Morgunblaðið - 28.01.2000, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 28.01.2000, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ 64 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Stjörnubíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri frumsýna spennumyndina Beinasafnarann með Denzel Washington og Angelina Jolie. Morðing’i á Manhattan Denzel Washington er í hlutverki lögreglumanns sem slasast við skyldu- störf og þarf að reiða sig á Ameliu (Angelina Jolie) til að hafa hendur í hári fjöldamorðingja. Frumsýning Lincoln Rhyme (Denzel Washing- ton) er rannsóknarlögreglumaður í New York og þekktur fyrir störf sín, höfundur metsölubóka um glæpa- rannsóknir og þykir ályktunarhæfni hans með eindæmum. Hann lendir í slæmu slysi og lamast á höndum og fótum og liggur rúmfastur. Lögreglukonan Amelia Donaghy (Angelina Jolie) er á miðjum þrítugs- aldri en líður eins og hún sé miklu eldri. Hennar bíður skrifstofuvinna hjá lögreglunni en áður en að því kemur er hún kölluð á glæpavett- vang þar sem er að finna illa leikin lík og ekki verður aftur snúið. Hún tekur að vinna með Rhyme að lausn morðmálsins og þau komast að því að sá sem framdi morðin mun reyna að myrða á ný. Þannig er söguþráðurinn í spennu- myndinni Beinasafnaranum sem frumsýnd er í Stjörnubíói, Laugar- ásbíói og Borgarbíói á Akureyri um helgina en með aðalhlutverkin fara Denzel Washington og Angelina Jol- ie, dóttir Jon Voights. Leikstjóri myndarinnar er Phillip Noyce. Framleiðandinn er Martin Bregm- an sem áður hefur framleitt myndir á borð við „Dog Day Aftemoon", „Scarface" og „Sea of Love“. Þegar hann hafði lesið spennusögu Jeffery Deavers, Beinasafnarann, tryggði hann sér þegar kvikmyndaréttinn og hóf undirbúning að gerð myndarinn- ar. „Sagan er spennandi og mjög hryllileg," er haft eftir honum. „Hún er líka ástarsaga en mjög óvenjuleg og undarleg ástarsaga." Washington og Queen Latifah í hlutverkum sfnurn. „Hann fékk Jeremy Iacone til þess að skrifa handrit upp úr bókinni og talaði síðan við ástralska leikstjórann Phillip Noyce og sá var ekki seinn á sér að taka það verkefni að sér að leikstýra myndinni. Hann sá í hand- ritinu fjórar sögur í einni. „Þetta er ástarsaga. Þetta er tryll- ir. Þetta er leynilögreglusaga. Og þetta er saga um endurlífgun og upp- risu. Tvær manneskjur hafa týnt sjálfum sér en finna hvor aðra og á endanum þann vilja sem þau áður höfðu til þess að takast á við lífið.“ „Það eru ekki margir leikarar sem geta farið með hlutverk Rhyme í myndinni,“ er haft eftir framleið- andanum Bregman. „Eg get talið þá á þremur fingrum. Við þurftum á að halda leikara og kvikmyndastjömu í einum og sama manninum og við vor- um heppin að fá Denzel Washington til liðs við okkur." Washington liggur í rúminu mest- an hluta myndarinnar. „Að leika fjölfatlaðan mann er mikil ögiun hverjum leikara," er haft eftir hon- um. „Líkaminn er verkfæri leikarans og þegar 93 prósent hans er tekin af honum verður hann eiginlega að leika eingöngu með sálinni. Eg meina, þeir segja að augun séu gluggi sálarinnar." Jolie segist ekki hafa getað lagt handritið frá sér eftir að hún fékk það í hendur. „Það sótti á mig löngu eftir að ég var búin að lesa það,“ segir hún. Sfðustu dagar útsölunnar -engu líkt- LAUGAVEGI 32 • SÍMI 552 3636 Fyrsta upp- taka Sinatra fundin? AÐ MATI sérfræðinga er afar lík- legt að upptaka frá 1930 sem fannst á dögunum innihaldi fyrsta lag sem Frank Sinatra söng inn á plötu. Upptakan var gerð af áhugatón- listarmanninum Walter Costello og á henni leikur hann á harmonikku og Sinatra singur lagið „Roses of Picardy". Tom Owen, sem er bandarískur sérfræðingur í að greina uppruna radda, segir að ef upptakan sé ekki af Sinatra þá sé hún ótrúlega vel heppnuð eftir- líking af rödd hans. Ekkja Costello á upptökuna og hún hefur ekki annað í hyggju en að gefa hana til minjasafnsins „From Here to Eternity", sem er helgað minningu Sinatra. Glæsibær - Glæsibær Stuð Stuð Guðmundur Haukur og Kristbjörg Löve sjá um fjörið kl. 22.00-02.00. Opnun kl. 21.00. Sími 553 8969, 568 5660. Stundvísi. Allir Velkomnir. FJARAN tfómantískur staður. Jón Möller leikur á píanó fyrir matargestí. * Hljómsveit Rúnars Júlíussonar leikur fyrir dansi eftir kl. 24.00 föstudag og laugardag FJORU- GARÐURINN ISJióðleaur og sá eini sinnar tegundar. Víkingasveitin leikur og syngur fyrir matargesti. Tveir veitingastaóir á sama stað sem kveður að. FJORUKRAIN SIMI 565 12 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.