Skírnir - 01.01.1877, Blaðsíða 99
PORTÚGAL.
99
bæta fjárbag ríkisins og koma J>ví úr skuldum. þetta kvaf nú
vera vel á veg komiS og tekjur ríkisins eru á síðustu árum
orSnar helmingi meiri (90 mill. króna) enn þær voru 1850.
Hjer hefir, sem í fleiri löndum á meginlandi álfu vorrar, er hafa
þingbundna stjórn, opt veriS mikiS um flokkastríS á þinginu, og
opt gengiS skrykkjótt meb ráSherraskiptin, en nú hafa framfara
og frelsismenn dregizt saman í fastan flokk, og úr honum eru
J>eir menn, sem nú skipa ráSaneyti HlöSvis konungs. Forseti
þess er markgreifinn af Avila, en sá heitir Carlos Rento da
Silva, sem stendur fyrir fjármálum, einn hinn orSlagSasti af
þingskörungum Portúgalsmanna. Avila er fyrir innan- og utan-
ríkismálum. þessi breyting á stjórninni var8 í vetur snemma í
marzmánuSi. Fyrir ráSaneytinu á undan var Fontes Pereira de
Meilo, en þa8 sagSi af sjer, er hann sýktist og varÖ ófær til
stjórnarstarfa. Annars var hann talinn mesti skörungur, og hefir
all-lengi haft stjórn á hendi, og unniö mikiS a8 fjárhagsbótum
landsins. 1875 voru ríkisskuldirnar enn 1350 mill. króna, og
árlega gengur hjerumhil helmingurinn af tekjunnm til a8 hleypa
þeim niSur og til leigna.
Látinn er (21. nóv.) hertoginn af Saldanha Oliveira, 85 ára
a8 aldri. þegar hann dó, var hann erindreki Portúgalskonungs í
Lundúnum. Hann var dótturson hins nafnfræga Pombals og
kemur mjög vi8 sögu Portúgals á þessari öld, og hefir i mart
ráðizt og i mart ratað um æfina. Hann var foringi í li8i
Portúgalsmanna, þegar Englendingar ráku Frakka út úr landinu
á dögum Napóleons fyrsta. 1825 var hann ráSherra fyri utan-
ríkismálum í Portúgal og til þess, er Don Miguel haffi brotizt
til valda. þá var8 hann a8 flýja úr landi (til Englands), en
gekk hrátt í li8 me8 Dom Pedro og dugSi honum bezt allra a8
reka Don Miguel frá ríki. 1835 varS hann stjórnarforseti hjá Maríu
drottningu (annari), og var eptir þa8 ö8ru hvoru fyrir ráSaneyti,
og neytti stundum uppreisna og ofbeldis til a8 komast f vir8-
ingarsætin. 1851 fjekk hann berinn á sitt mál til a8 reka Costa
Cabral (ófrjálslyndan og har8rá8an mann) frá stjórninni og hjelt
forsætinu til 1856. 1863—69 var hann erindreki Portúgals í
Rómahorg. 1870 var hann 79 ára a8 aldri og ljet sjer þá ekki
7*