Skírnir - 01.01.1877, Síða 42
42
AUSTRÆNA MÁLIÐ.
legn móti, at bæta kjör enna kristnu á Balkansskaga. Innan fárra
daga takast fundir í MiklagarSi meS erindrekum allra stórveld-
anna, og eiga þeir aS semja og setja friSarkostina. þaS er mín
hjartans ósk, aS allir yrðu bjer meS oss á einu máli; en
bregSist þetta, eSa takist f8® ekki aS ná af Tyrkjum tryggingu
fyrir því, sem vjer eigum rjett á af þeim aS krefjast, þá er jeg
einráSinn í, aS fara mínum ráSum fram og breyta upp á sjálfs
míns eindæmi; og jeg er þess fullöruggur, að öll þjóS mín gegnir
þá kalli mínu, þegar mjer þykir ekki annaS úrkostis, e&a sæmd
og vegur Rússlands aS öSrum kosti viS liggja. Jeg er sannfærSur
um, aS Moskva muni nú sem fyr ganga á undan meS góSu eptir-
dæmi. GuS bjálpi oss til aS gegna heilagri köllun vorri!“ —
ViS þá ræSu sló miklum ótta yfir kaupmannasamkundurnar, og
hún þótti því heldur vita á ill tíSindi, sem Beaconsfield lávarSur
(Disraeli) hafSi (9. nóv., daginn áSur enn Rússakeisari hjelt sína
ræSu) komizt þá leiS aS orSi í gildi borgarastjórans (í Lundúnum),
aS stjórn Breta vildi um fram allt halda samningum ríkjanna
órofnum og viS gildi, og því hefSi hún ekki viljaS fallast á atfarir
af hálfu Rússlands og Austurríkis, eSa flotasending inn í Stólpa-
sund. Henni væri sem fleirum mjög um þaS gefiS, aS bætt yrSi
um kjör og hagi kristinna þegna soldáns, en þetta yrSi í friSi aS
gera og til þess samkomulagi aS ná. En ef þaS tækist ekki, og
styijöld færi í hönd, þá skyldu þaS heyra allir lýSir, aS England
mundi beijast fyrir rjettu máli og settum samningum, ogaldriundan
láta fyr enn fram gengi, enda hefSi þaS svo sinn afla til búinn, aS
þaS befSi aldri fyrri átt meiri aS stýra. þó sum ViggablöSin
segSu, aS þetta væri heldur stærilæti og stórmennska — enn einurS
og alvara — en rússnesku blöSin (auk fl.), aS allir væru svo
vanastir urrinu þar aS handan, aS enginn þyrfti verra að ugga,
þá mun lávarSurinn hafa ætlaS aS gera hinum þegar bendingu
um, aS hvaS sem stjórn Breta fjellist annars á meS hinum á
fundinum, þó yrSu atfarirnar undan skildar. Um þaS leyti var
(aS oss minnir) erindreki Breta, Salisbury lávarSur, aS búa sig aS
heiman til ferSarinnar. Hann hefur stjórn Indlands á höndum í
ráSaneytinu. Hann lagSi fyrst leiSina til Parísar og síSan til
Berlínar, og þarf þess eigi aS geta, aS hann vildi á bábum stöSum