Skírnir - 01.01.1884, Page 140
142
DANMÖRK.
lögfræðingadeiidinni. Undir kirkjuráðið getur ráðherrann borið
þau nýfriæli til laga, eða þær umboðslegar ráðstafanir, sem
honum þykir þörf á að ráðgast við það um, en því er lika
heimilt að vekja máls á enu sama við ráðherrann, þegar svo
ber undir.
„það er gömul góð venja“ og svo frv, segja þeir opt til
upphafs, sem mæla fyrir konungsminni — og „Skirnir11 vill
ekki bregða af sinni venju, að minnast tíðinda frá hirð konungs
vors, ferða hans og drottningar og annara konungmenna,
heimsókna tiginna höfðifrgja, og svo frv. Krónprinsinn og
kona hans komu úr ferð sinni til suðurlanda (sjá „Skírni“ í
fyrra 139. bls.) 21. maí. jþann 28. ferðaðist konungar til baða
í Wiesbaden, og meðan hann dvaldi þar, kom Vilhjálmur
keisari tii bæjarins, á ferð sinni til Ems (annars baðabæs).
Konungur tók á móti honum á járnbrautarstöðinni, og óku
þeir i einum vagni inn i bæinn við mikinn fögnuð af bæjar-
manna hálfu. Keisarinn biðlokaði þar í tvær stundir, eða
iengur, og á þeim tíma heimsótti hvor annan, og fór allt með
þeim sem blíðast og vingjarnlegast. Konungur kom heim aptur
24. júní, en fór skömmu síðar ásamt drottningunni, krónprins-
inum og konu hans og prinsunum til sýningarinnar i Alaborg,
sem fyr er á minnzt. 1 júli keimsótti'konungar vor og konungs-
fólkið Svíakonung og drottningu hans á Skáni. í ágúst byrjuðu
beimsóknir tigna fólksins, og kvað svo mikjð qð þeim, að i
Danmörku mun aldri hafa sjest annað eins fjölkvæmi frá út-
lendum hirðum. þ>að voru dætur konungs allar og mágar
hans tveir, Georg konungur frá Grikklandi og drotting hans,
og fylgdu þeim flest barna þeirra, eða barnabörn þeirra
konungs og drottningar. Konungur hafði sumarsetur í Fredens-
borg, og hjer var við gestunum tekið með öllu þeirra fylgdar-
liði. J>ó sá hallargarður sje allmikill, mun hjer hafa verið
fullskipað, og sáttir mátt þröngt sitja, þegar fjölmennast var.
Einn daginn kom þangað Svíakonungur, drottning hans og
synir þeirra tveir, hinir yngstu, en þéir hertoginn af Cambridge,
frændi Viktoríudrottingar, og krónprinsinn frá Portúgal sátu þar
rúman vikutíma.