Morgunblaðið - 14.12.2000, Síða 63
w
Saeco er stærsti framleiðandi Ítalíu
ó gæðakaffivélum.
Fjölmargir litir - handstýrðar - hálfsjálfvirkar
eða sjálfvirkar með eða án kaffikvarnar
Gerð Via Venezia úr stáli (hér að ofan)
kr. 26.980 stgr.
i:ís
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 ® 562 2901 og 562 2900
www.ef.is
DHL flytur fyrir þig
DHL er flutt í nýtt húsnæði
Starfsemi DHL er flutt í nýja og betri aðstöðu (
Holtagörðum. Flutningurinn gerir okkur enn
frekar kleift að veita ávallt hraðvirkustu og
öruggustu hraðsendingarjsjónustu sem völ er á.
wmurmx orwerr
Við stöndum við skuldbindingar þínar
@Saeco
- lÍIÖritilÍNBtjA®IÐ
UMRÆÐAN
flMSÍl1''tíÖAÖ(ÖR 14! DÉSÉMBER 5000
r '
ÐHL
o Skutuvogur
0*
Sasbraut
Expresso-
Cappuccino
vélar
í úrvali
Verð frú kr.
13.965 stgr.
eða vald sem getur gripið inn í
markaðinn þegar hann starfar ekki
samkvæmt þeim markmiðum sem
ríkisvaldið hefur sett í formi sam-
keppnislaga.
Hvergi er verslun öflugri en í
Bandaríkjunum, hvergi starfa fleiri
við verslun og óvíða er verðlag hag-
stæðara en einmitt þar. Ef til vill er
ástæðan sú að Bandaríkjamenn átt-
uðu sig á því mörgum áratugum fyrr
en aðrir að til að markaðurinn virk-
aði þyrfti reglur með sama hætti og í
íþróttaleik, þar sem allir leika eftir
fyrirfram ákveðnum reglum.
Ég tel að við íslendingar berum
talsverða virðingu fyrir markaðnum
og höfum skilning á nauðsyn frjálsr-
ar samkeppni sem hefur fært þjóð-
inni efnalega velferð og auð. Hins
vegar er það áhyggjuefni að við lát-
um fákeppni viðgangast, sem bendir
augljóslega til þess að reglumar í
leiknum eru annaðhvort ekki til eða
þeim er ekki framfylgt. Það er skoð-
un mín að þau samkeppnislög sem
við höfum búið við síðastliðin 10 ár
hafi verið lélegri en engin. Ný sam-
keppnislög tóku hins vegar gildi fyrr
í þessum mánuði og eru vonir
bundnar við að þau feli í sér ákveðna
réttarbót.
íslendingar eru verslunarþjóð
fremur en iðnaðarþjóð. Möguleikar
okkar felast að miklu leyti í því að
innflutningsverslunin, smásöluversl-
unin og útflutningsverslunin séu
skilvirkar. Til að svo megi verða þarf
almenningur að standa vörð um
hagsmuni sína og stjómmálamenn
að setja leikreglur sem tryggt er að
sé framfylgt. Starfsemi markaðarins
má líkja við íþróttakappleik þar sem
allir keppa samkvæmt fýrirfram
ákveðnum reglum. Væntanlega hef-
ur ekki nokkur maður áhuga á að
horfa á fótbóltaleik þar sem hálfur
leiktíminn fer í samningaviðræður
leikmanna um sameiningu liðanna!
HSfundur er formaður Samtaka
verslunarinnar.
Leikreglur
markaðarins
„VERSLUNIN er
undirrót velmegunar
lands og lýða þegar
hún er frjáls," sagði
ÍJón forseti þegar hann
blés íslendingum frels-
isþrá í brjóst og leið-
beindi þeim eftir hinni
grýttu braut sjálfstæð-
is, sem hann hvatti þá
til að ryðja.
Ýmsir stjómmála-
menn sem á eftir komu
voru hins vegar fljótir
að gleyma þessum
sannindum og kusu að
Ífanga verslunina í viðj-
ar ríkisafskipta og
hafta. Hin síðari ár hef-
ur þó verslunin verið að mestu frjáls
og um hana ríkt sátt, enda eru nú
flestum Ijós áhrif frjálsrar sam-
keppni í verslun og viðskiptum á
efnalega velferð fólks.
Blikur eru þó á lofti á ákveðnum
sviðum verslunar hér á landi, s.s. í
Ímatvörusmásölu og smásölu með
byggingarvörur og reyndar fleiri
j sviðum. Þar hefur fákeppni stórra
Íj aðila leitt af sér óeðlilega viðskipta-
hætti er þesshr aðilar hafa í krafti
stærðar sinnar og stöðu á markaðin-
um beitt allt að því þvingunarað-
gerðum gagnvart neytendum, dreifi-
aðilum og birgjum, s.s. bændum og
framleiðendum.
Það er alþjóðlegt og alkunnugt
fyrirbæri að fyrirtæki sem hafa náð
yfirburðastöðu á markaði nýta stöðu
sína til að kúga markaðinn og rukka
I óeðlilegt hátt gjald fyrir vöru eða
þjónustu sína. Reyndar þurfum við
Islendingar ekki að leita langt til að
finna dæmi um slíkt og
eru íslensk skipafélög
og olíufélög nefnd í því
sambandi.
í erindi sem einn yf-
irmanna Bresku sam-
keppnisstofnunarinnar
flutti hérlendis á síð-
asta ári benti hann á að
það væri ekki nóg að 2
til 3 fyrirtæki kepptu á
einum markaði, s.s.
matvörumarkaði, það
þyrfti 6 til 8 fyrirtæki
til að raunveruleg sam-
keppni ætti sér stað.
Oft er rætt um
markaðinn eins og
hann sé eitthvert yfir-
náttúrulegt og ósnertanlegt fyrir-
bæri. Að mínum skilningi er mark-
aðurinn einungis vettvangur allra
Samkeppni
Islendingar, segir
Haukur Þór Hauksson,
eru verslunarþjóð
fremur en iðnaðarþjóð.
þeirra sem kaupa eða selja vöru eða
þjónustu og siðferðisstig hans er á
nákvæmlega jafn háu stigi og fólks-
ins sem þar gerir viðskipti. A mark-
aðnum sjálfum er mikilvægt að eng-
inn geti í krafti stærðar sinnar eða
styrks kúgað aðra, en til þess að svo
megi vera þurfum við leikreglur.
Þessar leikreglur, öðru nafni sam-
keppnislög, þurfa að fela í sér tæki
Haukur Þór
Hauksson