Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 47
PlnripmMnliÍtí
STOFNAÐ 1913
I'ltgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÚRSKURÐUR RÆÐUR
ÚRSLITUM
/
rskurður Hæstaréttar Banda-
ríkjanna, sem birtur var að-
faranótt miðvikudagsins,
markar endalok þeirrar óvissu, sem
ríkt hefur þær fimm vikur sem liðnar
eru frá því að forsetakosningar voru
haldnar í Bandaríkjunum. Með úr-
skurðinum virðist ljóst að George W.
Bush verði næsti forseti Bandaríkj-
anna og boðað var að A1 Gore myndi
ávarpa þjóðina í sjónvarpsávarpi í
nótt, þar sem gert var ráð fyrir að
hann viðurkenndi ósigur sinn. Sjö af
níu dómurum Hæstaréttar komust að
þeirri niðurstöðu að úrskurður
Hæstaréttar Flórída um að efna til
handtalningar á vafaatkvæðum í öllu
ríkinu, stangaðist á við stjórnarskrá
Bandaríkjanna. Fimm dómarar af níu
töldu jafnframt að ekki væri með við-
unandi hætti hægt að efna til endur-
talningar áður en ganga yrði frá skip-
an kjörmanna. Minnihlutinn taldi
hins vegar rétt að halda handtalningu
atkvæða áfram en samkvæmt sam-
ræmdum reglum. Þar með skiptist
Hæstiréttur í tvær fylkingar, sem
vafalítið mun leiða til ásakana um að
ákvörðun réttarins hafi verið pólitísk
fremur en lagaleg. Raunar kemur
skýrt fram í sérálitum minnihlutans
að dómararnir hafa verulegar
áhyggjur af að úrskurðurinn kunni að
valda því að hlutleysi dómstólsins
verði dregið í efa. Þær áhyggjur eru
ekki ástæðulausar. Umræður í
Bandaríkjunum benda til þess að
framkvæmd lýðræðisins geti verið
háð því, hver stjórnmálaafstaða dóm-
ara er. Óvissu síðustu vikna má rekja
til margra þátta. I fyrsta lagi er auð-
vitað ljóst að úrslit kosninganna voru
einhver þau naumustu í sögu Banda-
ríkjanna. Hins vegar hefur einnig
komið í ljós að kosningafyrirkomulag
í Bandaríkjunum er að mörgu leyti
úrelt og ófullkomið. Þá stöðu er upp
kom í Flórída má ekki síst rekja til
þess, að engar skýrar reglur virtust
vera til um það, hvernig skilgreina
ætti gild atkvæði. I bandarískum fjöl-
miðlum hafa undanfarið verið týnd til
fjölmörg dæmi um að vandamál við
framkvæmd kosninga séu síður en
svo bundin við Flórída. Þvert á móti
virðist pottur brotinn í flestum ríkj-
um þó svo að athyglin hafi beinzt að
Flórída. Úrskurður Hæstaréttar
byggist ekki síst á því að Hæstaréttur
Flórída hafi ekki tryggt, þegar
ákvörðun var tekin um endurtaln-
ingu, að samræmdar reglur giltu við
talninguna. Þvert á móti hafi einstaka
sýslum verið leyft að meta sambæri-
leg atkvæði með mismunandi hætti.
Vonandi leiðir þessi uppákoma til
endurskoðunar á því hvernig staðið
er að kosningum í Bandaríkjunum.
Öflugasta lýðræðisríki veraldar, sem
hikar ekki við að segja öðrum ríkjum
til, getur ekki verið þekkt fyrir að láta
kosningar einkennast af jafnmiklum
flumbrugangi og raun ber vitni. Það
er einkennilegt lýðræði, þar sem ekki
má ganga úr skugga um hvernig
hvert einasta atkvæði hefur fallið.
SKOÐANAFRELSI
Á HÁSKÓLASJÚKRAHÚSI
Aðalsmerki okkar lýðræðislegu
stjórnarhátta eru málfrelsi og
skoðanafrelsi. Þessi sjálfsögðu mann-
réttindi eru undirstaða stjórnskipu-
lags okkar. Sl. föstudag var Steini
Jónssyni, lækni og sérfræðingi á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi, til-
kynnt, að fyrirhuguð ráðning hans í
stöðu sviðsstjóra kennslu og fræða á
spítalanum hefði verið afturkölluð.
Forsenda yfirstjórnar sjúkrahússins
fyrir þessari afturköllun var sú, að
Steinn Jónsson hefði komið fram sem
talsmaður hóps, sem beitir sér fyrir
stofnun einkarekins sjúkrahúss. í
samtali við Morgunblaðið í gær skýrir
Magnús Pétursson, forstjóri Land-
spítala - háskólasjúkrahúss, þessa
ákvörðun með svofelldum orðum: „Ég
tel, að það sé það alvarlegt mál, þegar
þannig er, að spítalinn geti ekki unað
því. Steinn er ekki eingöngu í sinni
umfjöllun að ræða um það að sameina
læknamiðstöðvar. Hann er fyrst og
fremst að gagnrýna spítalann."
Menn standa agndofa frammi fyrir
svona yfirlýsingu. „Hann er fyrst og
fremst að gagnrýna spítalann,“ segir
forstjórinn. Er það svo, að starfsfólk
Landspítala - háskólasjúkrahúss
megi ekki gagnrýna Landspítalann án
þess að eiga yfír höfði sér brottrekst-
ur? Hvaðan kemur stjórnendum spít-
alans heimild til að láta fólk gjalda
þess að það gagnrýni spítalann? Ríkir
ekki sama málfrelsi á háskólasjúkra-
húsinu og annars staðar í þessu þjóð-
félagi? Ríkir ekki sama skoðanafrelsi
á Landspítala - háskólasjúkrahúsi og
annars staðar í þessu þjóðfélagi?
Hver hefur gefið stjórnendum þess-
arar stofnunar heimild til að svipta
starfsfólk hennar þessum sjálfsögðu
mannréttindum? Hugmyndir um
einkarekinn spítala eru ekkert annað
en hugmyndir. Landspítalinn er ekki
samkeppnisfyrirtæki. Það liggur
meira að segja fyrir yfirlýsing frá
sjálfum heilbrigðisráðherra um að
leyfi til reksturs einkarekins spítala
verði ekki veitt. Hvernig er hægt að
svipta mann fyrirhugaðri stöðu vegna
þess að hann hefur tekið þátt í um-
ræðum um hugmynd, sem heilbrigð-
isráðherra hefur lýst yfir að verði ekki
framkvæmd? Þar að auki er ljóst, að
sá læknir, sem hér um ræðir, hefur
fyrst og fremst tekið þátt í umræðum
um að sameina læknastofur undir einu
þaki. Og það liggur ekki einu sinni fyr-
ir, hvort þær hugmyndir verði að
veruleika. Þessar umræður eru aug-
ljóslega á algeru byrjunarstigi. Fram-
koma stjórnenda Landspítala - há-
skólasjúkrahúss við Stein Jónsson
lækni er forkastanleg. Stjórnarnefnd
spítalans og heilbrigðisráðherra geta
ekki látið þessa fráleitu ákvörðun
standa óhaggaða. Það ríkir enn mál-
frelsi og skoðanafrelsi á íslandi.
Hæstíréttur í Washington
réð úrslitum bandarísku
forsetakosninganna þegar
hann ógilti úrskurð hæsta-
réttar Flórída, sem hafði
heimilað handtalningu
vafaatkvæða í ríkinu, og
kvað upp úr með að útilokað
væri að ljúka talningunni
með viðhlítandi hætti
fyrir tilskilinn tíma.
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkj-
anna ógilti í fyrrinótt úrskurð
hæstaréttar Flórída sem
heimilaði handtalningu vafaat-
kvæða í ríkinu. Sjö dómarar af níu komust
að þeirri niðurstöðu að vísa ætti málinu
aftur til hæstaréttar Flórída. Þá úrskurð-
aði rétturinn með fimm atkvæðum gegn
fjórum að ómögulegt væri að ljúka hand-
talningu vafaatkvæðanna með tilhlýðileg-
um hætti áður en kjörmannasamkundan
kemur saman 18. desember til að velja
forseta Bandaríkjanna. Ef vafaatkvæðin
verða ekki talin á A1 Gore, forsetafram-
bjóðandi demókrata, ekki möguleika á
sigri og því má öruggt telja að úrskurður
hæstaréttar hafi tryggt að repúblikaninn
George W. Bush verði 43. forseti Banda-
ríkjanna.
Hæstiréttur í Washington kvað upp úr-
skurð sinn 34 stundum eftir að málflutn-
ingi lauk, klukkan 22 að staðartíma á
þriðjudagskvöld, aðeins tveimur klukku-
stundum áður en frestur ríkjanna til að til-
nefna kjörmenn rann út. Nákvæmlega
fimm vikur voru þá liðnar frá kjördegi.
Úrskurðurinn
tvíþættur
Úrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna
er tvíþættur. Annars vegar komust sjö
dómarar af níu að þeirri niðurstöðu að úr-
skurður hæstaréttar í Flórída, sem heim-
ilaði handtalningu um 170 þúsund vafa-
atkvæða, væri ekki í samræmi við
stjómarskrána, þar sem samræmdar
reglur fyrir allar sýslur ríkisins hefðu ekki
verið settar um talningu atkvæðanna. Því
væri ekki tryggt að öll atkvæði fengju
sömu meðferð og kjósendum væri þannig
mismunað. Var málinu vísað aftur til
hæstaréttar Flórída á þessum forsendum.
Hæstiréttur Flórída fyrirskipaði á
föstudag í síðustu viku að um 170 þúsund
atkvæði skyldu endurtalin í höndum, til að
taka tillit til „ásetnings kjósenda“. Meiri-
hluti dómaranna í hæstarétti í Washing-
ton taldi það ekki standast jafnræðis-
ákvæði stjómarskrárinnar. í úrskurði
réttarins var bent á að hættan á geðþótta-
ákvörðunum og vafaatriðum væri gífur-
leg, þar sem misjafnlega stór göt væm á
sumum kjörseðlunum og misgreinilegar
dældir á öðmm.
„Þar sem Ijóst er að talning atkvæða,
sem ljúka ætti áður en fresturinn rennur
út 12. desember, væri ekki í samræmi við
stjómarskrána . . . ógildum við úrskurð
hæstaréttar Flórída þess efnis að talningu
AP
Stuðningsmaður Bush syngur þjóðsöng Bandaríkjanna til að fagna úrskurði hæstaréttar.
Hæstiréttur Bandaríkj anna ógildir úrskurð hæstaréttar Flórída um talningu vafaatkvæða
Ræður úrslitum
kosninganna
skuli haldið áfram,“ segir í úrskurði
hæstaréttar.
Þeir sjö dómarar sem komust að þessari
niðurstöðu vora William Rehnquist, for-
seti réttarins, Sandra Day O’Connor, Ant-
onin Scalia, Anthony M. Kennedy, Clar-
ence Thomas, David Souter og Stephen
Bryer. John Paul Stevens og Ruth Bader
Ginsburg vora andvíg og töldu að fram-
kvæma ætti nýja talningu eftir samræmd-
um reglum.
Frestur ekki framlengdur
Hins vegar komust fimm dómarar af níu
að þeirri niðurstöðu að ómögulegt væri að
ljúka talningu vafaatkvæðanna með til-
hlýðilegum hætti áður en frestur ríkjanna
til að tilnefna kjörmenn rynni út, en það
var á miðnætti á þriðjudag, 12. desember.
Meirihlutinn stóð fast á því að tímamörkm
skyldu standa, en minnihlutinn vildi fram-
lengja frestinn.
Þetta þýðir að skipun hinna 25 kjör-
manna ríkisins, sem löggjafarþing Flórída
staðfesti á þriðjudag, stendur. „Eftir
vandlega athugun á þeim vandkvæðum
[sem era á handtalningu] er Ijóst að ekki
er hægt að framkvæma talninguna, þann-
ig að hún brjóti ekki í bága við kröfur um
jafna vemd [þegnanna fyrir lögum] og
réttláta málsmeðferð, án þess að töluverð
vinna liggi að baki.“ Dómaramir sem sam-
þykktu þessa niðurstöðu vora William
Rehnquist, Sandra Day O’Connor, Anton-
in Scalia, Anthony M. Kennedy og Clar-
ence Thomas. John Paul Stevens, David
Souter, Ruth Bader Ginsburg og Stephen
Breyer vora í minnihluta. Skipting dóm-
aranna var sú sama og á laugardag, þegar
hæstiréttur fyrirskipaði að talning vafa-
atkvæðanna skyldi stöðvuð. Áður en
hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn var tal-
ið að atkvæði tveggja dómara, O’Connor
og Kennedy, gætu fallið á hvorn veginn
sem er, en þau tilheyrðu bæði meirihlut-
anum. Nöfn þeirra koma þó hvergi fyrir í
úrskurðinum enda rituðu dómaramir ekki
undir hann, né heldur annars staðar í
málskjölunum, sem vora gefin út á 65
blaðsíðum.
Vald löggjafans undirstrikað
Hér fara á eftir nokkur atriði úr úr-
skurði hæstaréttar:
• „Borgararnir hafa ekki rétt sam-
kvæmt stjómarskránni til að kjósa kjör-
mennina sem velja forseta Bandaríkjanna
nema, og fyrr en, löggjafarþing rfldsins
ákveður að kjörfundur um allt ríkið skuli
vera aðferðin sem notuð er til að skipa full-
trúa þess í kjörmannasamkunduna.“ Með
þessum orðum undirstrika dómaramir
vald löggjafarþingsins í Flórída í málinu.
• „Kosningarétturinn er tryggður á
fleiri vegu en bara með réttinum til að
greiða atkvæði. [Stjórnarskrárviðaukinn
sem kveður á um] jafna vernd þegnanna
[fyrir lögum] á einnig við um hvemig
kosningaréttinum er framfylgt. Þegar
kosningarétturinn hefur einu sinni verið
veittur á jafnræðisgrandvelli hefur ríkið
ekki heimild til að gefa síðar atkvæði eins
meira vægi en annars að eigin geðþótta og
með ójöfnum hætti.“ Vísar þetta til þeirr-
ar afstöðu meirihlutans að með endurtaln-
ingu atkvæða sé kjósendum mismunað.
• „Framkvæmd endurtalningar, sem
hafin var eftir úrskurð hæstaréttar Flór-
ída, fullnægir ekki lágmarkskröfum um
óhlutdræga meðferð atkvæða, sem nauð-
synlegar era til að tryggja þennan grund-
vallarrétt.... Þegar dómur fyrirskipar að-
gerð sem nær til alls ríkisins verður að
minnsta kosti að vera fyrir hendi einhver
trygging fyrir því að lágmarkskröfum um
jafna meðferð og réttlæti sé framfylgt.“
Dómararnir gera hér athugasemd við að
samræmdar reglur gildi ekki um talningu
og meðferð atkvæða í sýslum Flórídaríkis.
• „Engir era betur meðvitaðir um hin-
ar nauðsynlegu hömlur sem valdi dómstól-
anna era settar en dómararnir við þennan
rétt og engir bera meiri virðingu fyrir
þeirri ætlun stjómarskrárinnar að val for-
setans sé í höndum þjóðarinnar, í gegnum
löggjafarþingin. Þegar svo ber hins vegar
við að fylkingamar fara með málin fyrir
dómstólana er það á okkar ábyrgð að leysa
þau álitamál, bæði hvað varðar alríkið og
stjórnarskrána, sem dómskerfið hefur
verið neytt til að taka afstöðu tii.“
Forseti hæstaréttar
vildi ganga lengra
William Rehnquist, forseti hæstaréttar,
skilaði séráliti, sem stutt var af Antonin
Scalia og Clarence Thomas, og gengur
enn lengra en gert er í úrskurðinum. Þar
segir að hæstiréttur Flórída hafi beinlínis
brotið í bága við stjórnarskrána og lög
Flórídaríkis með því að heimila talningu
vafaatkvæðanna. „Eins og [fram hefur
komið] skal skýr vilji löggjafarvaldsins
ríkja í forsetakosningum. Og það er eng-
inn grandvöllur fyrir því að túlka lög Flór-
ídaríkis á þann veg að telja skuli kjörseðla,
sem ekki era merktir á fullnægjandi hátt,“
segir í álitinu.
Rehnquist segir ennfremur að eftir
vafamálin í Flórída „sé líklegt að löggjaf-
inn muni kanna leiðir til þess að bæta
framkvæmd kosninga". Dómarinn Steph-
en Breyer, sem var í minnihlutanum, skil-
aði séráliti þar sem hann fullyrðir að
hæstiréttur alríkisins í Washington hefði
ekki átt að taka málið til umfjöllunar þar
sem úrskurðarvaldið hefði átt að liggja hjá
hæstarétti Flórída. Rehnquist útskýrir
hins vegar í séráliti sínu að meirihlutinn
hafi á endanum úrskurðað að samkvæmt
stjómarskránni hafi löggjafarvaldið loka-
orðið, en ekki dómstólamir. „Þessi úr-
skurður gefur ekki til kynna vanvirðingu
fyrir dómstólum ríkjanna heldur virðingu
fyrir því hlutverki sem stjómarskráin hef-
ur falið löggjafarþingum ríkjanna.“
Telur úrskurðinn kasta
rýrð á hæstarétt
Allir dómaramir í minnihlutanum skil-
uðu séráliti.
Ruth Bader Ginsburg lýsti þeirri skoð-
un sinni að úrskurður hæstaréttar Flórída
um talningu vafaatkvæðanna hefði verið í
fullu samræmi við ætlun löggjafans í- rík-
inu. „Sú niðurstaða [meirihlutans í hæsta-
rétti Bandaríkjanna] að ómögulegt sé að
endurtelja atkvæðin þannig að það sam-
ræmist stjómarskránni er tilgáta sem
rétturinn vill ekki sannreyna. Slík tilgáta
ætti ekki að óreyndu að skera úr um hver
verður forseti Bandaríkjanna," segir í áliti
Ginsburg. David Souter leggur í áliti sínu
til að hæstarétti Flórída verði falið að taka
málið upp aftur og jafnframt að setja sam-
ræmdar reglur fyrir allar frekari talning-
ar.
f séráliti John Paul Stevens, sem Gins-
burg og Breyer studdu, segir að niður-
staða meirihlutans kasti rýrð á hæstarétt
Bandaríkjanna. „Þótt við munum ef til vill
aldrei vita með vissu hver vann sigur í for-
setakosningunum er deginum Ijósara hver
mátti lúta í lægra haldi. Það var traust
þjóðarinnar á dómaranum sem óhlut-
drægum vemdara laga og reglna," segir í
álitinu. Stevens, sem hefur lengst allra
dómaranna setið í hæstarétti, sagði að
tíminn myndi þó smám saman bæta þann
skaða sem úrskurðurinn hefði valdið.
Washington. AP, AFP.
Úrskurðurinn mælist misjafnlega fyrir
ÞAÐ var beðið í ofvæni eftir úrskurði hæstaréttar Bandaríkjanna
í fyrradag. Þegar hann barst svo loks klukkan tíu á þriðjudags-
kvöld, að bandarískum tíma, klukkan þijú aðfaranótt miðviku-
dagsins að íslenskum tíma, var ekki laust við að fréttamenn sem
beðið höfðu klukkustundum saman fyrir utan hæstarétt hafi orðið
fegnir. Úrskurðurinn var þó svo langur og flókinn að ekki reynd-
ist hlaupið að því að skýra frá honum um leið.
í grein í The New York Times í gær segir að þrátt fyrir að sjón-
varpsstöðvamar hafi teflt fram sínu færasta fólki á „erfiðustu
fréttavaktinni síðan á kosninganótt" hafi mjög mikið óöryggi ein-
kennt fyrstu viðbrögð við úrskurðinum. „Þetta var svo raglings-
legt og spennuþrangið að á stundum gátu fréttaskýrendur sem
sátu hlið við hlið ekki komið sér saman um einföldustu afleiðingar
þessa sögulega úrskurðar."
Sjónvarpsstöðvarnar, sem vissu upp á sig skömmina síðan á
kosninganótt, virtust einnig vara sig sérstaklega á því að iýsa því
yfir hver verði næsti forseti.
Fyrstu viðbrögð varkár
Fljótlega kom hins vegar í ljós að úrskurðurinn þýddi í raun
endalok baráttu varaforsetans A1 Gore, frambjóðanda demó-
krata. Fyrstu viðbrögð úr herbúðum frambjóðendanna einkennd-
ust þó af mikilli varkámi. Ástæður þessa voru margar. í fyrsta
lagi var úrskurðurinn ansi flókinn og lögfræðingar frambjóðend-
anna tóku sér góðan tíma í að fara yfir hann. Þó svo að öll sund
virtust vera að lokast fyrir Gore þá játaði hann sig ekki sigraðan
en stuðningsmenn hans viðurkenndu þó fljótlega að ekki væri lík-
legt að hann héldi áfram baráttunni.
I herbúðum George W. Bush, frambjóðanda repúblikana, fóra
menn með gát og virtust hafa að leiðarljósi að rasa ekki um ráð
fram og virðast ekki of sigri hrósandi. Helsti lögfræðilegi ráðgjafi
Bush, utanríkisráðherrann fyrrverandi James A. Baker, las yf-
irlýsingu einum og hálfum tíma eftir að úrskurðurinn féll og sagði
að Bush og varaforsetaefni hans Dick Cheney væra „mjög ánægð-
ir og þakklátir“ að rétturinn hafði fallist á að „endurtalning í Flór-
ída bryti í bága við stjómarskrá“.
Baker gætti þess vel að lýsa ekki yfir sigri síns manns og bætti
við að „ferlið hefði verið langt og strangt fyrir báða aðila“. Ráð-
gjafar Bush sögðust vilja gefa Gore ráðrúm til að bregðast við og
játa sig sigraðan áður en hann gerði nokkuð.
Demókratar sögðu baráttuna á enda
Kosningastjóri Gore, William M. Daley, sendi frá sér yfirlýs:
ingu þar sem hann fjallaði um hversu flókinn úrskurðurinn var. í
henni var ekkert ýjað að því að Gore mynd játa sig sigraðan. Dal-
ey sagði að tíma tæki að greina úrskurðinn og að Gore myndi gefa
frá sér yfirlýsingu síðar.
En stuðningsmenn Gore hvöttu hann margir hveijir til að játa
sig sigraðan strax í gær. Einn þeirra var Edward G. Rendell, for-
maður Demókrataflokksins. Þessi yfirlýsing Rendell var reyndar
harðlega gagnrýnd af Joe Andrew, formanni landsnefndar flokks-
ins, sem sagði hana ekki við hæfi. Öldungadeildarþingmaðurinn
Robert Torrieelli tók í samá streng og Rendell og sagði augljóst
að baráttan væri á enda og George W. Bush yrði næsti forseti.
Forsetaframbjóðendurnir sjálfir héldu sig hins vegar til hlés í
gær þar til Gore sté á stokk um tvöleytið í nótt að íslenskum tíma.
Úrskurður gagnrýndur í fjölmiðlum
Þegar fór að skýrast hvað raunveralega stæði í úrskurðinum
stóð ekki á viðbrögðum ijölmiðla sem lögfræðinga sem munu ugg-
laust eiga eftir að velta málinu fyrir sér fram og aftur, afleiðingum
úrskurðarins og raunar ferilsins alls.
í leiðara The New York Times segir að úrskurðurinn eigi eftir
að draga úr trausti almennings á áreiðanleika og heiðarleika
kosninga. Þar segir einnig að þeirra verði minnst sem „kosninga
sem réðust í íhaldssömum hæstirétti og féllu íhaldssömum fram-
bjóðanda í vil en atkvæði sem hefðu getað skipt sköpum hefðu ver-
ið ótalin“. USA Today sagði hæstarétti hafa mistekist hrapallega
að binda sannfærandi enda á kosningamar.
Lögspekingar sem The New York Times og Washington Post
leituðu til bentu strax í gær á ýmsar hliðar málsins. Randall Bez-
anson, sérfræðingur í stjórnskipunarrétti við Iowa háskóla, benti
t.d. á að úrskurður hæstaréttar væri að hluta til byggður á fyrri
úrskurði hæstaréttar Flórída sem hefði síðar verið ógiltur af
hæstarétti Bandaríkjanna. Sumir stjómlagaspekingar sögðu
einnig að það væri hálfundarlegt að enda þessi flóknu málaferli á
úrskurði þar sem dómarar notuðu skamman tíma sem rök gegn
endurtalningu, þegar þeir hefðu sjálfir átt þátt í því hversu
skammur tími var til stefnu með því að ógilda úrskurð hæsta-
réttar Flórída í síðustu viku. Þá hefði t.d. verið lag að benda á þau
brot á jafnræðisákvæði stjómarskrárinnar í síðustu viku eins og
gert er í úrskurði þriðjudagsins.
Þetta atriði í úrskurðinum segir Kathleen Sullivan, deildarfor-
seti lagadeildar Stanford háskóla, að opni leið fyrir málaferli í
framtíðinni sem kjósendur geti höfðað vegna ólíkra atkvæðaseðla
og talningaraðferða.
Vopnið um vilja kjósenda virðist nefnilega hafa snúist í höndum
Gore.
Hefði átt að fara fram á handtalningu í öllu Flórídaríki
í grein í The New York Times í gær er bent á að það hafi verið
gífurleg mistök af Gore að fara ekki fram á við dómstóla í Flórída
frá upphafi að öll atkvæði ríkisins yrðu handtalin. Thomas W.
Merrill, lagaprófessor í Northwestem University, segir þar að
Gore geti kennt sjálfum sér um ósigurinn því hann hafi farið þá
leið að krefjast handtalningar í sýslum sem era viðurkennd vígi
demókrata í stað þess að krefjast hennar í öllu ríkinu. Þannig hafi
Gore litið út fyrir að vilja niðurstöðu sér í hag, en ekki sanngjama
niðurstöðu.
Einnig er bent á að það hafi verið mistök hjá liðsmönnum Gore
að fara fram á að innanríkisráðherra Flórída frestaði því að lýsa
yfir hver væri sigurvegari kosninganna í ríkinu. Þannig hafi þeir í
raun tapað tíma sem þeir hefðu getað notað til málshöfðunar
vegna úrslitanna.
Eftirmál
bandarísku
kosning-
anna
7. nóv.: Kosið í Bandarílq'-
unum.
8. nóv.: Bush sigrar Gore með
1.787 atkvæða mun af 6
milljónum atkvæða í Flór-
ída. Endurtalið í samræmi
við lög Flórídaríkis. Kjör-
menn Flórída ráða úrslit-
um í forsetakosningunum
en þeir eru 25 talsins.
9. nóv.: Demókratar fara
fram á handtalningu í fjór-
um sýslum í Flórída.
10. nóv.: Að lokinni endurtaln-
ingu er forskot Bush 327
atkvæði.
11. nóv.: Repúblikanar höfða
mál til að stöðva handtaln-
ingu.
13. nóv.: Alríkisdómari hafnar
beiðni repúblikana.
16. nóv.: Innanríkisráðherra
Flórída, Katherine Harris,
hafnar beiðni um að tekið
verði tillit til handtalinna
atkvæða.
17. nóv.: Dómari í Flórída
staðfestir niðurstöðu Harr-
is en hæstiréttur Flórída
hindrar tilraun hennar til
að tilkynna kosningaúrslit
án handtalinna atkvæða.
18. nóv.: Forskot Bush eykst í
930 atkvæði eftir að utan-
kjörstaðaatkvæði hafa ver-
ið talin.
21. nóv.: Hæstiréttur Flórída
úrskurðar að handtalin at-
kvæði verði talin með í
endanlegum niðurstöðum í
Flórída sem verði til-
kynntar 26. nóvember.
22. nóv.: Dick Cheney, vara-
forsetaefni repúblikana,
fær hjartaáfali.
24. nóv.: Hæstiréttur Banda-
ríkjanna samþykkir að
taka fyrir kröfu Bush um
að handtalin atkvæði verði
ekki talin með.
26. nóv.: Harris lýsir Bush sig-
urvegara kosninganna í
Flórída og munar 537 at-
kvæðum á frambjóð-
endum.
27. nóv.: Gore höfðar mál
vegna úrslitanna.
I. des.: Hæstiréttur Banda-
rfkjanna hlýðir á rök-
semdafærslur vegna hand-
tainingar.
4. des.: Hæstiréttur Banda-
ríkjanna ógildir úrskurð
hæstaréttar Flórída um að
tekið skuli tillit til handtal-
inna atkvæða og sendir
mál heim í hérað. í Flórída
hafnar dómarinn Sanders
Sauls málshöfðun Gore
vegna kosningaúrslita.
Gore áfrýjar.
8. des.: Hæstiréttur Flórída
fellst á málstað Gore og
fyrirskipar endurtalningu
40 þús. vafaatkvæða. Dóm-
arar í Flórída hafha beiðni
demókrata um ógildingu
25 þús. utankjörstað-
aratkvæða. Flórídaþing,
þar sem repúblikanar eru í
meirihluta, kemur saman
til að ræða möguleikann á
því að tilnefna kjörmenn.
9. des.: Hæstiréttur Banda-
ríkjanna fellst á beiðni
Bush og stöðvar endurtaln-
ingu í Flórída.
II. des.: Hæstiréttur Banda-
ríkjanna hlýðir á málflutn-
ing lögmanna Bush og
Gore. Flórídaþing kemur
saman.
12. des.: Hæstiréttur Banda-
ríkjanna sendir frá sér
flókinn úrskurð þar sem
frekari endurtalning í
Flórída er stöðvuð. Hæsti-
réttur Flórída hafnar
áfrýjunarbeiðni um ógild-
ingu vafaatkvæða. Full-
trúaþing Flórída sam-
þykkir kjörmannalista
hliðhollan Bush.