hennar í
hans erfiðu veikindum. Einnig vilj-
um við þakka þeim báðum fyrir hvað
þau voru natin og umhyggjusöm við
aldraða foreldra hans, sem bjuggu
að Kirkjuvegi 34.
Að lokum bið ég góðan Guð að
styrkja og hugga Bíbí og okkur öll í
okkar miklu sorg.
Far þú í friði, minn góði mágur.
Garðar Pétursson.
Kæri frændi. Við viljum minnast
þín með nokkrum ljóðlínum eftir
Tómas Guðmundsson.
Eg veit þú fékkst engu, vinur, ráðið
um það,
en vissulega hefði það komið sér betur,
að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að.
Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur.
Og nú var um seinan að sýna þér allt það
traust,
sem samferðafólki þínu hingað til láðist
að votta þér. Það virtist svo ástæðulaust
að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist.
Mér dylst að vísu þín veröld á bak við hel,
en vænti þess samt, og fer þar að prestsins
orðum,
að þú megir yfirleitt una hlut þínum vel,
því okkar megin gengur nú flest úr
skorðum.
Og hér eru margir horfnir frá þeirri trú,
að heimurinn megi framar skaplegur
gerast,
og sé honum stjómað þaðan, sem þú
ertnú,
mér þætti rétt að þú létir þau tíðindi
berast.
Kæra Bíbí. Okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Fjölskyldan Hafnargötu 42,
Keflavík.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsta.
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
t
Útför mannsins míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
JÓNS SNÆBJÖRNSSONAR,
Veghúsum 31,
áður bónda í Mýrartungu II,
Reykhólasveit,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
31. janúar kl. 15.00.
Aðalheiður Hallgrímsdóttir,
Snæbjörn Jónsson, Júlíana Sveinsdóttir,
Inga Hrefna Jónsdóttir, Árni Garðar Svavarsson,
Ólína Kristín Jónsdóttir,
Unnur Helga Jónsdóttir,
Guðrún Eria Baldursdóttir,
Svavar Jón Árnason.
t
Elskulegur frændi okkar og vinur,
BJARNI JÓN STEFÁNSSON,
Snæfelli,
Reyðarfirði,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
daginn 22. janúar.
Jarðarförin fer fram frá safnaðarheimili
Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 29. janúar
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður St. Óiafsdóttir, Sigurbjörn Marinósson,
Gunnar Bjarni Ólafsson, Guðrún Kjerúlf.
t
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
KOLBEINN GUÐMUNDSSON
frá Kílhrauni,
Hrafnistu,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 23. janúar, verður
jarðsunginn frá Laugarneskirkju í dag, föstu-
daginn 28. janúar, kl. 15.00.
Kristleifur Kolbeinsson, Stefanía Erla Gunnarsdóttir,
Kjartan Kolbeinsson, Helga Haraldsdóttir,
Guðmundur Kolbeinsson, Kolbrún Jóhannsdóttir,
Marteinn Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR J. BREIÐFJÖRÐ,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópa-
vogi, föstudaginn 21. janúar, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju, í dag, föstudaginn 28. janú-
ar kl. 10.30.
Sturla Snorrason, María Ingibergsdóttir,
Guðmundur Breiðfjörð, Kolbrún Kristinsdóttir,
Sigríður J. Breiðfjörð, Stig Lauridsen,
Anna E. Breiðfjörð, Ámundi Friðriksson,
Gunnar B. Breiðfjörð, Hulda Ingólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir mín, amma og langamma,
UNNURJÖNSSON,
Meðalholti 15,
andaðist á elliheimilinu Grund þriðjudaginn
25. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 2. febrúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Inge Lydía Jensen.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÓSKAR HELGASON,
Hólmakoti,
Mýrasýslu,
verður jarðsunginn frá Akrakirkju laugardaginn 29. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er
vinsamlegast bent á Akrakirkju.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý
hug við andlát og útför föður okkar, tengda
föður og afa,
PORSTEINS DAVÍÐSSONAR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar-
heimilinu Hlíð fyrir hlýhug og frábæra umönnun
Ingólfur H. Þorsteinsson, Hrefna Helgadóttir,
Guðmundur Þorsteinsson, Birna F. Björnsdóttir,
Héðinn Þorsteinsson, Stefanía Einarsdóttir,
afabörn og langafabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
JÓNS BJÖRGVINS BJÖRNSSONAR,
áður til heimilis
á Digranesheiði 45.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
L-3 á Landakoti.
Björn B. Björgvinsson, Agnes Sigurðardóttir,
Einar Magni Sigmundsson, Vilborg Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.