Skírnir - 01.01.1877, Blaðsíða 158
158
SVÍÞJÓÐ OG NOREGUR.
vörum, meöan sænsk menntan birtir skilning hans og hann
elskar forn minni og kennir hita af þeim í hjarta s(nu“. Eitt
af ágætiskvæðum Runebergs heitir „Elgjaskytjarnir". þessa
kvæbis og hins, er áður var nefnt, minnist Malmström pró-
fessor saman á þessa leið: „Viðvaningar og eptirstælendur! þið
getið ekki, sem allir vita, verið án fyrirmynda og þií) vilið ekki
án slíkra vera — vendið ykkur þá til Runebergs .... Farið
til meistaranna aS læra fullsnilli ljóSamálsins, lesið annaðhvort
Ilíonsdrápu eða Elgjaskytjana, Odysseifsdrápu eða Höunu!“
Runeberg var lengi lektor við skólann í Borgá, en sagði af sjer
1857. 1863 varð hann lamalostinn af niðurfallssýki og náði
sjer aldri aptur. Hann dó sunnudaginn 6. maí og hafði Jirjú ár
um sjötugt. — Frá Noregi er tveggja manna að geta. 20- júlí
1876 dó Hans Riddervold 81 árs að aldri. Hann hafði
verið 5 ár biskup í Niðarósi. Síðan var hann fyrir kirkjumálum
Norðmanna í 24 ár. Hann stóS fastlega fyrir í röð apturhalds-
manna, en af öllum mikils metinn fyrir einurð sina og val-
mennsku. — Hinn er uppdráttsmeistarinn Adolf Tidemand,
einn af frægustu listamönnum Norðmanna í þeirri mennt.
Hann var lengi í Dússeldorf á þýzkalaudi og framaði sig og
mennt sÍDa í þeim skóla, er við þann bæ er kenndur. Eptir
hann liggja mörg meistaraverk, sem hafa hlotið mesta alræmi.
Vjer skulum nefna: „Haugjanerne" — eiuskonar trúarvingls flokk-
ur í Noregi; eru þeir menn í samkundu eða við lestur á uppdrætt-
inum. þessi uppdráttur var sendur til sýningar í Berlín (1848)
og þar þótti listafjelaginu („akademíinu“j svo mikið til hans
koma, að það veitti Tidemand hæstu verðlaun og gerði hann að
fjelaga sínum. Bændalifi Noregsmanna er lýst á mörgum ágætis-
uppdráttum Tidemands, t. d. í „Selförinni“, „Selvistinni11, „Heim-
komu bjarnveiðimannanna11 , „Aflogunum í hændabrúðkaupinu“
og ýmsum fl. þeir Gude — landsmyndameistarinn — unnu
saman að sumum fyrirtaksuppdráttum, og þeir eru t. d.: „Brúð-
förinn í IIarðangri“, „Fjarðarnóttin11, „Fiskimenn í sjáfarháska“,
auk. fl. Tidemand er fæddur í Mandal 14. ágúst 1814, dó 24.
ágúst. 1866.