Morgunblaðið - 14.12.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Útihús á Tröð í Önundarfírði brunnu til kaldra kola í gær
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Slökkviliðinu í ísaQarðarbæ tókst að bjarga fjárhúsinu að mestu og hlöðunni en fjósið er talið ónýtt.
Tókst
að
hleypa
út 120
gripum
Flateyri. Morgunblaðið.
ELDUR kom upp í útihúsum á
Tröð í Önundarfirði um fimm-
leytið í gær. Asvaldur Magnús-
son, bóndi á Tröð, varð eldsins
fyrst var þegar rafmagn fór af
húsinu.
„Pegar ég ætlaði að fara út og
setja rafmagnið aftur á fann ég
brunalyktina um leið og ég opn-
aði útidyrnar og þreif þá með
mér slökkvitæki og hljóp af stað,“
sagði Ásvaldur. Hann náði að
hleypa fé og nautgripum, alls 120
skepnum, út úr fjárhúsunum en
tvær kvígur sem voru í fjósinu
urðu eldinum að bráð. „Það varð
ekki við neitt ráðið með einu
slökkvitæki," sagði Ásvaldur.
„Eldurinn breiddist svo fljótt út.“
Vel gekk að ráða niðurlögúm
eldsins þegar slökkviliðið frá
Flateyri og ísafirði mætti á stað-
inn og var slökkvistarfi lokið um
klukkustund eftir að útkall barst
klukkan 17.02. Vatni var dælt úr
Bjarnará sem er um 500 metra
neðan við bæinn.
Skemmdir urðu mestar á fjós-
inu og tengibyggingu milli fjóss-
ins og fjárhússins sem er gjör-
ónýtt. Eldurinn mun hafa komið
upp í tengibyggingunni en ekkert
er vitað um eldsupptökin að svo
stöddu.
Utihúsin á Tröð voru reist upp
úr árinu 1950 og endurnýjuð fyrir
um 25 árum en mjólkurbúskapur
var lagður niður á bænum síðast-
liðið haust. Kvígurnar tvær sem
voru í fjósinu höfðu verið seldar
til annars bónda sem var rétt
óbúinn að sækja gripina.
Formaður Skólameistarafólagsins segir að ljúka verði haustönninni
Áfengissmygl
með tveimur gámum
árið 1996
Sjö ákærðir
fyrir aðild
að málinu
SJÖ menn hafa verið ákærðir, þar af
einn fyn-verandi tollvörður, fyi-ir að-
ild að ólöglegum innflutningi og
dreifingu á tæplega 18.000 lítrum af
sterku áfengi sem smyglað var með
tveimur gámum til landsins 1996.
Samkvæmt ákæru kom fyrri gám-
urinn frá Bandaríkjunum, fullur af
vodka. Höfuðpaur málsins og toll-
vörðurinn munu hafa farið saman til
Bandaríkjanna til að ganga frá kaup-
um á áfenginu. Þegar gámurinn kom
til landsins var hann afgreiddur á
milli tollsvæða. Þar var hann tæmd-
ur en rafalar settir í stað áfengisins.
Tollvörðurinn er sakaður um að
hafa annast flutning gámsins milli
tollsvæða og að hafa sett ný innsigli á
hurðina. Gámurinn var síðan endur-
sendur til Bandan'kjanna. Þá er
ákært fyrir smygl á áfengi frá
Frakklandi sem höfuðpaur málsins
er sagður hafa staðið að. Tollvörð-
urinn er sakaður um að hafa heim-
ilað flutning gámsins beint á starfs-
stöð þar sem um væri að ræða
matvæli.
Jón H. B. Snorrason, saksóknari
hjá embætti ríkislögreglustjóra, seg-
ir ástæðuna fyrir því hve seint málið
kemur fyrir dóm hér á landi vera þá
að beðið var um rannsókn í Banda-
ríkjunum. Sú rannsókn tók á annað
ár. Þegar henni lauk neituðu banda-
rísk yfirvöld að leggja málið í hendur
lögreglunnar á íslandi. Ástæðan var
sú að brotið fjallaði um skattamál og
því mátti ekki nota sönnunargögnin í
sakamáli hérlendis.
Áætlanir útskriftar-
------------
Rannsókn ekki lokið
á morðinu á
Einari Erni Birgis
nema eru í uppnámi
SÖLVI Sveinsson, formaður Skólameistarafélags
íslands, segir ekki koma annað til greina en að
ljúka haustönninni í framhaldsskólum með ein-
hverjum hætti. Hann segir að nemendur séu
margir hverjir í miklum vanda vegna verkfallsins.
Þetta eigi ekki síst við um nemendur sem ætluðu
að útskrifast fyrir jól. Sumir þeirra hafi ætlað að
hefja háskólanám að loknu stúdentsprófi eða verið
búnir að ráða sig í vinnu.
Sölvi er skólameistari Fjölbrautaskólans í Ár-
múla. Samkvæmt starfsáætlun skólans átti síðasta
prófi á haustönn að ljúka í dag. Sölvi sagði að þrátt
fyrir að skólastarf á þessari haustönn hefði verið
lamað frá því í byrjun nóvember yrði að ljúka
henni með einhverjum hætti.
„Þeim mun meira sem verkfallið dregst á lang-
inn þeim mun meiri erfiðleika skapar það fyrir
fleiri. Samt held ég enn í þá skoðun mína, að þegar
þessu lýkur verði þessi önn kláruð. Það voru liðnar
ellefu vikur af kennslu þegar verkfallið hófst og ég
held að menn hljóti að vera sammála um að yfir
það verði ekki slegið striki. Það er hins vegar
skelfileg tilhugsun ef við förum í jólaleyfi í skól-
unum án þess að samningar hafi tekist. Það gerir
allt miklu erfiðara. Þess vegna leggjum við á það
höfuðáherslu að menn nái saman um helgina.
Skólastjórnendur telja það skipta öllu máli að ná
fólkinu inn í skólana fyrir jólin.“
Sölvi sagði að skólastjórnendur væru ekki búnir
að setja upp neina áætlun varðandi framhald
skólastarfs enda vissi enginn hvenær verkfallinu
lyki. Menn yrðu hins vegar ekki lengi að setja
saman áætlun þegar sæi fyrir endann á þessu.
Um 600 nemar ætluðu
að útskrifast um jól
Sölvi sagði Ijóst að ekki tækist að útskrifa nem-
endur fyrir jól eins og áformað hefði verið. Samtals
áformuðu um 600 nemendur að útskrifast að lok-
inni haustönn. Sölvi sagði að ef þessir nemendur
útskrifuðust ekki væri vandséð hvemig skólarnir
ættu að getað tekið inn nýja nemendur. Það væri
einfaldlega ekki pláss fyrir þá í skólunum.
„Nemendur á starfsmenntabrautum voru
margir hverjir búnir að ráða sig í vinnu og missa af
henni eða það tefst að þeir fái hana. Einnig var
talsverður hópur nemenda kominn með skólavist
annars staðar eftir jólin," sagði Sölvi.
Söhd sagðist hafa sagt nemendum sínum sem
ætluðu að hefja nám í Háskóla íslands og Tækni-
skólanum að ræða við stjórnendur skólanna um að
fá að hefja nám gegn því að koma með stúdents-
prófsskírteini síðar. Hann sagðist ekki vita hvaða
viðtökur þessi beiðni hefði fengið.
Útskriftarnemar voru flestir búnir að skipu-
leggja útskriftarferðir nú um áramótin. Sölvi
sagðist vita til þess að búið væri að blása þær flest-
araf.
Félag framhaldsskólanema, Iðnnemasamband
íslands og Bandalag íslenskra sérskólanema hafa
ákveðið að standa fyrir „friðargöngu" niður
Laugaveg á morgun, föstudag, kl. 18. Steinunn
Vala Sigfúsdóttir, formaður Félags framhalds-
skólanema, sagði að gangan væri hugsuð sem
hvatning til samningsaðila um að styrkja böndin
og leysa kjaradeiluna fyrir jól svo að framhalds-
skólanemar og aðstandendur þeirra gætu átt frið-
sælar stundir yfir hátíðirnar. Landsmenn og þá
sérstaklega framhaldsskólanemar væru hvattir til
þátttöku.
■ Held að/49
Farið fram
á áframhald-
andi gæslu-
varðhald
LÖGREGLAN í Kópavogi mun
leggja fram kröfu fyrir Héraðsdómi
Reykjaness á föstudag um að Atli
Helgason verði úrskurðaður í áfram-
haldandi gæsluvarðhald vegna rann-
sóknar á morðinu á Einari Erni
Birgis.
Atli var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til föstudags, 15. desember, eft-
ir að hann játaði á sig að hafa ráðið
Einari Erni bana í Oskjuhlíð mið-
vikudaginn 8. nóvember sl. Að sögn
Friðriks Björgvinssonar, yfirlög-
regluþjóns í Kópavogi, er rannsókn
málsins enn í gangi. Verið er að
vinna úr gögnum sem aflað var á
fyrstu dögum rannsóknarinnar. Enn
er beðið eftir niðurstöðum úr krufn-
ingu og DNA-rannsóknum á blóð-
sýnum. Friðrik kvaðst ekki bjart-
sýnn á að þessar skýrslur bærust
fyrir lok vikunnar.
!
I
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
Sérblað um viðskipti/atvinnuUf
www.mbl.is