Skírnir - 01.01.1884, Qupperneq 27
ENGLAND.
29
að lögum. Nokkru áður (i ágúst) hafði mjög fjölsóttur fundur
verið haldinn um þetta mál, og fylgdu þeir Bright og Forster
því með snjöllum og góðvildarfullum ummælum. Bright minnt-
ist á, að hjer væri ekki fram á annað farið, enn það sem Vik-
toria drotning hefði heitið Indverjum, þegar hún tók keisara-
tignina, að þeir, sem sje, skyldu njóta fulls jafnrjettis við menn
frá Evrópu og eiga jafnan kost við þá á öllum embættum.
Slikt yrði fortakslaust að efna, ef Indland ætti ekki undan að
ganga.') Alyktargreinir fundarins urðu þær, sem Forster stakk
upp á, að Nipon lávarður ætti bæði þakkir og traust skilið
fyrir frammistöðu sína á Indlandi, og að fundarmenn íjellust á
»Ilbertska“ frumvarpið i öllum þess atriðum, er það gerði ind-
verska dómara enskum dómendum jafnsnjalla, og gæfi eins
drottinhollum og vel viti bornum mönnum og Indverjar væru,
kost á að skipa sæti í borgaráðum sínum. Fundarmenn
samþykktu þær í einu hljóði.
það er þegar sagt um nýlendur Englendinga í Astralíu,
að þær vildu helga sjer (Englandi) eylönd í Kyrrahafinu. þó
') Bright gamli er «kvekari» og hatar alla kúgun og styrjöld rnanna
og þjóða á milli. Hann var í hitt eð fyrra í ráðaneytinu með
Gladstone, þegar dró að tíðindunum sem urðu á Egiptalandi, en
gekk úr því, þegar skjóta skyldi á Alexandriu. Hans lcenning er
sú — þráfaldlega endurtekin —, að Englendingar hljóti að bæta
ráð sitt, hætta að úthella blóði og ausa fje út til að kúga aðrar
þjóðir, eða bera þær ráðum, sem þeir hafi gert í 200 ára •— eða
hætta að feta í fótspor keisaranna á meginlandinu og Rómverja í
fornöld. þeim sje hollara að eiga heldur við hinu búið, að 35
millíonum manna muni ekki vinnast að drottna yfir 250 millíón-
um í fjarlægustu landsálfum, þegar til lengdar leiki. þeim beri að
minnast málalokanna í Vesturheimi, því að líku muni víðar reka.
Fyrst muni Kanada hefja sínar kvaðir, þá Ástralía og síðast Ind-
land: kvaðir meira og meira sjálfsforræðis, en seinast verði krafizt
fulls skilnaðar við England, að því er yfirboðið snerti. Hann
segir líka, að Englendingar hljóti að gera yfirbót fyr glöp sín og
glæpi á Irlandi, því, öll vandræðin írsku nú á dögum standi
af kúgun og órjettlæti.