Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Seljureynir féll um koll í rokinu Eini seljureynirinn sem vex í Reykj avíkurborg- STÓRT tré sem stóð við Bræðra- borgarstíg í Reykjavík féll á hlið- ina í hvassviðri í fyrrakvöld og lenti á bíl sem stóð fyrir utan húsið og skemmdist nokkuð. Um er að ræða svokallaðan seljureyni og er Jóhanni Pálssyni, garðyrkjustjóra Reykjavíkur, ekki kunnugt um að fleiri tré af þessari tegund vaxi í Reykjavík. Gerð verður tilraun til að bjarga trénu með því að rétta það við. 8-9 metra hátt tré í fyrstu var talið að tréð sem féll væri villieplatré, en að sögn Jó- hanns er tréð sem um ræðir selju- reynir. Jóhann skoðaði tréð í gær en hafði ekki áður vitað af tilvist þess. Garðyrkjustjóri segir með ólíkindum að tréð skuli hafa getað náð þvílíkri hæð, um 8-9 metrum, þar sem það óx í garði við íbúðar- hús við Vesturgötu. Hann segir staðsetninguna, nálægðina við sjó- inn, ekki þá ákjósanlegustu fyrir ræktun trjáa. Jóhann segir þessa uppgötvun ennfremur vekja vonir um að hægt sé að hefja ræktun seljureynis í borginni. Jóhann seg- ist giska á að tréð sé frá fyrri hluta aldarinnar þar sem það sé mjög stórt og myndarlegt. Hann segist ekki mjög undrandi á því að tréð hafi fallið á hliðina í rokinu þar sem grafið hafi verið frá rótum þess auk þess sem greinar hafi verið klipptar af öðru tré í garðin- um sem veitti því skjól. Jóhann segir að mjög erfitt verði að gróð- ursetja tréð á ný en þó ekki með öllu ómögulegt þar sem eitthvað virðist hafa haldist heilt af rótum þess. Seljureynir ber litla græna kúlulaga ávexti og það gæti verið að fólk hafi haldið að ávextirnir væru lítil óþroskuð epli. Eplatré vex við Langholtsveg Þó svo að eplatré séu afar sjald- gæf í görðum Reykjavíkur em þau þó til. Ibúar húss við Langholtsveg hafa uppskorið ávöxt erfiðis síns og segja eplin af eplatré í garði sínum vera afar ljúffeng. Tréð var gróð- ursett í garði í Kópavogi fyrir 26 árum en flutt í garðinn við Lang- holtsveg fyrir níu árum. Guðbjart- ur Sturluson hefur verið með epla- tré í garðinum hjá sér í níu ár en hann tók tréð á sínum tíma í fóstur frá systur sinni en hún gróðursetti hálfs metra háa eplatrésplöntu í garðinum sínum við Kársnesbraut í Kópavogi. Hún keypti trjáplönt- una hjá Garðyrkjufélagi íslands árið 1974. Tréð hefur einu sinni borið ávöxt, sumarið 1998, en þá uxu á því þrjú græn epli sem voru á stærð við golfkúlur. Guðbjartur segir eplin hafa verið afbragðsgóð á bragðið. Hann segir tréð dálítið viðkvæmt því nýjustu vaxtarsprot- arnir eigi það til að kala á veturna. Þá segist hann einnig þurfa að láta úða það fyrir lús á vorin. Hann segir að passi hann þetta blómstri eplatréð vel á sumrin. Ef tréð blómstrar snemma bregður Guð- bjartur sér í býflugulíki og penslar blómin á trénu til að það frjóvgist. Með þessu vonast hann til þess að tréð beri ávöxt, enda gerðist það sumarið 1998. Eplatré eru mjög sjaldgæf í Reykjavík en nokkrar Víkingaskipið Islendingur siglir inn í höfnina í Providence á Rhode Island undir fánahyllingu. S Islend- ingur á áætlun LÍKT og ferðaáætlun sagði til um sigldi víkingaskipið Islendingur inn í höfnina í Providence á Rhode Island síðastliðinn föstu- dag, eftir sólarhringsferð frá Boston, sem tókst vel. Áhöfn skipsins eyddi helginni á Rhode Island og á miðvikudag verður ferðinni haldið áfram. Næsti áfangastaður er Mystic Seaport í Connecticut, þar sem áætlað er að leggja að bryggju á fimmtu- dag. Þaðan verður farið nk. mánudag sem leið Iiggur til New Haven í sama ríki. Sem kunnugt er lýkur siglingu Islendings, sem hófst í Reykjavík 17. júní siðastliðinn, í New York og samkvæmt ferðaáætlun er það mánudaginn 23. október nk. Morgunblaðið/Golli Eplatréð við Langholtsveginn. Jóhann Pálsson garðyrkjustjóri skoðaði seljureyninn í gær. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Tréð féll á þennan bfl og skemmdist hann nokkuð. Búið er að rétta tréð við en kanna á hvort hægt sé að bjarga því. villieplategundir eru til í Grasa- garði Reykjavíkur og á gömlum útivistarsvæðum, að sögn Jóhanns Pálssonar. Hann segir að gerðar hafi verið tilraunir með ræktun kynbættra eplatrjátegunda í upp- hafi aldarinnar en það sé borin von að hyggjast rækta epli utandyra hér á landi. Jóhann segir að á fyrstu árum aldarinnar hafi verið gerðar tilraunir með ræktun epla á Akureyri og einstaka sinnum hafi þær tekist. Brátt hafí verið horfið frá því, því að ekki sé hægt að gera sér vonir um að trén beri ávöxt nema það komi nokkur góð ár í röð. Jóhann segir að vel sé mögu- legt að rækta eplatré í gróðurhús- um en þó verði að hafa í huga að til þess að hægt sé að rækta epli verði að notast við tvö mismunandi yrki eplatrjáa, eða tegundir, til þess að trén frjóvgi hvort annað. Andlát SIGURÐUR ÁRNASON SIGURÐUR Ái-na- son, fyrrverandi bóndi á Vestur-Sáms- stöðum í Fljótshlíð, er látinn hundrað ára að aldri. Sigurður fæddist 14. júlí árið 1900 á Sámsstöðum í Fljóts- hlíð. Foreldrar hans voru Ámí Árnason og Þórunn Jónsdótt- ir. Sigurður naut skammrar skóla- göngu. Hann og Jón bróðir hans tóku við búi foreldra sinna árið 1932. Þeir Eftirlifandi eiginkona Sigurðar skiptu síðar jörðinni og byggði Sig- er Hildur Árnason. Þau eignuðust urður upp bú sitt á Vestri-Sáms- sjö börn. stöðum, en þar bjó hann til ársins 1989. Sigurður vann að miklum jarðabótum á jörð sinni og byggði þar upp myndarbú. Hann var kunnur hestamaður og átti gott hestakyn. Hann hafði mikið yndi af söng og söng m.a. fyrir gesti sína á 100 ára afmæl- inu í sumar. Síðustu árin dvaldi Sigurður á hjúkrunar- heimilinu Holtsbúð í Garðabæ. Aðalfundur Samfylkingarinnar á Austurlandi fjallaði um svæðið norðan Vatnajökuls Vill að hugmyndir um þjóðgarð verði skoðaðar AÐALFUNDUR Samfylkingar- innar á Austurlandi, sem haldinn var á laugardag, telur nauðsynlegt að leitað verði leiða til að tryggja sem mesta samstöðu um uppbygg- ingu atvinnulífs á Austurlandi. Því skorar hann á stjórnvöld að láta kanna samhliða umhverfismati á framkvæmdum við Kárahnjúka- virkjun hugmyndir sem fram hafa komið um þjóðgarð norðan Vatna- jökuls. Einar Már Sigurðsson, þingmað- ur Samfylkingarinnar á Austur- landi, segir í samtali við Morgun- blaðið að með ályktun fundarins sé Samfylkingin á Austurlandi að nálgast virkjunarmálin á svæðinu með öðrum hætti en hingað til þar sem hún hafi áður verið harður stuðningsmaður virkjunar í Fljóts- dal. Segir hann að með ályktuninni sé Samfylkingin á Austurlandi að bjóða fram sáttahönd í ágreiningi virkjunarsinna og þeirra sem vilja þjóðgarð norðan Vatnajökuls. „Með ályktuninni leggjum við áherslu á að það verði leitað allra leiða til að ná sem víðtækastri sátt um uppbyggingu atvinnulífsins á Austurlandi. Þess vegna bendum við á þá leið að það verði samhliða umhverfismatsferlinu horft til þeirra hugmynda eða tillagna sem komið hafa fram um þjóðgarð norðan Vatnajökuls.“ Með því að fara þessa leið, segir Einar Már, má koma í veg fyrir að deilt verði um virkjun við Kára- hnjúka á þeim forsendum að ekki hafi verið kannaðir ávinningar af þjóðgarði norðan Vatnajökuls. Náttúruverndarsamtök íslands eru meðal þeirra aðila sem hafa viljað meta kosti þess að stofnaður verði þjóðgarður norðan Vatnajök- uls og telja m.a. að með því megi varðveita ósnörtin öræfi landsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.