Skírnir - 01.01.1884, Page 172
174
SÍNVERJALAND.
þó höfðu þeir á þeirra iiði barið. Hina síðustu borg unnu
þeir í marz, og biða þá enn átekta. f>egar ekkert heyrðist var
maður sendur á fund Li-Hung-Changs (i mai), og skyldi leita
um sættir. |>ví var greiðlega tekið, enda mun varakonung-
urinn hafa þá þegar svo undir búið, að nú voru flestir orðnir
striði afhuga, og það þótti líka gott til marks, að stjórnin í
Peking hafði kvatt Tseng heim frá erindarekstrinum. Höfuð-
atriði sáttmálans eru þau, að Anam og Tongking skulu vera á
verndarvaldi Frakka, en Sínlendingar skulu engar bsetur gjalda
fyrir þær sakir, er á þeim þóttu standa. Enn fremur leyfa
þeir verzlan og samgöngur við þrjú lönd sín hin suðlægu,
Yunnan, Kvangsí og Kvangtang. f>etta urðu þá þær málalyktir,
sem vjer sögðum að bíða yrði eptir i Frakklandsþætti (64—
65. bls.).
Japan.
Hjeðan er tíðindalaust að kalla. Japanskeisari eflir flota
sinn ár af ári, og í honum voru i byrjun umliðins árs 5 gufu-
skip og 26 undir seglum. Öðrum umbótum á Evrópuvísu i
lögum og landstjórn er framhaldið sem fyr, og fólkið semur
sig nú við þær nýjungar með auðveldera móti enn áður. Vjer
gátum þess í fyrra, sem sýndi, að prestarnir vilja ekki vera
annara eptirbátar, þar sem um betri og nýja hætti ræðir.