Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 27

Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 27 Forseti þings Vestur-Evrópusambandsins í íslandsheimsókn Þingmannasamráð um varnarmál nauðsynlegt Mikilvægt er að þingmenn Evrópuríkja eigi sér áfram samráðsvettvang um varn- armál og hafí eftirlit með framkvæmd nýrrar öryggis- og varnarmálastefnu ESB, eftir að hún hefur yfírtekið hlutverk VES. Þetta er álit Klaus Búhlers, forseta VES-þingsins, sem Auðunn Arnórsson fékk tii að útskýra. FRÁ ÞVÍ ísland hlaut, sem evrópskt aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, árið 1992 aukaaðild að Vestur- Evrópusambandinu (VES) - sem þá var skilgreint bæði sem varnarmála- armur Evrópusambandsins og Evrópustoð NATO - hefur mikil hreyfing komizt á skipan öryggis- og varnarmála í álfunni. Evrópusam- bandið (ESB) hefur ákveðið að koma sér upp virkri öryggis- og varnar- málastefnu, og liður í því er að ESB yfirtaki að miklu leyti hlutverk VES. Tvennu er ábótavant í þessu ferli, að mati þýzka þingmannsins Klaus Biihlers, forseta þingmannasam- komu VES, en hann var staddur hér á landi á dögunum og átti viðræður við íslenzka þingmenn og ráðherra. Evrópsku NATO-ríkin, sem ekki eiga jafnframt aðild að Evrópusam- bandinu - Island, Noregur, Tyrk- land og nýliðarnir þrír, Pólland, Tékkland og Ungverjaland - segir Biihler standa frammi fyrir sams konar vanda. Sameiginlegir hagsmunir VES-þingsins og Islands „Nú viljum við ná einu íram; að þeir möguleikar sem aukaaðildarrík- in, evrópsku NATO-ríkin utan ESB, hafa notið innan VES á að taka þátt í stefnumótun og samstarfi í öryggis- og varnarmálum Evrópu, verði ekki lakari eftir að þær breytingar sem ákveðið hefur verið að ráðast í á þessu sviði komast til framkvæmda,“ segir hann. „Við vitum að þetta er mikið áherzluatriði í utanríkisstefnu ís- lands, en VES-þingið er þetta líka mikið hjartans mál, þar fara hags- munir okkar fyllilega saman,“ segir þingforsetinn. Vandamálið segir hann aðallega felast í því að fá tekið tillit til þessara hagsmuna í því breytingaferli sem er í gangi innan ESB. „Við vitum að ís- land, ásamt Noregi, Tyrklandi og nýju austur-evrópsku aðildarríkjun- um þremur, vill áfram geta tekið jafn veigamikinn þátt í evrópsku vamar- málasamstarfi og hingað til. Um þetta eru allir fulltrúar á VES-þing- inu sammála,“ segir hann. „Lausnina verður að finna í samningaviðræðum við ESB-ríkin.“ Tvenns konarvandi Búhler útskýrir að hér sé um tvenns konar vandamálasvið að ræða. „Til þess að hafa eitt á hreinu: Við styðjum heils hugar uppbygg- ingu hinnar svokölluðu annarrar stoðar Evrópusambandsins," en svo er hin sameiginlega öryggis- og varnarmálastefna oft nefnd. „Við stöndum að fullu á bak við sam- þykktir leiðtogafundanna í Köln og Helsinki," en í þessum samþykktum var kveðið á um hvemig hin nýja ör- yggis- og varnarmálastefna skyldi uppbyggð. En Búhler segir að VES-þingið sé á einu máli um að finna verði lausn á tveimur atriðum sem ekki er fjallað um í samþykktunum. „Annað þess- ara atriða er okkur mikið hjartans mál sem þingmönnum. ESB hefur ákveðið að koma sér upp sameigin- legri öryggis- og varnarmálastefnu, en hvergi er minnzt á hvernig þing- legt eftirlit verður haft með fram- kvæmd þessarar nýju stefnu," segir hann. Evrópuþingið (EÞ) sé að sínu áliti ekki fært um að sinna þessu hlut- verki, þar sem varnarmál em ekki á þess valdsviði. Það séu ríkisstjómir aðildarríkjanna og þjóðþingin sem hafi allt um þau að segja. „Þetta er eitt af því sem mesta um- ræðan stendur um. Okkar afstaða er þessi: Við styðjum þessar breytingar - sameiginlega öryggis- og vamar- málastefnu ESB - sem við álítum vera framför, en við viljum ekki að afturför verði hvað varðar hlutverk þingmanna í þessu sambandi. I öðm lagi viljum við ekki sjá að þau lönd, sem fram að þessu hafa tekið fullan þátt í VES-samstarfinu en em ekki aðilar að ESB,“ segir hann. Á valdsviði kjörinna fulltrúa þjóðþinga en ekki EÞ Búhler segir VES-þingið núna vera að reyna að koma því á hreint hvað það sjálft vilji í þessu samhengi og hvemig það kemur þeim vilja sín- um til skila. Með þessu sé þingið að bregðast við því að ríkisstjórnir sumra ESB-ríkjanna hafa hvatt það til að koma sjálft fram með hug- myndir um hvert hlutverk þing- mannasamkoman getur leikið við og eftir þær breytingar sem til stendur að gera á VES og öryggismálasam- starfinu í heild. „Við höfum þess vegna, á fundi í Lissabon í vor, sam- þykkt að stofnuð verði ný þing- mannasamkoma, sem hafi það hlut- verk að sinna þinglegu eftirliti með þessu breytingaferli,“ segir hann og bætir við: „Hvers vegna teljum við þetta okkar hlutverk?" Svarið segir hann liggja í því að andstætt því sem á við um Evrópu- þingið eru allir fulltrúarnir á VES- þinginu þingmenn sem kjörnir hafa verið inn á þjóðþing sinna heima- landa, en taka jafnframt þátt í starfi samevrópskrar stofnunar. „Þessir þingmenn hafa því beint umboð frá kjósendum allra aðildarríkjanna og eru þar með færir um að sinna nefndu ef'tirlitshlutverki," fullyrðir Búhler. NATO-ríkjunum utan ESB fundinn staður Hvað hitt ofannefnda vandamálið varðar segir hann, að finna verði NATO-ríkjunum utan ESB stað í hinu nýja fyrirkomulagi, og hann megi ekki vera lakari þeim sem þau höfðu áður. Þetta sé nauðsynlegt, þar sem það verður, samkvæmt hugmyndum ESB, um þrenns konar aðgerðir að ræða, ef til þess kemur að álitin verði þörf á að grípa inn í atburðarás í ein- hverju ríki utan sambandsins, þ.e. að stilla til friðar eða sinna friðargæzlu. Fyrsti valkosturinn sé sá, að ein- göngu verði notazt við mannskap og búnað ESB-ríkjanna sjálfra. Annar er sá, að ESB beri hitann Morgunblaðið/Ásdís Þýzki þingmaðurinn Klaus Biihler, forseti þingmannasamkomu VES. og þungann af aðgerðinni en fái að notast við herstjórnarkerfi og búnað Atlantshafsbandalagsins. Sá þriðji er að aðgerðirnar lúti for- ystu NATO, en einnig sé notazt við mannskap og búnað Evrópusam- bandsins. „Við landi í stöðu í slands blasir við - ef það fær í hinu nýja kerfi ekki að halda sömu áhrifum og áður - að það verði sem NATO-land skuldbundið til að taka þátt í aðgerðum af ofan- greindu tagi, án þess að hafa átt þess kost að taka þátt í hinu pólitíska und- irbúningsstigi þeirra. Að minnsta kosti á þessu viljum við finna lausn,“ segir Búhler. Skiptar skoðanir séu um það innan ESB hvernig sú lausn geti litið út, og ljóst sé að Frakkar, sem nú gegna formennsku í ráðherraráði ESB, vilji halda fulltrúum ríkja sem ekki séu aðilar að ESB sem mest utan við ákvarðanatöku innan ramma hinnar sameiginlegu öryggis- og varnar- málastefnu sambandsins. Búhler vonast þó til að lausn finnist sem allir verði sáttir við. Draumahúðin þín. Sjáðu, finndu, fáðu hana. m?- |P Estée Lauder kynnir Idealist Skin Refinisher Nú færir nýjasta tækni þér húðina sem þig langar í. Finndu hana. Ótrúlega mjúk og slétt. Sjáðu hana. Ótrúlega björt og jafnlit. Og þá eru líka öll smávandamál húðarinnar - svitaholur, fínar línur, flögnun og roðablettir - úr sögunni með þessari nýju náttúrulegu aðferð. Skin-Refinishing Comp- lex. Idealist. Húðumhirða í æðra veldi. Estée Lauder útsölustaðir: Clara Kringlunni, Sara Bankastræti, Lyfja Lágmúla, Lyfja Laugavegi, Lyfja Hamraborg, Lyfja Setbergi, Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáranum, Apótek Keflavíkur, Hjá Maríu Akureyri. Subaru Impreza Turbo 4wd nýskr 03/99, km 42 þ. d-blár 5 g.,álfelgur, sóllúga, spol, ofl. Verð 2.250.000. Ákv lán 1.300 þ. NÝJA BÍLAHÖLLIN VwGolf GL1800 árg 92 km 115þsvartur 5d verð 590 ákv lán 390þ. VANTAR DISEUEPPAÁSKRÁ BMW323Í árg 92 km 127 þ. hvítur, 5 g„ 17'álfelgur, sóllúga. S+V dekk. Verð 1.580 þ. Ákv lán 800 þ. Gullmoll. Funahöfða 1, www.notadirbilar.is Nissan Terrano 2,41 benzin árg 2000 hvi- tur 5g km 7þ verð 2.800.000 ath skipti Subaru Legasy gx 2,5 sedan 4wd nýskr 01/2000, km 2 þ. kóngablár, sjálfsk.l eður álfelgur og fl. Verð ath skipti. Honda Crv RVSI nýskr 07/ 98, km 32 þ. rauður, sjálfsk, álfelgur, krókur, sóllúga, Verð 1.980.000. Ath. skipti. BMW 525ix 4wd árg 95, km 90 þ, d-blár, sjálsk, leður, álfelgur. Verð 1.990.000 Tilboð 1.690.000. Renault Megan Scienic RT nýskr 05/2000, km 6 þ„ siífur, sjálfsk. og fl. Verð 1.790.000. Athskipti. Mmc Lancer glx stw 4wd árg '98, km 44 þ. d-grænn. Verð 1.190 þ. i!BnHHHHBBHBHBflHHHHBBSHHHHHBHIíir Opel Corsa Swinge 16v nýskr 02/99, km 23 þ. 5 g„ 3 d„ svartur, álfelgur, spol, sóllúga. Verð 1.250.000. Ákv lán 980 þ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.