Skírnir - 01.01.1877, Qupperneq 39
AUSTRÆNA MÁLIÐ.
39
inn, og þarf eigi eptir a8 spyrja, hva8 nú tók vi8. Hafi kristnir
menn ekki veriS búnir a8 slökkva í því sem inn á þá var kastaS,
þá geröu Tyrkir þa8 nú meb bló8i þeirra. Hjer var nálega hvert
mannsbarn drepið. Baring talaSi vi8 aldraða konn, sem tyrk-
neskur maSur hafSi ná8 í og skotiS undan. Hún var alein eptir
af sjö skyldmennum, sem í kirkjuna höfSu flúið. Baring kom til
Bataks IV2 mánuSi frá því aö þessir atburSir höfSu or8i8, og
gekk inn í kirkjuna og sá þar hræðileg verksummerki. Ekki
eitt einasta lík var enn jarðað, en hver lá þar sem falliö hafði.
Odaunninn var svo mikill, a8 fáir þoldu a8 koma í nánd vi8
kirkjugarSinn. Um öll stræti bæjarins iáu limir e8a partar af
líkum, sem rotnuSu í sólarhitanum. Hann sá þar margar klofnar
hauskúpur af konum sem körlum, og sýnir þetta, a8 bö81unum
hefir þótt sjer meiri svölun í a8 vinna á fólkinu me8 höggvopn-
um enn me8 skotum. Fyrir utan bæinn fundust í holu 60 haus-
kúpur, og þa8 var hægt a8 sjá, a8 öll þau höfuS höf8u veri8
af höggin af bolunum. í bænum höf8u búi8 6500 manna, en
tala þeirra, sem lifs komust undan var ekki meir enn 1500.
Batak var talinn efna8ur bær, me8 góSri kaupverzlun, sjerílagi
vi8arverzlun og voru þar margar sögunarmylnur, en þær
og allan viSinn höfbu Tyrkir brennt, og hjer sera víSar rænt
öllum fjenaSi og hestum. Sá li8sforinginn — Achmed —, sem
stýr8i atförunum, fjekk Medjidie-or8una í laun fyrir frammistö8u
sína. Eptir sögu Barings var áþekk me8fer8 Tyrkja á ö8rum
bæ, sem Otloukeri heitir. Hjer voru 2000 húsa, en af þeim
brenndu Tyrkir 400—500, og þar á me8al skóla og kirkjur. þar
drápu þeir alls 1700 manna, en af þeim voru 1000 frá lands-
bygg8inni umhverfis bæinn, sem þangab höf8u leita3 til skjóls og
athvarfs. Vjer ver8um þó a8 geta þess, a8 skýrsla Schuylers,
sem fyr var nefndur, segir a8 hjer muni hafa veri8 myrtir allt
a8 3000 manna. Hún tilgreinir líka mörg sjerstök dæmi um
ótrúlega grimmd Tyrkja, hvernig þeir píndu og kvöldu marga
menn — sjerílagi presta og a8ra, er meira mót var a8 — á8ur
þeir veittu þeim fullan bana, hvernig þetta fór fram í augsýn
foreldra, systkina og nánustu vandamanna, hvernig konum — já
dætrunum fyrir augum foreldra sinna — var misþyrmt, hvernig