Morgunblaðið - 16.09.2000, Page 59

Morgunblaðið - 16.09.2000, Page 59
1 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBBR 2000 5'. MINNINGAR TRA USTI MARINÓSSON + Trausti Marinós- son fæddist í Vestmannaeyjum 18. ágúst 1939. Hann lést á Landspítalan- um 12. júlí síðastlið- inn og fór útför hans fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kær vinur og félagi er fallinn frá, já það er ótrúlegt að Trausti Mar sé dáinn, bara sextugur, og svo einkennilegt að dánarorsökin hafi verið krabbamein. Hann sem i var búinn að ganga í gegnum allt ferl- | ið með eiginkonu sinni, Sjöfn Ólafs- ;j dóttur, sem greindist með krabba- 1 mein og lést hún 24. júlí 1990 en kannski var þetta undirbúningur fyr- ir flutning Trausta á annan stað, hver veit? Hinn 3. maí 1990 var haldinn stofnfundur Krabbavamar en það er félag okkar í Vestmannaeyjum sem er deild innan Krabbameinsfélags ís- lands. Einn af því góða fólki sem að stofn- un félagsins stóð var Trausti Mar sem j kosinn var meðstjórnandi og að sjálf- sögðu mætti Sjöfn með honum. Það var Trausta mikið hjartans mál að koma gistingu krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í sæmilegt horf svo ekki verði meira sagt. Eftir reynslu hans, Sjafnar og sonanna þar sem þau þurftu að vera aðskilin og níðast á ættingjum og vinum með gistingu, sem gefur auga leið að ekki 5 er hægt að lifa eðlilegu fjölskyldulífi þegar á þessu erfiðu meðferð stóð. Var Trausti ákveðinn í að úr þessu þyrfti að bæta og helst strax í gær eins og honum einum var lagið. Voru þau ófá símtölin og ferðirnar til Reykjavíkur sem hann lagði á sig til að fá þessu máli framgengt en hann var einn af aðalhvata- mönnum þess að keypt- ar voru tvær íbúðir á Lokastíg og var það bara byrjunin. Þær voru síðan seldar og keyptar íbúðir á Rauð- arárstíg. Er nokkur furða þó okkur finnist einkennilegt að Trausti látist úr krabbameini og hafi þurft að nýta sér allt það sem hann barð- ist fyrir í rúman áratug? í dag eru þrjú hundruð manns í fé- laginu okkar. Eyjamenn eru duglegu- að styrkja og efla félagið sitt og höf- um við sem erum í stjórn reynt að gera eins vel við þá sem berjast við krabbameinið eins og kostur er. Trausti vai’ þar oftar en ekki fremstur í flokki enda ekki öllum gefið að hafa samband að fyrra bragði við þá sem veiktust og áttu erfitt, það má eigin- lega segja að hann hafi þefað þá uppi. Það er því mikill missir fyrir okkur í stjórn Ki-abbavamar að missa vin okkar og stjómarmanninn Trausta Mai’ en hann hafði líka þá sérstöðu að vera eini karlmaðurinn í stjóminni. Okkur era sérlega minnisstæð tvö síðastliðin haust er við voram saman- komin á heimili Trausta við undirbún- ing merkjasölu félagsins, þá bar hann fram bláber og rjóma, þvílíkt lostæti að komast í, enda berin frá henni Gunnu á Dalvík, vinkonu Trausta, og ekki spretta bláber í Eyjum. Við viljum þakka samstarfsfólki Trausta í Isfélagi Vestmannaeyja fyr- ir peningagjöf til minningar um Trausta sem og árgangi ’39. Við kveðjum elsku Trausta, okkar vin og félaga, við þökkum honum vel unnin störf í þágu félagsins okkar og alla hans vináttú. Við sendum ástvinum Trausta inni- legar samúðarkveðjur. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sljóm Krabbavamar, Vestmannaeyjum. Eitt sinn skal hver deyja. Sá ör- lagadómm’ er óumflýjanlegur, eins og dagur fylgir nótt og sumar vetri. Dag- ar líða. Ar og aldir renna í tímans djúp. Hver stund ævi okkar fellur eft- ir aðra, eins og sandkom í stundaglas- inu. Og fyiT en varir er mælirinn full- ur, ævin liðin og dauðans lúður gellur. Við spyi’jum gjaman: Hvað er fram- undan, handan við gröf og dauða? Við fáum ekkert svar. En við vonum og trúum, að líf okkar stefni á æðri vegu. Eitthvað þessu líkt kemur upp í hugann er við úr árgangi 39 frá Vest- mannaeyjum minnumst góðs vinar og félaga, Trausta Marinóssonar. Hann var sá er hélt árgangnum saman og hafði jafnan forustu um að árgangsmót yrðu haldin með reglu- legu millibili. Trausti var jafnan hlýr og einlægur. Aldrei heyrðist hann kvarta, hvorki í veikindum sínum né öðra. Við biðjum góðan guð að blessa minningu hans og biðjum jafnframt að hann styrki böm og aðra ástvini Trausta í sorg þeirra. Svo viðkvæmt er lífíð sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum, að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú er þú genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr.) Árgangur 39 úr Vestmannaeyjum. + Sigrún Jónsdótt- ir fæddist á Hafrafelli 3. nóvem- ber 1934. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 24. ágúst siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Egilsstaðakirkju 1. september. Jarð- sett var í heima- grafreit á Hafrafelli. Ég vil minnast fóstru minnar og vinkonu, Sigrúnar Jónsdóttur, nokkrum orðum. A Hafrafelli hjá henni og Brynjólfi átti ég heimili sex yndisleg sumur og vin- áttu alla tíð síðan. Ég fann strax, aðeins níu ára göm- ul, hvað þarna var gott að vera. A þessum tíma var Sigrún ung kona með tvö lítil börn. En það virtist ekk- ert mál að bæta einu við, jafnvel tveimur. Það var notalegt að leggjast út af á kvöldin heima í gamla bæ. í herberginu hjá Laugu gömlu og Ein- ar „afi“ hinum megin við timburþilið að lesa upphátt úr bók eða að kveða rímur. Á neðri hæðinni bjuggu for- eldrar Sigrúnar og voru traust und- Formáli minn- ingargreiim ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálfum. irstaða fyrir bæði heimilin. Á þessu heimili lærði ég að meta hversdags- lega hluti eins og vinnu og hollan mat. Einnig bóklestur, vísur og kvæði og mannfólkið í öllum sínum marg- breytileik. Ég man eft- ir einu hausti er við Sigrún voram að taka upp kartöflur, þurrka þær og flokka. Þetta var oft kalsamt verk og ekki skemmtilegt að mínu mati. En Sigrún kunni ráð við því. Hún sagði mér framhaldssögu við vinnuna. Og það var Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi. Þetta varð til þess að ég beið spennt eftir því að komast í garðinn á morgnana. Þannig gekk Sigrún að hverju verki, með gleði og jákvæðu hugarfari. Sjálfsagt var stundum fyrirgangur á okkur unga fólkinu á bænum. En aldrei heyrðum við skammaryrði. Ég man að stundum sagði Sigrún við mig: „Vertu stillt, gæska mín.“ Verra var það nú ekki. Ég er ein úr 9 systkina hópi og fékk að vera sex sumur á Hafrafelli. Vífill var einnig sex sumur. Rannveig eitt sumar. Isak (látinn) eitt sumar og tvö yngi vora þar part úr sumri. Og svo fékk elsta dóttir mín, Júlía Sigrún, að vera á bænum eitt sumar. Við vorum öll lánsöm. Frá Hafrafelli á ég dýran sjóð minninga og hollt veganesti í rúm 40 ár. Nýjasta minn- ingin er útför Sigrúnar sem fór fram 1. september sl. Það er sú fallegasta kveðjuathöfn sem ég hef séð. Nátt- úran öll og fallega sveitin kvöddu heiðurskonu blíðum sólskinskossi. Kærai’ þakkir fyrir okkur systkin- in, dóttur mína og frá móður minni, Sigurbjörgu Sigurjónsdóttur, sem vissi af bömunum sínum á góðum stað. Brynjólfi, Margréti, Jóni Rúnari, Bergsteini, Guðlaugu Erlu og fjöl- skyldum sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Guð fylgi ykkur. Kolfinna Þorfínnsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, tengda- sonar og mágs, SIGMUNDAR JÓHANNESSONAR húsasmíðameistara, Lækjarbergi 23, Hafnarfirði. Rannveig Grétarsdóttir, Björg Sigmundsdóttir, Sara Sigmundsdóttir, Jóhannes Steinþórsson, Grétar Sveinsson, Kolbrún Jóhannesdóttir, Guðrún Sigmundsdóttir, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Axel Gíslason, Dagný Jóna Jóhannesdóttir, Theodoros Kagiannalfus, Þórunn Grétarsdóttir, Sveinn Andri Sveinsson, Sveinn Ómar Grétarsson, Linda Reimarsdóttir. SIGRÚN JÓNSDÓTTIR + Eiginmaður minn, SIGURÐUR EYJÓLFSSON, Suður-Hvoli, Mýrdal, verður jarðsunginn frá Skeiðflatarkirkju í dag, laugardaginn 16. september, kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurbjörg Guðnadóttir. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ESTER ÞÓRÐARDÓTTIR, Hrafnistu, áður Skúlagötu 58, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 12. september á Land- spítalanum, verður jarðsungin frá Grensás- kirkju miðvikudaginn 20. september kl. 13.30. Guðrún Árnadóttir, Guðjón Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, frá Vestmannaeyjum, Klausturhvammi 20, Hafnarfirði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 13. september. Útförin auglýst síðar. Elías Arason, Ester Anna Aradóttir, Emil Arason, Guðrún Georgsdóttir, Hörður Arason, Sigurlaug Gröndal, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir og kærar kveðjur til allra þeirra fjölmörgu sem sent hafa okkur samúðar- kveðjur, blóm eða sýndu hlýhug með komu sinni við andlát og útför hjartkærs eiginmanns og fjölskylduföður, JÓHANNS E. BJÖRNSSONAR, Útgarði 6, Egilsstöðum. Karen J. Snædal, Bima Jóhannsdóttir, Ragnar Sigvaldason, Sigrún Jóhannsdóttir, Björgvin Geirsson, Snædís Jóhannsdóttir, Guttormur Metúsalemsson og fjölskyldur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, GUÐMUNDAR JÚLÍUSAR JÓNSSONAR, áður Framnesvegi 8, Reykjavík. Jón H. Guðmundsson, Hrafnhildur Matthíasdóttir, Svanhildur Guðmundsdóttir, Pálmi Stefánsson, Karl K. Guðmundsson, Alla Ó. Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HALLDÓRS INGIBERGS ÓLAFSSONAR, Steinahlíð 2, Hafnarfirði. Helga Elín Bjarnadóttir, Kristín Sigríður Haildórsdóttir, Stefán Gunnar Svavarsson, Gunnar Geir Halldórsson, Kristín Inga Sigvaldadóttir, Helga Katrín, Svavar Skúli, Elva Björg og Óskar Ingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.