Skírnir - 01.01.1877, Blaðsíða 6
6
AUSTRÆNA MÁLIÐ.
um bil 300,000 Tyrkja (Múhameðstrúendur) í Bosníu, á móti
730,000 kristinna manna, en 1812 voru Tyrkir helmingi fleiri enn
nú. Bolgaraland er mest og fjölbyggSast af skattlöndum soldáns
á Balkansskaga. Hjer búa bjerumbil 4 millíónir manna, og af
þeim eru Tyrkir vart Vs. Fyrir . sunnan Balkansfjöll og með
ströndum fram eiga Grikkir sambyggS viS hina. Bolgarar eru
kynblendingar frá Tatörum og Slöfum, en eru nú alslafneskir aS
máli og þjóberni. þeir kváSu vera heldur daufir og doSalegir,
og aS því leyti ólíkir Serbum, enda hafa þeir þolaS kveinlaust'
meira af þrúgun og illum meSferSum Tyrkja enn nokkrir aðrir.
Allt um þaS hafa þeir hvergi orðiS forviSa eSa uppnæmir fyrir
Tyrkjum, enn fyrir þolgæSi og seiglu eigi aS eins haldiS þjóS-
erni og tungu — og átt þó aS þessu leyti um leiS aS standa af
sjer yfirgang Grikkja —, heldur hafa þeir bæSi aS fjölgun og
þrifnaSi dregizt svo fram á móts viS Tyrki, aS þeim hefir fækk-
aS ár af ári á Bolgaralandi. Vjer nefnum enn Albaníubúa, eSa
afkomendur hinna gömlu Illýra, þeir eru hraustir og barSfengir,
og gengu lengi á mála í liSi Soldáns, en þó hefir lítiS orSiS úr
þjóSþrifnaSi þeirra, enda bafa þeir sundrazt, og hefir ýmislegt
til þess dregiS. í trú deilast þeir álíka og Serbar í Bosníu, en
hinir kristnu skiptast líka milli grískrar og rómverskrar kaþóisku.
AS því tunguna snertir og þjóSerniS, þá vilja suSurbúar Albaníu
dragast til Grikkja og samlagast viS þá, en norSurbúar til Serba.
þess má geta, aS fjöldi manna fóru frá Albaníu til bólfestu á
Grikklandi á 14. og 15. öld og hafa síSan búiS víSa sjer í sveit-
um, en afkomendur þeirra hafa aS mestu leyti tekiS tungu og
þjóSerni Grikkja. Af þeim voru margir, sem fengu bezta orSstír,
þegar Grikkir börSust sjer til frelsis (t. d. Markus Bozzaris og
fl.). Albaníubúar — aS minnsta kosti þeir kristnu — mundu og
kjósa aS leysast undan Tyrkjum, ef kostur yrSi á, en þó hafa
þeir veriS utan viS styrjöldina til þessa. {>ó mun nokkuS hæft
í, aS allmargir af þeim hafi komiS aS sunnan og sjálfboSa gengiS
í liS Svartfellinga.
þær þjóðir og þjóSflokkar, sem aS framan er um talaS, bafa
allar hlotið aS lúta yfirboSum Tyrkja í 400 ára, en sumir'lengur.
þaS má nú aS visu segja um fleiri enn um kristnu þjóSirnar á