Skírnir - 01.01.1884, Blaðsíða 45
ENGLAND.
47
framhleypinganni hefði ekki verið um að kenna, en smíðinni,
er skipið var svo ofanþungt, að það vart gat flotið án drjúgrar
kjölfestu. Hjer drukknuðu 124 menn, og leið á löngu áður
menn gátu fundið líkin eða náð þeim.
I borginni Sunderland bar það til hörmunga 16. dagjúní-
'mánaðar, að sjónarleikur var börnum haldinn í leikkúsí þvi,
sem Victoria Hall heitir. Aðgangur ódýr (712 eyrir), en þar
komast fyrir 3000 manna. Börnin voru um 2000, og af þeim
1100 uppi á handriðspöllum umhverfis. Eptir þá skemmtun
skyldi smágjöfum útbýtt meðal barnanna, og vildu þau sem
uppi voru verða hjer sízt varhluta. f>au runnu niður stigann,
en þar var að ganga um einskonar smugudyr fyrir einn j
senn, þegar upp var gengið, og þar við borgun tekið. þessi
slagbrandur var ekki á burt færður, þegar börnin komu niður
stigann, og nú varð fyrirstaða og þrengsli, en þau börnin sem
aptast stóðu, vissu ekki hvað olli. Allt lenti i einni þvögu, og
í ósköpunum tróðust smámennin undir, áður nokkru varð við-
komið til öptrunar eða bjargar. Eitthvað um 200 barna ljetu
hjer lífið, en mörg borin á burt hörmulega útleikin.
Mannálat. 5. júlí andaðist heldur snögglega hertoginn
„afMarlborough11, 61 árs að aldri. Hann var mikill skör-
ungur í liði Tórýmanna, og kallaður mesti forvígismaður fyrir
rjetti „hákirkjunnar“ á Englandi. Frá 1876 og til þess Glad-
stone tók við af Beaconsfield jarli, var hann varakonungur á Ir-
landi, og var mikið látið af dug hans og stjórnsemi. Hann
var einn af niðjum Marlboroughs hertoga, hfershöfðingjans
fræga á undanfarandi öld. Yngri sonur hans er sá þingmaður
sem heitir Churchill lávarður. Hann er manna djarfmæltastur
og óbilgjarnastur í atgöngum gegn ráðaneytinu, en svo vel
máli farinn, að menn Hkja honum við Disraeli. — 26. júlí dó
hinn frægi hershöfðingi Fennick Williams, sem vann sjer
mestan orztír, er hann varði svo lengi Karskastala gegn Rússum 1855.
Hann vann þar frægilegan sigur á Murawieff, en hlaut um síðir
að gefa upp kastalann vegna vistaþrota og hungursneyðar.
Eptir heimkomuna til Englands hlaut hann mikil heiðurslaun
(1000 p. sterl. um árið) og miklar virðingar. Hann hafði þrjá