Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 49 Misskilningur um ályktanir LI ÞANN 14. septem- ber sl. birti Morgun- blaðið grein eftir Ög- mund Jónasson alþing- ismann undir fyrir- sögninni: BSRB vill samstarf um framtíð heilbrigðiskerfisins. Má af grein þing- mannsins ætla að aðal- fundur Læknafélags íslands (LÍ) hafi sent frá sér ályktun, sem sé „um margt loðin“ og sé „þai- að finna endur- ómun af kröfum og til- lögum sem þar komu fram um einkavæðingu heilbrigðiskerfisins" svo notuð séu orð þingmannsins. Spyr þingmaðurinn, „hvað sé átt við með því orðalagi í ályktun fundarins að heilbrigðiskerfið „þarfnist endur- skoðunar og boðið upp á viðræður við stjórnvöld um það efni““. Mér er ljúft að léiðrétta þann mis- skilning, sem fram kemur í þessum orðum, en tvennu hefur hér verið saman blandað. Aðalfundur (LÍ) sendi frá sér eftirfar- andi ályktun, sem áður hefur birst í Mbl.: „Að- alfundur Læknafélags íslands haldinn á Isa- firði dagana 25.-26. ágúst telur að skipulag stjórnunar í heilbrigð- iskerfinu þarfnist end- urskoðunar. Fundur- inn felur stjórn félagsins að leita eftir viðræðum við heil- brigðisyfirvöld um þetta mál, þannig að reynsla og fagleg þekk- ing lækna nýtist til stjórnunarstarfa." í annan stað var í tengslum við að- alfundinn haldið málþing með þræð- inum: „Læknar á frjálsum markaði". Var málshefjendum m.a. lagt fyrir að velta fyrir sér hvort lögmálum inarkaðarins um samkeppni og út- boð yrði varpað yfii- á lækna í aukn- um mæli í framtíðinni. í framhaldi Læknisþjónusta Það er á stefnuskrá lækna, segir Sigurbjörn Sveinsson, að þeir vinni fyrir eigin reikning læknisverk eftir því sem við verður komið. þessa mátti heyra og sjá málshefj- endur viðra skoðanir sínar í fjölmiðl- um enda viðfangsefnið áhugavert. Ég get alveg glatt Ögmund með því að LI ályktaði ekkert um einka- væðingu heilbrigðisþjónustunnar á ÞUMALÍNA Allt fyrir mömmu og bamið Póstsendum, s.: 551 2136 Sigurbjörn Sveinsson aðalfundi sínum á ísafirði og bað heilbrigðisyfirvöld ekkert sérstak- lega um viðræður í þeim efnum. Það er á stefnuskrá lækna að þeir vinni fyrir eigin reikning læknisverk eftir því sem við verður komið. Það sé hagfellt fyrir læknana, sjúklingana og ríkistrygginguna, sem oft er kaupandi þjónustunnar að miklu leyti. Engin stefna hefur verið mótuð af hálfu lækna um stórfellda einka- væðingu eða afstaða tekin til alút- boða á byggingu og yekstri heil- brigðisstofnana. Útboð á hjúkrunarheimili og áfoiTn um alút- boð á heilsugæslustöð eru læknum óviðkomandi á þessu stigi. Hitt er þó ljóst að LI sem og önn- ur stéttarfélög heilbrigðisstarfs- manna hljóta að koma að þessum málum fyrr en síðar. Er þá nauðsyn- legt fyrir lækna að eiga orðastað við samstarfsfólk sitt m.a. í BSRB ekki síður en heilbrigðisyfirvöld. Höfundur er formaður Læknafélags íslands. Grunnnám í Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun hefst 14. okt. 2000 Leiðbeínandi Thomas Attlee DO.MRO.RCST COLLEGE OF CRANIO-SACRAL THERAPY sími 699 8064/564 1803 www.simnet.is/cranio Bókhaldskerfi ZP\ KERFISÞRÓUN HF. I I FÁKAFENI 11, s. 568 8055 ■ÍWÍ http://www.kerfisthroun.is/ Sérhönnuð vatnsglös Opið mán.-fös. frá kl. 12-18 Fyrirtæki nýkomin á söluskrá 1. Þjónustumiðstöð með bílalúgu, bensínafgreiðslu, nýlenduvörum, leikföngum og sælgæti. Einnig skyndibitaaðstaða. Er nálægt Reykjavík, hefur stórt íbúðahverfi og mikla sumarbústaðabyggð allt í kring ásamt stórum fyrirtækjum. Miklar tekjur fyrir duglegt fólk. Gott verð og lánamöguleikar. 2. Bílaverkstæði til sölu. Lítið eins til tveggja manna verkstæði til sölu sem hefurverið alhliða verkstæði og með fasta viðskiptavini. Ódýr húsleiga. Laust strax. 3. Til sölu er veitingarekstur í nágrenni Reykjavíkur. Stórir salir sem taka 140 manns í sæti. Auk þess er útiport sem er hitað og upplýst með kyndlum sem tekur 24 í sæti. Öllu þessu fylgir stór íbúð með mörgum herbergjum í sama húsi. 4. Myndbandaleiga til flutnings hvert á land sem er til stækkunar hjá einhverjum sem hefur húsnæði og er kannski með sælgætissölu fyrir. 2500 titlar, hillur og rekkar. Tölva og hugbúnaður. Laust strax. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIA5ALAN SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. ; Peysusett margar gerðir L Peysur m. Kvartbuxur /7! > tiskuverslun ...... v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1681 Opið daglega frá kl. 10-18, laugardag Afrá kl 10-1 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innEm 15 daga frá dagsetningu áskomnar þessarar: Gjöld sem á vom lögð: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 16. september 2000, og virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2000, og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir, er fallið hafa í gjalddaga til og með 16. september 2000, á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, aðstöðugjaldi, þróunarsjóðsgjaldi, kirkjugarðsgjaldi, bifreiðagjaidi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vömgjaldi af innlendri framleiðslu, vömgjaldi af ökutækjum, eftirlits- gjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi fisksjúkdóma- gjaldi og jarðarafgjaldi. Gjöldum sem á vom lögð 2000 með gjalddaga til og með 15. september 2000 og álögðum opinbemm gjöldum fyrri ára sem í eindaga em fallin, sem em: tekjuskattur, útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimibsstarfa, fasteignagjöld, tryggingagjald, iðnaðarmálagjaid, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, búnaðargjald, iðgjald til lífeyrissjóðs bænda, ofgreiddar bamabætur, ofgreiddur bamabóta- auki og ofgreiddar vaxtabætur. Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vöm- gjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiða- gjöld og þungaskatt eiga von á að skráningamúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskoranar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 19. september 2000. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.