Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 92
D0LL
+ Borðtölvur
+ Fartölvur
+ Netþjónar
63 3000 + www.ejs.is
Cisco Systems
P A R T N E R
SILVER CERTIFIED
Tæknival
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLJJNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RlTSTJlSMBL.IS, AKUREYSl: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK.
Rfkisstjórnin fjallaði í gær um yfírvofandi bann á fískimjöli hjá ríkjum ESB
Danir heita að berjast
ffegn banni í ráðherraráði
RÍ KISST JÓRNIN fjallaði á fundi í gærmorgun um
yfirvofandi bann Evrópusambandsins á notkun alls
dýramjöls í skepnufóður. Utanríkisráðherra og
sjávarútvegsráðherra fluttu skýrslur um málið en
gærdagurinn var nýttur til hins ýtrasta við að koma
sjónarmiðum íslands á framfæri innan ríkja ESB.
Þannig átti Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra
samtal við Ritt Bjerregaard, matvælaráðherra
Danmerkur, sem lýsti því yfir að bann á fiskimjöli
væri ekki rétt. Sagði hún Dani ætla að berjast fyrir
málinu á fundi ráðherraráðs í Brussel á mánudag-
inn. Halldór sagði við Morgunblaðið að stuðningur
t'i**f)ana væri mikilvægur, þeir hefðu einnig mikilla
hagsmuna að gæta sem stórir framleiðendur á fiski-
mjöli. Batt Halldór vonir við að mikið mark yrði
tekið á Dönum innan ESB.
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði ráðherra í
ríkisstjóminni og embættismenn innan stjómsýsl-
unnar hafa reynt að ná til sem allra flestra sem
kynnu að hafa áhrif á málið innan ESB. Aukinn
skilningur hefði fengist á sjónarmiðum íslands og
því yrði fylgt fast eftir.
„Ég held að málið standi betur en það stóð áður
en við fórum í þessar aðgerðir en þó er ekki alveg
séð fyrir endann á þessu. Málið er rekið á tilfinn-
ingalegum nótum í Evrópu, því miður, en ekki fag-
legum. Þess utan era einhver öfl sem era að reyna
að smeygja sér inn í vandræðaganginn með kjöt-
mjölið með því að blanda fiskimjöli inn í hann, sem
engar efnislegar eða vísindalegar ástæður era til,“
sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði
að vel yrði fylgst með þróun mála yfir helgina og
fram að fundi ráðherraráðs ESB á mánudag.
Halldór sagðist hafa átt fjölmörg samtöl við emb-
ættismenn innan ríkja Evrópusambandsins í gær.
„Hvemig það endar getum við á engan hátt metið
á þessari stundu. Mikið fár er í gangi í Evrópu og
alúr viðurkenna að engin rök era fyrir því að fiski-
mjöl sé með í þessu banni,“ sagði Halldór.
Lög um bann við notkun dýramjöls í skepnufóður
verða formlega afgreidd í þýska þinginu í dag. Sam-
kvæmt þeim er heimilt að gefa út reglugerð sem
takmarkar eða víkkar bannið. Ingimundur Sigfús-
son, sendiherra í Berlín, telur líklegt að það ráðist
að einhverju leyti af ákvörðunum ESB í málinu
hvort þessi heimild verði nýtt.
Fjölmiðlum í Evrópu send tilkynning
Til marks um þungann í málinu sendi utanríkis-
ráðuneytið út fréttatilkynningu í gær til allra helstu
fjölmiðla í Evrópu þar sem minnt var á þá hagsmuni
sem era í húfi fyrir ísland, gangi mjölbannið eftir.
Bannið gæti t.d. stefnt tilvera sumra bæja á íslandi
í hættu. Vitnað er til þess að engin vísindaleg rök
séu fyrir því að bendla fiskimjöl við kúariðu.
■ Mæta víðast/6
Ising- og
bruni valda
rafmagns-
leysi
MIKLAR rafmagnstraflanir hafa
verið á Patreksfirði, Bíldudal, Tálkna-
firði og í sveitum á sunnanverðum
Vestfjörðum síðustu tvo sólarhringa.
Línan frá Mjólkárvirkjun slitnaði í
fyrrinótt í Svínadal vegna ísingar. í
gær kom svo upp eldur í spennistöð
Orkubús Vestfjarða við Strandgötu á
Patreksfirði. Eldurinn kviknaði í rofa
og var slökkvilið kallað á vettvang.
Rafmagn fór svo af allri byggðinni
þegar eldur kom upp í spennistöðinni
'‘—og var rafmagnslaust í nokkrar
klukkustundir af þeim sökum. Orsök
bilunarinnar er óljós, en mikill reykur
gaus upp við óhappið. Viðgerðar-
mönnum tókst í gærkvöldi að gera við
bilunina til bráðabirgða.
Ástandið í rafmagnsmálum í Vest-
urbyggð versnaði mikið á síðasta ári
þegar fjörutíu ára gamall sæstrengur
milli Hrafnseyrar og Bíldudals brann
yfir, en hann var iðulega notaður þeg-
ar línur duttu út vegna veðurs. Eftir
að hann fór er línan frá Mjólkárvirkj-
un eina raflínan sem íbúar á sunnan-
verðum Vestfjörðum verða að treysta
á. Uppsetningu á nýrri díselvél var
rétt ólokið þegar bilunin varð í fyrri-
nótt.
Mikil óþægindi hafa hlotist af þess-
um truflunum vestra. Fyrirtæki á
svæðinu hafa átt mjög erfitt með að
halda uppi eðlilegri starfsemi og
bændur hafa fengið rafmagn rétt til
að þeir geti lokið mjöltum.
Morgunblaðið/RAX
Yegagerðin
Verktökum
bætt hátt
olíuverð
VEGAGERÐIN hefur ákveðið að
bæta verktökum að nokkra leyti upp
hækkanir sem orðið hafa á verði olíu
og ekki var reiknað með í verksamn-
ingum. Einnig mun Vegagerðin
bæta verktökum upp breytingar á
þungaskatti sem gerðar vora í júní.
Frá því í júní í fyrra til október á
þessu ári hefur verð á dísilolíu hækk-
að um 77%. Margir verktakar hafa
gert kröfur um að Vegagerðin taki
tillit til þessa og bæti þeim upp þess-
ar hækkanir. Jafnframt hafa þeir
gert kröfur um að tekið verði tillit til
breytinga á þungaskatti, bifreiða-
tryggingum og hækkunai- á vara-
hlutum og viðgerðarþjónustu. Vega-
gerðin hefur nú ákveðið í sami-áði við
samgönguráðuneytið og fjármála-
ráðuneytið að koma til móts við óskir
verktaka um bætur vegna breytinga
á þungaskatti og mikillar hækkunar
á olíuverði. Vegagerðin mun hins
vegar ekki taka tillit til verðþróunar
á öðram þáttum.
Við útreikning bóta vegna hækk-
unar olíuverðs verður við það miðað
að bæta 80% hækkunarinnar. Við út-
reikning á þungaskatti verður við
það miðað að vörubílar aki að meðal-
tali 60 þúsund kílómetra á ári.
Veisla hjá
mávunum á
Hrútafirði
MÁVARNIR í Hrútafirði hafa gert
sér gott af búrhvalnum sem strand-
aði framan við bæinn Valdasteina-
staði 27. ágúst síðastliðinn. Veður
og vindar hafa nú hrakið hvals-
hræið inn undir fjarðarbotninn þar
sem það liggur á grunnu vatni.
Fljótlega eftir að hvalurinn strand-
aði varð vart fitubrákar sem frá
honum lagði. Að sögn Mána Laxdal,
bónda á Valdasteinastöðum, virðist
brákin ekki hafa orðið fuglalífi í
firðinum að meini.
Forstjóri Landsvirkjunar um umhverfísmat vegna Kárahnjúkavirkjunar
Umhverfismatið óháð
samningum við Reyðarál
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að Lands-
virkjun muni ljúka við gerð umhverf-
MITSUBISHI
demantar í umferö
HEKLA
— iforyttu á nífrrl öld I
ismats vegna Kárahnjúkavirkjunar
þótt sú ólíklega staða kæmi upp að
slitnaði upp úr samningaviðræðum
við Reyðarál um byggingu álvers í
Reyðarfirði. Landsvirkjun telji einn-
ig nauðsynlegt að Ijúka umhverfis-
matsferlinu, m.a. vegna þess að
Kárahnjúkavirkjun, ef af henni
verði, sé svo stór hluti af heildar-
vatnsorku landsins.
Þetta kemur fram í viðtali við
Friðrik á Kárahnjúkavirkjanasíðu
Landsvirkjunar á Netinu þar sem
hann segir einnig að viðræður
Landsvirkjunar og Reyðaráls, um
orkuviðskipti og fleira, til undirbún-
ings stóriðjuframkvæmdum á Aust-
urlandi, gangi eðlilega fyrir sig.
Ekkert óvænt hafi komið þar upp
sem gæti orðið hindran á leið að
settu marki og undirbúningsvinna
Landsvirkjunar vegna virkjunar
eystra gangi líka samlcvæmt áætlun.
Friðrik segir að þó háspennulína
yfir hálendið sé ekki á dagskrá nú
telji hann það ekki spurningu um
hvort heldur hvenær slík hna verði
lögð. Háspennulínan myndi m.a. nýt-
ast til að flytja orku til stóriðju.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hún hnyti um ummæli Frið-
riks um hálendislínuna. Það væri
stefna stjórnvalda að nýta orkuna á
landsvæði viðkomandi virlgunar.
Henni hefði ekki verið breytt, en hún
útilokaði ekki að slík lína yrði lögð til
að auka öryggi raforkukerfisins.
Hún lagði áherslu á að stjórnvöld
yrðu að standa við skuldbindingar
sínar gagnvart Noral-verkefninu.
■ Opnað fyrir/12