Morgunblaðið - 19.09.2000, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.09.2000, Qupperneq 26
26. ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 ÚRVERINU S Morgunblaðið/Helgi Isverksmiðja undir þak ÍSVERKSMIÐJA sem Breiöi ehf. Vélar og tœki eru komin á stað- heitið ísverksmiðja Breiðafjarðar. er að koma á fét við Ólafs- inn og allur undirbúningur í full- Áætlað er að hún taki til starfa á víkurhöfn er nú komin undir þak. um gangi. Verksmiðjan mun fá nýju ári. Vaxandi áhugi á rafrænum viðskiptum með físk „Engin bylting í sölu sjávarafurða“ GUNNAR Svavarsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, telur ekki að framundan sé bylting í sölu sjávarafurða á Netinu en spáir hægfara þróun á þessu sviði. Gunnar Öm Kristjánsson, forstjóri SÍF, tek- ur í svipaðan streng og segir ekkert koma á óvart í þessari umræðu um netviðskipti. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í fyrradag hefur hópur stórra fyrir- tækja í norskum fiskiðnaði sameinast um stofnun fískmarkaðar á Netinu. Starfsemin hefst senn og samkvæmt áætlunum er gert ráð fyrir að við- skipti verði við íslenska fiskframleið- endur og útflytjendur, einkum um sölu á frosnum físki frá íslandi Hægfara þróun Gunnar Svavarsson segir að tugir fyrirtækja í Evrópu séu að gera svip- aða hluti eða séu að reyna að gera það. Þau séu komin misjafnlega langt sem bendi til þess að flest hætti og fá verði eftir. í öðru lagi sé byrjað að nota Netið til svona samskipta eins og í öllu öðru. Pantanir séu sendar á milli en meira hangi á spýtunni hjá umræddu fyrirtæki í Noregi. Það ætli sér að tengja saman kaupendur og seljendur í gegnum einhvers kon- ar uppboðskerfi. „Ég held að þetta komi helst til með að byija í hrávöru, einsleitri vöru. Enn er tregða hjá mönnum til að breyta til. Þeir viija þekkja sinn birgja, vita hvernig vöru hann býr til, hvort hægt sé að treysta á hann og gera samninga til aðeins lengri tíma.“ Að sögn Gunnars þurfa menn að sjá aðeins fram fyrir sig í þessum málum. Sjálfsagt muni þetta þróast í þá átt að Netverslun nái meiri fót- festu í fiski eins og öðru, þó hann sjái ekki breytingar í þá átt hjá SH í nán- ustu framtíð. „Við erum í raun og veru fyrst og fremst að kaupa inn fisk til endursölu fyrir starfsemi okkar erlendis. Ég sé okkur ekki fara að selja á Netinu því við erum yfirleitt með fasta viðskiptavini á hinum end- anum og viljum síðan helst vera með fasta kaupendur á þessum enda. Hins vegar getur þetta komið til greina til uppfyllingar og að hægt verði að kaupa hrávöru yfir svona Net eða framboðspott sem yrði til á einhverri síðu. En ég sé ekki að það sé bylting framundan í þessu heldur verði þetta þróun sem gerist hægt.“ Ekkert nýtt Gunnar Öm Kristjánsson segir að SÍF hafi skoðað þessi mál í gegnum netfyrirtækið Seafood Alliance, mörg fyrirtæki eins og GoFish og Fish- Market séu á Netinu og staðreyndin sé sú að ekkert þeirra gangi vegna þess að viðskiptagrunnurinn sé ekki fyrir hendi. Öll þessi umræða byggist á því að verið sé að koma af stað hræðsluáróðri þess efnis að öll við- skipti séu að færast yfir á Netið. „Staðreyndin er sú að það er ekki raunveruleikinn. í þessu sambandi tala menn um spamað en spamað í hverju? í gegnum Seafood Alliance hefur fólk hjá mér unnið að því í sex mánuði að skoða alla valkosti í þessu máli með öllum stærstu fyrirtækjun- um í fiskiðnaðinum og við erum enn í þeirri vinnu.Ymsir fletir hafa komið upp og hugsaniega hafa menn séð mögulegan spamað í sambandi við innkaup og fleira en þegar farið er í gegnum alla þessa hluti eru það markaðsöflin sem ráða.“ Forsvarsmenn FishMarket hafa ekki haft samband við SÍF frekar en SH. „Ég hef séð mörg svona netfyrir- tæki sem hafa boðið hinar og þessar lausnir sem eiga að leysa öll heimsins vandamál en því miður gerist þetta ekki þannig," segir Gunnar Öm. „Vandamálið með öll þessi netfyrir- ÁSTRALAR hafa tapað opinbem máli gegn Japönum vegna tilrauna- veiða þeirra síðarnefndu á bláugga. Alþjóðlegur dómstóll í Washington í Bandaríkjunum lýsti því yfir að hann hefði samkvæmt hafréttarlög- um Sameinuðu þjóðanna ekki lög- sögu í málinu. I sameiginlegri yfirlýsingu sem Daryl Williams, dómsmálaráðherra Ástralíu, og Warren Tms, sjávar- og landbúnaðarráðherra Ástralíu, gáfu út segir að ekki sé hægt að leysa deiluna samkvæmt þessari leið. Þeir lýstu yfir vonbrigðum með það að dómstóllinn skyldi ákvarða að hann hefði ekki lögsögu í málinu tæki er að þau hafa engan viðskipta- gmnn á bak við sig og fyrirtæki eins og SÍF setur ekki öll sín viðskipti í gegnum svona netkerfi. Menn nota vefinn í samskiptum sín á milli úti um allt en ég hef ekki enn séð þann við- skiptagmnn sem gengur upp á Net- inu þannig að þeir sem að viðskiptun- um kæmu högnuðust á þeim.“ Vegna yfirlýsinga forsvarsmanna FishMarket um viðsldpti við íslend- inga segir Gunnar Öm að þetta sé það sama og heyrst hafi frá GoFish og fleimm samskonar fyrirtækjum á Netinu. „Til að drífa áfram vefinn þarf viðskiptin og það em fyrirtækin sem halda viðskiptunum gangandi. Þau afhenda ekki fyrrverandi sjávar- útvegsráðherra Noregs þessi við- skipti." Gunnar Örn segir ennfremur að þeir sem bjóði umrædd viðskipti á Netinu hafi hvorki tilfinningu né hug- mynd um hvað þeir séu að bjóða og eins og staðan sé nú séu engin ný sóknartækifæri á Netinu að þessu leyti. „Hvað er þetta fyrirtæki að bjóða? Viðskipti á Netinu? Hver býð- m- ekki viðskipti á Netinu? Það er ekkert nýtt í þessu en auðvitað fylgj- umst við með öllum þessum hlutum og setjum töluverða fjármuni í það til að sjá hvað er að gerast og hvort þama séu einhver tækifæri. En það er ekkert í þessu eins og er.“ en bættu því við að það veikti á eng- an hátt málstað Ástralíu í þessu máli. Ástralar hafa miklar áhyggjur af afleiðingum tilraunaveiða Japana fyrir bláuggastofninn og hafa lýst því yfir að veiðamar brjóti í bága við alþjóðasamþykktir. Dómstóllinn staðfesti að ekki væri hægt að ljúka málinu með dómsátt. Japanir lýstu því yfir að dómstóllinn hefði ekki lögsögu í málinu og leysa þyrfti málið á gmnni þríhliða sam- komulags sem Japanir, Ástralar og Nýsjálendingar höfðu gert með sér um vemdun stofnsins og er því lausn málsins ekki í sjónmáli. Astralar tapa tún- fískmáli gegn Japan MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Nýjar skoðanakannanir í Bretlandi V erkamanna- flokkurinn tap- ar forystunni London. The Daily Telegraph. NIÐURSTOÐUR tveggja skoð- anakannana, sem' birtar voru í Bretlandi um helgina, benda til þess að í fyrsta skipti í átta ár njóti Verkamannaflokkurinn ekki meira fylgis en íhaldsflokkurinn. í könnun The Sunday Times eru flokkarnir jafnir með 37% fylgi, en samkvæmt könnun The News of the World er íhaldsflokkurinn með 38% fylgi og Verkamannaflokkur- inn með 36%. Breskir fjölmiðlar rekja fylgis- tap Verkamannaflokksins að nokkm leyti til ósveigjanlegrar af- stöðu ríkisstjórnarinnar í eldsneyt- isdeilunni, sem olli sannkölluðu öngþveiti í Bretlandi í síðustu viku, en stjórnin hafnaði alfarið kröfum mótmælenda um að skatt- ar á eldsneyti yrðu lækkaðir. Mik- ill stuðningur virðist vera við málstað mótmælendanna, en könn- unin leiddi í ljós að 85% Breta styðja lækkun á eldsneytissköttum og 78% segjast hafa stutt mót- mælaaðgerðirnar. Þá kemur fram að aðeins 18% aðspurðra telja að forsætisráð- herrann Tony Blair sé í góðum tengslum við almenning í landinu, en nær þrír af hverjum fjórum telja forsætisráðherrann hrokafull- an og fjarlægan. íhaldsflokknum betur treyst fyrir efnahagsmálum Könnun The Sunday Times bendir einnig til þess að kjósendur treysti Ihaldsflokknum betur til að fara með stjórn efnahagsmála, en það er talið mikið áfall fyrir Verkamannaflokkinn. í könnuninni töldu 37% aðspurða líklegra að lífskjör þeirra myndu batna ef íhaldsflokkurinn færi með völdin, en 34% treystu Verkamanna- flokknum frekar. íhaldsflokkurinn mældist síðast með forskot á Verkamannaflokk- inn í skoðanakönnunum fyrir átta árum, fyrir „svarta miðvikudag- inn“ svonefnda í september 1992, þegar gengi sterlingspundsins hrundi. The Daily Telegraph hefur eftir nánum aðstoðarmanni Willi- ams Hague, leiðtoga íhaldsflokks- ins, að fylgisaukning flokksins nú komi ekki á óvart. „Fólk leggur einfaldlega ekki lengur trúnað á orð Tonys Blairs. Það hefur um margra mánaða skeið látið í ljós þá skoðun að hann sé hrokafullur og í litlum tengslum við almenning." Átök milli Blairs og Browns Nokkrir þingmenn og ráðherrar Verkamannaflokksins, sem taldir eru meðal helstu stuðningsmanna Blairs innan flokksins, hafa ráðist harkalega á fjármálaráðherrann Gordon Brown, bæði fyrir og eftir að niðurstöður skoðanakannan- anna voru birtar, og kennt honum um ófarir flokksins í eldsneytis- málinu. Fjölmiðlar í Bretlandi hafa látið að því liggja að árásirnar hafi verið gerðar að undirlagi forsætis- ráðherrans til að firra hann ábyrgð í málinu og fullyrða að þetta sé til marks um vaxandi mis- klíð milli Blairs og Browns. Margir hafa túlkað yfirlýsingu Blairs frá þvi á fimmtudag á þá leið að skattar á eldsneyti kynnu að verða lækkaðir, en Brown sagði hins vegar um helgina að það kæmi ekki til greina. Stuðnings- menn Blairs innan flokksins hafa síðustu daga hvatt Brown til að falla frá áformum um lækkun tekjuskatts og til að lækka skatta á eldsneyti í staðinn, en fjármála- ráðherrann hefur lýst því yfir að slíkar hugmyndir beri vott um „skammsýni" og vísar þeim alfarið á bug. Gordon nær ströndum Flórída NOKKUÐ hafði dregið úr vind- styrk fellibylsins Gordons er hann náði ströndum Flúrída á að- faranótt mánudags, og sést sjónvarpsfréttamaðurinn Jason Whiteiy hér berjast við storm og öldur við strönd Cedar Key í Flórída skömmu áður en Gordon náði inn til ríkisins. Þar sem töluvert hafði dregið úr vindstyrk fcllibylsins urðu skemmdir í Flórídaríki ekki jafn miklar og óttast hafði verið þó nokkuð væri um flóð í suðvestur- hluta rxkisins. 200 björgunar- sveitarmenn voru þar m.a. að störfum við að aðstoða fólk á flóðasvæðunum, en ekki hafði verið tilkynnt um nein meiðsl á fólki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.