Skírnir - 01.01.1877, Blaðsíða 51
51
England.
Vjer höfum vikið á í kaflanum hjer a8 framan (BO. bls.),
aS alþýSa manna á Englandi hafi breytt til munar álitum sínum
um „Austræna máliS“. Sjálfir Torýmenn eru langt í frá Tyrkjanum
svo hlynnandi eSa ríki hans, sem þeir hafa veriS, og þeim mun
vart nokkurn tíma koma þaS framar í hug, a8 leggja svo mikiS
til því til halds og hlífSar, sem innt var af höndum í Krímeyjar-
stríSinu. En þó verSur munurinn meiri, þegar miSaS er vi8
Vigga og þeirra liS. þegar uppreisnin hafSi byrjaS í Bosníu og
Herzegovínu fyrir tveim árum, heyrSist þaS af Jóni gamlaRussel,
aS hann hefSi ritaS brjef til þeirrar nefndar, sem gekkst fyrir
samskotum handa uppreisnarmönnum, og látiS því fylgja 50 pund
sterlinga. Oss minnir vera sagt, aS hann hefSi komizt svo aS
orSi í brjefinu, aS hann vildi gefa miklu meira til, aS uppreisnin
drægi til þess, aS Tyrkir yrSu reknir frá öllum rá&um og völdum
í Evrópu. ViS slíkum ummælum höfSu fæstir búizt af Russel
jarli, og menn kölluSu bann gamalæran orSinn, en þaS hefir þó
sýnt sig síSan, aS þau elliglöp hafa sótt fleiri enn þá á Eng-
landi, sem á hans aldur eru komnir. Vjer höfum því minnzt á
enn gamla mann, aS hann hefir bæSi haft aldursforustu þeirra
manna, sem vilja nú gagnstætt horf taka í málunum eystra viS
þaS, sem Englendingar hafa lengi stefnt í, og aS hann hefir orSiS
því harSskeyttari á móti Tyrkjanum, sem úrslitin drógust lengur,
en fleiri og fleiri fárstíSindi heyrSust frá Balkansskaga. í sumar
leiS skrifaSi hann Granville lávarSi brjef, og tók þar fram, aS
stjórnarstefna Pitts væri úreld og Englandi til meiri vanza enn
gagns og sæmda, en hitt væri nú sæmra, aS gera aS dæmi Cann-
ings 1827, er hann gerSi bandalag viS Rússa og Frakka. Slíks
væri enn kostur, og svo mundi öllum betur gegna. Nokkru síSar
gekkst hann fyrir ávarpi til stjórnarinnar frá forstöSunefnd þess
fjelags, sem beitist fyrir aSstoS viS kristna menn á Tyrklandi,
og voru fyrst þar upp talin illvirki Tyrkja, en síSan sagt, aS
kristna fólkiS þar eystra yrSi aldri griSa og friSar aS njótandi,
fyr enn þaS yrSi til fulls og alls óháS Tyrkjum. Einnig var
skorab á stjórnina, aS synja alls fulltingis, þar sem Tyrkir ætti í
4*