Morgunblaðið - 16.09.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
ERLENT
Íorgunblaðið/kristín destsaottir
Jóna Eðvalds SF landaði 100 tonnum af síld á Höfn í Hornafírði í gær og síldin var þegar flökuð í salt.
Fyrsta sfld haustsins
til Hafnar í Hornafirði
FYRSTU íslensku sumargotssíld-
inni í ár var landað á Höfn í Horna-
firði eins og í fyrra, en Jóna Eð-
valds SF kom til Hafnar í gær með
um 100 tonn af ágætri síld.
Skinney-Þinganes hf. gerir skip-
ið út og segir Aðalsteinn Ingólfs-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, að um reynslutúr hafi verið að
ræða. Aflinn fékkst í Berufjarðar-
álnum í fyrrinótt en á leiðinni í
land urðu skipverjar varir við síld í
Lónsdýpinu og átti að skoða það
nánar í gærkvöldi.
„Það var lítið að sjá í Berufjarð-
arálnum og sfldin var erfið viður-
eignar," segir Jón Sigmar Jó-
hannsson, stýrimaður, en skip-
verjar köstuðu tvisvar í álnum og
fengu nánast allt í seinna kastinu.
„Við fengum eitt tækifæri, sem
stóð yfir í fimm mínútur, en þetta
lagast."
Góð sfld en full af átu
Þetta var fyrsti túr skipsins síð-
an í júlí og segir Jón Sigmar að
mikillar tilhlökkunar hafi gætt.
„Það er alltaf spenningur að byrja
á sfld og þetta er góð síld en full af
átu.“
Vegna átunnar var ekki hægt að
heilfrysta síldina en hún fór strax í
vinnslu og var flökuð í salt hjá
Skinney-Þinganesi.
Skinney-Þinganes ræður yfir
tæpum 18% heildarkvóta í íslensku
sumargotssíldinni á þessu fisk-
veiðiári en leyfilegur heildarafli á
vertíðinni er 110 þúsund tonn.
Gera má ráð fyrir að fleiri skip
hefji veiðarnar fljótlega, en nokkur
íslensk skip eru að síldveiðum inn-
an norsku lögsögunnar, samkvæmt
sérstöku samkomulagi við Norð-
menn um gagnkvæmar veiðiheim-
ildir. Skipin landa afla sínum í Nor-
egi og fá þar hátt verð fyrir hann.
„Það verður nóg af
ágreiningsefnum “
ÁRSFUNDUR Fiskveiðinefndar
Norðvestur Atlantshafsins, NAFO,
verður haldinn í Boston í næstu
viku. Meðal málefna fundarins er
veiðistjórnun á Flæmska hattinum,
en þar stunda íslenzk fiskiskip tölu-
verðar rækjuveiðar. Gert er ráð
fyrir því að ágreiningur verði um
hvort stjórna skuli veiðunum með
kvóta eða veiðidögum, en einnig
greinir menn á um nauðsyn þess að
hafa eftirlitsmann um borð í hverju
skipi.
Hætta á ofveiði
Islendingar hafa undanfarin ár
úthlutað sér kvóta í samræmi við
ráðleggingar um heildarafla gagn-
stætt öðrum þjóðum, enda ver veið-
unum að öðru leyti stjórnar með út-
hlutun veiðidaga fyrir hvert land,
sem þarna stundar veiðar. Islend-
ingar hafa talið það bæði hagkvæm-
ara og skynamlegra að stýra veið-
unum með kvóta á hverja þjóð. Það
sé bæði ódyrara að sækja með þeim
hætti og ennfremur telja þeir að
mun meiri hætta sé á ofveiði með
dagaskipaninni. Sá fjöldi daga sem
hverri þjóð er úthlutaður. miðast við
meðalsókn skipa þaðan og afla-
brögð. Dagafjöldinn tekur ekki mið
að því að flest skipanna eru nú bæði
stærri og öflugri en áður og draga
flest tvö troll í einu í stað eins áður.
Veiðigetan hefur því aukizt veru-
lega. Nú er leyfilegur heildarafli
um 30.000 tonn, en ljóst þykir að
mun meira veiðist.
Þórður Ásgeirsson, fiskistofu-
Arsfundur NAFO
verður haldinn í
næstu viku
stjóri, fer fyrir íslenzku sendinefnd-
inni á fundinum. Hann segir að það
sem snúi fyrst og fremst að okkur,
sé rækjuveiðin á Flæmska hattin-
um og eftirlitið með veiðunum.
„Þetta eru einu veiðarnar sem við
stundum á þessu svæði, fyrir utan
smávegis veiði á grálúðu á þessu ári
og 400 kíló af karfa,“ segir Þórður.
Tillaga um kvóta í fyrra
„Við vorum með formlega tillögu
um það á fundinum í fyrra að veið-
arnar skyldu kvótasettar. Það
leiddi til þess að ákveðið var að
halda sérstakan fund um það mál-
efni í marz síðastliðnum. Það varð
engin niðurstaða af þeim fundi,
enda var það aðeins á dagskrá hans
að fjalla um þetta, en ekki taka
neina ákvörðun. Þar kom þó í ljós
að mikill meirihluti aðildarþjóðanna
er hlynntur því að fara yfir í kvóta-
setningu. Það er hins vegar hver
höndin uppi á móti annarri, þegar
kemur að því hvernig eigi að skipta
aflaheimildunum á milli ríkjanna.
Þar er hvergi sjáanleg leið, sem
sátt gæti náðst um.
Ég reikna ekki með því að við
verðum með ákveðna tillögu um
kvótasetningu á þessum fundi
núna, en að umræðan muni engu að
síður snúast um kvótasetningu. Það
er tilfinning mín að áframhaldi
sóknarstýring með dögum verði of-
an á, en hugsanlega verði haldinn
nýr fundur um það mál og að sá
fundur hefði umboð til ákvörðunar
um kvótasetningu eða ekki og
hvernig skiptingin eigi að vera.“
Þórður segir það alveg ljóst að á
þessu ári verði veitt umfram ráð-
leggingar vísindamanna, en þeir
leggi til 30.000 tonna heildarafla.
Ráðgjöf fyrir næsta ár muni hins
vegar ekki liggja fyrir fyrr en eftir
fund vísindanefndar NAFO, sem
haldinn verði i nóvember. Sam-
kvæmt ákvörðun sinni um að
stjórna eigin veiðum með kvóta, út-
hlutuðu stjórnvöld skipum undir ís-
lenzkum fána 10.100 tonna kvóta á
þessu ári.
Dýrt og óþarft eftirlit
Samkvæmt ákvörðun fiskveiði-
nefndarinnar skal vera einn eftir-
litsmaður um borð í hverju skipi,
sem veiðarnar stunda. „Okkur þyk-
ir þetta bæði of dýrt og fyrst og
fremst óþarft eftirlit. En Kanada-
menn eru mjög ákveðnir í að svona
skuli eftirlitinu háttað og Ijóst er að
mikið verður deilt um það á fundin-
um. Það er ákvæði í samþykkt
nefndarinnar sem innleiddi þetta
mikla eftirlit, að það skuli endur-
skoðað á þessum fundi. Hins vegar
er ágreiningur um það, náist ekki
samkomulag, hvort eftirlitið skuli
þá falla niður eða ekki. Það verður
nóg af ágreiningsefnum á fundin-
um,“ segir Þórður Ásgeirsson.
Gengisfall evrunnar stöðvað?
Stýrivöxtum
ekki breytt
Frankfurt, Lundúnum. AP, AFP.
STJÓRN Seðalbanka Evrópu
(ECB) ákvað í fyrradag að halda
stýrivöxtum óbreyttum í 4,5% og
lét þar með ekki undan þrýstingi
um að hækka þá í því skyni að
hamla gegn verðbólgu vegna geng-
isfalls evrunnar og síhækkandi
eldsneytisverðs.
„Þessi þróun veldur vissulega
áhyggjum þar sem hún þrýstir
verðþróun á neyzluvörum upp á við
á evru-svæðinu,“ sagði Wim Duis-
enberg, aðalbankastjóri bankans, á
blaðamannafundi eftir fund banka-
stjórnarinnar í Frankfurt. En hann
tók fram, að verðbólga í mynt-
bandalagslöndunum ellefu væru
með því lægsta sem gerist í heim-
inum. Duisenberg sagðist sjálfur
jafnvel ekki skilja gengishrun evr-
unnar upp á síðkastið, með tilliti til
hinna „sterku efnahagsforsendna"
sem nú væru ríkjandi í Evrópu-
sambandinu.
Skömmu fyrir bankastjórnar-
fundinn tilkynnti bankinn að hann
myndi selja dollara og vaxtahagnað
í jenum af gjaldeyrisforða sínum
og breyta í evrur, samtals að and-
virði um 2,5 milljarða evra, 180
milljarða króna. Bankinn neitaði að
salan væri vísvitandi inngrip í við-
skipti á alþjóðlegum gjaldeyris-
mörkuðum. Skilaði þetta lítils hátt-
ar hækkun evrugengisins, sem þó
var í gær enn undir 0,87 dollurum.
Á gjaldeyrismörkuðum var
grannt fylgzt með aðgerðum
evrópska seðlabankans frá þvi
sögusagnir komust á kreik í byrjun
vikunnar um að peningamálayfir-
völd í aðildarríkjum myntbandalag-
sins hefðu fengið Bandaríkjamenn í
lið með sér í aðgerðum til að
styrkja gengi sameiginlegu Evr-
ópumyntarinnar. Frakkar, sem
gegna formennsku í Evrópusam-
bandinu þetta misserið, vísuðu því
hins vegar á bug að þeir hefðu kall-
að eftir aðstoð Bandaríkjamanna.
Utanríkisráðherra á 55. allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra við flutning ávarps
sína á allsheijarþingi SÞ í gær.
Island hyggst
styrkja þátttöku
í friðargæzlu
I RÆÐU sem Halldór Asgrímsson
utanríkisráðherra flutti í gær á alls-
heijarþingi Sameinuðu þjóðanna í
New York vakti hann athygli á fram-
lagi íslands til friðargæzlu á Balk-
anskaga og sagði íslenzk stjómvöld
ráðgera að styrkja þátttöku Islands í
friðargæzlu enn frekar.
Halldór hefur undanfarna daga
setið 55. allsherjarþing SÞ í höfuð-
stöðvum samtakanna í New York.
Þar hefur hann átt tvíhliða viðræður
við utanríkisráðherra Indlands, Mak-
edóníu, Kiúatíu og Ungverjalands.
Auk þess hitti hann að máli utanríkis-
ráðherra eða formenn sendinefnda
sex ríkja til að tala fyrir norræna
framboðinu til setu í öryggisráði SÞ,
en að þessu sinni er Noregur í fram-
boði fyrir hönd Norðurlandanna.
í ræðunni í gær, sem var innlegg
utanríkisráðherra í almenna umræðu
allsherjarþingsins, fjallaði hann auk
friðargæzlu um afvopnunarmál,
mannréttindi, fátækt og þróunarmál,
alþjóðavæðingu, sjálfbæra þróun og
nýtingu auðlinda hafsins.
Vakti Halldór athygli á því, að þótt
ísland væri herlaust land hefði það
lagt virkan skerf til friðargæzlu á
Balkanskaga, með því að senda á
vettvang hjúkrunarfólk, lögreglu-
menn og sérfræðinga á sviði lög-
fræði, fjölmiðla og réttindamála
kvenna. Fagnaði Halldór nýlegri
skýrslu SÞ um friðargæzlu og hvatti
til þess að niðurstöðum hennar yrði
hrint í framkvæmd hið fyrsta.
Lagði Halldór áherzlu á mikilvægi
alþjóðlega sakadómstólsins fyrir hið
alþjóðlega réttarkerfi 21. aldar. ís-
land hefur fullgilt stofnsáttmála dóm-
stólsins og hvatti ráðherrann önnur
ríki til að gera slíkt hið sama. Banda-
ríkin eru meðal ríkja sem ekki hafa
viljað koma nálægt stofnun dómstóls-
ins.
Árangur að nást í baráttunni
gegn mengun hafsins
Halldór fagnaði því að á undan-
förnum árum hefði athygli alls-
herjarþingsins í auknum mæli beinzt
að málefnum hafsins og áréttaði mik-
ilvægi Hafréttarsáttmála SÞ í þess-
ari umræðu. Hann sagði að liðsmönn-
um í baráttunni gegn mengun sjávai-
yxi sífellt ásmegin og vænti frekari
aðgerða, sérstaklega gegn mengun
frá landstöðvum.
„Tökum oss þá sem framkvæma til
fyrirmyndar, ekki þá bölsýnu,“ lýsti
utanríkisráðherra yfir í lokaorðum
ræðu sinnar.