Skírnir - 01.01.1884, Side 24
26
ENGLAN'D.
— og vjer vonum þess muni ekki lengi að bíða — þá kveðj-
um vjer her vorn heim aptur, og þykjumst þá hafa til góðra
þakka unnið.“ En það er einmitt þessi von um erinðislokin,
sem margir vilja ekki leggja trúnað á, en segja, að Gladstone
dragi sig sjálfan á tálar, þvi undir eins og Englendingar
sleppi tökunum á Egiptalandi, í stað hins að gera þau harðari,
þá muni allt sækja aptur i gamalt horf, og það muni allt til
ónýtis unnið, sem gert hefir verið, og svo mikils hefir verið til
kostað. Mönnum þótti það bragð Beaconsfield likara enn
Gladstone, þegar hann rjezt til atfara á Egiptalandi, en fulla
sæmd fær hann og Viggaliðar ekki fyr af málunum, enn það
hefir unnizt, sem til var stefnt, að koma þar allri landstjórn í
fastar stellingar. En menn spyrja: verður þetta fyr enn hún er
með öllu komin í hendur Englendinga, og kedifinn er þeirra
jarl orðinn i raun rjettri? Siðara hlut ársins tóku heldur að
vandast málin fyrir Englendingum þar syðra. Nýr spámaður
reis upp í Súdan, þar sem Egiptar hafa lagt undir sig mikil
lönd og frjófsöm, og yarð honum svo gott til liðs, að hann
stráfelldi heila herflokka af landvarnarliði kedífsins. Hingað
hefir fjöldi af lcristnu fólki farið til bólfestu, og Englendingar
hafa frá öndverðu eggjað Egiptajarl að auka riki sitt þar syðra,
og um leið að hepta þrælaverzlun Araba, sem svo lengi hefir
legið ríkt í landi á þeim slóðum. Að þessu hefir verið kapp-
samlega unnið, enda hafa sumir landstjórar jarlsins verið ensk-
ir að kyni, og mestu skörungar. Fari nú svo sem þegar
hafði borizt um áramótin, að Gladstone ætli að láta jarlinn
gefa upp mestan hluta landeigna sinna þar syðra, þá munu
margir segja, að Englendingum hefði mátt betur farast við
skjólstæðing sinn, en engi um hitt efast, að allur nýgræðingur
betri siða verði þar upp rættur. Vjer verðum nú að vísa til
frjettana frá Egiptalandi, en þar mun oss kostur að bæta því
við, hvað Gladstone hafi orðið til bjargkviðar í þessu máli,
sem nær hafði orðið stjórninni að fótakefli, er þetta var skrif-
að (i febr.).
Menn efast lika um ráðsnillð Viggastjórnarinnar á öðrum
stað, en það er á Afganalandi. Disraeli ætlaði að gera þetta