Skírnir - 01.01.1884, Blaðsíða 102
104
AUSTURRÍK[ OG UNGVERJALAND.
stunga þess manns af þýzka fiokkinum, sem Wurmbrand heitir,
borin upp fyrir þrernur árum, og fór fram á, að hafa þýzkuna
eina í dómum og landstjórnarmálum. Nefnd var sett til
álitagerðar, en meiri hlutinn rjeð til að fella þá uppástungu,
en haga reglugerðum fyrir hvert land eptir ásigkomulagi og
láta þar hverja tunguna ráða, sem hún rikust væri. Hitt málið
var frumvarp til breytinga á skólalögunum (alþýðuskóla eða
barnaskóla) frá 1869, og fór það fram á að stytta námstima
barna eða skyldunám þeirra, um 2 ár, einkum í sveitabyggðum,
og sú trúfræði skyldi að eins kennd í hverjum slcóla, sem flest
barnanna væru borin til, þ. e. að skilja: hinum skyldi skólunum
ekki skylt að útvega kennara í trúfræði. Út af báðum mál-
unum reis svo mikil hávaðarimma í fulltrúadeildinni, sem allt
ætlaði af göflum að ganga. Hvað eptir annað varð forsetinn
að gripa fram í og hepta frekjuyrðin, og opt hlaut hann að
vísa þeim út úr þinghöllini, sem á hlýddu, ólátanna vegna.
f>að var stöðugt viðkvæði þjóðverja, að hinir vildu leysa ríkið
í sundur, og Austurríki hlyti að líða undir lok, efTaffe og hans
sessunautar ættu langt eptir stjórnardaganna. Stjórnarsinnar
kváðu þó þetta helzt í vændum, ef skörungar þjóðverja næðu
aptur taumhaldinu. I skóladeilunni klifuðu þjóðverjar á því,
að nú ætti páfadómurinn allt að svelgja, og það tjáði ekki að
menn röktu fram fyrir þeim, að hjer yrði í rauninni engi
breyting gerð á neinu, og þeir (þýzku ráðherrarnir) hefðu
sjálfir ekki getað sjeð öllum börnunum borgið, börn prótestanta
og Gyðinga hefðu þá orðið út undan, og svo mundi enn
fara. Kaþólskir klerkar ættu eptir lögunum frá 1869 að
kenna trúfræðina, og þeir mundu sízt láta börnin kaþólsku
ganga sjálfala í trúarefnum. Rimman um þetta mál stóð í
14 daga, og með þvi að liðsmunurinn er lítill i fulltrúadeildinni,
þá treystu þjóðverjar því upp á síðkastið, að fulltrúarnir frá
Dalmatiu mundu ekki koma til siðustu umræðu, en þeim brást
sú von þegar til kom. Um þetta komst eitt þýzka blaðið svo
að orði: „Hið helga mál fólksuppfræðingarinnar á nú allt undir
atkvæðum fulltrúanna frá Dalmatíu; undir þeim er það þá
komið, hvort straumur hinna andlegu framfara á einni höfuð-